Dagur - 18.09.1999, Qupperneq 1
Kyrrsetj a eigur
fíkniefiiab aróna
Átta lúxusbifreiðar
fíkniefuabaróna kyrr
settar og aðrar eigur í
sigtinu. Tveir eftírlýst-
ir í Danmörku. Enn er
leitað að fíkniefnum.
Lögreglan á slóð pen-
ingamannanna.
Alls átta rándýrar lúxusbifreiðar í
umsjá fjórmenninganna, sem
sitja í gæsluvarðhaldi vegna stóra
fíkniefnamálsins, hafa verið
kyrrsettar og kann svo að fara að
fleiri eignir grunaðra manna
verði kyrrsettar - eru húseignir
ekki undanskildar. Rannsókn
málsins er enn á fullum dampi
og leitað að meiri fíkniefnum,
auk þess sem handtökuskipun
hefur verið gefin út vegna tveggja
Islendinga í Danmörku.
Annar hinna eftirlýstu var
starfsmaður Samskipa í Kaup-
mannahöfn, en sem kunnugt er
opinberaðist málið 8. september
þegar 7 kíló af hassi fundust í
gámi úr leiguskipi á vegum Sam-
skipa. Eftir að fjórir karlmenn
höfðu verið handteknir, þar af
einn starfsmaður Samskipa við
Sundahöfn, var Iagt hald á um-
fangsmikið magn fíkniefna í
heimahúsi eins hinna hand-
teknu. Einn hinna handteknu
„uppfyllir öll skilyrði" til að geta
talist helsti fjármagnari hópsins,
Lögreglan sýndi í gær mesta magn fíkniefna sem náðst hefur í einu
„bösti", 24 kíió afhassi, 4 kíló af amfetamíni, 7 kíió af kókaíni og um
6.000 e-töflur, en auk þess er búið að kyrrsetja eina milljón í reiðufé og 8
drossíur af BMW og Benz gerð.
að sögn lögreglunnar. Lögregla og
tollyfirvöld unnu saman að mál-
inu, sem snýst um mesta magn
fíkniefna sem nokkurn tímann
hefur verið lagt hald á og er þó
búist við þvf að meira efni finnist.
40 þúsund neysluskammtar
Haldlagningin á bifreiðunum er
nýlunda í svona rannsóknum, að
sögn lögreglunnar, og liður í því
að ná tökum á hagnaðinum í
fíkniefnaviðskiptunum. Lögregl-
an hefur þegar rætt við efna-
hagsbrotadeild Ríkislögreglu-
stjóraembættisins um aðild að
rannsókn á peningaflæðinu í
málinu, en ljóst er að um tölu-
vert fé er að tefla, enda talið að
hin haldlögðu fíkniefni samsvari
40.000 neysluskömmtum. Með-
al kyrrsettra eigna hinna hand-
teknu er ein milljón króna í
reiðufé.
Rétt er að taka fram að lög-
reglan sagði þær upplýsingar
rangar, sem fram hafa komið í
Degi, að málið hefði farið af stað
vegna upplýsinga uppljóstrara í
Danmörku, en að öðru leyti hafa
fyrri skrif blaðsins verið á rökum
reist. Lögreglan vildi í gær gefa
takmarkaðar upplýsingar um
gang rannsóknarinnar, en upp-
lýsti þó að áfram væri leitað að
fíkniefnum og að lögreglan teldi
sig vera á slóð þeirra sem fjár-
magna dæmið. - FÞG
„Alveg fáránlegt hjá Áma“
„Mér finnst fyrir neðan allar hell-
ur hvernig Árni Johnsen talar um
að það sé móðgun við lands-
byggðarmenn að flytja flugvöll-
inn eitthvað annað. Eins og það
sé óæðra fólk hér á Suðurnesjum
til að taka á móti landsbyggðar-
fólki. Mér finnst fáránlegt að
menn leyfi sér að tala svona. Mér
er andskotans sama í
hvaða flokki þeir eru,“
sagði Kristján Pálsson,
þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins á Reykjanesi, við
Dag um ummæli sam-
flokksmanns síns og for-
manns samgöngunefndar
um samþykkt borgar-
stjórnar Reykjavíkur að
undirbúa atkvæða-
greiðslu um fram-
kvæmdir við Reykjavík-
urflugvöll. „Ég mótmæli
því harðlega að svona sé
borið á borð fyrir vel gef-
ið fólk. Að kalla þetta
móðgun við landsbyggð-
armenn er með ólíkindum og
furðulegt að það skuli koma frá
landsbyggðarþingmanni að það
megi ekki flytja eitt einasta starf
úr miðbæ Reykjavíkur eitthvað
út fyrir svæðið," sagði Kristján.
- BJB
- Sjá nánar „Spurt og svarað" á
bls. 6.
H&vílhlltof loiitji vid völtl
Davíð verið
alltof lengi
við völdf
„Ég held að Davíð Oddsson sé
búinn að vera alltof lengi við
völd, fyrst sem borgarstjóri og síð-
an forsætisráðherra. Hann þyrfti
að kynnast mótlæti," segir Sig-
urður G. Guðjónsson, hæstarétt-
arlögmaður, í opinskáu helgarvið-
tali við Dag. Þar gagnrýnir hann
harðlega afskipti stjórnmála-
manna, svo sem Davíðs Oddsson-
ar og Björns Bjamasonar, af við-
skiptum á hinum fijálsa markaði.
Hann ræðir einnig skoðanir sínar
á stjórnmálum og telur að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir yrði góð-
ur formaður Samfylkingar.
„Það er mitt áhyggjuefni og
margra annarra að peningarnir í
þjóðfélaginu eru að færast á alltof
fáar hendur," segir Guðni Ágústs-
son, Iandbúnaðarráðherra, í ítar-
legu viðtali við helgarblað Dags.
„Framsóknarmenn hafa kveðið
upp úr með það í sambandi við
Fjárfestingarbankann, að tryggja
verði dreifða eignaraðild. Ég vil
fara af mikilli
varúð með rík-
isbankana, þeir
eru sterkar ein-
ingar í eigu
fólksins í land-
inu.“
Guðni Ágústs-
son, landbúnað-
arráðherra.
Lífið hefur
ekki alltaf verið
skemmtilegt í
henni Reykja-
vík: „Annars
drífur hérna íjandi lítið á dagana
mér hefur aldrei þótt Reykjavík
eins herfilega leiðinleg, eins og í
vetur. Allar stelpur eru inniluktar
í heimahúsum og koma aldrei
oná Rundt." Um þetta og fleiri
óvenjulegar lýsingar á Reykjavík-
urlífinu má lesa í helgarblaði
Dags.
Svo er auðvitað margt, margt
fleira í helgarblaðinu.
Góða helgi!