Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 1
Kyrrsetj a eigur fíkniefiiab aróna Átta lúxusbifreiðar fíkniefuabaróna kyrr settar og aðrar eigur í sigtinu. Tveir eftírlýst- ir í Danmörku. Enn er leitað að fíkniefnum. Lögreglan á slóð pen- ingamannanna. Alls átta rándýrar lúxusbifreiðar í umsjá fjórmenninganna, sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna stóra fíkniefnamálsins, hafa verið kyrrsettar og kann svo að fara að fleiri eignir grunaðra manna verði kyrrsettar - eru húseignir ekki undanskildar. Rannsókn málsins er enn á fullum dampi og leitað að meiri fíkniefnum, auk þess sem handtökuskipun hefur verið gefin út vegna tveggja Islendinga í Danmörku. Annar hinna eftirlýstu var starfsmaður Samskipa í Kaup- mannahöfn, en sem kunnugt er opinberaðist málið 8. september þegar 7 kíló af hassi fundust í gámi úr leiguskipi á vegum Sam- skipa. Eftir að fjórir karlmenn höfðu verið handteknir, þar af einn starfsmaður Samskipa við Sundahöfn, var Iagt hald á um- fangsmikið magn fíkniefna í heimahúsi eins hinna hand- teknu. Einn hinna handteknu „uppfyllir öll skilyrði" til að geta talist helsti fjármagnari hópsins, Lögreglan sýndi í gær mesta magn fíkniefna sem náðst hefur í einu „bösti", 24 kíió afhassi, 4 kíló af amfetamíni, 7 kíió af kókaíni og um 6.000 e-töflur, en auk þess er búið að kyrrsetja eina milljón í reiðufé og 8 drossíur af BMW og Benz gerð. að sögn lögreglunnar. Lögregla og tollyfirvöld unnu saman að mál- inu, sem snýst um mesta magn fíkniefna sem nokkurn tímann hefur verið lagt hald á og er þó búist við þvf að meira efni finnist. 40 þúsund neysluskammtar Haldlagningin á bifreiðunum er nýlunda í svona rannsóknum, að sögn lögreglunnar, og liður í því að ná tökum á hagnaðinum í fíkniefnaviðskiptunum. Lögregl- an hefur þegar rætt við efna- hagsbrotadeild Ríkislögreglu- stjóraembættisins um aðild að rannsókn á peningaflæðinu í málinu, en ljóst er að um tölu- vert fé er að tefla, enda talið að hin haldlögðu fíkniefni samsvari 40.000 neysluskömmtum. Með- al kyrrsettra eigna hinna hand- teknu er ein milljón króna í reiðufé. Rétt er að taka fram að lög- reglan sagði þær upplýsingar rangar, sem fram hafa komið í Degi, að málið hefði farið af stað vegna upplýsinga uppljóstrara í Danmörku, en að öðru leyti hafa fyrri skrif blaðsins verið á rökum reist. Lögreglan vildi í gær gefa takmarkaðar upplýsingar um gang rannsóknarinnar, en upp- lýsti þó að áfram væri leitað að fíkniefnum og að lögreglan teldi sig vera á slóð þeirra sem fjár- magna dæmið. - FÞG „Alveg fáránlegt hjá Áma“ „Mér finnst fyrir neðan allar hell- ur hvernig Árni Johnsen talar um að það sé móðgun við lands- byggðarmenn að flytja flugvöll- inn eitthvað annað. Eins og það sé óæðra fólk hér á Suðurnesjum til að taka á móti landsbyggðar- fólki. Mér finnst fáránlegt að menn leyfi sér að tala svona. Mér er andskotans sama í hvaða flokki þeir eru,“ sagði Kristján Pálsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins á Reykjanesi, við Dag um ummæli sam- flokksmanns síns og for- manns samgöngunefndar um samþykkt borgar- stjórnar Reykjavíkur að undirbúa atkvæða- greiðslu um fram- kvæmdir við Reykjavík- urflugvöll. „Ég mótmæli því harðlega að svona sé borið á borð fyrir vel gef- ið fólk. Að kalla þetta móðgun við landsbyggð- armenn er með ólíkindum og furðulegt að það skuli koma frá landsbyggðarþingmanni að það megi ekki flytja eitt einasta starf úr miðbæ Reykjavíkur eitthvað út fyrir svæðið," sagði Kristján. - BJB - Sjá nánar „Spurt og svarað" á bls. 6. H&vílhlltof loiitji vid völtl Davíð verið alltof lengi við völdf „Ég held að Davíð Oddsson sé búinn að vera alltof lengi við völd, fyrst sem borgarstjóri og síð- an forsætisráðherra. Hann þyrfti að kynnast mótlæti," segir Sig- urður G. Guðjónsson, hæstarétt- arlögmaður, í opinskáu helgarvið- tali við Dag. Þar gagnrýnir hann harðlega afskipti stjórnmála- manna, svo sem Davíðs Oddsson- ar og Björns Bjamasonar, af við- skiptum á hinum fijálsa markaði. Hann ræðir einnig skoðanir sínar á stjórnmálum og telur að Ingi- björg Sólrún Gísladóttir yrði góð- ur formaður Samfylkingar. „Það er mitt áhyggjuefni og margra annarra að peningarnir í þjóðfélaginu eru að færast á alltof fáar hendur," segir Guðni Ágústs- son, Iandbúnaðarráðherra, í ítar- legu viðtali við helgarblað Dags. „Framsóknarmenn hafa kveðið upp úr með það í sambandi við Fjárfestingarbankann, að tryggja verði dreifða eignaraðild. Ég vil fara af mikilli varúð með rík- isbankana, þeir eru sterkar ein- ingar í eigu fólksins í land- inu.“ Guðni Ágústs- son, landbúnað- arráðherra. Lífið hefur ekki alltaf verið skemmtilegt í henni Reykja- vík: „Annars drífur hérna íjandi lítið á dagana mér hefur aldrei þótt Reykjavík eins herfilega leiðinleg, eins og í vetur. Allar stelpur eru inniluktar í heimahúsum og koma aldrei oná Rundt." Um þetta og fleiri óvenjulegar lýsingar á Reykjavík- urlífinu má lesa í helgarblaði Dags. Svo er auðvitað margt, margt fleira í helgarblaðinu. Góða helgi!

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.