Dagur - 26.08.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 26.08.1999, Blaðsíða 2
18 - FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 ro^tr LÍFID í LANDINU ■ SMATT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDÓR SIGURDÓRSSON Sivjaðir Menn ræða fremur vandræðalega afstöðu Sivj- ar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra til fram- tíðar Eyjabakka, sem hún er ekki bergnumin yfir. Gárungarnir meðal umhverfisvemdarsinna eru á því að ætlunin að sökkva Eyjabökkum sé spellvirki og „nauðgun á Móður Jörð“ og því sé Siv Friðleifsdóttir. afstaða Sivjar ekkert annað en „sivja(r)spell“. Enn fremur, að þegar menn hlýði á Siv útskýra afstöðu sína verði þeir „sivjaðir“. „Nú er ég búinn að jafna mig á hnémeiðslunum en sennilega hef ég verið viðkvæm- ari en ella í keppninni sökum veikindanna sem sóttu á mig í nótt, þótt ekki sé hægt að segja að veik- indin séu bein sök, en þau gerðu mig viðkvæmari." Jón Amar Magn- ússon íþrótta- kappi í viðtali við Mbl. eftir að hann hætti keppni í tugþraut á HM í Sevilla. Skoðuðu ekki höfuðið Þær eru margar til sögurnar af Birni á Löngu- mýri, fyrrum alþingismanni, enda var maður- inn einstaklega orðheppinn og uppátektarsam- ur. I bókinni Herra forseta segir frá því að einn samþingsmanna Björns hafi ofnotað orð- takið „að mínu viti.“ Einu sinni er hann hafði þrástagast á þessu í ræðustól greip Björn fram í ræðu hans og sagði: „Hvað er háttvirtur þing- maður alltaf að tala um það sem ekki er til.“ Oðru sinni varð það að þingmenn fóru í hópskoðun hjá Hjartavernd. Flokksbróðir Björns á Löngumýri, en IítiII vinur hans, kom himinlifandi út og sagði: „Það var eins og ég vissi, þeir fundu ekkert að mér.“ Þá blimskakk- aði Björn, sem sat og beið eftir því að röðin kæmi að sér, á hann augunum og sagði: „Einmitt það, fundu þeir ekkert að já, ja þeir hafa þá ekki skoðað höfuðið.“ Myndir í útvarpi Stjórnendur morgunþáttar rásar 2 hafa þann sið að lesa fyrirsagnir dagblaðanna rétt fyrir klukkan 7.30 á morgnana. Af einhverjum ástæðum fylgir oftast þessi athugasemd hjá þeim: „Eins og við sögðum frá í gær,“ eða eins og kom fram í útvarpinu í gær.“ Þá vaknar sú spurning að hafi þetta komið fram í fréttum í gær af hverju er þá verið að lesa viðkomandi frétt aftur þarna í morgunútvarpinu? Af hverju er ekki lesin upp einhver önnur frétt sem ekki var sagt frá í gær. Maður bíður bara eftir að heyra: „Eins og við birtum mynd af í gær er hér mynd af árekstri..." Þrjátíu ára grátur Eitt sinn birtust myndir af Kristjáni Ragnars- syni LIU foringja skellihlæjandi þegar hann frétti af horuðum fiski á Vestfjarðamiðum, sem ekki mátti veiða. Þá var þessi vísa ort en höfundur er ókunnur: Þú hefur grátið í þrjátíu ár °g þeygið auðfjár að launutn, en ofmagur þorskur og engum tilfjár varð endir á þínum raunum. „Þetta er bók uppá 233 síður í sama broti og piöntuhandbókin og fuglahandbókin. Það ætti að vera auðveit að hafa hana með sér útí haustið, “ segir Einar Gunniaugsson jarðfræðingur, sem nýlega sendi frá sér handbók um ísienska steina í félagi við Kristján Sæmundsson. Bók í bakpokann Nýlega kom íslenska steinahókin út. Höfundarnir eru jarðfræðing- amir Einar Gunnlaugsson og Kristján Sæmundsson en mynd- imar í bókinn tók Grétar Eiríks- son. Einar segir þetta vera hand- bók fyrir allan almenning. „I bók- inni eru bæði teknar fyrir bergteg- undir og steintegundir eða steind- ir. Bergtegundir er það sem krist- allast og kemur upp í eldgosum eða myndast í setlögum. Steindir er aftur það sama og míneral það er að segja ákveðinn kristall. f bókinni er íjallað sérstaklega um holufyllingar sem Island er frægt fyrir.“ Lýsa sögu landsins Einar segir að þeim félögunum hafi fundist vanta bók sem hægt hafi verið að flett upp í. „I bókinni eru steintegundir eða steindir teknar fyTÍr með stuttum texta og síðan eru Ijós- myndir á nánast hverri einustu síðu. Eg held að það séu eitthvað á milli 260 og 280 myndir í bók- inni. Hún er búin að vera nokkur ár í vinnslu en aðaltíminn hefur verið síðasta árið þó að undir- búningurinn að bókinni hafi staðið í nokkur ár.