Dagur - 17.08.1999, Síða 4

Dagur - 17.08.1999, Síða 4
20- ÞttlDJVDAGUR 17. ÁGÚST 1999 LIFIÐ I LANDINU Skýrsla Þróunarsamvinnu- stofnunar Sameinuðu þjóð- anna (The Human Develop- ment Report 1999) kom út í tíunda sinn fyrr á þessu sumri. í skýrslunni er að finna hafsjó upplýsinga um auðlegð þjóðanna, hverjir beri mest úr býtiun, hverjir minnst, og hvernig hún skiptist á milh mannkyns. Ef cinhvcrjir efast rnn að gæð- um jarðar sé misskipt á milh þjóða heims ráðlegg ég þeim að glugga í skýrsluna svo að þeir megi sann- færast. Ritið má finna á heimasíðu Þróunar- samvinnustofnunar SÞ á veraldarvefnum (undp.org). Einfaldur mælikvarði - flokið fyrirbæri Vísitala þróunar mannkyns, sem á ensku nefnist human development index, var fyrst sett fram árið 1990. Hún er einfaldur mæli- kvarði á velferð jarðarbúa og slík tæki sem nota má til þess að beina þróunaraðstoð til þeirra sem mest þurfa á henni að halda. Ég kýs að kalla hana velferðarvísitölu, sem er ekki kórrétt þýðing úr ensku en að mínu áliti þjálla en að þýða heitið beint úr frummálinu. Ólxkt ýmsum öðrum vísitölum mælir velferð- arvísitalan fleira en það sem talið er í krón- um og aurum. Hún er samsett úr þremur þáttumlífshkum fólks við fæðingu, mennlun- arstigi, þ.e. læsi og fjölda þeirra er njóta skólagöngu, og að sxðustu launatekjum á mann. Sem slík er vísitalan að sjálfsögðu ekki algildur mælikvarði á velsæld mannkyns, en hún gefur býsna góða vísbendingu um ástand þess og skapar ákveðið mótvægi við mæh- kvarða sem eingöngu byggja á efnahag, svo sem þjóðarframleiðslu. Fleira mælanlegt en þ j ó öa rfranilei ðsl a Amartya Sen, sem hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði í fyrra, tók þátt í því að setja sam- an velferðarvísitöluna. Hann lýsir því í nýj- ustu skýrslunni að hann hafi í upphafi haft þó nokkrar efasemdir um gildi þess að mæla velferð mannkyns með þessum hætti. Þættirnir þrír sem mynda velferðarvísitöl- una gætu aldrei veitt endanlegt svar um framþróun, til þess sé mælingin ekki nógu nákvæm. Tíu árum síðar er Amartya Sen feginn því að ekki skuli hafa verið hlustað á efasemdir hans um gfidi velferðarvísitöl- unnar. Nóbelshafinn segir hana hafa sann- að gildi sitt strax. Hún hafi skapað nýja vídd, aðra en þá sem fæst með því að ein- blína á þjóðarframleiðslu landa, í umræð- unni um þróun mannkyns, velferð þess og hagsæld. Velferðarvísitalan byggist á gífur- legu magni upplýsinga, sem endurspegla vel hinn margbrotna og flókna heim sem við búum í. Þessar upplýsingar eru settar fram á skýran og aðgengilegan hátt í ár- legri skýrslu Þróunarsamvinnustofnunar Sameinuðu þjóðanna. Ekki er allt sem sýnist Forystufólk þróunarmála hjá Sameinuðu þjóðunum hefur ekki Iátið staðar numið við velferðarvísitöluna. Á undanfórnum árum UMBUDA- LAUST Sitthvað er vel- ferð og hagsæld hafa nýir mælikvarðar litið dagsins ljós. Nú er einnig lagt mat á það hvaða áhrif þróun- in til velsældar eða fátæktar hefur á stöðu kynjanna, og svo hver staða kynjanna sé í stjórnmálum og í efnahagslegu tilliti. Þá var árið 1997 kynntur til sögunnar mælikvarði á fátækt, sem er ekki hinn sami fyrir iðn- vædd ríki og þróunarlönd. Þegar rýnt er í þá mælingu fyrir iðnvædd ríki kemur á dag- inn að meðal ríkustu þjóða heims er hlutfall fátæks fólks hæst í Bandaríkjunum, Bret- landi og á írlandi. Hagsæld og vöxtur í efnahagslífi tryggir ekki endilega velferð fólks samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar. Sem dæmi má nefna að Singapúr og Ge- orgía hafa nánast sömu velferðarvísitölu þótt tekjur á mann séu fimmtán sinnum hærri í Singapúr en í Georgíu. Misskiptmg auðsins eykst Af þeim 174 löndum sem skýrslan tekur til teljast 45 vera í sérflokki hvað mikla velferð og hagsæld varðar. ísland má finna í níunda sæti í klúbbi ríku þjóðanna. 