Dagur - 17.08.1999, Qupperneq 2

Dagur - 17.08.1999, Qupperneq 2
18 — ÞRIDJUDAGUR 7 7. ÁGÚST 1999 Ðggur LÍFIÐ í LANDINU SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDÓR SIGURDÓRSSON Siv Friðleifsdóttir. Urð og grjót Ummæli nýja umhverfisráðherrans, Sivjar Friðleifsdóttur, um að hún hafi ekki orðið bergnumin yfir Eyjabökkum og að menn verði að færa fórnir með því að drekkja gras- lendi, hafa að vonum vakið mikla athygli. Þetta minnir mig dálítið á söguna af Sigga ijórðungi, sem svo var kallaður, þegar hann kom í fyrsta sinn til Þingvalla. Hann hafði erfiðað langa ævi í sinni heimabyggð og nán- ast ekkert farið út fyrir hana um dagana. Þegar hann var orðinn fjörgamall maður tóku vinir hans sig saman og buðu honum til Þingvalla, þannig að hann mætti líta dýrðina augum áður en hann kveddi þennan táradal. Þar sem Siggi fjórðungur stóð á Lögbergi og horfði yfir vellina í fyrsta sinn á ævinni, með báðar hendur djúpt í buxnavösunum, spurðu vinir hans hvernig honum litist nú á herleg- heitin? Þá brást fjórðungurinn við með svip- uðum hætti og umhverfisráðherrann, lét sér hvergi bregða og svaraði: „Iss, þetta er nú bara urð og grjót.“ „...mótmæfir Júlí- us VífiII og vill ekkert byggja, Guðlaugur Þór er bara á móti en enginn veit hvað hann vill frekar en endranær, Inga Jóna og Vilhjálm- ur vilja eitthvað byggja en hafa ekki enn gert upp við sig hvað eða hversu mikið...“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um af- stöðu sjálfstæðis- manna til bygg- inga í Laugardal. Theresía spáir byl A þeim árum þegar Theresía Guðmundsdóttir var veðurstofustjóri komu tvær konur inn í búð á Húsavík og keyptu haframjöl til að gefa snjótittlingum. Þá orti Egill Jónasson: Tökin herðir tíðarfar, Theresta spáir hyl. Hver, sem tittlings verður var veiti honum skjól og yl. Ýmislegt Gárungar voru fljótir til að nefna hverfið á Akureyri, þar sem grjóthríðin dundi yfir á dögunum, Grjótaþorp. Eftir þann makalausa atburð þegar Hafnfirðingar náðu að sökkva togaranum Ymi við bryggju í Hafnarfirði í síðustu viku, segja gárungar að þegar óhöpp af þessari gerðinni gerast í framtíðinni segi menn það vera - ýmislegt -. Mig svimar Fyrir all mörgum árum komst maður á átt- ræðisaldri í fréttirnar hér á landi fyrir að hafa gifst þrítugri stúlku og eignast með henni sex börn. Fréttamaður útvarpsins átti viðtal við karlinn og spurði hvort það væri ekki nokkuð erfitt fyrir mann á þessum aldri að geta öll þessi börn. „Nei,“ svaraði karlinn, „það er svo sem ekkert erfitt en ég verð að játa að mig er farið að svima dálítið þegar við erum að.“ Örn Magnússon, pfanóleikari. „Það eru góðir andar með okkur." „Mig hefur lengi langað til að standa fyrir einhveijum tónlistar- viðburðum í Olafsfirði því ég er fæddur þar og uppalinn og dvel þar Iengur og skemur á hveiju sumri. Svo ákvað ég í vetur að reyna að hrinda því í ffamkvæmd og hugmyndin fékk hvarvetna mjög góðar undirtektir, bæði meðal heimamanna og tónlistar- fólks." - Hvaða listamenn fékkstu t lið með þér? „Þetta er nú í og með Ijöl- skylduframtak því við erum þama tveir bræður, Sigursveinn og ég og okkar konur, söngkoií- urnar Marta Guðrún Halldórs- dóttir og Sigrún Valgerður Gests- dóttir. Hljóðfæraleikarar, auk okkar bræðra eru Akureyringur- inn Einar Kristján Einarsson gít- arleikari og svo Kammerartica strengjakvartettinn, sem er skip- aður þeim Hildigunni Halldórs- dóttur fiðluleikara, Sigurlaugu Eðvaldsdóttur fíðluleikara, Guðmundi Kristmundssyni víóluleik- ara og Sigurði Halldórssyni sellóleikara." - Hvað verður á dagskránni? „Þama verða þrennir tónleikar og verkin sem flutt verða eru sígild kammerverk m.a. eftir Ant- onío Vivaldi, Schumann, Schubert, Rachmanin- off og Dvorak." -Afhverju heitir háttðin Berjadagar? „Nafnið er táknrænt. Hugmynd er að halda uppskemhátíð þar sem fólk gleðst yfir ávöxtum jarðar og þessi árstími er alltaf mjög sérstakur fyr- ir norðan. Beijatíminn. Þar myndast mjög sértök stemmning þegar fólk kemur víða að af landinu til beija í Svarfaðardal, Ólafsfirði og Fljótum. Við ætlum að virkja þessa stemmn- ingu enn frekar." - Er góður jarðvegur fyrir tónlistar- flutning í Ólafsftrði? „Já, ég vænti þess að fólk muni flykkjast á Beijadagana. Tónleikar em haldnir af og til í Ólafsfirði og aðstaðan þar er góð. Þar er félags- heimilið Tjamarborg með fxábærum hljómburði og kirkjan í Ólafsfirði reynist vera hið besta tónleikahús eftir breytingar sem nýlega vom gerðar á henni. Agætir flyglar em á báðum stöðum og svo er nýlegt pípuorgel í kirkjunni.