“ Einar segist hafa orðið var við mikinn áhuga landsmanna á steinasöfnun. Það séu margir sem hafi gaman af því að taka upp fallega steina þegar þeir fari í gönguferð og setja í bakbokann sinn. Þegar heim er komið vilji menn vita hvaða steinar þetta séu og þá hjálpi bókin til. „I henni er reynt að lýsa því við hvaða skilyrði steintegundirnar myndast. Þannig að í upphafi bók- arinnar er kafli um uppbyggingu landsins og hvemig þessar stein- tegundir eða steindir falla út úr vatni. Þetta segir okkur ákveðna sögu. Ef maður er með steindir sem við finnum á yfirborðinu og þær myndast við 200°C hita. Þá vitum við að á þessum stað hefur verið 200°C hiti þegar þær urðu til. Þetta er dæmi um það hvað við getum séð útúr þessu.“ íbakpoka útivistarmaimsins „I upphafi bókarinnar er gerð grein fyrir jarðfræðilegri uppbyggingu landsins og ummyndun bergs, holu- og sprungufyllingum. Síðan er smákafli um steindir og hvemig á að greina þær. Síðan eru teknar fyrir frumsteindir í bergi og berg- tegundimar. Síðan er tekið fýrir molaberg og steingerfingar, svo er talað um holufyllingar, byijað á seólítunum og þeim steindum sem fýlgja þeim. í bókinni em kaflar um kvarssteindir og Karbanöt, málmsteind- ir, leirsteindir. I lokin er greiningartafla, skrár og annað því um líkt.“ Einar segir bókina vera auðvelda í notkun, hún sé hugsuð í bakpoka útivistarmannsins. „Þetta er bók uppá 233 síður í sama broti og plöntuhand- bókin og fuglahandbókin. Það ætti að vera auð- velt að hafa hana með sér útí haustið. Þetta er ekki hugsað sem beint bara inní bókahillu, heldur að menn nýti hana þegar þeir eru úti.“ -PJESTA „Ég heforðið varvið mikin áhuga á stein- um og steinasöfnun. Það eru kannski margirsem hafa sér- hæftsigíþessuen ég held að allirhafi gaman afþví að tína uppfallega steina. “ SPJALL ■ FRÁ DEGI Það góða við að vera frægur er að þeg- ar maður veldur öðrum Ieiðindum þá halda allir að það sé þeim sjálfum að kenna. Hcnry Kissinger. Þau fæddust 26. ágúst • 1819 fæddist prins Albert, eiginmað- ur Viktoríu Bretadrottningar. • 1892 fæddist Ingi T. Lárusson tón- skáld. • 1892 fæddist Nína Sæmundsson myndhöggvari. • 1898 fæddist bandaríski listaverka- safnarinn Peggy Guggenheim. • 1904 fæddist breski rithöfundurinn Christopher Isherwood. Þetta gerðist 26. ágúst • 1847 var lýst yfir sjálfstæði Líberíu. • 1871 var klósettpappír fyrst seldur á rúllum. • 1896 varð stór jarðskjálfti á Suður- landi, sá fyrri af tveimur. Er talið að TIL DAGS hann hafi verið 6,9 stig á Richterkvarða. Seinni skjálftinn varð tíu dögum síðar. • 1920 fengu konur í Bandaríkjunum kosningarétt þegar tuttugasti viðauki stjórnarskrárinnar tók gildi. • 1946 undirritaði Norma Jean Baker samning um kvikmyndaleik og tók þá upp nafnið Marilyn Monroe. • 1978 var Albino Luciani kosinn páfi rómversk-kaþólsku kirkjunnar og tók sér nafnið Jóhannes Páll. Hann lést 33 dögum síðar. • 1984 var Reykjavíkurmaraþonið hald- ið í fýrsta sinn. • 1991 tók ísland fyrst ríkja upp stjórn- málasamband við Eystrasaltsríkin þrjú. Vísa dagsins Virðist nokkur vandi að lifa, veröld hefur breyst. Allt þarfnú að undirskrifa, - ekki neinum treystl Auöunn Bragi Sveinsson Afmælisbam dagsins Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur, fæddist í Reykjavík 26. ágúst árið 1950. Hún tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1968. Hún lærði sálfræði og heim- speki í University Collage í Dublin. Hún starfaði sem blaðamaður á Al- þýðublaðinu og síðar sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu. Eftir hana liggja fjölmörg ritverk, skáldsögur, þýðingar, smásögur og Ijóð. Eftir bók hennar Ttmaþjófnum hefur verið gerð bíó- mynd á frönsku. Púður í karli Gamall kúreki, harðnagli mikill sem kom- inn var vel yfir nírætt, trúði dóttursyni sín- um fyrir því að leyndarmál langlífis væri að strá svolitlu púðri út á grautinn sinn á hveijum degi. Dóttursonurinn fór að ráð- um hans og stráði allt sitt líf svolitlu púðri út á grautinn sinn svo lítið bar á. Þegar hann svo Iést í hárri elli skildi hann eftir sig fjórtán börn, sextíu og átta barnabörn, þijátfu og sjö barnabarnabörn, átján barnabarnabarnabörn - og þriggja metra djúpa holu þar sem líkbrennsluofninn stóð þegar bálför hans var gerð. Veffang dagsins Alþjóðlega umhverfisstofnunin, World En- vironmental Organization, er með fræð- andi og forvitnilegar síður á ivww.world.org funsfiiuqM* j t . 13(1 bíritiuyig Oiv .Bitiacj

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.