Dagur - 26.08.1999, Qupperneq 4

Dagur - 26.08.1999, Qupperneq 4
20 -F1 MMTUDAGUIi 26. ÁGÚST 1999 LÍFIÐ í LANDINU L UMBUÐA- LAUST Verið er að ræsa Vélaherfylki Framsóknarflokksins á Sel- tjarnamesi og stefnan tekin á Eyjabakka. Hemaðurinn gegn landinu heldur áfram inn í nýja öld og er nú stjóm- að úr sjálfu umhverfisráðu- neytinu. Hér heggur sá er hlífa skyldi, hefði einhvem tíma verið sagt. Enda dugar ekkert minna en að Islend- ingar leggist í skotgrafimar með móður náttúru og borgi Iandi sínu ellefu alda fóstur- launin um síðir. Andhóf ber ávöxt og borgar- stjóm Reykjavíkur hopar nú á hæli í Laugar- dalnum undan Reykvíkingum. Draga verður sams konar víglínu í Eyjabökkum og veija landið með kjafti og klóm. skrifar Hjólhestur með hjálparvél Að herja á landið úr umhverfísráðuneyti em landráð og mun verri en ef viðskiptaráðherra mundi þvo erlenda mafíupeninga í ríkissjóði, heilbrigðisráðherra sprauta skólakrakka með kampýlóbakteríu og félagsmálaráherra flytja innheimtu skuldabréfa Ibúðalánasjóðs frá Búnaðarbankanum á Sauðárkróki til Búnaðar- bankans á Blönduósi í Húnavatnssýslu vestan Hjaltadals norður. Ráðuneyti umhverfismála hlýtur eðli málsins samkvæmt að vera um- hverfisvænt ráðuneyti og má hvorki vera sjálfu sér sundurþykkt stöðutákn eða pólitískur málaliði. Nægir í því sambandi að lesa greinargerð með frumvarpinu og rifja upp umræður á AI- þingi þegar málið var á dagskrá. Þingmenn vom ekki einróma um að stofna ráðuneytið en engum manni datt í hug að það ætti eftir að ganga andstæðingum náttúmnnar á hönd. Framsókn óttaðist reyndar hið gagnstæða og að nýja ráðuneytið mundi banna þeim að nota og misnota móður náttúm áfram að eigin geð- þótta. Umhverfisráðuneyti án umhverfishyggju er eins og utanríkisráðuneyti án útlanda. Alþingi hefði aldrei samþykkt umhverfis- ráðuneytið ef þingmenn hefði grunað að frú nokkur ríðandi á hjólhesti með hjálparvél gæti snúið ráðuneytinu upp í andhverfu sína með einum ráðherrastóli. Framsókn í sveitum Framsóknarmenn í sveit hafa aldrei fundið til með náttúrunni á sama hátt og fólk á mölinni finnur til með henni og sveitamenn hafa jafn- an Iitið á landsins gagn sem persónulegt her- fang. Er á meðan endist og endist á meðan er. Óbyggðimar og dýr merkurinnar em verðlögð í krónum og aurum eins og hver annar bú- smali kominn í hús. Nú síðast Eyjabakkar. Framsóknarmen í sveit hafa beitt búsmala sínum á gróður landsins og víðast nagað hann ofan í rót. Ræst fram mýramar og dregið vot- lendið til dauða. Mokað náttúmminjum upp á vörubílspalla og borið ofan í sveitavegi. Lagt tófu og mink í einelti og eitrað fyrir erninum, konungi fuglanna. Og þannig mætti áfram telja á meðan tær og fingur endast. „Að herja á landið úr umhverfisráðuneyti eru landráð og mun verri en ef viðskiptaráðherra mundiþvo erlenda mafíupeninga í ríkis- sjóði“... segirÁsgeir Hannes f grein sinni. Herjað á landið meó hjálparvél Framsóknarmenn við sjávarsíðuna bættu um betur og gengu af fiskistofnum lands- manna hálfdauðum. KöIIuðu þar með Kvóta ljóta