Dagur - 28.08.1999, Side 2

Dagur - 28.08.1999, Side 2
2 - LAUGARDAGUR 2 8. ÁGÚST 1999 FRÉTTIR „Við verðum með tölvurnar í sérstökum kassa sem hægt verður að henda í skottið á fóiksbíi og bruna hvert á land sem er til að halda námskeið." Tölvuver á ferö lunlandið Símenntimaxstofnim KHÍ tók nýlega í notkun nýtt fartölvuver. Bylting í námskeiðshaldi. Getur farið hvert á land sem er. Dagur símenntunar er í dag. Á undanförnum árum hefur þróun tölvubúnaðar og upplýsingatækni verið gífurlega hröð. Aukin notkun Inter- netsins og þeir nýju möguleikar sem það skapar eiga án efa eftir að hafa umtalsverð áhrif á skólastarf um víða veröld. Greiður aðgangur að óendan- legu magni upplýsinga sem sífellt auð- veldara verður að geyma eða birta, fær- ir nýja vídd í nám og kennslu. Símenntunarstofnun Kennarahá- skóla Islands hélt nýlega tvö námskeið um notkun Internetsins í námi og starfi. Námskeiðin, sem haldin voru að Varmalandi í Borgarfirði, eru alþjóð- Iegt samstarfsverkefni og þátttakendur voru 39 frá 19 löndum. Það sem vekur kannski mesta athygli við þessi námskeið er búnaðurinn sem notaður var við kennsluna. Símennt- unarstofnun KHI tók á námskeiðunum í notkun nýtt og fullkomið fartölvuver með nettengingu og búnaði til mynd- samskipta ásamt grunnbúnaði til myndvinnslu. „Við teljum þetta vera byltingu í námskeiðshaldi og fórum út í þetta æv- intýri þess vegna,“ segir Jón Jónasson, framkvæmdastjóri Símenntunarstofn- unar KHI. Fjðlmðrg námskeið bókuð Tölvurnar eru sextán og þær eru sam- tengdar með netþjóni og einnig er hægt að tengja þær við Internetið hvar sem er á landinu. Meðal annars bún- aðar eru myndskannar, prentarar og myndbandstökuvélar sem gefa þann möguleika að koma á fjarfundasam- bandi. „Þetta kostar auðvitað svolítið en ég held að þetta sé mikið meira en þess virði,“ segir Jón. Þrátt fyrir að fartölvu- verið hafi aðeins verið í notkun í stutt- an tfma er þegar búið að bóka fjölmörg námskeið. Boðið verður upp á ýmis námskeið þar sem tölvur eru nauðsyn- legar víðs vegar um landið. „Þó að fartölvuverið verði á flakki um allt land má segja að það muni eiga lögheimili hér að Varmalandi þar sem KHI á húsnæði." segir Jón. „Við verð- um með tölvurnar í sérstökum kassa sem hægt verður að henda í skottið á fólksbíl og bruna hvert á Iand sem er til að halda námskeið." Dajjiir síineiinf iinar Þess má að lokum geta að Dagur sí- menntunar er í dag þar sem dagskrá verður í gangi víða um land, eða á alls 30 stöðum. Allir dagskrárstaðir verða tengdir saman með fjarfundabúnaði. Hægt er að fylgjast með dagskránni á Netinu. Slóðin er www.mennt.is/si- menntun — GÍS Einn pottverji hafði reMð augun í blaðið Austurland, sem Karl Th. Birgisson hefur rifið upp. Þar beinir Karl nokkrum spumingum til Hannesar Hólmsteins Gissur- arsonar m.a. vegna skrifa hans um Jón Ólafsson og Reykjavíkur- listann. Karl segir augljós tengsl milli skrifa Hannesar, hciftar Davíðs vegna kaupa Jóns og annarra á hlut í FBA og átaka stjómarflokkanna um það mál. Hitt sé ljóst að þcgar Hannes Hólmsteinn hncrri sé það merM um að Davíð sé með kvef... Karl 77). Birgisson. Ein af þeim spurningum sem Karl bcinir til Hannesar er hvort hann sé að skamma Albaníu - Rcykja- vlkurlistann - þcgar hann meini Kína - FramsóMiarflokMnn. Að hann sé að láta Framsóknarflokk- inn vita að liann viti. Síðan spyr Karl: Veit Hannes kannske hver stóð að baM frægu dreifibréfi í vor, þar scm tí- unduð voru ósæmileg sainsMpti forystu Fram- sóknarflokksins og hins þjóöhættulega Jóns Ólafssonar? Pottverjum fhinst fróðlegt að íylgj- ast mcð því hvort Hamies svari einhverjum af þessum spumingum, og ekM síst þeini síðustu: Var hami (Hannes) ekM sj álfur á launum hj á J óni Ólafssyni til skamms tíma? Hvað liékk á þeirri spýtu?.... Yfir í allt annað. Pottverjar voru að undrast yfir gleði Flugleiðafor- stjórans meö aíkomu íyrstu sex mánaða ársins. Gróði upp á 600 milljónir. En af liverju? Jú, félag- ið