Dagur - 28.08.1999, Blaðsíða 9
Tfc^ir
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 - 9
ályktun að fikniefnaneysla sé tölu-
vert almenn meðal unglinga. Við-
horf foreldra eru einnig umhugs-
unarefni þar sem foreldrum
fannst í nokkrum tilvikum það
ekki tiltökumál þó að 16 ára barn
þeirra væri með mikið magn af
áfengi undir höndum og höfðu
jafnvel lagt blessun sína yfír það.
Spyrja má hvort við erum að
gleyma þeim vanda sem áfengis-
neysla ungmenna er, í ákafanum
við að uppræta fíkniefnaneyslu?"
Foreldravaktm
Ohætt er að segja að greinargerð
Vigdísar Steinþórsdóttur hjá for-
eldravaktinni sé sú svartasta, sem
lögð var fyrir bæjarráð. Þar kemur
m.a. fram að erfíðlega hefur geng-
ið að manna foreldravaktina og
vaktin telur sig ekki fá nægjanleg-
an stuðning frá lögreglunni. Vigdís
bendir á að veitingahúsið Sjallinn,
eitt veitingahúsa í bænum, hafí
meinað foreldravaktinni inngöngu
fyrsta og annað kvöld hátíðarinn-
ar! Segir Vigdís að unglingar beri
ótvírætt virðingu fyrir foreldra-
vaktinni og að hún geri augljóst
gagn. Hún sé hins vegar sjálf að
hætta og óvíst sé með framtíð
þessa starfs. Síðan segir Vigdís það
sína persónulegu skoðun að hún
vilji „ekki sjá aftur slíka sorgarhá-
tíð í mínum bæ... Mér fannst
skelfilegt að horfa upp á þessi
veslings ungmenni engjast af
áhrifum eiturlyfja, eða sundur
skorin eftir árásir, nú eða viti sínu
Ijær af víndrykkju. Það getur eng-
inn gert sér þessar aðstæður í hug-
arlund nema upplifa þær sjálfur".
Tvískinnungur
Friðrik Vagn Guðjónsson, heimil-
islæknir og íbúi í grennd við KA
svæðið, þar sem unglingatjald-
stæðið var, er lítið hrifínn af há-
tíðahöldunum og bendir á það
ónæði sem af híýst þegar þær eru
inni í íbúðahverfum. Sjálfur fékk
hann stóran skammt af slíku. Frið-
rik gerir meðal annars að umtals-
efni hlut hagsmunaaðila í þessum
hátíðahöldum og segir það sér-
staklega óviðeigandi að þeir láti í
það skína fyrir og eftir hátíðahöld-
in að foreldrum annars staðar á
landinu sé óhætt að senda börn
sín og unglinga til Akureyrar um
verslunarmannahelgar á þeim for-
sendum að öll gæsla sé þar svo öfl-
ug. „Slíkur tvískinnungur er ekk-
ert annað en óformlegt samþykki
fyrir vímuefnaneyslu unglinga."
Og Friðrik segir enn fremur: „Sem
Akureyringi líður mér illa vitandi
það að hluti hagnaðarins verður til
fyrir þá staðreynd að drukknir og
þar af leiðandi dómgreindarskertir
unglingar gera sér í mörgum tilvik-
um litla grein fyrir þvi hvað þeir
eru að kaupa og enn síður hve
mikið þeir eru að borga fyrir.“
Sæunn Axetsdóttir sú er fiskverkunin er kennd við gæti haslað sér völl í Þorlákshöfn innan tíðar.
Sæmm Axels í
Þorlííksliöfn?
Fundað verður í Ólafs-
firði á máimdagiim að
undirlagi verkalýðsfé-
lagsius Einingar með
þingmönnum kjör-
dæmisins, verkalýðs-
félaginu Einingu, bæj-
arráði Ólafsfjarðar og
forsvarsmönnum Sæ-
mmar Axels vegna
uppsagna hjá félag-
inu.
Forvarsmenn fískverkunar Sæ-
unnar Axels í Olafsfirði eru að
kanna möguleika á því að færa
fískvinnslu sem fyrirtækið hefur
starfrækt í Reykjavík til Þorláks-
hafnar til þess að vera nær fisk-
inum en mikið hefur verið keypt
af fiski í Þorlákshöfn og eðlilegra
sé að vera þar og spara þar með
akstur með fiskinn til Reykjavík-
ur. Fiskvinnslunni í Reykjavík
var nýverið lokað.
Axel Pétur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Sæunnar Axels,
segir að um 10 manns hafi starf-
að við fiskvinnsluna í Reykjavík
en óvíst sé með mannahald í
Þorlákshöfn, þar sem verið sé að
ræða um að reka fiskvinnslu í
Þorlákshöfn í samstarfi með
fleiri aðilum og um það verði
stofnað nýtt hlutafélag. Um full-
vinnslu yrði að ræða í Þorláks-
höfn á fískinum og hann fluttur
þaðan á erlendan markað.
