Dagur - 18.09.1999, Síða 2

Dagur - 18.09.1999, Síða 2
2-LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 FRETTIR Bj ðm biður busum gríða í bréfi til skólameistara hvetur menntmálaráðu- neytið til þess að tekið verði á móti nýnemum framhaldsskólanna án of- stopa og ofbeldis. „Ráðuneytið hvetur eindregið til þess, að tekið verði á móti nýnemum án þess að niðurlægja þá eða hæða, sýna þeim ofstopa eða jafnvel ofbeldi. Telur ráðuneytið, að virðuleg og friðsöm móttaka sé best til þess fallin að skapa góðan skólaanda", segir í bréfi sem menntamálaráðuneytið sendi skóla- meisturum framhaldsskólanna síðla ágústmánaðar. Ráðuneytið segir af- stöðu foreldra til starfs í framhalds- skólum hafa breyst eftir hækkun sjálf- ræðisaldurs. Fulltrúar þeirra hafi m.a. mælst til þess að beint yrði til skóla- meistara að huga að þeim aðferðum sem beitt sé við busavígslur nýnema. Busavígslur veki ugg í brjóstum margra nemenda og auk þess sem tjón á fatn- aði og gleraugum og jafnvel meiðsli geti hlotist af þeim. Engar breytingar í MR Vitað sé að í nokkrum skólum hafi skólameistarar hvatt nemendur til þess að draga úr öllu ofbeldi og ólátum við móttöku nýnema, enda aðstæður í þjóðfélaginu og viðhorf allt önnur en á þeim tíma, þegar sumir þessir siðir komu til sögunnar. Ráðuneytið hefur jafnffamt hvatt til þess, að beitt verði auknum aga í skólunum og stuðlað að meiri tillitssemi meðal nemenda. Ingvi Pétursson, konrektor Mennta- skólans í Reykjavík, segir bréf mennta- málaráðuneytisins engu breyta í þeim skóla. Busavígsla hafi verið með svip- uðu formi nú og undanfarin ár. Ný- nemar í MR eru tolleraðir. Orð í tíma töluð „Við höfum verið að breyta þessu“, svaraði Hjalti Jón Sveinsson, skóla- meistari Verkmenntaskólans á Akur- FRÉTTA VIÐTALIÐ AlfreðÞor- steinsson formaður stjómar Veitustofnana Reykjavíkur. Alfreð segirað hús Orkti- veitu borgarinnarvið Suður- landshraut sé góður kostur Jyrir Landssímann sem fær ekki umdeilda lóð íLaugar- dalnum Frá tolleringu í MR í fyrradag. eyri. „Þetta var farið að ganga svolítið út í öfgar, taka of mikinn tíma og valda of mikilli röskun á skólalífinu, þannig að við höfum verið að reyna að stytta þetta og gera það heldur kurteislegra en það hefur verið. Við vorum búin að ákveða það áður en þetta bréf kom til, en mér fannst það orð í tíma töluð. Enda má segja að ýmsir siðir sem orð- ið hafa til í framhaldsskólunum á síð- ustu árum hafi gengið sér til húðar“, sagði Hjalti Jón skólameistari. Átak á Laugarvatni „Við gerðum heilmikið átak í því, með forsvarsmönnum nemenda, að taka á móti nýjum nemendum áf þeirri virð- ingu sem fólk á almennt skilið. Og þessu var alls staðar tekið vel“, sagði Páll Skúlason, aðstoðarskólameistari Menntaskólans á Laugavatni. „Þær upplýsingar sem við höfum frá hús- bónda og öðrum þeim sem fylgdust vel með krökkunum voru, að móttökurnar hafi verið með allra vingjarnlegasta móti að þessu sinni. Sjálf busavígslan, sem fram fór á föstudag, felst í því að nýnemar eru bornir út í Laugarvatn, þar stendur maður með bjöllu og eys þau vatni og eru þeir boðnir velkomnir í hóp nemenda - og þar með er þeirri athöfn lokið og hún fór mjög vel fram“. Stundum út fyrir það ásættanlega Spurður um eldri ósiði segir Páll þá að- allega varða 2. árs nema sem finni hjá sér þörf til að ná sér niðri á einhveij- um fyrir það sem þau sjálf Ientu í árið áður. Vikuna milli skólasetningar og busavígslu hafi þau kannski skikkað nýliðana til að bera fyrir sig skólatösk- urnar og þjóna sér ýmsan hát. Þetta hafi stundum gengið út fyrir það sem ásættanlegt sé. „Við reyndum að taka á þessu í fyrra og aftur núna. Við ætl- um að hafa þetta í lagi og njótum þar mikils skilnings eldri nemenda", segir Páll. - HEI Cruise og Kidman í Eyes Wide Shut. í tilefni þess að kvik- myndin „Eyes Wide Shut“ með hjónunum Cruise og Kidman er frumsýnd í bíóhúsunum um helgina, rifjaðist upp iyrir pottverjum að Björn Bjarnason menntamálaráðherra hafði getið þess í dagbók á vefsíðu sinni að hann fór á forsýningu myndarinnar. Ráðherrann læt- ur fátt sér óviðkomandi og skráði m.a. í dagbók- ina: „Eftir að hafa séð myndina er ég undrandi á þvi, að kynnendur hennar skuli leggja áherslu á að um óvenju- lega djarfa mynd sé að ræða og einnig er gert veður út af því, að krafa hafi verið gerð um að klippa senur úr myndinni í Bandaríkjunum. Vissulega eru sum atriði í djarfari kantinum en miðað við annað, sem er sýnt, virkar þessi kynning eins og auglýsingabrella.