Dagur - 18.09.1999, Page 2
2-LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999
FRETTIR
Bj ðm biður
busum gríða
í bréfi til skólameistara
hvetur menntmálaráðu-
neytið til þess að tekið
verði á móti nýnemum
framhaldsskólanna án of-
stopa og ofbeldis.
„Ráðuneytið hvetur eindregið til þess,
að tekið verði á móti nýnemum án þess
að niðurlægja þá eða hæða, sýna þeim
ofstopa eða jafnvel ofbeldi. Telur
ráðuneytið, að virðuleg og friðsöm
móttaka sé best til þess fallin að skapa
góðan skólaanda", segir í bréfi sem
menntamálaráðuneytið sendi skóla-
meisturum framhaldsskólanna síðla
ágústmánaðar. Ráðuneytið segir af-
stöðu foreldra til starfs í framhalds-
skólum hafa breyst eftir hækkun sjálf-
ræðisaldurs. Fulltrúar þeirra hafi m.a.
mælst til þess að beint yrði til skóla-
meistara að huga að þeim aðferðum
sem beitt sé við busavígslur nýnema.
Busavígslur veki ugg í brjóstum margra
nemenda og auk þess sem tjón á fatn-
aði og gleraugum og jafnvel meiðsli
geti hlotist af þeim.
Engar breytingar í MR
Vitað sé að í nokkrum skólum hafi
skólameistarar hvatt nemendur til þess
að draga úr öllu ofbeldi og ólátum við
móttöku nýnema, enda aðstæður í
þjóðfélaginu og viðhorf allt önnur en á
þeim tíma, þegar sumir þessir siðir
komu til sögunnar. Ráðuneytið hefur
jafnffamt hvatt til þess, að beitt verði
auknum aga í skólunum og stuðlað að
meiri tillitssemi meðal nemenda.
Ingvi Pétursson, konrektor Mennta-
skólans í Reykjavík, segir bréf mennta-
málaráðuneytisins engu breyta í þeim
skóla. Busavígsla hafi verið með svip-
uðu formi nú og undanfarin ár. Ný-
nemar í MR eru tolleraðir.
Orð í tíma töluð
„Við höfum verið að breyta þessu“,
svaraði Hjalti Jón Sveinsson, skóla-
meistari Verkmenntaskólans á Akur-
FRÉTTA VIÐTALIÐ
AlfreðÞor-
steinsson
formaður stjómar Veitustofnana
Reykjavíkur.
Alfreð segirað hús Orkti-
veitu borgarinnarvið Suður-
landshraut sé góður kostur
Jyrir Landssímann sem fær
ekki umdeilda lóð íLaugar-
dalnum
Frá tolleringu í MR í fyrradag.
eyri. „Þetta var farið að ganga svolítið
út í öfgar, taka of mikinn tíma og valda
of mikilli röskun á skólalífinu, þannig
að við höfum verið að reyna að stytta
þetta og gera það heldur kurteislegra
en það hefur verið. Við vorum búin að
ákveða það áður en þetta bréf kom til,
en mér fannst það orð í tíma töluð.
Enda má segja að ýmsir siðir sem orð-
ið hafa til í framhaldsskólunum á síð-
ustu árum hafi gengið sér til húðar“,
sagði Hjalti Jón skólameistari.
Átak á Laugarvatni
„Við gerðum heilmikið átak í því, með
forsvarsmönnum nemenda, að taka á
móti nýjum nemendum áf þeirri virð-
ingu sem fólk á almennt skilið. Og
þessu var alls staðar tekið vel“, sagði
Páll Skúlason, aðstoðarskólameistari
Menntaskólans á Laugavatni. „Þær
upplýsingar sem við höfum frá hús-
bónda og öðrum þeim sem fylgdust vel
með krökkunum voru, að móttökurnar
hafi verið með allra vingjarnlegasta
móti að þessu sinni. Sjálf busavígslan,
sem fram fór á föstudag, felst í því að
nýnemar eru bornir út í Laugarvatn,
þar stendur maður með bjöllu og eys
þau vatni og eru þeir boðnir velkomnir
í hóp nemenda - og þar með er þeirri
athöfn lokið og hún fór mjög vel fram“.
Stundum út fyrir það ásættanlega
Spurður um eldri ósiði segir Páll þá að-
allega varða 2. árs nema sem finni hjá
sér þörf til að ná sér niðri á einhveij-
um fyrir það sem þau sjálf Ientu í árið
áður. Vikuna milli skólasetningar og
busavígslu hafi þau kannski skikkað
nýliðana til að bera fyrir sig skólatösk-
urnar og þjóna sér ýmsan hát. Þetta
hafi stundum gengið út fyrir það sem
ásættanlegt sé. „Við reyndum að taka
á þessu í fyrra og aftur núna. Við ætl-
um að hafa þetta í lagi og njótum þar
mikils skilnings eldri nemenda", segir
Páll. - HEI
Cruise og Kidman í
Eyes Wide Shut.
