Dagur - 28.08.1999, Page 10
Götuheitin í Grafarholti
ÞÓRHALLUR
VILMUNDAR-
SON
PRÓFESSOR
SKRIFAR
TiUögur og greinar-
gerö iim götunöfn í
nýju hverfi í Grafar-
holti í Reykjavík.
Hverfi þetta í Grafarholti verður
byggt á einu merkasta afmælisári
Islandssögunnar, árinu 2000,
þegar þess verður minnst, að
þúsund ár verða þá Iiðin frá
kristnitöku á íslandi og landa-
fundunum í Vesturheimi. Lagt
er til, að götum í hinu nýja hverfi
verði valin nöfn til minningar
um þessi merku tímamót.
Aðkomugatan inn í hverfið frá
Vesturlandsvegi verði nefnd Þiís-
öld. Það er hér sett fram sem ný-
yrði í merkingunni ‘þúsund ára
tímabil’. íslendingar fóru aðra
leið en Þjóðverjar, sem tóku á
17. öld upp orðið Jahrhundert
um ‘hundrað ára tímabil’ og
Danir síðan eftir þeim orðið
Árhundrede. Islendingar gáfu
nafnorðinu öld þessa merkingu,
en upphaflega merkti öld
‘menn', þ.e. ‘þeir, sem aldir eru’
(af sögninni að ala), en síðan
‘mannsaldur’, þá ‘tímabil’ (sbr.
gullöld, Sturlungaöld) og Ioks
‘hundrað ára tímabil’. Þetta er
sama Ieið og farin var í latínu,
þar sem saeculum, upphaflega
‘mannkyn, kynslóð, fékk merk-
inguna ‘mannsævi’, síðan ‘tíma-
bil’ og Ioks ‘hundrað ára tímabil’.
Nafnorðið öld er geysihaglegt
orð í síðastnefndri merkingu.
Menn beri saman á tólftu öld á
íslensku og i det tolvte Árhundr-
ede á dönsku, sem hefði getað
orðið á tólfta árhundraði á ís-
lensku. Að ekki sé minnst á
muninn á orðunum Árhundred-
skifte á dönsku og aldamót á ís-
lensku, sem fætt hefur af sér orð
eins og aldamótaljóð og alda-
mótakynslóð.
A 18. öld tóku Þjóðveijar upp
Jahrtausend um ‘þúsund ára
tímabil’ og Danir eftir þeim
Ártusinde, sem hefur verið nefnt
árþúsund á íslensku. Þús- í orð-
inu þúsund (að fornu einnig þús-
hund eða þúshundrað) er talið
hafa merkt upphaflega ‘stór-’ eða
‘fjöl-’ og hefur hér fengið merk-
inguna ‘tíu’ eða ‘tífalt’. Þúsund ár
merkir því ‘tíu hundruð ár'. Þar
sem Islendingar hafa hafnað
orðinu árhundrað og nota orðið
öld í merkingunni ‘hundrað ára
tímabil’, vaknar sú spurning,
hvort ekki megi taka upp orðið
þúsöld um ‘þúsund ára tímabil’
eða ‘tíu aldir’. Orðið þiísöld væri
þá hugsað sem ‘stóröld’ í merk-
ingunni ‘tíföld (hundrað ára)
öld’. Segja mætti þá t lok þúsald-
ar, á nýrri þúsöld, um þúsalda-
mótin, pýramídarnir miklu voru
Þjóð h íl darst ígur
NV<
Grænlandsleið
Kristnibraut
Krosstorg#
Gvendarg
’jfér'JrM
Hér hafa nýju nöfnin verið færð inn á göturnar í nýja hverfinu í Grafarholti.
rj.'í
IW
Vf/f* -/!/ im T fTTPÖE 'liiL-3'3
(f mIíéi
hlaðnir á 3. þúsöld f. Kr. o.s.frv.
Með þessu móti fengist sam-
ræmi við alda-kerfið íslenska.