“ - Eru herjadagamir einvörðungu helgaðir tónlist „Nei, málverk eftir listakonuna Ólöfu Þorláksdóttur „Grímu“ verða til sýnis í safnaðarheimili Ólafsfjarð- arkirkju. Gríma bjó um árabil í Ólafsfirði en hóf reyndar ekki að mála fyrr en síð- ar.“ Stefnan er sú að gestur úr annarri Iistgrein en tónlist verði á hátíðinni á hveiju ári, það getur verið skáld, dansari eða Guð veit hvað.“ - Hverju ári, segirðu, Berjadagar eiga semsagt að verða árlegur viðhurður. „Já, við vonumst til að vinna þeim þann sess. Stuðningur heimamanna hefur verið vís alveg ffá byrjun og undirbúningur undir þessa fyrstu hátíð hefur gengið ótrúlega vel. Það eru góðir andar með okkur.“ GUN. Berjadagar er nafn á tónlistarhátíd, sem haldin verðurí fyrsta skipti um næstu helgi í Ólafs- firði. ÖmMagnús- sonpíanóleikari er forvígismaður hennar. SPJALL ■ FRÁ DEGI Munurinn á fiðlu og lágfiðlu er sá, að lágfiðlan er lengur að brenna. Victor Borge Þau fæddust 17. ágúst • 1601 fæddist franski stærðfræðingur- inn Pierre de Fermat. • 1819 fæddist Jón Arnason þjóðsagna- safnari. • 1892 fæddist bandaríska leikkonan Mae West. • 1896 fæddist Jón Magnússon skáld. • 1911 fæddist sovéski skákmeistarinn Mikhail Moiseyevich Botvinnik. • 1932 fæddist indverski rithöfundur- inn Vidiadhar Surajprasad Naipaul. • 1943 fæddíst bandaríski Ieikarinn Ro- bert De Niro. • 1960 fæddist bandaríski leikarinn Sean Penn. Þettagerðist 17. ágúst • 1877 uppgötvaði maður að nafni Asaph Hall tunglið Phobos, sem snýst í kringum Mars. TIL DAGS • 1933 Iauk samstarfi bandarísku grín- Ieikaranna Stan Laurel og Oliver Hardy, eða Steina og Olla (Gög og Gokke). • 1939 var bíómyndin Galdrakarlinn í Oz frumsýnd. • 1945 lýsti Indónesía yfir sjálfstæði, en hafði áður verið nýlenda Hollands. • 1961 hófst smíði Berlínarmúrsins. • 1978 tókst Maxie Anderson, Ben Abruzzo og Larry Newman fyrstum manna að fljúga yfir Atlantshafið í loftbelg. • 1980 hófst Heklugos sem stóð í fá- eina daga. • 1988 fórust Mohammed Zia ul-Hag forseti Pakistans og Arnold Raphel sendiherra Bandaríkjanna í flugslysi, sem mörgum hefur þótt dularfullt. Vísa dagsins Þó ég verði aðfara tfjós, farga þannig dögunt. Ef að ég hefyl og Ijós uni ég mtnum högum. Hjálmar frá Hofsósi Afmælisbam dagsins Bandaríski kvikmyndaleikarinn Ro- bert De Niro fæddist 17. ágúst árið 1943 í borginn New York. Hann er af ættum listamanna en foreldrar hans voru báðir málarar, þau skyldu þegar De Niro var á unga aldri. Faðir hans og alnafni fór til Frakldands og gerði garðinn ffægan þar. De Niro ólst upp hjá móður sinni, málaranum Virginiu Admiral. Hann fór í leiklistarnám til þeirra Stellu Adler og Lees Stras- berg. Robert De Niro birtist fyrst á hvíta tjaldinu árið 1968 í mynd Bri- ans De Palma, Greetings. Síðan þá hefur hann leikið í Qölmörgum kvik- myndum og unnið til verðlauna. Verkaskipting heimilanna Sláttuvélin heima hjá Jóni og Siggu bilaði fyrr í sumar. Sigga taldi það ótvírætt vera í verkahring Jóns að láta gera við hana, og gaf honum hvað eftir annað í skyn að ekki mætti draga það lengi, án þess þó að vilja segja það berum orðum. Einhvern veginn virtist Jón þó aldrei skilja þessi skilaboð og heilu vikurnar liðu án þess að sláttuvélin færi í viðgerð. Loks datt henni í hug ráð, sem hún taldi óbrigðult. Dag nokkum þegar Jón kom heim lá Sigga á hnjánum í grasinu, sem orðið var býsna hátt, og var hún að klippa það með litlum skærum. Jón nam staðar, horfði á hana stundarkorn og fór síð- an inn. Eftir nokkra stund kom hann út aft- ur með tannbursta og sagði: „Þegar þú ert búinn að slá grasið gætirðu kannski farið að sópa stéttina." Veffang dagsins „Kirkjugarður rokksins" (The Cemetary of Rock) nefnist vefsetur eitt, en þar er að finna lista yfir fallnar rokkstjörnur og myndir af legstöðum þeirra: uninv.geocities.com/Sunset- Strip/Frontrow/2547/grave. html

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.