Dagur - 31.08.1999, Síða 1
Ásókn á Vog hefur
aldrei verio meiri
Alveg ljðst að ekkert
mim ganga eðlilega í
forvamastarfi með
öimur vtmuefni með-
an áfengisneyslan
eykst, segir Þórarinn
á Vogi.
„Ásóknin hjá mér hefur aldrei
verið meiri - við sjáum ekkert
fram úr því sem við höfum verið
að vinna úr,“ svaraði Þórarinn
Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi,
spurður hvort nýtt íslandsmet í
áfengissölu hafi komið fram í
aukinni aðsókn á Vogi. Afleiðing-
arnar segir hann einfaldlega
verða þær að Iífslíkur íslendinga
munu styttast. „Lifrarsjúkdómar
af völdum áfengis verða hér sam-
bærilegir við það sem sést í öðr-
um löndum. Aukinni áfengis-
neyslu og vímuefnaneyslu fylgir
fjölgun slysa og ótímabærra
dauðsfalla, bæði af völdum
eitrana og sjálfsvíga. Og við
munum líka sjá að það mun ekk-
ert ganga eðlilega í forvarnastarfi
með önnur vímuefni meðan
áfengisneyslan er að aukast - það
er alveg ljóst.“
Sex lítrar á niann
Nýja sölumetið er
66,5 lítrar, sem svar-
ar til 5,6 lítra hreins
(100%) alkóhóls á
hvern Islending á
aldrinum 15-105 ára
- 9% meira en árið
áður og 25% meira
en fimm árum fyrr.
Fríhafnarsala og
áfengi sem áhafnir
skipa og flugvéla fá
að taka inn í landið
er hér ekki meðtalin.
Bent skal á, að gefnu
tilefni, að skammt-
urinn minnkaði aðeins um 0,07
lítra þó með væru taldir 2.800
erlendir ferðamenn sem hér eru
daglega að meðaltali - en ykist í
rúma 6 lítra á mann (rúm 8%) sé
reiknað með að 80% þeirra ís-
Iensku ferðamanna sem koma til
landsins kaupi „tollinn sinn“ í
Fríhöfninni.
Kúvending í áfengisstefnu
En þegar litið er til allra „svelgj-
anna“ sem þurrkaðir eru upp á
Vogi og vfðar þá er áfengissala
ekki að minnka
heldur stóraukast?
Þórarinn segir að
aukningin ætti eng-
um að koma á
óvart. „Á u.þ.b.
tveim áratugum
hefur verið gjör-
samlega kúvent í
áfengisstefnunni -
úr aðhaidsstefnu,
sem var veruleg -
yfir í algjört frjáls-
ræði, þannig að við
erum nú búnir að
ná flestum þjóðum
í frjálsræðinu. Framan af varð
ekki sú aukning sem við mátti
búast, væntanlega vegna góðrar
stöðu í meðferðarmálum, þar
sem við vorum að kippa út þeim
mönnum sem áður drukku
megnið af áfengí í landinu í aft-
ursæti á drossíum. En nú stefn-
um við á Norðurlandamet; höf-
um náð Norðmönnum og Svíum
og nálgumst Dani.
Þetta er stefna okkar í áfengis-
málum í byrjun nýrrar aldar; að
gera allt sem í okkar valdi stend-
ur til að ná grannaþjóðum í
áfengisdrykkju - með þeim af-
leiðingum sem því fylgja.“ I
Bandaríkjunum og flestum Evr-
ópulöndum segir Þórarinn hins
vegar hafa dregið úr drykkju frá
miðjum níunda áratugnum. „En
við erum að bæta í - enda fannst
okkur við vera svo langt á eftir.“
Minnabruggað - eða...?
Sumir meina að aukin sala
skýrist ekki síður af minna bruggi
en aukinni drykkju. „Mér finnst
það allavega sjónarmið sem vert
er að velta fyrir sér,“ sagði Karl
Steinar Valsson lögreglumaður.
A.m.k. segir hann brugg ekki
hafa verið áberandi að undan-
förnu né heldur að lögreglunni
hafi borist ábendingar um
aðkrakkar séu með landa. - HEl
Þórarinn Tyrfngsson segist
ekki sjá fram úr verkefnum.
