Dagur - 17.08.1999, Page 5

Dagur - 17.08.1999, Page 5
J’RIDJUDAGVR 17. ÁGÚST 1999 - 21 LÍFIÐ í LANDINU i. Kristnitökuhátíð í Reykjavík hófst með mikilli útiguðsþjón- ustu á Laugardalsvelli á sunnudaginn. Sól- veig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumála- ráðherra, mætti í ís- lenskum búningi, upp- hlut með möttul yfir sér. Veðrið lék við Reykvíkinga og um 10.000 manns Iögðu leið sína í laugardalinn til þess að berja dag- Hátíðin er haldin í tilefni af 1000 ára afmæli kristni í landinu. skráratriði hátíðarinn- Gengið afieikveiii að afiokinni messu. mjög ánægðir með upphafið. Dagskráin var fjölbreytt að lokinni messu voru gospel-tónleikar í Laugardalshöll og um kvöldið unglingatónleikar í Skautahöllinni. Forystumenn hina ýmsu söfnuða komu fram og fluttu stutta bæn enda hugmyndin að þetta sé samkirkjuleg hátíð. Snorri Osk- arsson í Rethelsöfniðunum í Vestmannaeyjum vakti at- hygli fyrir að koma djöflinum að minnsta kosti 10 sinn- um að í stuttu ávarpi sem hann flutti. Hátíðin er haldin í minningu þess að 1000 ár eru síðan kristni varð ríkis- trú á Islandi. Núna eru söfnuðir um allt land að undir- búa vetrardagskrá sfna og segir Rjarni að vetrararstarf söfnuðanna verði mjög fjölþætt meðal annars verði dag- skrá sem tengist messuhaldi liðinna alda. -PJESTA. arinnar augum og eyr- um. Bjarni Grímsson, framkvæmdastjóri Kristnihátíðar, segir að tæplega 6000 manns hafi verið viðstaddir messuna á þjóðarleik- vanginum. Þar söng 1000 manna kór úr öllum söfnuðum Reykjavíkur. Aðstand- endur hátíðarinnar eru Fjöidi fólks tókþátt í guðsþjónustu á Laugardalsvelli í tilefni af Kristnitökuhátíð. Sólveig Pétursdóttir klæddist íslenskum búningi og skrýddist mötli við tilefnið. 1000 manna kór söng, 60 manna lúðrasveit spilaði og for- svarsmenn hinna ýmsu söfnuða ávörpuðu samkomuna. -myndir: hilmar þór. Messað áþjóðarleikvangi Umferðareglur gilda á göngu- og hjólastígum SVOJMA ERUF® Pjetur St. flpason skrifar © Pjetur svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Pjetur svarar í símann kl. 9—12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt,14 Rvk. eða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: pjeturst@ff.is Það er dásamlegt á svölum haustdegi að finna goluna leika um vangann og horfa á lífið í kringum sig. Mikil umræða hefur verið undanfarið um umhverfismál. Það hefur verið vakning í þjóðfélaginu og fólk lætur sig þessi mál varða. Reykjavík er ein- hver sóðalegasta borg Evrópu. A götum bæjarins er ekki þver- fótað fyrir rusli. íslendingar eru einkabílafólk og víða er ekki hægt að komast á milli staða án þess að eiga bifreið. Margir hrópa hátt yfir bláum fjöllum í fjarska en huga ekki að sínu nán- asta umhverfi. Reiðhjól- ið er umhverfisvænn farkostur. Núna eru seld um 14.000 reiðhjól á ári hverju. Margir búa við það að geta hjólað í vinnuna en þora því ekki af ótta við umferð- ina. Algengt er að öku- menn geri sér ekki grein fyrir því hjólreiðamaður er algjörlega óvarinn, en sjálfur situr ökumaðurinn í stálbúri. Þess vegna ættu menn að aka varlega þegar þeir sjá hjólreiða- mann. Yfirvöld umferðamála byggja umferðarmannvirki þannig að mörgum hjólreiðamönnum finnst að þeir séu fyrir i umferð- inni. 1 grein í Hjólhestinum, málgagni Hins íslenska fjallahjóla- klúbbs, frá því í vetur segir formaður klúbbsins Alda Jónsdóttir að hljólreiðafólk hafi bent á að möguleika á sérstökum stígum þegar ný umferðamannvirki eru hönnuð. Annars væri æskilegt að fá sérstaka hjólarein þar sem þrengra