Dagur - 21.08.1999, Blaðsíða 7
LAVGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999-VU
MINNIN GARGREIN AR
L J
Stefán Pétur Sigurjónsson
Eftir langvarandi veikindi og oft
mjög erfið má segja að lát gamals
manns þurfi ekki að koma á
óvart. Þó er það svo í flestum til-
vikum að tilkynningin um enda-
lokin snerta hvern og einn meira
og minna. Minningarnar taka
völdin og sár söknuður gerir vart
við sig. Þannig fór fyrir okkur,
sem tengdust Stefáni Pétri Sig-
urjónssyni. Það er svo margt,
sem kemur til baka í minning-
unni. Okkur langar til þess að
minnast Stefáns með því að rifja
upp nokkrar minningar. Stefán
var kominn af atgervisfólki og
sýndi fljótt eins og öll systkinin,
að sterk ættareinkenni geta erfst
með ágætum.
Stefán Pétur var frá Heiðarbót
í Reykjahverfi, en ævistarfið var
að langmestu unnið á Húsavík og
þar um slóðir. Hann var vörubíl-
stjóri lengst af. Atorka hans við
aksturinn og efnisflutning var
einstök. Sem dæmi má nefna að
dag eftir dag sótti hann sand eða
möl í fjöru í Húsavík eða út í
Héðinsvík. Krafturinn við að
handmoka upp á bílpallinn var
slíkur að oftast mátti sjá skóflu-
kastið á lofti yfir pallinum um
leið og hann stakk aftur niður í
sandinn eða mölina. Þetta geta
aðeins menn með mikla snerpu
gert. Nú er öllu mokað með vél-
um og líkamsrækt þarf að koma
til, vilji menn halda góðri heilsu.
Stefán leysti öll verk vel af hendi
og var mjög Iaginn viðgerðarmað-
ur, þótt ólærður væri sem slíkur.
Stefán var mikill söngmaður
eins og hann átti kyn til. Með
föður sínum og tveimur bræðr-
um sungu þeir saman í mörg ár
og veittu gleði og hamingju „á
báðar hendur“. Einnig söng hann
í karlakórnum Þrymi og var einn
af stofnendum kirkjukórsins hjá
séra Friðriki A. Friðrikssyni. Stef-
án hafði mikið yndi af góðum
söng og kunni vel skil á afreks-
mönnum í söngnum. Stefán lék
hjá Leikfélagi Húsavíkur fyrr á
árum og söng þar m.a. einsöng
en það gerði hann oft með
Þrymi.
A langri ævi má það teljast til
sérstakra tíðinda, að hafa svo
góða og yfirvegaða framkomu, að
aldrei gerðist þörf á hvassyrði eða
skömmum. Enginn heyrði
hnjóðsyrði frá vörum Stefáns.
Hann var þó ekki skaplaus mað-
ur. Oðru nær. Hann agaði sjálfan
sig og gerði svo miklar kröfur um
fagurt fordæmi, að öllum var
hlýtt til hans. Enginn hafði þörf
fyrir hnjóð á bak Stefáns. Hann
bætti umhverfi sitt með hátt-
prýði, kurteisi og hlýju viðmóti.
Slíkir menn eru hverju byggðar-
lagi mikilsvirði.
Ævinlega var gott að heim-
sækja þau hjón Stefán og Krist-
björgu. Móttökur rausnarlegar
og einlægt vinfengi. Fyrir allt,
sem við fengum að njóta er hér
þakkað. Þau hjón voru aldrei fyr-
ir að sýnast, heldur voru verkin
látin tala. Við biðjum fjölskyld-
unni blessunar. Megi minningin
um góðan dreng Iifa og ylja í sárri
sorg.
Jón Ármann ogjjölskylda
Alvöru Suzuki jeppi
á verði smábíls!
1
I
Flottur í bæ; seigur á fjöllum
Suzuki Jimny er sterkbyggður og öflugur sportjeppi,
byggður á sjálfstæðri grind og með hátt og lágt drif. Það
er sama hvort þú ætlar með vinina í fjallaferð eða á
rúntinn niður í bæ, Jimny er rétti bíllinn!
1.399.000,- beinskiptur
1.519.000,- sjálfskiptur
$ SUZUKI
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: CT Jl/'T T)TT AD T_ip
i- og búvélasalan hf., Miðási 19, sfmi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sfmi 555 15 50. isafjörður: Bilagarður ehf., Grænagarði,
sími 456 30 95. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, slmi 482 37 00.
Hvammstanga: Bfla- og búvélasalan, Melavegi 17, sfmi 451 26 17.
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is