Dagur - 22.07.1999, Page 13
FIMMTUBAGUB 22. JÚLÍ 1999 - 13" -
ÍÞRÓTTIR
Stefnlr í harða haráttu mill
IR og FH í stigakeppninni
Meistaramót íslands í
frjálsum íþróttum fer
fram á Kópavogsvelli
um næstu helgi og er
húist við spennandi
keppni í öllum grein-
um.
Frjálsíþróttadeild Breiðabliks
verður framkvæmdaaðili Meist-
aramóts Islands í frjálsum íþrótt-
um, sem hefst á Kópavogsvelli á
laugardaginn. Að sögn Magnúsar
Jakobssonar, mótsstjóra, hefst
mótið með undanrásum á Iaug-
ardagsmorgun klukkan 10:00,
en sjálf setningin þó ekki fyrr en
klukkan 13:50 og síðan úrslita-
keppnin klukkan 14:00.
182 keppendur
frá 19 félögum
„Setning mótsins mun hefjast
með Ieik skólahljómsveitar
Kópavogs og síðan mun forseti
bæjarstjórnar Kópavogs setja
mótið. Armann J. Lárusson, fyrr-
um kastari og glímukappi, mun
verða sérstakur heiðursgestur
mótsins, en hann keppti í mörg
ár fyrir Breiðablik. Hann gaf fé-
laginu allt verðlaunasafnið sitt
nýlega og hefur það nú verið sett
upp í Smáranum.
Alls eru 182 einstaklingar frá
19 félögum og samböndum
skráðir til keppni á mótinu og
verður keppt í alls 37 greinum
karla og kvenna. FH-ingar mæta
með stærsta hópinn á mótið, eða
alls 41 keppanda, og IR-ingar,
koma þar næstir með 36. Síðan
kemur HSK með 24 keppendur
og önnur félög með nokkuð
færri. Keppendur koma frá flest
öllum héraðssamböndunum úti
á Iandsbyggðinni, en þó söknum
við Þingeyinga og Austfirðinga,
sem eldd eru meðal þátttakenda
á þessu móti. Hjá þeim hafa orð-
ið nokkur kynslóðaskipti að und-
Vala Flosadóttir.
anförnu, þannig að þeir eru að
byggja upp aftur og verða örugg-
lega með á næstu mótum.
Allir bestu
skráðir til keppni
Allt okkar besta afreksfólk er
skráð til keppni á mótinu og þar
á meðal eru allir sem náð hafa
lágmörkunum inn á HM í
Sevilla, en það eru þær Vala
Flosadóttir, Þórey Edda Elísdótt-
ir, Guðrún Arnardóttir, Marta
Ernstdóttir og síðan Jón Arnar
Magnússon. Einnig verða þau
Vigdís Guðjónsdóttir, spjótkast-
ari, og Einar Karl Hjartarson,
hástökkvari, meðal keppenda, en
bæði eru þau að beijast við að ná
lágmörkunum inn á HM. Athygl-
in mun því aðallega beinast að
þessum keppendum, sem eru
okkar toppfólk í dag. Einnig má
búast við góðum árangri hjá
unga fólkinu, en við eigum nú
margt ungt og efnilegt frjálsí-
þróttafólk, sem hefur verið að ná
mjög góðum árangri að undan-
förnu. Eitthvað er um meiðsl og
til dæmis eru þeir Magnús Aron
Hallgrímsson, Jón Asgrímsson
og Sveinn Þórarinsson frá vegna
meiðsla og er þar skarð fyrir
skildi," sagði Magnús.
Stefán HáUgrímsson
aftur í baráttunni
Það vekur athygli í mótaskránni
að þar vantar nöfn nokkurra
Jón Arnar Magnússon.
þekktra keppenda sem voru
meðal keppenda í fyrra. Þar má
nefna Þórdísi Gísladóttur, há-
stökkvara, Pétur Guðmundsson,
kúluvarpara, Sigmar Vilhjálms-
son, spjótkastara og Sunnu
Gestsdóttur, spretthlaupara, sem
öll unnu til Islandsmeistaratitla
á síðasta meistaramóti.
Eitt nafn vekur sérstaka at-
hygli í mótaskránni, en það er
Stefán Hallgrímsson, tugþraut-
arkappinn kunni á árum áður,
sem er skráður til keppni í 400 m
grindahlaupi. Stefán á ennþá
Guðrún Arnardóttir.
meistaramótsmetið í greininni,
sem er 52,87 sek., sett árið
1981. Stefán tekur nú aftur fram
keppnisskóna eftir nokkurt hlé,
en heyrst hefur af honum á ein-
hverjum mótum fyrr í sumar.
FH og ÍR sterkust
á pappíruntun
Auk þess að vera einstak-
Iingskeppni er meistaramótið
einnig stigakeppni milli félaga,
sem gerir mótið mun meira
spennandi og skemmtilegra. Að
sögn Vésteins Hafsteinssonar,
Einar Karl Hjartarson.
verkefnisstjóra olympíuhóps
FRI, á hann þar von á mikilli
baráttu á milli IR-inga og FH-
inga, eins og reyndar á síðasta
meistaramóti, en þá höfðu IR-
ingar vinninginn.
„FH og IR eru sterkust á papp-
írunum og baráttan um toppinn
mun líklega standa á milli þeirra.
Einnig er HSK með nokkuð öfl-
ugt lið og gæti hæglega blandað
sér í þá baráttu, þar sem nokkuð
er um forföll hjá bæði ÍR og
FH,“ sagði Vésteinn.
ítalir heimsdeildarmeistarar
Giovanni sést hér skella boltan-
um í leik ítala í heimsdeildinni.