yfir þjóðina í nafni fiskivemdar. Framsókn og guðspjöHin Á sínum tíma beitti Framsókn sér fyrir um- fangsmiklu loðdýraeldi á Islandi og sáldraði loðdýrabúum yfir sveitir landsins í atvinnu- bótaskyni. Ræktunin varð banabiti margra bú- manna og batt aðra við raufarstein. I dag vilja Framsóknarmenn magna upp loðdýrafárið og sáldra iðjuverum og rafverum um sveitimar til atvinnubótar. Austfirðingar bíða núna eftir álveri og raf- magnsvirkjun í íjórðungnum eins og hvetju öðru refabúi. Heimamenn og umhverfisráð- herra afgreiða formsatriði á borð við umhverf- ismat eins og útrunna dagsetningu á gamalli mjólkurfernu. Eyjabakkar eru því komnir á af- tökupallinn án möguleika á náðun. Hér gætir Framsókn sín ekki á guðspjöllunum. Gamla loðdýrasjónarmiðið má ekki ráða vali á stað fyrir iðjuver og virkjun eða aðra stóriðju á vegum ríkisins. Hér gilda önnur lögmál en hreppasjónarmið. Sátt getur hins vegar ríkt um að álverið rísi á Austurlandi en virkjuninni verður að velja annan stað sem veldur minni spjöllum í náttúrunni. Hægur vandi er að leggja rafstrengi um endilangt landið undir orku fyrir álver á Austurlandi á sama hátt og lagðir eru rafstrengir ffá Búrfelli í álverið í Straumsvík. Enda er það hvorki Iögmál né nátúrulögmál að álver og virkjun verði að vera í sama Ijórðungnum og heyra undir sama verkalýðsfélagið. Austfirðingar mega vel ganga fyrir um vinnu við nýju virkjunina fyrir bæði verkafólk og vinnuvélar ef því er að skipta og þó virkjað sé í ijarlægu landshorni. Ráðherrar spenni greipar Erlendir meðeigendur að álveri og anarri stóriðju munu hugsa sig um tvisvar þegar mótmælaöldur Islendinga rísa um þvert og endilangt landið og hjá skoðanabræðrum landsmanna í öðrum löndum. Enginn nú- tíma erlendur stórforstjóri kærir sig um aug- lýsingu af því tagi og vill ekki sigla undir fölsku flaggi inn í nýja öld umhverfisræktar og umhverfisverndar. Andóf hefur áhrif. Kjósendur í landnámi Ingólfs Arnarsonar og nágrenni veðja á þingmenn Framsóknar í kjördæmunum tveim á mölinni og kross- leggja fingur. Bregðist ráðherrunum tveim bogalistin í Eyjabökkum mega þeir búa sig undir að víxla stólum sínum við þingmenn- ina í öðru sæti á hvorum lista. Það vita þeir best sjálfir. „ÍJ^ur IMENNINGAR LÍFID Biblian í kvenkyni Margar konur eru orðnar þreyttar á því að textar Biblí- unnar skuli vera skrifaðir í karlkyni þó að konur hafi verið viðstaddar það sem gerðist. Eðlilegt þykir að konur séu kallaðar . a' . ^sxtar bræður þó að ekki ar ^Áa testa- þyki sjálfsagt að mentinu. tala um karla sem systur. Þess vegna hefur Kvennakirkjan valið úr textum Nýja textamentisins og breytt á mál tveggja kynja, málfar sem innifelur bæði kvenkyn og karl- kyn. Hér kemur dæmi: Sæl eru þau sem eru ofsótt vegna réttlætisins, því að heirra er himnarfki. Sæl eruð þið þegar fólk smánar ykkur, ofsækir og lýgur á ykkur öllu illu mtn vegna. Verið glöð og fagnið, því að laun ykkar eru mikil á himn- um. Þannig voru spámenn og spákonur sem voru á undan ykkur ofsótt. Grim í 101 Hallgrímur Helga- son