Dagur - 31.08.1999, Blaðsíða 11
ÞRIDJVDAGU R 3 1. ÁGÚST 1999 - 11
Djyftr.
ERLENDAR FRÉTTIR
Sögulegar kosnmgar
lun framtíd A-Timor
Gífurlega góð þátt-
taka í kosnmgimiun,
sem fóru að mestu
friðsamlega fram
þvert ofan í það sem
flestir óttuðust.
Starfsmaður Sameinuðu þjóð-
anna var myrtur skammt frá
Dili, höfuðborg Austur-Tímor í
gær eftir að múgur manns hafði
ráðist á hann. Þessi atburður
skyggði nokkuð á kosningarnar
um framtíð Austur-Tímor, sem
farið höfðu fram að mestu frið-
samlega.
Nokkur átök voru þó víða um
eyjuna, en mun minni en flestir
höfðu búist við. Loka þurfti sex
kjörstöðum af alls um 600 vegna
óláta sem mynduðust í kringum
þá.
Kosningaþátttakan var gífur-
lega mikil, meira en 95% mættu
á kjörstað og það eitt er talinn
mikill sigur fyrir þá sem vilja
sjálfstæði. Talið er nánast full-
víst að mikill meirihluti kjósenda
hafi hafnað því að Austur-Tímor
tilheyri áfram Indónesíu og nú
Iiggi því fyrir að undirbúa stofn-
un sjálfstæðs ríkis á Austur-
Tímor.
Rúmlega 450.000 manns voru
á kjörskrá, þar á meðal 13.000
Austur-Tímorar sem búa erlend-
is og hafa margir þeirra hrakist í
útlegð vegna ástandsins sem ríkt
hefur á eyjarhelmingnum.
MikiII ótti hefur ríkt undan-
farna mánuði um að andstæð-
ingar þess að Austur-Tímor verði
sjálfstætt ríki myndu efna til
óeirða á kosningadaginn. Sjálfir
höfðu þeir margir hverjir hótað
því hvað eftir annað að grípa til
vopna og fólki væri vissara að
Iáta ekki sjá sig á kjörstað. Vik-
urnar fyrir kosningar átti sér stað
mikið ofbeldi, tugir manna voru
myrtir og hvað eftir annað var
ráðist á starfsmenn sameinuðu
\—-—~1-—L
Frá kjörstað á Austur-Tímor: kosningaþátttakan varyfir 95%.
þjóðanna sem séð hafa um fram-
kvæmd kosninganna.
Þrátt fyrir þessar hótanir var
stór hluti kjósenda mættur á
kjörstaðina víða um Austur-
Tímor áður en þeir voru opnaðir
í gærmorgun og fullyrða starfs-
menn Sameinuðu þjóðanna að
um helmingur kjósenda hafi ver-
ið búinn að greiða atkvæði sitt
strax hálfri klukkustund eftir að
kjörstaðirnir voru opnaðir.
Andstæðingar sjálfstæðis hafa
lýst því yfir að þeir muni sætta
sig við úrslitin, hver svo sem þau
verða.
Kosningarnar í gær voru um
tillögu að nýrri stjórnskipan á
Austur-Tímor þar sem gert er
ráð fyrir því að eyjarhelmingur-
inn hljóti takmarkaða sjálfstjórn
en tilheyri engu að síður áfram
Indónesíu. Ef fbúar Austur-
Tímor hafa hafnað þessari til-
lögu í kosningunum í gær, þá er
gert ráð fyrir að þeir hafi fullt
frelsi til að segja sig úr lögum við
Indónesíu og stofna sjálfstætt
ríki.
Austur-Tímor var portúgölsk
nýlenda um 400 ára skeið þang-
að til árið 1975, en þá gáfu
Portúgalir flestum nýlendum
iMcDonaiti's
I » 1
McDonald s auglýsir laus störf í
veitingastofum f Kringlunni,
Austurstræti og Suðurlandsbraut.
McDonald's býður spennandi starf, starfsþjálfun og
möguleika á skjótri launahækkun fyrir duglegt fólk.
Ekki er krafist sérstakrar menntunar heldur áhuga og vilja til
þess að læra og vera hluti af skemmtilegum starfshóp.
Umsóknareyðublöð er hægt að fá send eða sækja þau
veitingastofurnar.
Frekari uppiýsingar veita
Magnús, s. 581-1414 (netfang: mangus@lyst.is),
Vilhelm, s. 551-7400 (netfang: vilhelm@lyst.is)
eða Pétur, s. 551-7444 (netfang: petur@lyst.is).
McDonalds
Kringlunni (frá 30. sept.)