ítalir urðu um helgina heims-
deildarmeistarar í blaki er þeir
lögðu Kúbveija að velli í hörku-
spennandi úrslitaleik, 3-1. Aður
höfðu Italir unnið Iið Rússa í
undanúrslitum 3-1, en Kúba
vann öruggan sigur á liði Brasil-
íumanna, 3-0.
Urslitaleikurinn var hörku-
spennandi allt frá byijun, en það
var þó sérstaklega Ijórða og síð-
asta hrinan sem var skemmtileg-
ust. Spennan hélst allt fram á
síðustu stundu, er Italir náðu að
skora og tryggja sér sigur í hrin-
unni 26-24 og 3-1 í hrinum talið.
Hinar þijár hrinurnar fóru þann-
ig að ítalir unnu íyrstu hrinuna
25-21 og þá þriðju 19-25, en
Kúbveijar unnu aðra hrinuna,
25-23. Þetta var í sjöunda skipt-
ið á síðustu átta heimsdeildar-
mótum sem Italir stóðu uppi
sem sigurvegarar.
I leiknum um þriðja sætið
unnu Brasilíumenn Rússa, 3-1.
Hrinumar fóru þannig að Rússar
unnu fyrstu hrinuna 17-25, en
Brasilíumenn unnu þrjár þær
næstu 25-23, 25-20 og 25-19.
AÞM
ÍÞR Ó T TA VIÐTALIÐ
Akveðnir í að rífa okknr upp
nr öldudalnum
SteinarDagur
Adolfsson
leikmaðurKongsvinger.
Steinar DagurAdolfsson
varfyrirliðiKotigsvinger í
æfingaleíknum gegn Celt-
ic á þriðjudaginti. Steinar
áttifínati ieik ogþað átti
botnliðið Kongsvitiger líka
þrátt fyrir tap gegn skoska
risanum.
- Þú varst fyrirliði Kotigsvinger
í dag. Er það liður í uppbygg-
ingunni að skipta utnfyrirliða?
„Nei, nei. Markvörðurinn okk-
ar er fyrirliði en þar sem hann er
veikur núna fékk ég hlutverk
hans f þessum Ieik.“
- Það var ttiun léttara yfir lið-
inu í kvöld en oftast áðttr í sum-
ar. Er góður andi í hópnutn
ttúna?
„Já, það er mjög góður andi í
liðinu. Það er líka, þótt ótrúlegt
sé, búið að vera mjög létt yfir lið-
inu allan tímann. Við byrjuðum
mjög illa og töpuðum sjö fyrstu
leikjunum og það er náttúrulega
alltaf erfitt að rífa sig upp eftir
slíka b)Tjun. Við töpum miklu
sjálfstrausti en erum að vinna
okkur út úr því. En mér líst mjög
vel á Ieikmannahópinn og það
eru allir samstíga í því sem við
erum að gera og ákveðnir í að
rífa sig upp úr þessum öldudal
sem við höfum verið í.“
- Það er þá bara gaman á æf-
ingunum?
„Já, það er það. Æfingarnar
eru fínar. Við erum að gera fína
hluti á æfingunum og menn
leggja sig virkilega fram en leik-
irnir hafa verið svona og svona.
Okkur hefur ekki tekist að gera
það sama í leikjunum og við
erum að gera á æfingunum. Við
erum ákveðnir í því að fara að
reyta stig, eitt eða þrjú, í næstu
leikjum þó prógrammið sé erfitt.
Strax og við höfum unnið einn
leik erum við komnir í hælana á
næstu Iiðum og við erum bara
bjartsýnir á að þetta takist ef all-
ir gera sitt besta og leggja sig
virkilega fram.“
- Fallið er þá ekki á stefnu-
skránni?
„Nei, því get ég lofað þér. Það
er sko ekki á stefnuskránni."
- Þið eruð ettti í vandræðutn
með framherja. Stendur til að
bæta úr þvi?
„Já, það virðist alla vega vera
eftir því sem maður les í blöðum
og haft er eftir stjórninni og
þjálfaranum. Eg vona að það tak-
ist sem fýrst því þjálfarinn er að
nota okkar besta miðjumann
sem senter og það finnst mér
sóun á hæfileikum hans. Það er
alveg rétt að okkur hefur ekki
tekist að finna samsetningu þar
sem skapar eitthvað fram á við.
Framan af skipti engu máli hver
framherjinn var því það voru
aldrei að koma neinar fyrirgjafir
sem þeir gátu unnið úr. Maður
fann það líka á hópnum að sá
sem var látinn spila senter var
elikert voðalega ánægður með
sína stöðu því sá fékk aldrei úr
neinu að moða. Stefán Þórðar-
son prófaði sig þarna framan af
en hann fékk aðeins eitt mark-
tækifæri í einhverjum fimm
leikjum. Það er ekki bara honum
að kenna heldur öllu liðinu sem
á að skapa þessi færi. Þó varnar-
leikurinn sé að mörgu leyti góð-
ur en menn fara að missa trúna í
sókninni fáum við trukk á okkur
til baka. Þá er oft erfitt að hindra
að andstæðingurinn skori.“
- Hvað segir þjálfarinn þegar
hann fréttir að Stefán blómstr-
ar heitna tneð Skagamönnum?
„Hann hefur nú ekkert tjáð sig
um það. En ég veit að hann fyig-
ist nú grannt með því. Hann var
að mörgu leyti ánægður með
Stefán en hann náði bara ekki að
skora. Síðan missti hann trúna á
honum eftir þessa fimm leiki og
eftir það fékk Stefán ekki tæki-
færi. Það var því ekkert fyrir
hann að gera hér lengur og því
best fvrir hann að koma sér í
burtu. Ég vona bara að honum
gangi vel í framtíðinni."
CÞÖ