Dagur - 31.08.1999, Qupperneq 3
X^ÍH-
ÞRIDJVDA G UK 3 1. ÁGÚST 19 9 9 - 3
FRÉTTIR
Umræðan þjappar
fóUdnu saman
S veitaxstj ómarmeim
segja stuðning Aust-
fLrðinga við álver og
Fljótsdalsvirkjuu nær
algeran.
„Eg er sannfærður um að af-
dráttarlaust fylgi fólks á Austur-
landi við að reisa Fljótsdalsvirkj-
un og álver í Reyðarfirði hefur
aukist mikið upp á síðkastið og
að yfirgnæfandi fjöldi fólks hér
sé því nú fylgjandi. Umfj'öllun
ýmissa tjölmiðla um málið hefur
gengið fram af fólki, sem og yfir-
lýsingar ýmissa manna um það.
Þess vegna kemur það ef til vill
ekki svo mjög á óvart hve mikið
fjölmenni sótti stofnfund félags-
ins Afl fyrir Austurland. Líka að
afdráttarlaus og skýr tillaga um
að halda málinu áfram, sem bor-
in var fram á fundi Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi um
helgina var samþykkt með 41 at-
kvæði gegn 2. Menn mega ekki
gleyma því að þarna koma saman
menn úr öllum fjórðungnum,
allt frá Bakkafirði til Hornaljarð-
ar. Þessi afdráttarlausi stuðning-
ur \áð tillöguna sýnir hve ein-
hugurinn er mikill og hvað Aust-
firðingar leggja gríðarlega mikla
Smári Geirsson.
áherslu á að þessi áform nái
fram að ganga." segir Smári
Geirsson, forseti bæjarstjórnar
Fjarðabyggðar.
Hann segist vera mjög ánægð-
ur með stofnun félagsins Afl fyr-
ir Austurland. Það muni verða til
að styrkja þá baráttu sem sveitar-
stjórnarmenn hafa háð í þessu
máli og að þessi öfl verði sam-
stiga og að það sé af hinu góða.
Hvað hefur breyst?
„Eg fagna stofnun þessa félags-
Gunnlaugur Stefánsson.
skapar og veit að það gerir allur
þorri Austfirðinga líka. Það vill
svo til að ég var formaður um-
hverfisnefndar Alþingis, árið
1993, þegar lögin um umhverfis-
mat voru sett. Þá var sú ákvörð-
un tekin að frumkvæði nefndar-
innar að Fljótsdalsvirkjun skyldi
ekki fara í umhverfismat. Um
það var einhugur í nefndinni og
þar áttu sæti m.a. umhverfis-
verndarsinnar eins og Hjörleifur
Guttormsson og Kristín Einars-
dóttir. Og nú 6 árum síðar er ég
alveg sömu skoðunar," segir séra
Gunnlaugur Stefánsson, vara-
þingmaður Samfylkingarinnar,
um stöðuna í virkjunarmálum á
Austurlandi eftir stofnun félags-
ins Afl fyrir Austurland um helg-
ina.
Séra Gunnlaugur segir að síð-
an lögin um umhverfismat voru
sett og ákveðið að Fljótsdalsvirkj-
un væri þar undanskilin hafi í
raun ekkert breyst annað en það
að fallið hafi verið frá áformum
um að reisa álver á Reykjanesi en
í staðinn sé komin fram tillaga
um að reisa álverið í Reyðarfirði.
Það hafi engin breyting orðið á
formum um virkjunarsvæði því
það hafi alltaf átt að reisa Fljóts-
dalsvirkjun og sú ákvörðun er
óbreytt. Hann segir að meðan til
stóð að reisa álver á Reykjanesi
hafi samstaða um málið verið al-
ger, bæði um álverið og virkjun-
ina.
„Nú þegar til stendur að reisa
álverið hér fyrir austan er eins og
fólk sjái ofsjónum yfir því og þá
allt í einu Ieggst fjöldinn gegn
áformum um Fljótsdalsvirkjun.
Á meðan rafmagnið frá henni
átti að fara suður var öllum
sama,“ segir séra Gunnlaugur
Stefánsson. - S.DÓR
Hagnaður íslenskra sjávarafurða hf.
og dótturfélaga þess nam 38,6 millj-
ónum króna.