seldi þotu og tvö hótel. Ef ekki. hefði tapið verið upp á 800 millj- ónir. Pottverjum fannst þessar hóMialdsæfingar kostulegar enda gleyptu fjár- festar þetta ekM og Flugleiðabréfin snarlækk- uðu samdægurs... Sigurður Helgason. FRÉTTA VIÐTALIÐ Jóhannes Geir Sigurgeirsson stjómarformaðurLandsvirkjumr Skýrsla urn umhverfismat Landsvirkjunar vegna Fljóts- dalsvirkjunarí næsta mánuði. Efnisyfirlitmeð tilvitnunum í skýrslurum 18 blaðsíður. Firr- ing meðalþjóðarinnar. Hluti hennar veit ekki á hverju við ____ lifum. Heitar tilfmmngar í báðar áttir - Hvað líður niðurstöðu af umhverfismati Landsvirkjunar vegna Fljótdalsvirkjun- ar? „Það er verið að vinna að samantekt skýrslunnar og hún á að vera tilbúin á haustdögum, vonandi seint í næsta mánuði. Það var hinsvegar stefnt að því að hún yrði tilbúin í fyrrahaust. Síðan fannst mönnum vera ákveðin göt í upplýsingaöfluninni og því var sumarið notað til að klára það. Eðli málsins samkvæmt vinna menn ekki á staðnum nema á sumrin. Sem dæmi get ég nefnt að efnisyfirlit með tilvitnunum í þær skýrslur sem lagðar eru þarna fram er átján blaðsíður. Það segir mönnum dálítið hvað þarna liggur að baki.“ - Líta menn svo d að þessi vinna og skýrsla Landsvirkjunar komi í vegfyrir að ráðist verði í lögformlegt umhveifismat? „Nei, það hefur aldrei verið., Stjórn Landsvirkjunar hefur aldrei litið þannig á. Landsvirkjun vinnur eftir sérlögum og nán- ast allar framkvæmdir sem fyrirtækið fer í eru líka eftir sérlögum. Þau Iög sem í gildi eru lúta skýrt og skorinort að vinnu að und- irbúningi og virkjunar Fljótsdals og það hef- ur verið gert. Hinsvegar ákvað stjórn Lands- virkjunar fyrir um tveimur árum að láta vinna skýrslu um umhverfismat sem er ná- kvæmlega sama vinnan eins og fram fer í því sem menn kalla í dag lögformlegt umhverf- ismat. Það eina sem skilur að er hvernig far- ið verður með skýrsluna í framhaldinu." - Af hverju hafa menn verið á móti lög- formlegu umhverfismati? „Það hefur verið einhuga skoðun stjórnar Landsvirkjunar að það væri ekki hennar að ákveða í hvaða farveg þetta ætti að fara, heldur ríkisstjórnar og Alþingis: Þetta er líka eitt viðkvæmasta pólitíska málið sem er uppi og hefur verið um langt árabil. Það hefur verið mín skoðun að ekki ætti að færa þann vettvang inní stjórn Landsvirkjunar heldur ætti það að vera tekið fyrir á vett- vangi stjórnmálanna. Landsvirkjun hefur hinsvegar lagt sitt af mörkum til þess að all- ar upplýsingar liggi fyrir þegar kemur að því að menn taka ákvörðun." - Hvað finnst þér um það þegar um- hverfissinnar nánast hóta aðgerðum ef ekki verður farið í lögformlegt umhvetfis- mat? „Ég gæti haft heilmiklar pólitískar skoð- anir á þessu öllu og hef raunar, en ég læt það ekki trufla mig neitt í störfum mínum í stjórn Landsvirkjunar. Frá því ég kom þang- að hef ég lagt áherslu á að Landsvirkjun eigi að líta faglega á hlutina. Þannig að ég hef svo sem ekki mikla skoðun á því. Hinsvegar veit ég og það fundum við á ferð okkar aust- ur um daginn, að þarna eru heitar tilfinn- ingar í báðar áttir." - Hvað finnst þér þá um þetta sem póli- tíkus? „Eg er hættur í pólitík. Málið er hinsveg-, ar mjög viðkvæmt hvernig sem það fer. Það virðast aftur á móti vera nokkuð skýrar lín- ur hvað það varðar að þeir sem búa á því svæði landsins þar sem menn eiga í vand- ræðum að koma öllum byggingum og fram- kvæmdum fyrir, virðast vera meira á því að þarna eigi ekkert að gera. Uti á landi snýst dæmið dálítið mikið við. Þar heyrir maður mikið það sjónarmið að það heyrðust engar raddir á meðan uppbyggingin á Suður- og Suðvesturlandi stóð yfir. Þegar svo er kom- ið að landsbyggðinni, þá á helst að stoppa allt.“ - Finnst þér þetta kannski dæmi um að það húi tvær þjóðir i landinu? „Mér finnst þetta vera dæmi um ákveðna firringu. Hluti þjóðarinnar áttar sig ekki Iengur á því á hverju við !ifum.“ - GRH -^r,----— j

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.