Dagur - 22.07.1999, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Yfir 10.000 fylgjendur Falun Gong söfnuðust saman á friðsaman mótmælafund við aðsetur forsetans í apríl sl.
Áhangendur þessa trúarsamfélags sýnast vera vel skipulagðir þótt söfnuðir séu ekki formlegir né eigi sér musteri
eða kirkjur. Nú hafa stjórnvöld skorið upp herör gegn Falun Gong og eru leiðtogar handteknir, rít gerð upptæk
og mótmælagöngur stöðvaðar.
Hugleiðsla og Hkams-
rækt ógnar Kínaveldi
Kommúnistastjórnin í Kína hef-
ur eignast nýjan óvin sem ógnar
alræðinu og er farinn að setja
svip sinn á stjórnmálin þar í
Iandi. Trúarbrögðin Falun Gong,
sem voru kynnt árið 1992, hafa
nú yfir 100 milljónir áhangenda
í ótal söfnuðum. Þau eru eins
konar blanda af Búddisma og
Taoisma og er hugleiðsla og heil-
brigt líferni undirstaða þess
hjálpræðis sem leiðtoginn Li
Hougzhi boðar trúuðum.
I júnímánuði sl. gáfu kínversk
stjórnvöld út tilkynningu um að
iðkun Falun Gong væri ekki
bönnuð, en varað var við að
meðlimir boðuðu fagnaðarerindi
sín og að þeir breiddu út kenn-
ingar sem röskuðu allsherjarfriði
í ríkinu. Ahangendur svöruðu
með því að ekki væri um skipu-
leg trúarbrögð að ræða og ættu
þeir sér hvorki musteri né kirkj-
ur.
Undanfarið hafa iðkendur
Falun Gong fært sig upp á skaft-
ið og eru mótmælagöngur og
Ijöldafundir tíðir. Mótmælt er
banni stjórnvalda á því að trúin
sé breidd út og hjálpræðið boð-
að. I gær dró svo til tíðinda þeg-
ar lögregla Ieysti upp mótmæla-
fund við höfuðstöðvar Kommún-
istaOokksins í Beijing. Fréttir
bárust um að allt að þúsund
manns væru í gæslu á íþrótta-
leikvangi vestur af höfuðborg-
inni.
Mótmælaaldan hófst sl.
þriðjudag þegar 70 leiðtogar
Falun Gong voru handteknir
víðs vegar um landið. Þúsundir
hafa farið í göngur í fjölda borga.
í gær, miðvikudag, hófu mót-
mælendur göngu að Zhongnan-
hai, þar sem aðsetur stjórnarinn-
ar er. Hundruð Iögreglumanna,
einkénnisklæddir og í borgara-
legum fatnaði, stöðvuðu göng-
una, sem í voru aðallega konur á
miðjum aldri. Fjöldi þeirra var
handtekinn og var ekið á brott í
Iögreglubílum. Sjónarvottar telja
Baksvid
Falirn Gong eru trúar-
brögö sem breiðast
óðfluga út í Kína og
er svo komið að
stjómvöld em farin
að ofsækja áhangend-
ur, handsama leið-
toga og banna fjölda-
samkomur. Farið er
að vara meðlimi
Kommúnistaflokks-
ins við að verða ekki
„lijátrúimi“ að hráð
en halda sig við efnis-
hyggjn og marxisma.
að allt að 2000 manns hafi verið
sviptir frelsi til að ganga um göt-
ur Beijing.
Mannréttindahópar í Hong
Kong og á meginlandi Kína
halda því fram, að stjórnvöld
hafi ákveðið að láta til skarar
skríða gegn Falun Gong og skip-
að lögreglu að handtaka leiðtoga
vítt og breitt um landið og gera
rit um trúarbrögðin upptæk.
Sömuleiðis voru myndir af leið-
toganum og gripir sem minna á
hann gerðir upptækir. I Gu-
angzhou og Shenzhen voru að
minnsta kosti hundrað manns
handteknir þegar Falun Gong
söfnuðir komu saman til morg-
unæfinga.
AHlangt er síðan trúaðir fóru
að láta á sér bera. I apríl sl.
komu um 10 þúsund manns
saman við bústað Jiang Zemin
forseta til að mótmæla harðýðgi
sem söfnuðir eru beittir. Slík
ósvífni má ekki endurtaka sig.
Kommúnistaflokkurinn hóf í
síðasta mánuði herferð gegn hjá-
trú, eins og trúarbrögð og trúar-
iðkun eru kölluð opinberlega.
Einkum var því beint til félaga í
flokknum að láta ekki glepjast af
Li Hongzhi er talinn stofnandi og
leiðtogi Falun Gong eða Falun Dafa
eins og trúarbrögðin eða hreyfingin
eru einnig kölluð. Þau voru stofnuð
1992 af Li sem þá var opinber
embættismaður í Kína en býr nú í
Bandaríkjunum og ferðast um
heiminn og boðar kenningar sínar
um hugleiðslu og heilbrigt Ííferni.
Áhangendur eru sagðir vera ekki
færri en 100 milljónir.
villukenningum en halda sig við
kommúnska efnishyggju og kór-
réttan Marxisma. Minnt er á að
trúarbrögðin eru ópíum fyrir
fólkið og að allt sem eitrað getur
sálirnar ber að varast.