ÍS fer úr
Sigtuni
Hagnaður Islenskra sjávaraf-
urða hf. og dótturfélaga þess
nam 38,6 milljónum króna á
fyrstu sex mánuðum ársins sam-
anborið við 209 milljóna króna
tap fyrri hluta síðasta árs. Hagn-
aður af reglulegri starfsemi nam
nú 46,7 milljónum króna en á
sama tímabili á síðasta ári var
tap af reglulegri starfsemi 317
milljónir.
I tilkynningu frá IS kemur
m.a. fram að í mánuðinum hafi
verið gengið frá sölu á skrif-
stofuhúsnæði félagsins að Sig-
túni 42. Kaupandi er Almenna
málflutningsstofan, sem er m.a.
í eigu Hróbjarts Jónatanssonar
og Jónatans Sveinssonar. Auk
þessarar sölu og sölu á verk-
smiðju í Pennsylvaníu, um-
búðalager og rekstrarvörulager
er áætlað söluverðmæti eign-
anna um 1 milljarður króna. Á
móti er áætlað að fjárfesta í nýju
skrifstofuhúsnæði fyrir rúmar
100 milljónir. - BJB
Alvarlegar ásakanir
í garð Stöðvar 2
Ummæli forsætisráð-
herra um fréttastofu
Stöðvar 2 hafa vakið
athygli. Fréttastofan
vísar þeim á hug.
„Á forsætisráðherra að komast
upp með að brigsla fréttamönn-
um um að vera múlbundnir
vegna hugsanlegra hagsmuna
eigenda?" spyr Ágúst Einarsson,
fyrrum þingmaður Þjóðvaka, í
grein sem hann birti á vefsíðu
sinni í gær. Þar fjallar Ágúst um
bankamálið og þátt Davíðs
Oddssonar í því, einkum um-
mæli er hann lét falla í garð
Kristins Hrafnssonar, frétta-
manns Stöðvar 2, sl. föstudags-
kvöld. Ágúst segir að sér hafi
brugðið er hann sá og heyrði
Davíð segja að ekkert væri að
marka fréttaflutning Stöðvar 2 af
bankamálinu sökum þess að Jón
Olafsson ætti þar í hlut. Ágúst
segir alvarlegar ásakanir vera
þarna á ferðinni.
I viðtalinu á Stöð 2 neitaði
Davíð því að hafa dylgjað um
lögbrot Kaupþings og nefndi
máli sínu til stuðnings bréf frá
fólki sem sýndi inn- og útkvittan-
ir fyrirtækisins. Síðan fer viðtalið
þannig fram og tilvitnunin hefst
á orðum Davíðs:
„Þær staðfesta það sem ég hef
sagt. Þannig að þitt orðalag var
nú ekki alveg fréttamanni sæm-
andi. Eg átta mig hins vegar á því
að menn eru í dálitlum vandræð-
um, afvissum ástæðum."
(Kristinn:) „En þií svarar ekld
Ágúst Einarsson.
spurningunni, hver eyðilagði
stefnu stjómarinnar og Alþingis?"
(Davi'ð:) „Eg held því fram og
hef sagt það að sú söfnun sem
þarna átti sér stað, og sú tiíraun
til að selja einum aðila öll þessi
hréf frá sparisjóðunum, gekk
þvert á stefnu ríkisstjómarinnar.
Framhjá því verður ekki gengið
og það liggur fyrir."
(Kristinn:) „Þú átt þá hæði við
sparisjóðina og Orca-hópinn?"
(Davíð:) „Eg hef nú svarað
þessu ennþá vel, kæri vinur.
Menn verða aðeins að vera svolít-
ið eins og fréttamenn, jafnvel þó
að það sé erfitt með eignarhaldið
á Stöð 2."
„EJdd ntálpípa Jóns Ólafs-
sonar“
Karl Garðarsson aðstoðarfrétta-
stjóri varð íyrir svörum á Stöð 2
er viðbragða var leitað þar. Hann
tók undir með Ágústi að þetta
væru alvarlegar ásakanir hjá for-
sætisráðherra.
