Dagur - 28.08.1999, Side 7

Dagur - 28.08.1999, Side 7
V <> ft V T2«;vtv X H\1 3 KUH • ' ! k .1 X^HT' RITS TJÓRNARSPJALL LAVGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 - 7 f * * * 1 1 * 1 ’ ■ • i í 1 1 Á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins í byrjun vikunnar. Davíð Oddsson forsætisráðherra messar. Þingmennirnir Einar Oddur Kristjánsson og Guðmundur Hallvarðsson heyra erkibiskups boðskap. Barist iim banka ELIAS SNÆLAND JÖNSSON SKRIFAR Þjóðin hefur hlustað í forundran á ótrúlegar yfirlýsingar Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, að undanförnu um málefna banka og fjármálastofnana. Tilefni þess- ara skipulögðu pólitísku árása voru viðskipti með hlutafé. Ríf- lega fjórðungshlutur £ Fjárfest- ingabanka atvinnulffsins (FBA) skipti um eigendur - fór frá einu hlutafélagi Islendinga, skráðu í Lúxemborg, f hendur annars hlið- stæðs hlutafélags Islendinga sem skráð er á sama stað. Hlutabréfin voru seld í einum pakka á gengi sem gaf til kynna að bankinn væri næstum 20 milljarða króna virði. Fyrstu viðbrögð Davíðs Odds- sonar voru á þau að nú þurfti að setja lög. Að vegna þess að þetta hlutafé hefði farið frá einu hluta- félagi í Lúxemborg til annars bæri nauðsyn til að tryggja með lögum dreifða eignaraðild að ríkisbönk- unum eftir að þeir hefðu verið seldir á almennum markaði. Þeir sem lengi höfðu lagt áherslu á nauðsyn dreifðrar eign- araðildar fögnuðu þessum nýja en óvænta bandamanni, en innan stjórnarliðsins var fussað og svei- að - einkum þó á bak við tjöldin þegar foringinn var hvergi nærri. En Davíð var ekki Iengi í para- dís hinnar dreifðu eignaraðildar. Nokkrum dögum seinna sneri hann við blaðinu, sagði vonda menn hafa eyðilagt stefnu ríkis- stjórnarinnar um dreifða eignar- aðild og þess vegna ætti að selja þau 51 prósent sem ríkið á enn í FBA í einu lagi og væntanlega til eins kaupanda. Þar með hafði for- sætisráðherra snúist í heilan hring á örfáum dögum. í Ieiðinni hefur Davíð Oddsson hellt svívirðingum yfir Kaupþings- menn, augsýnilega fyrir það eitt að hafa selt röngum mönnum hlut sinn í FBA. Mun algjört eins- dæmi í þjóðarsögunni að íslenskt ljármálafyrirtæki fái yfir sig slíkar ásakanir af hálfu forsætisráðherra landsins - ásakanir um siðleysi og lögbrot. Og hann lét sér ekki nægja að standa einn í skítkast- inu; allt gamla strákagengið var kallað fram á ritvöllinn forsætis- ráðherranum til hjálpar í leðjuslagnum. í nóvember átti Kaupþing 15 prósent Margar spurningar hafa vaknað vegna hegðunar forsætisráðherra síðustu dagana. Ein sú málefna- legasta er auðvitað þessi: Ef það eitt að fyrirtæki eignast fjórðungs- hlut í FBA er glæpurinn mikli sem eyðilagt hefur stefnu ríkis- stjórnarinnar í bankasölumálum, hvers vegna lét Davíð Oddsson ekki þá skoðun sína í ljósi á síð- asta vetri? Það er nefnilega langt síðan allir vissu að erlent fyrirtæki í eigu Kaupþings var komið með fjórðung hlutabréfa í FBA á eina hendi. Vafalaust hefur enginn gleymt því hvernig sala ríkisins á 49 pró- senta hlut í Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins gekk fyrir sig, þótt tæplega ár sé liðið og skammtíma- minni Islendinga slappist stöðugt. Fjársterk fyrirtæki gengust þá fyr- ir svokallaðri kennitölusöfnun - það er þau buðust til að borga fólki fyrir að Iána kennitölu sína svo fyrirtækin gætu keypt meira í FBA en hverjum og einum var heimilt samkvæmt útboðinu. Þarna fóru í fararbroddi aðrir bankar sem vildu eignast feitan bita í gróðavænlegu ríkisfyrirtæki. Þetta skilaði sér fljótlega í sam- þjöppun eignar í FBA. Dagur skýrði til dæmis frá því þegar seinnipartinn í nóvember í fyrra að Kaupþing væri orðinn lang- stærsti hluthafinn í FBA, fyrir utan ríkið, og þá þegar komið með 15% eignarhlut í bankanum. Þá fannst Davíð ekkert athuga- vert við þessa samþjöppun eignar- halds í FBA. Þá var hún í lagi. Þá þagði Davíð Oddsson. í mars átti Kaupþmg fjórðung A síðastliðnum vetri hélt Kaup- þing áfram að sanka að sér hluta- bréfum í Fjárfestingarbankanum. Samkvæmt frétt sem Dagur birti í mars síðastliðnum - fyrir tæplega hálfu ári - bar hluthafaskrá FBA með sér að einn aðili væri kominn með 24.09 prósenta hlut í bank- anum. Fyrirtæki sem Kaupþing hafði stofnað í Lúxemborg