Til heiðurs Guðríði og
Þjóðhildi
Frá Þúsöld gengur stór gata til
vesturs, og er lagt til, að hún fái
nafnið Vínlandsleið, en stór gata
til austurs nefnist Grænlands-
leið. Með vali seinni liðarins
-leið er höfð í huga merkingin
‘sjóleið’. Smærri gata til vesturs
verði nefnd Guðríðarstigur til
minníngar um Guðríði Þorbjarn-
ardóttur, konu Þorfinns karls-
efnis, en gata til austurs Þjóð-
hildarstígur til minningar um
Þjóðhildi Jörundardóttur, konu
Eiríks rauða. Báðar tengjast þær
bæði landafundunum í vestri og
upphafi kristni á Islandi og
Grænlandi. Guðrfður er, sem
kunnugt er, talin einhver víð-
förlasta kona heims á miðöldum;
hún fæddi son á Vínlandi, gekk
suður til Róms og varð síðast
nunna (einsetukona) í Glaumbæ
f Skagafirði. Þjóðhildur lét reisa
fyrstu kirkju í Vesturheimi, í
Brattahlíð á Grænlandi. Seinni
liðurinn -stígur er valinn með
hliðsjón af því, að konurnar
könnuðu ókunna stigu, stigu þar
væntanlega einna fyrstar evr-
ópskra kvenna fæti á land, og
Guðríður fetaði ■pílagrimsstig. í
gatnakerfi Reykjavíkur hafa göt-
ur þegar verið nefndar eftir
þremur karlmönnum, sem koma
við sögu landafundanna (Eiríks-
gata, Leifsgata og Þorfinnsgata í
Skólavörðuholti).
Sólartorg og Ólafsgeisli
Þúsöld endar í hringtorgi, sem
lagt er til að nefnt verði Sólar-
torg. Frá því Iiggur megingata til
suðausturs, sem nefnd er Ólafs-
geisli. Báðir koma þeir Ólafur
konungur Tryggvason og Ólafur
helgi Haraldsson mjög við sögu
frumkristni á íslandi. Ólafur
Tryggvason sendi kristniboða til
Islands, sem kom hér á kristni
árið 1000 og sendi kirkjuvið til
Vestmannaejna, en féll við Svöld-
ur sama ár. Ólafur helgi tók síð-
an upp þráðinn, kristnaði allan
Noreg og efldi mjög kristni hér á
landi, tók af ýmsa heiðna siði og
sendi m.a. við og kiukku til
kirkju á Þingvelli, sennilega einu
almenningskirkju á landinu.
Ólafur Haraldsson varð síðan
þjóðardýrlingur Norðmanna.
Hann var verndardýrlingur fjöl-
margra íslenskra kirkna, m.a. í
Engey og Viðey, og mörg íslensk
örnefni eru að nafni hans dreg-
in. Um Ólaf helga orti Einar
Skúlason um 1153 drápu, sem
nefnist Geisli, og er Ólafur helgi
þar kallaður geisli miskunnar
sólar (þ.e. Krists).
Frá Sólartorgi Iiggur gata í
austur, sem lagt er til, að nefnd
verði Kristnihraut. Frá henni
liggur hringlaga gata í suður,
sem gefið er nafnið Maríubaug-
ur, en fleiri íslenskar kirkjur eru
helgaðar Maríu mey en öðrum
dýrlingum, og nafn hennar
geymist í fjölmörgum örnefnum.
Önnur gata austar liggur að
væntanlegri kirkju hverfisins, og
er sú gata hér nefnd Kirkjustétt.
Þjóðardýrlingamir
Kristnibraut endar í torgi, sem
gert er ráð fyrir, að heiti Kross-
torg. Frá því greinast þrjár aðrar
höfuðgötur, og er lagt til, að þær
fái nöfn eftir þjóðardýrlingun-
um: Jónsgeisli norður frá torginu
(eftir Jóni helga Ögmundarsyni
Hólabiskupi 1106-21), Þorláks-
geisli suður (eftir Þorláki helga
Þórhallssyni Skálholtsbiskupi
1178-93) og Gvendargeisli aust-
ur (eftir Guðmundi góða Arasyni
Hólabiskupi 1203-37). Mörg ör-
nefni eru dregin af nöfnum
hinna íslensku dýrlinga, einkum
Guðmundar góða, þ.á m. Gvend-
arhrunnar í Reykjavík. Síðast-
nefnd gata endar í hringtorgi,
sem stungið er upp á, að nefnist
Þórðarsveigur (eftir Þórði Jóns-
syni góðamanni, sem höggvinn
var 1385 hjá Krosshólum í Döl-
um; bein hans voru flutt í Staf-
holtskirkjugarð 1389 eftir skipan
officialis (umboðsmanns bisk-
ups) með samþykki allra lærðra
manna, og hugðu menn hann
helgan mann; tólf menn fórust í
skriðuföllum í Búðarnesi í Hörg-
árdal 1390, en einn lifði, og
hafði sá heitið á Þórð Jónsson).
Allmörg örnefni, einkum í Borg-
arfirði og á Mýrum, eru senni-
lega dregin af nafni Þórðar góða-
manns.
Sem sjá má, eru kirkjulegu
nöfnin hugsuð sem minningar-
nöfn um kaþólska kristni, enda
er um að ræða þúsaldarafmæli
þess trúarsiðar. Hverfið gæti
heitið Þúsaldarhverfi eða Þúsöld.
Millifyrirsagnir eru hlaðsins.
O'ROSENGRENS
Öryggis- og
penirtgaskápar