Karl Garðarsson.
„Við erum sá fjölmiðill, fyrir
utan Morgunblaðið, sem kom
nálægt því að segja hverjir hefðu
keypt FBA-bréfin. Okkar fréttir
hafa verið þannig að erfitt er að
fullyrða að við höfum verið að
taka upp hanskann fyrir Jón
Olafsson. Við höfum alls ekki
verið málpípa Jóns í þessu
bankamáli, nema síður sé. Við
höfum gengið eftir því að birta
sem flestar skoðanir í þessu
máli. Eg tel að allir sem vilji geti
séð það og þar með Davíð Odds-
son líka,“ sagði Karl og aðspurð-
ur um frekari viðbrögð taldi
hann að þetta mál kæmi til um-
ræðu innan fréttastofunnar.
„Eg tel það af og frá að frétta-
stofur almennt hér á Iandi láti
annarleg sjónarmið ráða frétta-
flutningi sínum og fréttaöflun,"
sagði Hjálmar Jónsson, formaður
Blaðamannafélags Islands, við
Dag um þessi ummæli Davíðs
um fréttastofu Stöðvar 2. - BJB
Hermeimska bama verði böirnuð
Haustfundur utanríkisráðherra Norðurlandanna
var haldinn á Egilsstöðum um síðustu helgi og lauk
honum á sunnudag. I lok fundarins undirrituðu
ráðherrarnir yfirlýsingu, þar sem hvatt er til þess að
þátttaka bama og ungmenna undir 18 ára aldri
verði bönnuð.
Á fundinum ræddu ráðherrarnir norrænan
áherslur og samstarf innan alþjóða- og svæðisbund-
inna stofnana. Nú um stundir fer ísland með for-
mennsku í Evrópuráðinu, Noregur í Öryggis- og
samvinnustofnun Evrópu og Finnland í Evrópu-
sambandinu. Sömuleiðis ræddu ráðherrarnir svæð-
isbundna samvinnu á Norðurslóðum og stjórnmálaþróunina í Rúss-
landi. I gærmorgun funduðu utanríkisráðherrar Norðurlandanna með
starfsbræðrum sínum frá Eystrasaltslöndunum og þar m.a. rætt um
stöðu Eystrasaltsríkjanna hvað varðar stækkun Evrópusambandsins og
NATO.
Sérstakur heiðursgestur á þessum fundi var utanríkisráðherra
Kanada. - S.DÓR
Halldór Ásgrímsson.
Flugleiðir með nýja fraktvél
Flugleiðir munu á morgun, 1. september, taka í notkun stærri flug-
vél sérútbúna til fraktflutninga af gerðinni Boeing 757-200F. Vélin
hefur verið tekin á leigu til 5 ára af Ansett Worldwide, sem sérhæfir
sig í leigu og sölu flugvéla. Með nýju vélinni eykst burðargeta í frakt-
flutningum Flugieiða til muna og í fyrsta sinn verður flogið beint til
N-Ameríku í reglulegu áætlunarflugi með frakt. Frá 13. september
tekur gildi ný áætlun fraktflugsins. Flogið verður sex sinnum í viku á
milli Keflavíkur og Liege í Belgíu og fimm sinnum í viku á milli
Keflavíkur og New York í Bandaríkjunum.
FBA-bréf hækkuðu um 5,3%
Viðskipti með hlutabréf FBA á Verðbréfaþingi voru nokkuð lífleg í
gær og hækkaði gengi þeirra nokkuð. Þegar viðskiptum Iauk fyrir
helgi stóð gengið í 2,65 en eftir viðskipti gærdagsins var gengið kom-
ið í 2,79. Um miðjan dag fór gengið í 2,80, eða það sama og Orca SA
keypti sinn hlut á. Hækkunin frá föstudeginum nemur 5,3%.
Alls námu viðskiptin með FBA-bréfin um 27,6 milljónum að nafn-
virði eða um 77 milljónum að söluvirði. Tilkynnt var um ein inn-
herjaviðskipti til Verðbréfaþings þegar innherji seldi bréf fyrir 1 millj-
ón að nafnvirði.