hafði þannig eignast fjórðung hluta- bréfa, eða ráðandi hlut næst á eft- ir ríkinu, og fékk menn í stjórn FBA í samræmi við það. Samkvæmt rökum Davíðs nú hafði Kaupþing þannig þegar á fyrstu mánuðum þessa árs eyði- Iagt stefnu ríkisstjórnarinnar um dreifða eignaraðild. Hið skrítna er að í mars síðastliðnum var hann ekki þeirrar skoðunar. Þá fannst honum ekkert athugavert við það að eitt fyrirtæki ætti fjórðungs- hlut í FBA. Þá var það í lagi. Þá þagði Davíð Oddson. Tilboð vina Daviðs Þar sem Kaupþingsmenn höfðu sterkan grun um að ætlunin væri að koma því hlutafé sem ríkið á enn í FBA - og þar með meiri- hlutavaldi í bankanum - í einu lagi til nýrra þóknanlegra eigenda, og fengu engin svör um annað, fóru þeir að leita hófana um sölu á fjórðungshlut sínum í bankan- um. Það sem gerðist í þeim málum á þessu sumri var rækilega rakið í fréttaskýringu í Degi síðastliðinn fimmtudag. Þar kom skýrt fram að hópur Ijárfesta - manna sem voru Davíð Oddssyni þóknanlegir - unnu að því í sumar að kaupa margnefndan fjórðungshlut f FBA. Hópurinn gerði tilboð, en bauð of lágt verð. Þess vegna hafnaði Kaupþing tilboðinu. í þessum hópi Ijárfesta var Sig- urður Gísli Pálmason í Hofi, einn erfingja Hagkaupsveldisins - mað- ur sem þekktur hæstaréttarlög- maður hefur nefnt opinberlega sem öflugan fjáröflunarmann fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn. Sem sagt einn af gulldrengjum sjálfstæðis- manna. Hann var auðvitað ekki ókunnugur Fjárfestingarbankan- um - því það var einmitt FBA sem Iagði stóran hluta af fjármunum sínum til að kaupa af honum Hagkaupsveldið. Vafalaust hefur staðið til að nota eitthvað af þeim milljörðum sem FBA reiddi fram í þeim viðskiptum til þess einmitt að kaupa bankann! Snilldarleg hringrás fjármagnsins það - ef dæmið hefði gengið upp. Davíð var að sjálfsögðu full- kunnugt um tilraunir gulldrengs- ins og fleiri peningamanna til að kaupa fjórðung í FBA, og hafði ekkert við það að athuga nema síður væri. Þar var ekki fyrr en aðrir buðu betur og náðu samn- ingum þar um sem forsætisráð- herra umhverfðist í þá refsinorn reiðinnar sem enn dynur á Kaup- þingsmönnum fyrir þá ósvinnu að selja öðrum en vinum Davíðs. Hvers vegna nnna? Eftir það sem á hefur gengið síð- ustu dagana er eðlilega spurt: Hvers vegna þagði Davíð Odds- son í nóvember í fyrra þegar Kaupþing hafði eignast 15 pró- sent í Fjárfestingarbankanum? Hvers vegna þagði hann í mars þegar Kaupþing hafði eignast fjórðungshlut í bankanum? Hvers vegna þagði hann í sum- ar þegar hópur honum þóknan- legur reyndi að kaupa þennan fjórðungshlut af Kaupþings- mönnum? Hvers vegna er það fyrst þegar Orca-hópurinn kaupir þennan hlut nú í ágústmánuði að hann tryllist? Svarið liggur auðvitað í augum uppi. Það er ekki vegna þess að honum sé annt um að þessi íjórð- ungur hlutabréfanna sé í dreifðri eignaraðild. Þá hefði hann mót- mælt hástöfum í nóvember eða í síðasta lagi í mars þegar sú stað- reynd lá fyrir að eitt fyrirtæki hafði náð til sín fjórðungshlut í bankanum. Nei, ástæðan er einfaldlega sú að það voru ekki réttu mennirnir sem keyptu. Það voru ekki gull- drengir Sjálfstæðisflokksins. Þess vegna sprakk Davíð opinberlega og sýndi þjóðinni um leið á sér afar ógeðfellda hlið sem ímyndar- sérfræðingum flokksins hefur tek- ist bærilega að fela til þessa. Sýndi þjóðinni hvað gerist þegar menn úti í bæ dirfast að kaupa hluta af þeim gullgæsum þjóðar- innar sem forsætisráðherra og hirð hans hafa alla tíð ætlað hin- um útvöldu í Sjálfstæðisflokkn- um. Hvað nú? Reiðikast Davíðs hefur valdið miklum vandræðum innan ríkis- stjórnarsamstarfsins og algjörri óvissu um hvernig staðið verði að frekari sölu ríkisbankanna. Það auðveldar ekki bankasölu- mönnum málið að ríkisbankarnir eru núna, sem hlutafélög í eigu ríkisins, að skila þjóðinni gífurleg- um hagnaði. Þess vegna spyija sí- fellt fleiri: hvers vegna á ríkið að Iosa sig við gullgæsina? Þessi spurning beinist auðvitað ekki síst að framsóknarmönnum, því varla vilja þeir láta komandi kynslóð minnast sín fyrir það óþurftarverk að koma öllum ábatasömustu eigum samfélags- ins í hendurnar á fjármálayfirstétt sjálfstæðismanna? Það yrðu dap- urleg örlög.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.