“ Pottverjar voru á því að Bjöm væri með skilgreiningu erótíkur á tæm. Eins fannst þeim tilvalið að Bjöm setti upp sér- stakan gagnrýnendadálk á vefsíðunni. Ráðherr- ann segir að lokum um „Eyes Wide Sliut“: „Myndin er áleithi eftir að henni lýkur vegna þess sérstaka andrúmsloft sem ríkir í henni, þar sem skilin milli draums og vemleika em óskýr.“ Meira úr herbúðum sjálfstæðis- manna. Fullyrt var í pottinum í gær að kunnur sjálfstæðismaður í höfuðborginni liafi sagt eftir að hafa lesið heita pottinn í Degi í gær, þar sem sagt var frá því að menn nefndu Sigurð G. Guðjóns- son til sögunnar scm næsta for- ingja Samfylkingarinnar: „Nú, en af hverju fá þeir ckki bara Jón sjálfan" Björn Bjarnason. Jón Ólafsson í Skífunni Landssímiim fær ekki Laugardalsloðina - Er það orðið Ijóst að Landssíminn fái ekki hina umdeildu lóð i Laugardalnum? „Já, ég tel allar Iíkur á því. Borgarstjóri og fleiri borgarfulltrúar R-listans hafa lýst því yfir að við viljum ekki ganga í berhögg við vilja svo stórs hluta Reykvíkinga, sem hafa lýst sig andvíga byggingaráformum í Laug- ardalnum. Þess vegna höfum við farið í að leita annarra lausna fyrir Landssímann vegna þess að við teljum það afar mikilvægt fyrir Reykjavíkurborg að höfuðstöðvar Landssímans séu innan borgarmarkanna." - Sýnist mönnum þá að hús Orkuveitu Reykjavtkur við Suðurlandsbraut geti ver- ið lausnin? „Við teljum að svo geti verið. Orkuveita Reykjavíkur stefnir að því að flytja sína starfsemi upp á Eirhöfða. Þar með losnar húsnæði Orkuveitunnar við Suðurlands- braut og reyndar á Grensásveginum líka. Á lóðinni við Suðurlandsbrautina eru miklir byggingarmöguleikar. Landssíminn gæti byggt þar jafnvel stærra húsnæði en hann hefði möguleika á að byggja á margum- ræddri lóð í Laugardalnum." - Eru byggingarmöguleikar fyrir hendi á lóðinni auk hússins sem þar er fyrir? „Já, því það má byggja á lóðinni tvö sams- konar hús til viðbótar því sem fyrir er nú. Eins og allir vita er um turnlaga hús að ræða sem byggt var f kringum 1980. Þótt það sé orðið um tuttugu ára gamalt er það afar nútímalegt og glæsilegt skrifstofuhús- næði, sem alltaf hefur verið haldið vel við og er nánast eins og nýtt.“ - Þessar tvær umdeildu lóðir í Laugar- dalnum vera þær þá bara áfram grænt svæði eða hefur einhver ákvörðun verið tek- in um nýtingu þeirra? „Eg reikna nú með að menn setji þetta mál bara á ís og Iáti kyrrt liggja fyrst um sinn. Eg á ekki von á því að neitt verði farið að spá í það til hvers svæðið verður notað.“ - Hvað þá með lóð undir bíóhúsið sem orðað hafi verið við lóðina til hliðar við þá lóð sem Landssíminn var orðaður við? „Mér finnst alveg sjálfsagt, með sama hætti og við erum að skoða aðra möguleika fyrir Landssímann, að það verði skoðað hvort hægt er að finna úrlausn fyrir bíóhús- ið annars staðar en í Laugardalnum. Við erum samt ekkert farin að huga að þvf máli enn, ’vegna þess að þeir sém vilja byggja bíó- húsið höfðu ekki fengið neitt fyrirheit um lóðina. Það Iá bara fyrir umsókn frá þeim um lóðina og borgarráð hafði ekki tekið það mál neitt fyrir.“ - Þú ert semsé að segja að lóðarmáli Landssínums í Laugardal sé lokið? „Formlega hefur því ekki verið lokað vegna þess að það er í kynningu. Strax og henni lýkur verður málið tekið formlega fyr- ir og athugasemdir sem fram koma skoðað- ar með venjulegum hætti. En miðað við þær yfirlýsingar sem nú liggja fyrir af hálfu borg- aryfirvalda, tel ég alveg augljóst að Lands- síminn muni ekki byggja í Laugardalnum." - S.DÓR

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.