Dagur - 31.08.1999, Qupperneq 6
6 - ÞRlfíJUD AGU K 3 1 . ÁGÚST 1999
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jóNASSON
Skrifstofur: strandgötu si, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHÓLTI 14, REYKJAVÍK
Simar: 460 6ioo og aoo 7080
Netfang ritstjórnar: rltstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: t.aoo kr. á mánuði
Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Símar auglýsingadeildar: [REYKJAVÍK)563-i6i5 Ámundi Amundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Simbréf ritstjórnar: 460 6171(AKUREYR|) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Átök um hug og hjarta
í fyrsta lagi
Það var ekki vonum seinna að stuðningsmenn virkjana og álvers
á Austurlandi stofnuðu samtök til að vinna málstað sínum auk-
ins fylgis. Stofnfundurinn fyrir austan um helgina var fjölsóttur
og nokkuð á annað þúsund manns hafa þegar skráð sig í nýja fé-
lagið. Talsmenn þess hafa kvartað undan því að sjónarmið virkj-
unarsinna hafi farið hallloka í fjölmiðlum síðustu mánuðina.
Vissulega hafa þeir sem vilja vernda Eyjabakka verið duglegir að
vekja athygli á málstað sínum, meðal annars með greinaskrifum
í blöðum, á meðan fáir almennir stuðningsmenn virkjana hafa
látið í sér heyra. Er rétt að árétta fyrir hönd Dags að blaðið hef-
ur alltaf verið og er opið fyrir greinar þeirra sem styðja virkjun-
ina, enda vettvangur frjálsrar umræðu um þjóðfélagsmál.
í öðru lagi
Það er hins vegar misskilningur að engir hafi haldið á lofti mál-
stað virkjunar í Fljótsdal og álvers á Reyðarfirði síðustu misser-
in. Þannig stendur öll ríkisstjórnin að baki þeirri stefnu, enda
hafa ráðherrarnir verið ófeimnir við að tína ffam opinberlega
þau rök sem tiltæk eru. Sama á við um flesta stjórnarþingmenn,
enda ekkert sem bendir til annars en að á Alþingi sé enn mikill
meirihluti fyrir því að það verði virkjað og Eyjabakkar lagðir und-
ir lón.
í þriðjalagi
Þessi nýju samtök þurfa þess vegna ekki að eyða miklu púðri í
að sannfæra stjórnmálamennina um að halda fast við þá stefnu
sem Alþingi og ríkisstjórn hafa mótað. Þeirra verkefni er mun
erfiðara, sum sé að sannfæra mikinn meirihluta þjóðarinnar um
að rétt sé að fórna Eyjabökkum vegna virkjunarframkvæmda.
Baráttan snýst um hug og hjarta hins almenna borgara í land-
inu. Það er að miklu leyti í höndum hinna nýju samtaka sjálffa
hvort þeim tekst að sannfæra þjóðina með málflutningi sínum á
næstu vikum og mánuðum. í því sambandi er í allri vinsemd
óhjákvæmilegt að benda á, að leiðin til þess er ekki sú að gera
grín að biskupum.
Eltas Snæland Jónsson.
Siðaskipti á
Austurlandi?
Þeir eru ekkert að skafa utan
af því Austfirðingarnir þegar
þeir Ioksins byrja. Það mættu
bara allir íbúar fjórðungsins í
Valaskjálf um helgina til að
hlægja að biskupnum - nema
Hjörleifur og Þuríður Back-
man. Biskupinn sagðist myndi
vilja bjarga Eyja-
bökkum ef hann ætti
að fylgja hjartanu og
eftir það hefur verið
litið á hann sem hálf-
gert viðundur í heil-
um landsfjórðungi,
eins og berlega kom í
ljós þegar brandari
var sagður á hans
kostnað á stofnfundi
samtaka um að
drekkja Eyjabökkum.
Þar var látið að því liggja að
náttúrudýrkun biskups væri
hálfgerð ónáttúra, og fara
þyrfti með þetta hjartatal hans
á svipaðan hátt og farið var
með ásakanirnar á hendur for-
vera hans í kvennamálum.
Garri horfði á þegar útgerðar-
maðurinn á Fáskrúðsfirði fór
með þessa þulu og hélt að nú
myndi salurinn tæmast og
ekkert verða úr samtakastofn-
uninni. Það var nú aldeilis
ekki, salurinn réði sér ekki fyr-
ir kæti.