Falun Gong eru ekki einu trú-
arbrögðin sem sækja á í Kína.
búddadómur og kristni sækja
mjög á og fjölgar söfnuðum og
fólki sem tekur þátt í trúarlífi.
Ástæðan er sögð sú, að eftir að
upplýst var að Maó formaður var
ekki óskeikull og kenningar hans
smánaðar af stjórnendum flokks
og ríkis, myndaðist tómarúm
sem nú er að fyllast af þeim sem
finna hjá sér trúarþörf og leita
háleitari markmiða en marxismi
harðneskjulegra kommúnista-
flokka nær að fullnægja.
Falun Gong á sér áhangendur
og iðkendur í öllum heimsálfum
og leiðtoginn ferðast um heirn-
inn og boðar ögnaðarerindi
íhugunar og líkamsræktar. Bæk-
ur og ritlingar um hjálpræðið eru
gefnir út og trúuðum fjölgar.
Undirstaðan er hugleiðsla og
fimm æfingar sem auðvelt er að
Iæra og iðka, en eru samt árang-
ursríkar. Þessi kokteill ógnar nú
Kínaveldi.
Lík Kennedys fundið
Lík Kennedys yngra fannst í gær.
Var það í skrokki flugvélarinnar
sem leitað hefur verið síðan á
þriðjudag. Vélin fannst á 30
metra dýpi tólf km suðvestur af
strönd eyjarinnar Marthas Viney-
ard, en þangað var förinni heitið.
Það var myndavél í fjarstýrðum
kafbáti sem notuð var við Ieitina,
sem varð til þess að flugvélarflak-
ið og líkið fundust. Lík eiginkonu
hans og mágkonu voru ekki fund-
in í gær, en leit að þeim var hald-
ið áfram.
Af rannsóknargögnum má ráða
að flugvél Kennedys hafi skollið í
hafið á mun meiri hraða en áður
var vitað. Radarslóð vélarinnar
hefur verið rakin og sést þar að
eitthvað fór úrskeiðis þegar um
20 km voru eftir til eyjarinnar.
Vélin hækkaði flugið um 30
metra og steyptist síðan í hafið.
Kennedy hafði aðeins eitt hundrað flugtíma að baki og hafði
ekki blindflugsréttindi.
John F. Kennedy yngri. Lík hans er
nú fundið og verður hann jarðsett-
ur við hlið föður síns í Aríington-
kirkjugarði í Washington.
Frelsisheriim skilar vopnuin
Frestur Frelsishers Kosovo til að skila vopnum sínum í hendur
friðargæsluliða NATO rann út í gær. Talsverðu hefur verið skilað
af öflugum vopnum, svo sem eldflaugum til að granda skriðdrek-
um og flugvélum, sprenguvörpum og kröftugum vélbyssum. Her-
mennirnir fá að halda léttari vopnum fyrst um sinn en er gert að
skila þeim síðar nema veiðirifflum og vopnum sem ekki eru ætiuð
til manndrápa.
Ekki er búist við að öllum vopnum verði skilað. En hve vel vopn-
aðir Kosovo-Albanar verða er ekki gott að vita, þar sem fjöldi her-
manna þeirra er óráðinn og engin skrá er til yfir þau vopn sem þeir
ráða yfir. Mikilvægt er að sem mestu af vopnunum verði skilað því
gæsluliðar óttast að þau verði notuð til hefnda vegna ógnarverka
Serba í héraðinu.
Fundi sem fulltrúar NATO og Rússa áttu sækja í Brussel hefur
verið frestað. Ræða átti hlutverk rússnesku friðargæsluliðanna í
Kosovo, en ágreiningur er um hvert hlutverk þeirra á að vera.
Margir rússneskir hermenn eru nú í héraðinu en taka lítinn þátt í
gæslustörfum, enda munu liðsveitir NATO kæra sig lítið um veru
þeirra þar eða að þeir séu að skipta sér af málum. En Rússar eru
hliðhollir Serbum og drógu sig út úr öllu samstarfi við NATO á
meðan loftárásirnar dundu á Júgóslavíu.
Varad við upplausn Júgóslavíu
Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, varar nú við upp-
lausninni sem óhjákvæmilega bíður Júgóslavíu ef ekki berst utan-
aðkomandi aðstoð. Hann sagði að það væri í þágu nærliggjandi
þjóða að komið væri í veg fyrir upplausnina.
Vestræn ríki hafa ákveðið að veita Júgóslavíu enga aðstoð til
uppbyggingar nema Milosevic verði vikið úr forsetastóli. Stofnan-
ir ríkisins eru í uppnámi, orkuver og samgöngukerfi rústir einar,
atvinnulíf og viðskipti á brauðfótum og framtíðin síður en svo
björt. Þegar vetrar er hætta á að sverfi að fyrir alvöru. Þá er hætt
við að fólksflótti verði svo mikill að önnur lönd ráði ekki við að
taka á móti öllum þeim fjölda sem Ieitar sér bjargar meðal annarra
þjóða.
Þótt Milosevic og flokkur hans njóti ekki stuðnings nema lítils
hluta þjóðarinnar er stjórnarandstaðan lítið skárri, því leiðtogar
hennar koma sér ekki saman um eitt né neitt og líta hver á annan
sem erkióvini.
Áskriftarsíminn er
8oo 7080