Austurstræti
Suðurlandsbraut
sínum sjálfstæði í kjölfar stjórn-
arbyltingarinnar í Portúgal árið
áður. Indónesísld herinn réðst
svo inn í Austur-Tímor skömmu
eftir að Portúgalir slepptu af
Austur-Tímor hendinni, og
snemma árs 1976 innlimaði
Indónesía Austur-Tímor. Sam-
einuðu þjóðirnar hafa aldrei við-
urkennt þá innlimun.
Ibúar á Austur-Tímor hafa all-
ar götur síðan barist fyrir sjálf-
stæði sínu og hafa allt að 200
þúsund manns farist í blóðugum
bardögum á eyjunni. — GB
HEIMURINN
Tsjernómyrdín eiirnig imdir grun
RUSSLAND - Bandaríska fréttatímaritið Newsweek skýrði frá því að
Viktor Tsjernómyrdín, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, og
Anatolí Tsjúbaís, fyrrverandi fjármálaráðherra, séu hugsanlega flækt-
ir í mútuhneykslið sem valdið hefur usla í æðstu röðum rússneskra
ráðamanna síðustu daga. Bæði Tsjernómyrdín og Tsjúbaís hafa neit-
að þessum ásökunum, en fullyrt hefur verið að þeir hafi verið í
tengslum við valdamikla menn í rússnesku mafíunni.
Aftur barist í Dagestan
RÚSSLAND - Þótt íslömsku skæruliðarnir í Dagestan hafi hörfað til
Téténíu í sfðustu viku og Vladimir Pútín forsætisráðherra Rússlands
lýst yfir áfangasigri í stríðinu fyrir helgina hófust í gær harðir bardag-
ar að nýju milli skæruliðanna og rússneskra hermanna.
Ótti við eftirskjálfta enn mikilí
TYRKLAND - I dag eru Iiðnar tvær vikur frá því jarðskjálftinn mikli
varð í Tyrklandi. Mikill ótti ríldr enn á jarðskjálftasvæðunum vegna
eftirskjálfta, sem enn eiga sér stað nánast á hverjum degi. I gærmorg-
un riðu fjórir jarðskjálftar yfir, og var sá stærsti þeirra 4,2 stig á
Richterkvarða. Um 14.000 Íík höfðu fundist í rústunum og stendur
leit enn yfir enda talið að tugir þúsunda Iíka kunni enn að vera und-
ir rústunum.
Tvísýnt uin samkomulag
ISRAEL - Ehud Barak hótaði því í gær að túlka Wye-samkomulagið
við Palestínumenn eftir sínu höfði þegar til framkvæmdar kemur ef
Palestínumenn gefi ekki eftir í tveimur stóru deilumálunum innan
lítils frests, og sögðu talsmenn Palestínumanna að tvísýnt væri um að
samkomulag myndi nást fyrir fimmtudag, en þá er vonast til að und-
irritun þess geti farið fram að viðstaddri Madeleine Albright, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna. Barak féll síðan frá því skömmu sfðar að
setja Palestínumönnum ákveðinn frest, en engu að síður er alls óvíst
að samkomulag takist.
REYKJAVIK - AKUREYRI
TIL FR*
BROTTFÖR KOMA BROTTFÖR KOMA
virka daga
mán-fös 07:40 - 08:25 08:45 - 09:30
mán-fös 11 40 - 12:25 12:45 - 13:30
mán-fös 15:40 - 16:25 16:45 - 17:30
mán-fös 18:40 19:25 19:45 - 20:30
Laugardaga
la.gard. 08:40 - 09:25 09:45 - 10:30
laugard. 11 40 - 12:25 12:45 - 13:30
laugard. 17:40 - 18:25 18:45 - 19:30
Sunnudaga
lau/sun 11:40 - 12:25 12:45 - 13:30
sunnud. 15:40 - 16:25 16:45 - 17:30
sunnud. 18:40 - 19:25 19:45 - 20:30
Enn eykur íslandsflug þjónustu sína.
Nú höfum við bætt við fjórðu ferðinni
í síðdegisflugi milli Reykjavíkur og Akureyrar
og nýrri feró á laugardagsmorgnum.
Þjónustan um borð er einnig til fyrirmyndar.
Þú getur látið fara vel um þig í sætinu og
blaðað í Degi eða Viðskiptablaðinu með
nýtt og ilmandi kaffi í bollanum.
Taktu flugið með íslandsflugi!
www.islandsflug.is sími 570 8090
igs á Akureyrarfiugvelli, s/mi 461 4050 • fax 461 4051 • aey@isiandsf1ug.is
ISLANDSFLUG
gerir fleirutn faart eð fijúga