Biskupsháls
Hefur kveðið svo rammt að
þessum biskupsíjandskap að
nú eru ferðamönnum gefnar
sérstakar skýringar þegar þeir
koma á biskupsháls á Möðru-
dalsöræfum, en þar eru sem
kunnugt er mörk Norðlend-
ingaijórðungs og Austfirðinga-
fjórðungs. Skýringin sem gefin
er á nafni hálsins er að þegar
V
austur fyrir hann er komið sé
biskupi Iegið ýmislegt á hálsi.
Og eru það orð að sönnu. Er
nú svo komið að fullyrt er að
siðaskipti hin síðari standi nú
fyrir dyrum þar eystra og að
sendiboði hafi verið gerður út
til Rómar til að kanna hvernig
(og hvort!) hjarta
páfa slær þegar mýr-
arflákamir Eyjabakk-
ar eru annars vegar.
Komi í Ijós að páfi sé
drekkingarmaður,
hefur verið boðað að
Austfirðingar muni
ganga til liðs við
þann sið sem hann
boðar, frekar en við-
halda mýrarfláka-
trúnni hans Karls.
Sögulegir atburöir
Það stefnir því í að sögulegir
atburðir séu að gerast í að-
draganda hátíðahalda til
minningar þúsaldar kristni í
landinu. Helming þúsaldar-
innar eða svo hafa menn að-
hyllst katólskan sið og hinn
helminginn hafa menn haldið
í hönd Lúthers. Og enn gætu
verið skipti í uppsiglingu ef
þjóðkirkjan ætlar að halda til
streitu andstöðu sinni við hinn
nýja drekkingarhyl Eyjabakk-
anna. Rétt er þó að undirstrika
að Róm hefur enn ekki gefið
sig upp þannig að trúarbragða-
stríð er ekki skollið á enn.
Hinu verður þó ekki neitað að
deilan um Eyjabakka er óðum
að þróast yfir í sama farið og
deilan um aðskilnað Norður
Irlands frá Bretlandi. Hver
segir svo að þetta sé einfalt
mál? - GAHRI
Karl Sigurbjörnsson,
biskup.
JÓllANNES
SIGURJÓNS-
SON
SKRIFAR
Vísindamenn og aðrir spreng-
lærðir sérfræðingar fást gjarnan
við að sanna eða sannreyna ýmis-
legt sem Iengi hefur verið á al-
mannavitorði. Þannig kynntu
bandarískir sálfræðingar fyrir
skömmu niðurstöður úr ítarlegri
könnun á þjálfun afreksfólks í
íþróttum, þar sem fram kom að
andlegir og sálrænir eiginleikar
íþróttamanna skipta meira máli
en líkamlegt atgervi. Könnunin
fór þannig fram að rætt var við
658 þjálfara ungra íþróttamanna
sem starfa í 43 greinum íþrótta og
voru þjálfararnir beðnir að velja 5
atriði af 128 sem þeir teldu mikil-
vægust í fari ungs afreksfólks. Og
fyrstu 18 atriðin sem þeir nefndu
lutu öll að persónuleika og and-
legum eiginíeikum fólksins, áður
en komið var að þeim þáttum sem
tengdust lfkamlegu atgervi.
Vilji er allt,..
I þessari könnun voru sálfræðing-
Andlegt ástand á útivelli
arnir að sannreyna það sem flest-
ir ef ekki allir sem einhverntím-
ann hafa komið nálægt íþróttum,
vita og hafa vitað lengi. Allir
íþróttamenn sem ná árangri búa
yfir miklu lík-
amlegu
atgervi og eru
vel þjálfaðir.
Það sem skil-
ur á milli feigs
og ófeigs eru
hinir sálrænu
þættir, vilja-
styrkurinn og
hugarfarið.
Og þeir sem
Iengst hafa náð voru ekki endilega
þeir efnilegustu í æsku og mý-
mörg dæmi um íþróttamenn sem
sköruðu fram úr f æsku en höfðu
ekki karakter til að ná lengra, á
meðan ýmsir sem ekki höfðu
sömu hæfileika frá náttúrunnar
hendi, náðu á tindinn í krafti
skapfestu og viljastyrks.
Og þetta á ekki bara við í íþrótt-
um heldur á flestum sviðum
mannlífsins, ekki síst í Iistum.
Helstu stórsöngvarar veraldar
voru ekki endilega með bestu og
fallegustu
röddina í hópi
jafnaldra
sinna í skóla
en þeir höfðu
sjálfstraustið
og viljann til
að klífa tind-
ana.