opnaði á laug- ardaginn var sýn- ingu sína „More Tales of Grim“ í Gallerí 101 við Laugaveg 48b og stendur hún til 14. september. Þar má beija aug- um teikningar Hallgríms af Grim og eflaust skemmtilegt að rölta í gegn. Allir hvattir. Sívali tumian í Kaupmannahöfn Laugardaginn 21. ágúst opnaði frú Vigdís Finnbogadóttir sýn- ingu Ijögurra íslenskra lista- manna í» Sívala turninum (Rundetaarn) í Kaupmanna- höfn. Listamennirnir er Guð- rún Kristjánsdóttir, Bjarni Sig- urbjörnsson, Helga Egilsdóttir og Guðjón Bjarnason en öll Ij'ögur stunda abstrakt list, hvert með sínum hætti. Safnið er með heimasíðuna www.rundetaam.dk þar sem má finna nánari upplýsingar um sýninguna, listamennina og verk þeirra. ghs@ff.is Hallgrímur Helgason. Alltaf sama svarið Kúppið í Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins er tvfmælalaust einn allra besti brandari sum- arsins sem verður lengi í minn- um hafður og hægt verður að orna sér við á dimmum gúrku- dögum í vetur. Augun glenntust upp á gátt þegar fréttir bárust af því að hulduher hefði keypt hlut í bankanum og margir voru að verða úrkula vonar um að kaup- endurnir sýndu sitt rétta andlít þegar í ljós kom að þetta voru fjórir helstu spúttnikkar og valdapésar í atvinnu- og við- skiptalífi landsmanna, Jón Olafsson, Þorsteinn Már Baldvinsson og kó. En það var svo sem eins og við var að bú- ast. Nafnið Jón Ólafsson kom vissulega fyrst upp í hugann þegar fréttirnar bár- ust. Punkturinn yfir i-ið í sápunni um FBA var þó bræðiskast forsætisráð- herra í sjónvarpi og yfirlýsingagleði um siðleysi og lögleysi (enda bregst hann aldrei hann Davíð) þar sem hann réðst harkalega að mikils virtu fyrir- tæki (sumir vildu ef til nota orð- ið gagnrýni þó að það sé ekki notað hér). Hvílík bræði! Enn betra var að sjá félaga hans og náinn samstarfsmann (sumir myndu kannski nota orðið skó- svein) krefja hið mikilsvirta fyr- irtæki um svör við spurningum ráðherrans. Tæpast á forsætis- ráðherrann lengur mikið af kjósendum innan veggja þessa fyrirtækis. Hvað um það. Eigi er mein- ingin hér að telja atkvæði starfs- manna Kaupþings heldur hitt að benda á hina gagnrýnislausu trú samfélagsins á „einkavæðingu" og „sölu hlutabréfa“ með tilheyrandi (og sípirrandi) slag- orðaslætti. Nú vill reyndar svo til að einkavæðing ríkisbáknsins og það sem hefur verið að gerast á hlutabréfamark- aði getur vissulega og óumdeilanlega haft góð áhrif á íslenskt samfélag en undirrituð verður þó óumræðilega pirruð þegar menn slá um sig með MENNINGAR VAKTIN Fjárfestarnir fjórir sem gáfu svarið „þetta er svo góður fjárfestingarkostur“ þegar þeir keyptu hlutinn í FBA. klisjum og slagorðum meir en góðu hófu gegnir eins og gjarnan vill verða í þessari umræðu. Og þegar fjórir fjár- festar eru allir spurður spurningarinn- ar „Hvers vegna keyptirðu hlut í FBA?“ er svarið alltaf það sama: „Það er svo góður fjárfestingarkostur.“ Og ekki við öðru að búast. Þetta er svar, sem þýðir ekki neitt. ghs@ff.is

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.