er. Oft Iiggur við umferðaröngþveiti á göngu- og hjólreiðastíg- um á góðviðrisdögum. Þá ægir saman umferð hjólafólks, skokkara og gangandi vegfaranda. Þá eru oft vandræði þegar fólk er að mætast eða fara fram úr. Oft má koma í veg fyrir þetta með því að virða einföldustu umferðareglur sem gilda á þjóðvegum og höfum úti. Víkja til hægri og fara ákveðið framúr en varlega. A sumrin kemur hingað til lands fjöldinn allur af fólki til þess að hjóla um landið. Vegakerfið gerir ekki ráð fýrir því að fólk ferðist á milli staða á Reyðhjólum. Alda segir að mikil bót væri fyrir hjólreiðafólk að fá sérstaka malbiksrönd meðfram þjóðvegum landsins. Ekki sé mikill aukakostnaður í svona rönd. Hjólreiðar eru umhverfisvænn farkostur og góð líkams- æfing í leiðinni að hjóla. ■ HVAfl ER Á SEYÐI? HAUKUR QRÖNDAL A VEGAMOTUM Saxófónleikarinn Haukur Gröndal leikur fyrir gesti veit- ingastaðarins Vegamóta við Vegamótastíg. Þetta verða síðustu tónlarkar Hauks hér á landi í bili þar sem han heldur til Kaupmannahafnar í áfram- haldandi nám í haust. Með Hauki leika að þessu sinni Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Einar Valur Scheving á trommur. Þeir félagar um leika djass-standarda ásamt nýrra efni. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30. og er aðgang- ur ókeypis. HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ TÓNLEIKAR Óbótónleikar í Listasafni Sigurjóns Óbóleikararnir Peter Tompkins og Matej Sarc og Daði Kolbeinsson, englahornleik- ari, leika á tónleikum í Listasafni Sigur- jóns Ólafssonar í kvöld klukkan 20.30. Á efnisskránni eru verk eftir Anton Wrnitzky, Ludwig van Beethoven og Mozart. Öll verkin eru fyrir tvö óbó og englahorn. Stefnumót á Gauki á Stöng í kvöld leika Klamidía X, Brain Police og Suð á tónleikum á Gauki á Stöng. Klamidía X leikur lög af glænýrri breið- skífu þeirra „Pilsner fýrir kónginn". Tón- leikarnir heQast stundvíslega klukkan 22.00. Þeir eru liður í tónleikaröð tíma- ritsins Undirtóna, Stefnumót. Þeir eru sendir beint út á internetinu á tónlistar- vefsíðu Coca-Cola. ELDRIBORGARAR Ásgarði, Glæsibæ Margrét H. Sigurðardóttir, viðskiptaffæð- ingur, veður með viðtalstíma á morgun, miðvikudaginn 18. ágúst kl. 13.30 til 16.00. Kaffistofan er opin alla virka daga frá kl. 10.00 til 13.00. Matur í hádeginu, Allir velkomnir. Borgarfjarðarferð urn Kaldadal í Reykholt 19. ágúst. Skaftafells- sýslur, Kirkjubæjarklaustur 24. til 27. ágúst. Norðurferð, Sauðárkrókur 1.-2. september. Skrásetning og miðaafhending á skrifstofu félagsins. Upplýsingar í síma 588-2111. ÚTIVIST Kvöldganga í Viðey í kvöld verður gengið um slóðir Jóns Ara- sonar í Viðey. farið verður með Maríusúð- inni frá Viðeyjarbryggju í Sundahöfn klukkan 19.30. Byijað verður í kirkjugarð- inum við leiði Gunnars Gunnarssonar, rit- höfundar, konu hans og sonar þeirra. Síð- an verður gengið um eyjuna. Virkið skoðað sem Hr. Jón biskup mælti fyrir um að yrði reist eftir að hann hafði reldð Dani af höndum sér. Gerð verður grein fyrir nýjum fræðsluskiltum sem sett voru upp í liðinni viku. Gangan tekur um einn og hálfan tíma, göngufólk er einungis minnt á að vera vel búið til fótanna. gjald er ekki ann- að feijutollurinn 400 kr. fyrir fullorðna og 200 kr. fýrir böm. SKAGAFJÖRÐUR Krítarmyndir í Lónkoti Ásdís Guðjónsdóttir sýnir krítarmydnir í Gelleríi Sölva Helgasonar í Lónkoti í Skagafirði. Myndiranar cru allar unnar á þessu ári með olíukrít á pappír. Sýningin er opin alla daga.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.