Dagur - 27.08.1999, Qupperneq 1
1
Kúábændur æva-
reiðir ráðherrum
Framkvæmdastjóri
Landssambands kúa-
bænda segir landbún-
aðarráðherrana, Guð-
mund Bjamason og
Guðna Ágústsson,
hafa stundað orðheng-
ilshátt í stað þess að
svara erindi kúa-
bænda, sem legið hafi
á borði jjeirra síðan í
iiiars 1998.
Fulltrúar á aðalfundi Landssam-
bands kúabænda í Argarði í
Skagafirði voru mjög harðorðir í
garð Guðna Agústssonar, land-
búnaðarráðherra, og forvera
hans, Guðmundar Bjarnasonar,
vegna seinagangs í afgreiðslu á
því að svara erindi sem fjallar um
leyfi til að flytja inn fósturvísa frá
norskum kúm til þess að gera til-
raunir með það við íslenskar að-
stæður. Guðbjörn Arnason,
framkvæmdastjóri Landssam-
bands kúabænda, segir ráð-
herrana hafa stundað orðheng-
ilshátt og hafa dregið menn á
asnaeyrunum í stað þess að svara
erindi kúabænda, sem legið hafi
á borði þeirra síðan í marsmán-
uði 1998.
Landssamband
kúabænda rekur ein-
angrunarstöð í Hrís-
ey og þar hefur ríkt
„pattstaða" í marga
mánuði að mati Guð-
björns Arnasonar. Vel
á annað ár hafi ekk-
ert verið hægt að
gera vegna þess að
stöðugt hafi verið
beðið eftir svari og á
meðan er kostnaður
kúabænda áætlaður
um 500 þúsund á mánuði.
„Menn hefðu gjarnan viljað
fjölga svolítið í Galloway-stofn-
inum og jafnvel selja kálfa í land
hefðu menn vitað að ekkert svar
fengist strax við málaleitaninni.
A meðan bíða í Hrísey nærri 30
kýr eftir því að verða fósturmæð-
ur, en eðlilega eru kýrnar geldar
á meðan beðið er eftir svari land-
búnaðarráðherra," segir Guð-
björn Arnason.
Formgalli á umsókn
Sveinbjörn Eyjólfsson, aðstoðar-
maður Guðna Agústssonar land-
búnaðarráðherra,
var á fundi Lands-
sambands kúa-
bænda í Skagafirði.
Hann segir að Guð-
mundur Bjarnason
hafi kosið að af-
greiða ekki umsókn
kúabænda og lýst
því yfir að eðilegt
væri að ákvörðun í
þessu máli biði nýs
landbúnaðarráð-
herra.
„Ef svara á um-
sókninni á grundvelli þeirra
gagna sem fyrir liggja þá verðum
við að neita henni vegna form-
galla, þar sem umsóknin gekk
ekki upp. í tilrauninni er gert ráð
fyrir að erfðaefnið í Noregi sé
valið á sama grunni og viðgengst
hér, þ.e. við náum í naut undan
bestu nautunum og nautsmæðr-
unum og sömu vinnubrögð yrðu
viðhöfð í Noregi. Kálfarnir í
Hrísey yrðu þá sambærilegir að
gæðum og þau naut sem tekin
yrðu inn á nautastöð. Þetta er
ekki framkvæmanlegt ef aðeins
má fara inn á þrjú bú í Noregi.
Þannig fáum við ekki þann íjölda
fósturvísa sem við þurfum af
þeim gæðum sem nauðsynleg
eru. Það er ódýr lausn eftir þann
tíma sem hefur Iiðið frá umsögn-
um að fara að svara þessu nú
neitandi vegna formgalla. Eðli-
Iegra væri að leiða saman full-
trúa Landssambands kúabænda,
Bændasamtökin og yfirdýralækni
til að ræða hvort hægt væri að
liðka skilyrði og Ijölga búum og
hvort það væri ásættanlegt út frá
heilbrigðissjónarmiði eða hvort
hægt væri að breyta tilrauninni.