94 lönd sýna meðalvöxt velferðarvísitölunnar, en 35 lönd eru í hópi þeirra sem sýna litla þróun í átt til aukinnar velferðar. Það vekur athygli að 16 lönd hafa á þessum áratug færst niður í velferðarmælingunni. Ástæða þess er út- breiðsla alnæmis, í Afríku sunnan Sahara, og efnhagslegt hrun, svo sem í sumum Afr- íkulöndum og mörgum nýfrjálsum löndum sem áður tilheyrðu Sovétblokkinni. Kanada, Noregur og Bandaríkin tróna á toppi velferðarvísitölulistans, en Síerra Leóne, Níger og Eþíópía verma botnsætin. Misskipting auðs og gæða eykst á milli landa. Um það er engum blöðum að fletta. Ríkasti fimmtungur mannkyns fær 86% þjóðarframleiðslu í sinn hlut, fátækasti fimmtungur mannkyns 1%. Ríki fimmtung- urinn ræður 82% útfiutningsmarkaða, hinn fátækasti 1%. Símalínurnar eru líka flestar í okkar eigu, 74% á móti 1,5%. Þegar allt kemur til alls verður upplýsingahraðbrautin að fáförnum og torfærum slóða sunnan Sa- hara-eyðimerkurinnar. sent frá sér sína fyrstu ljóðabók, „Okkar á milfi“, en hún dregur upp myndir af ís- lenskri náttúru, undrum hennar Arthúr Björg- og furðum. Um- vln Bollason. fram allt er Okk- ar á milli þó bók um ástina. Bókin kostar 1790 kr. Myndasamkeppni BDSM BDSM á íslandi (skammstöf- unin stendur fyrir: Bindi- leikir, Drottnun/undirgefni, Sadó-masókisma og Muna- losti, eins og þeir muna sem lásu grein um félagið í Degi fyrr á árinu) hefur nú efnt til myndakeppni (þ.e. ljós- myndir og aðrar myndir) til birtingar á vef BDSM. Hægt er að senda myndir inn í keppnina allt fram í október en í lok þess mán- aðar velur dómnefnd bestu myndirnar og munu vegleg verðlaun vera í boði. Frekari skýringar um keppnina eru á vef BDSM á slóðinni: www. music .isÆdsm/list. shtml Misskipting auðs og gæða eykst á milli landa. Ríkasti fimmtungur mannkyns fær 86% þjóðarframleiðslu í sinn hlut, fátækasti fimmt- ungur mannkyns 1%. Ríki fimmtungurinn ræð- ur 82% útflutningsmark- aða, hinn fátækasti 1%. Bandamenn heílla í Noregi Leikhópurinn Bandamemi sýndi Amlóðasögu á listahá- tíð í Bodö í Noregi fyrir skömmu við feykigóðar und- irtektir. Uppselt var á sýning- una og sagði einn gagnrýn- andinn m.a. aó sönnum galdri væri ekki hægt að lýsa, hann yrði maður að upplifa eins og í Amlóða sögu, sem væri sterk sýning, dramatísk og uppríf- andi en búi jafn- framt yfir þeirri ró, nærfærni, Bandamenn. sannleika og fegurð sem aðeins sönn list feli í sér. Textinn í Amlóða sögu er saminn af leikstjóranum Sveini Einarssyni og er þetta 13. leikfór Bandamanna til útlanda. Okkar á milli Arthúr Björgvin Bollason hefur MENNINGAR LÍFHI Ingibj örg Sóbún í landsmábn Raunsæir fylgismenn Samfylk- ingar viðurkenna að árangur hennar í síðustu kosningum var ekkert til að hrópa húrra fyrir. Einstaka skýjaglópar reyna þó enn að telja sér og öðrum trú um að árangurinn hafi verið með mestu ágætum. Skortur á raunsæi er kannski einmitt það sem háir Samfylk- ingunni hvað mest og tilhneig- ingin til að kenna öðrum um eigin ófarir er furðulega sterk. Skyndilega hafa talsmenn Samfylkingar uppgövað að ófarirnar í kosningunum voru ekki Samfylking- unni að kenna heldur Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur borgarstjóra. Þessi þvæla er síðan lögð á borð fyrir kjós- endur Samfylkingar og ætlast er til að þeir kinki kolli. Talsmenn Sam- íylkingar ættu að horfa í eigin barm og þá kynnu þeir að átta sig á því að það var málefnaleg- ur slappleiki hreyfingarinnar sem varð til þess að hún náði ekki meira fylgi en raun var á. Jafn einkennilegt er að heyra talsmenn Samfylkingar halda því fram að ef Ingibjörg Sólrún færi yfir í landsmálapólitíkina þá væri það kúvending á fyrri afstöðu hennar. Þessi fullyrðing stenst ekki. Ingibjörg Sólrún gaf það sjálf sterklega til kynna í opnuvið- tali í Degi fyrir ekki löngu að hugur hennar stefndi í nánustu framtíð í landsmálapólitík. Túlkun talsmanna Samfylkingar er kúvending á orðum borgarstjóra. Ég neita því ekki að það MENNINGAR VAKTIN „Því miður eigum við ekki marga stjórnmáiamenn sem hafa til að bera pólitíska hæfni borgar- stjórans. Ingi- björg Sólrún á að hasla sér völl I landsmálapólitík- inni og það sem fyrst." hvarflar að mér að talsmennirnir vilji ekki skilja orð borgarstjóra réttum skilningi. Þar er ekki áhugi á því að fá borgarstjórann í eitt af forystusætun- um. Menn eru svo uppteknir af því að passa sitt að þeir telja ekki brýnt að fá til starfa gáfaðan og rökfastan stjórnmálamann sem gæti híft Sam- fylkinguna upp úr hentistefnupólitík- inni. Því miður eigum við ekki marga stjórnmálamenn sem hafa til að bera pólitíska hæfni borgarstjórans. Ingi- björg Sólrún á að hasla sér völl í landsmálapólitíkinni og það sem fyrst.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.