Heima og
heiman
Eitt ljósasta dæmið um mikilvægi
sálrænna þátta í íþróttum er að
finna í knattspyrnunni. Og það
snýst um mismunandi árangur á
útivöllum og heimavöllum. Allir
sem fylgjast með knattspyrnu vita
að að jafnaði Ieika Iið betur og
sigra oftar á heimavelli, þau sækja
á heimavelli, veijast á útivelli. Og
samt eru ytri aðstæður ávallt hin-
ar sömu, vellirnir jafn stórir, bolt-
inn eins, andstæðingarnir hinir
sömu.
Það er aðeins einn munur á úti-
velli og heimavelli og það er hug-
arfar Ieikmanna. Þeir þekkja sinn
heimavöll, þekkja sitt heimafólk
og þeim Iíður því betur, eru já-
kvæðari, bjartsýnni og sigurviss-
ari. Og spila þess vegna betur.
Engum þjálfara í heimi, hvorki
fyrr né síðar, hefur tekist að búa
til lið sem er jafn sigursælt í úti-
leikjum og heimaleikjum. Ein-
faldlega vegna þess að það er
miklu auðveldara að þjálfa upp
líkamann en persónuleikann.
Þetta eru staðreyndir sem fá-
fróðustu áhugamenn um íþrótttir
hafa alltaf vitað. Og að sjálfsögðu
ánægjulegt að nú hafa spreng-
lærðir sálfræðingar í Bandarikj-
unum komist að sömu niður-
stöðu.
Á ríku) :u) íidstoóiifrnm
haldsskólanema við að
eignastfartölvu ?
(Bjöm Bjamason varpaðiþess-
arí hugmyndfram á þingi
Samtaka sveitarfélaga á Notð-
urlandi vestra sl.föstudag).
Hjalti Jón Sveinsson
skólameistari VMA.
„Hugmyndin
þykir mér áhuga-
verð, en ekki er
sopið kálið.
Einsog ráðherra
sagði þá er eftir
að kanna málið,
bæði framkvæmd og kostnað. Ég
sé fyrir mér að þetta gæti orðið að
veruleika innan einhverra ára, en
svo ört fleygir upplýsingatækninni
fram að ómögulegt er að segja til
um hver staðan verður eftir til
dæmis 10 ár. Fartölvur í dag eru
dýrar og umhverfi þeirra er ekki
jafn fullkomið og hinna hefð-
bundnu, en innan fárra ára get ég
séð fyrir mér að þær verði jafn
sjálfsagðar í skólum og til dæmis
vasareiknir."
Frosti Siguijónsson
forstjóri Nýherja.
„Allir framhalds-
skólanemar þurfa
að nota tölvu og
fartölva hefur
marga kosti um-
fram borðtölvur
fyrir nemendur.
Fartölvur eru dýrari en borðtölvur
en hafa verið að Iækka hratt í
verði og tölvuframleiðendur eins
og IBM gera menntastofnunum
gjarnan tilboð í þann búnað sem
þarf. I náinni framtíð munu nem-
endur í vaxandi mæli fá þekkingu
og verkefni sín beint inn á tölvuna
um Netið. Tölvan verður því álíka
ómissandi og námsbækur hingað
til. Réttara væri kannski að segja
að internetið verði ómissandi,
hvort sem nemendur nálgast það
með borðtölvu, fartölvu, netsjón-
varpi, farsíma eða handtölvu."
Sigríður Jóhannesdóttir
þingmaður.
„Ef ríkið á pen-
inga til þessa
verkefnis þá ætla
ég ekki að leggj-
ast gegn þeirrar
hugmynd. En
mér þykir þetta
þó vera enn eitt dæmið um oftrú
á tölvum og að þær geti öllu
breytt. Það sem þarf að efia í ís-
lenskum framhaldsskólum er
stuðningur við einstaklinginn, til
dæmis með því að efla námsráð-
gjöf-“
Runólfur Ágústsson
rektor SamviimuUáskólans á Bifröst.
„Mér líst vel á
hugmyndina.
Þróunin hefur
verið sú, meðal
viðskiptaháskóla
erlendis, að far-
tölvuvæða skól-
ana og það hefur gefist vel. Á
þeirri reynslu byggjum við nýtt
upplýsingakerfi hér á Bifröst. Ég
hef enga ástæðu til að ætla annað
en að sömu lögmál gildi í fram-
haldsskólum og háskólum, það er
að fartölvur geti komið nemend-
um að góðum notum við að afla
sér upplýsinga."