Hefðum við samþykkt tilraunina
tel ég að fram hefði farið tilraun
sem ekki yrði marktæk,11 sagði
Sveinbjörn Eyjólfsson.
Dýralæknar og umsækjendur
funda í dag og í framhaldi þess
verður málið afgreitt frá land-
búnaðarráðuneytinu. - GG
Guöni Ágústsson.
Kúabændur honum reiðir.
Eins og
butateppi
Samtök um betri byggð hafa
skorað á borgarstjóra að beita sér
fyrir að flutningur Hringbrautar
Ioki ekki fyrir stækkun miðborg-
arinnar til suðurs, inn á núver-
andi flugvallarstæði. Samtökin
leggja til að hluti Hringbrautar
verði lagður í stokk svo hún skeri
ekki Tjarnarsvæði frá Vatnsmýri
eins og nú sé. Með því skapast
möguleikar til að þróa saman
gamla miðbæinn við nýjan mið-
bæ þegar flugvöllurinn er farinn.
Jóhann J. Olafsson, formaður
Samtaka um betri byggð, segir
að með áskoruninni sé verið að
leggja áherslu á að skipulagið á
Vatnsmýrarsvæðinu verði skoð-
að. Hann segir að eins og stað-
an sé þá sé ekki verið að hugsa
um skipulag á Vatnsmýrarsvæð-
inu, heldur sé allt óskipulagt.
Hann líkir núverandi ástandi í
skipulagi við að verið sé að
sauma þútateppi. - GRH
Jens Martin Knudsen greip oft vel inn í leik Leifturs og Anderlecht í gærkvöld eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
Hann og Hlynur Birgisson, sem er fyrir aftan hann, voru bestu menn Leifturs. Sjá nánar á bls. 12. mynd: brink
Fær upp-
reisn æru
„Eg lít svo á að með þessu hafi
ég fengið uppreisn æru,“ sagði
Vilhjálmur Ingi Arnason, for-
maður Neytendafélags Akureyr-
ar, í samtali við Dag. Honum
hefur verið falið að hafa umsjón
með því af hálfu Neytendasam-
takanna að tölvuhugbúnaður
þeirra uppfylli kröfur sem gerðar
eru. Vilhjálmur Ingi komst upp á
kant við stjórn Neytendasamtak-
anna, einkum formanninn Jó-
hannes Gunnarsson, en á sínum
tíma setti Vilhjálmur fram
efasemdir um að hugbúnaður
sem samtökin notuðu væri lög-
legur út frá höfundarrétti.
Vilhjálmur hefur staðið í stappi
við forystu Neytendasamtak-
anna, einkum formanninn Jó-
hannes Gunnarsson, sem nú
hefur beðið Vilhjálm Inga afsök-
unar á óþægindum sem hann
kann að hafa orðið fyrir meðan
beðið var formlegrar rannsóknar.
Vilhjálmur vill ekki tjá sig um
hvort þetta þýði sættir milli
manna í samtökunum og áfram
mun verða haldið úti tveimur
neytendaskrifstofum á Akureyri,
skrifstofu Neytendafélagsins og
Neytendasamtakanna. Hann
segist hafa beðið eftir lyktum
þessa máls með að boða aðal-
fund í félaginu, sem hann nú
mun gera og býður hann sig þar
fram til endurkjörs.
Fleiraen
eitt tilboð
Stýrihópur um aðgerðir í E1
Grillomálinu hefur skilað Siv
Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra umsögn um tilboð í rann-
sóknir á ástandi flaksins. Siv
sagði Degi í gærkvöld að fleiri en
einn aðili kæmi til greina við að
vinna verkið, sem fælist í að
rannsaka ástand skipsins og
hefta leka. Ráðherra sagði að nú
yrðu tilboðin metin en að svo
stöddu vildi hún ekki gefa upp
hversu há tilboðin eru eða hverj-
ir standa að þeim.
idir samdægurs
'i Venjulegirog
f demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
WORLOW/De EXPfí&S
Ein NÚMER AÐ MUNA
5351100