Hjörleifur Brynjólfsson, odd-
viti Olfushrepps, segir það
ánægjulegt ef einhveijir aðilar
vilji helja fiskvinnslu í Þorláks-
höfn. „Það ríkir ákveðin óvissa
hér með starfsemi í húseignum
Vinnslustöðvarinnar en þeir eru
að skoða frekar sín spil eftir að
starfsfókinu var sagt upp. Við
værum mjög sáttir við það ef Sæ-
unn Axels kæmi hingað með ein-
hvern rekstur í samstarfi við
fleiri aðila, eftir því sem mér
skilst. Eg vona að það finnist
eitthvert hlutverk fyrir þetta hús
Vinnslustöðvarinnar," segir
Hjörleifur Brynjólfsson.
Axel Pétur Ásgeirsson segir
stöðuna í Ólafsfirði óbreytta, en
þar var öllu starfsliði, alls um 70
manns, sagt upp fyrr í sumar,
m.a. vegna mótmæla við útdeil-
ingu á svokölluðum byggða-
kvóta, en ekkert af honum kom í
hlut Ólafsfírðinga.
„Það verður fundur hérna í
Ólafsfirði á mánudaginn að und-
irlagi verkalýðsfélagsins Eining-
ar með þingmönnum kjördæmis-
ins, verkalýðsfélaginu Einingu,
bæjarráði Ölafsíjarðar og okkur
forsvarsmönnum Sæunnar Ax-
els. Við viljum vita hvort við höf-
um einhvern hljómgrunn við
okkar sjónarmið í þessu kvóta-
máli og fleiru, en okkur finnst
þögnin afar einkennileg, eða
asnaleg. Menn eru tilbúnir að
úttala sig um öll möguleg mál-
efni meðan verið er að berjast
um þingsæti á Alþingi í kosn-
ingabaráttunni, en svo er þagað
þunnu hljóði þegar svona stórt
mál er á ferðinni eins og hér er
nú í Ólafsfirði en við erum
stærsti atvinnurekandinn hér,“
segir Axel Pétur Ásgeirsson. — GG
Fislddj usani 1 agi ö
sameinast Ljósavík
Húsavíkurbær inun
eiga 26% hlut í FH
eftir söluna. Kvótinu
eftir sameiningu
verður 7.500
þorskígildistoim.
Bæjarráð Húsavíkur samþykkti á
fundi sínum 25. ágúst sl. að selja
Ljósavík í Þorlákshöfn 20% hlut
í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur
(FH) fyrir rúmar 260 milljónir
króna. Hluturinn er seldur á
genginu 2,10, sem er sama gengi
og Húsavíkurbær keypti 14%
hlut Kaupfélags Þingeyinga í FH
á fyrr í sumar fyrir 180 milljónir
króna. Salan minnkar lánsíjár-
þörf bæjarins. Aðilar eru sam-
mála um að leggja fram tillögu
til stjórna beggja félaganna um
að strax verði komið á nánu sam-
starfi FH og Ljósavíkur með það
fyrir augum að fyrirtækin verði
sameinuð 1. september nk., þ.e.
við upphaf fiskveiðiársins
1999/2000 undir merkjum FH.
Kvóti fyrirtækisins verður um
7.500 þorskígildistonn. Ljósavík
er útgerðarfyrirtæki rækjuskipa,
sem gerir út Gissur ÁR og Ask
ÁR og ennfremur á félagið út-
gerð í Færeyjum, sem gerir út
togarann Hersi. Fiskiðjusamlag-
ið á vel búna rækju- og bolfisk-
vinnslu.
Húsavíkurbær mun eiga 26%
hlut í FH eftir söluna. Aðdrag-
andi þessa ferlis er mjög stuttur,
mældur f nokkrum dögum en
FH hefur verið í leit að sam-
starfsaðila með það að markmiði
að stækka félagið en einn megin-
veikleiki þess hefur verið tak-
markaðar aflaheimildir. Salan á
rækjutogaranum Húsvfkingi og
salan á rækjuverksmiðjunni á
Kópaskeri gerir það að aðrir aðil-
ar hafa sýnt FH aukinn áhuga.
Fyrir nokkru var komið á
ákveðið samkomulag um sam-
starf milli FH og Þormóðs
ramma-Sæbergs á Siglu-
firði/Ólafsfírði. Reinhard Reyn-
isson, bæjarstjóri á Húsavík, var
inntur eftir því hvort það ferli
hefði dottið upp fyrir vegna þess
að þá var farið að huga að sam-
runa FH við Ljósavík.
„Nei, það voru aðrir hlutir sem
ollu því að menn voru ekki til-
búnir að halda áfram með það
dæmi. Það verkefni var að
mörgu leyti svipað því sem nú
hefur náðst samkomulag um,
þ.e. að það kæmu ákveðnar eign-
ir inn í FH og það stækkaði er
Þormóður rammi-Sæberg yrði
hluthafi,“ segir Reinhard Reyn-
isson. — GG