Bankamir
misnotaðir
„Stjórnmálamenn
og dyggir stuðn-
ingsmenn þeirra
hafa líka oft mis-
notað aðstöðu
sína innan banka-
kerfisins. Þau tíu
ár sem ég hef átt
aðild að rekstri Is-
lenska útvarpsfé-
lagsins hf. hafa
öfl innan Sjálfstæðisflokksins ít-
rekað Iagt stein í götu félagsins
innan bankakerfisins. Vegna
þess að þessi öfl töldu félagið
ekki í réttum höndum. Gleggstu
dæmin eru frá árinu 1994 og
skulu þau rakin hér.“ Þetta kem-
ur m.a. fram í langri og ítarlegri
grein sem Sigurður G. Guðjóns-
son hrl. ritar í blaðið í dag. Fjöl-
margar fleiri ásakanir er að finna
í greininni, en vegna umfangs
hennar og fréttagildis birtir blað-
ið þessa aðsendu grein í einu lagi
og í heild sinni í opnu blaðsins.
Sjn bls. 8-9.
Hlýtt var í veðri á Akureyri i gær og þessir tveir vinir töidu ákjósanlegt að vaða dálítið í læknum og búa til
vatnsperlur með því að skvetta svolítið. mynd: billi
Miklir fjárhagslegir hagsmunir eru
í húfi fyrir þá sem sótt hafa um út-
hlutun úr 205 tonna byggðakvóta
Vesturbyggðar á sunnanverðum
Vestfjörðum.
26 vilja
kvótann
Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur
ekki komist að niðurstöðu um
hvernig skipta eigi tæplega 205
tonna byggðakvótanum, sem
stjórn Byggðastofnunar úthlut-
aði til bæjarins í sumar. I sl. viku
var m.a. boðað til sérstaks fund-
ar í bæjarstjórn um málið og hef-
ur annar fundur verið boðaður.
Jón Gunnar Stefánsson, bæjar-
stjóri, segir að menn séu að
hugsa málið en 26 umsóknir hafi
borist í kvótann, sem ekki sé
framseljanlegur. Þegar bæjar-
stjórn hefur tekið ákvörðun um
ráðstöfun kvótans verða þær til-
lögur sendar til frekari afgreiðslu
hjá stjórn Byggðastofnunar.
Prófsteinn
Sigurður Viggósson, fram-
kvæmdastjóri Odda í Vestur-
byggð, en fyrirtækið er meðal
þeirra sem Iagt hafa inn umsókn
fyrir kvótanum, segir að þótt út-
hlutunin geti orðið erfiður
kaleikur fyrir bæjarstjórnina, þá
verður hún einfaldlega að leysa
þetta mál. I því sambandi skiptir
tíminn kannski ekki höfuðmáli,
þ.e. hvort kvótanum verður út-
hlutað fyrir eða eftir að nýtt fisk-
veiðiár hefst um mánaðamótin.
Aðalatriðið sé að kvótinn sé
kominn í bæjarfélagið, þótt ef-
laust séu skiptar skoðanir um
það hvernig eigi að úthluta hon-
um. I þessu máli hljóti bæjar-
stjórnin að horfa til þess hvernig
sé hægt að fá sem mestar tekjur
út úr kvótanum. Hinsvegar sé
nokkuð ljóst að það verður
ágreiningur um úthlutun kvót-
ans hvernig sem honum verður
skipt að lokum. Enda miklir fjár-
hagslegir hagsmunir í húfi. Aftur
á móti sé hætt við því að ef mik-
ill og almennur ágreiningur
verður um málið, þá sé líklegt að
ekki verði um fleiri úthlutanir að
ræða f framtíðinni. Af þeim sök-
um m.a. sé þetta prófsteinn á
það hvort bæjarstjórn Vestur-
byggðar hafi þroska til þess að
takast á við þessa kvótaúthlutun.
Hann segist ekki trúa öðru þang-
að til annað kemur í ljós. - GRH
wmmmmmmmmmmmm
Afgreiddir samdægurs
Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar Ok GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI • SÍMI 462 3524 1 \ 5QT2k. W$/Xm FJÓRFALDUR 1. VINNINGUR
SHL
WORWW/DE EXPRESS
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100