í tilefni þess að kvik-
myndin „Eyes Wide
Shut“ með hjónunum
Cruise og Kidman er
frumsýnd í bíóhúsunum
um helgina, rifjaðist
upp iyrir pottverjum að
Björn Bjarnason
menntamálaráðherra
hafði getið þess í dagbók á vefsíðu sinni að hann
fór á forsýningu myndarinnar. Ráðherrann læt-
ur fátt sér óviðkomandi og skráði m.a. í dagbók-
ina: „Eftir að hafa séð myndina er ég undrandi á
þvi, að kynnendur hennar skuli
leggja áherslu á að um óvenju-
lega djarfa mynd sé að ræða og
einnig er gert veður út af því, að
krafa hafi verið gerð um að
klippa senur úr myndinni í
Bandaríkjunum. Vissulega eru
sum atriði í djarfari kantinum
en miðað við annað, sem er
sýnt, virkar þessi kynning eins
og auglýsingabrella.“ Pottverjar voru á því að
Bjöm væri með skilgreiningu erótíkur á tæm.
Eins fannst þeim tilvalið að Bjöm setti upp sér-
stakan gagnrýnendadálk á vefsíðunni. Ráðherr-
ann segir að lokum um „Eyes Wide Sliut“:
„Myndin er áleithi eftir að henni lýkur vegna
þess sérstaka andrúmsloft sem ríkir í henni, þar
sem skilin milli draums og vemleika em óskýr.“
Meira úr herbúðum sjálfstæðis-
manna. Fullyrt var í pottinum í
gær að kunnur sjálfstæðismaður
í höfuðborginni liafi sagt eftir að
hafa lesið heita pottinn í Degi í
gær, þar sem sagt var frá því að
menn nefndu Sigurð G. Guðjóns-
son til sögunnar scm næsta for-
ingja Samfylkingarinnar: „Nú,
en af hverju fá þeir ckki bara Jón sjálfan"
Björn
Bjarnason.
Jón Ólafsson
í Skífunni
Landssímiim fær
ekki Laugardalsloðina
- Er það orðið Ijóst að Landssíminn fái
ekki hina umdeildu lóð i Laugardalnum?
„Já, ég tel allar Iíkur á því. Borgarstjóri og
fleiri borgarfulltrúar R-listans hafa lýst því
yfir að við viljum ekki ganga í berhögg við
vilja svo stórs hluta Reykvíkinga, sem hafa
lýst sig andvíga byggingaráformum í Laug-
ardalnum. Þess vegna höfum við farið í að
leita annarra lausna fyrir Landssímann
vegna þess að við teljum það afar mikilvægt
fyrir Reykjavíkurborg að höfuðstöðvar
Landssímans séu innan borgarmarkanna."
- Sýnist mönnum þá að hús Orkuveitu
Reykjavtkur við Suðurlandsbraut geti ver-
ið lausnin?
„Við teljum að svo geti verið. Orkuveita
Reykjavíkur stefnir að því að flytja sína
starfsemi upp á Eirhöfða. Þar með losnar
húsnæði Orkuveitunnar við Suðurlands-
braut og reyndar á Grensásveginum líka. Á
lóðinni við Suðurlandsbrautina eru miklir
byggingarmöguleikar. Landssíminn gæti
byggt þar jafnvel stærra húsnæði en hann
hefði möguleika á að byggja á margum-
ræddri lóð í Laugardalnum."
- Eru byggingarmöguleikar fyrir hendi
á lóðinni auk hússins sem þar er fyrir?
„Já, því það má byggja á lóðinni tvö sams-
konar hús til viðbótar því sem fyrir er nú.
Eins og allir vita er um turnlaga hús að
ræða sem byggt var f kringum 1980. Þótt
það sé orðið um tuttugu ára gamalt er það
afar nútímalegt og glæsilegt skrifstofuhús-
næði, sem alltaf hefur verið haldið vel við og
er nánast eins og nýtt.“
- Þessar tvær umdeildu lóðir í Laugar-
dalnum vera þær þá bara áfram grænt
svæði eða hefur einhver ákvörðun verið tek-
in um nýtingu þeirra?
„Eg reikna nú með að menn setji þetta
mál bara á ís og Iáti kyrrt liggja fyrst um
sinn. Eg á ekki von á því að neitt verði farið
að spá í það til hvers svæðið verður notað.“
- Hvað þá með lóð undir bíóhúsið sem
orðað hafi verið við lóðina til hliðar við þá
lóð sem Landssíminn var orðaður við?
„Mér finnst alveg sjálfsagt, með sama
hætti og við erum að skoða aðra möguleika
fyrir Landssímann, að það verði skoðað
hvort hægt er að finna úrlausn fyrir bíóhús-
ið annars staðar en í Laugardalnum. Við
erum samt ekkert farin að huga að þvf máli
enn, ’vegna þess að þeir sém vilja byggja bíó-
húsið höfðu ekki fengið neitt fyrirheit um
lóðina. Það Iá bara fyrir umsókn frá þeim
um lóðina og borgarráð hafði ekki tekið það
mál neitt fyrir.“
- Þú ert semsé að segja að lóðarmáli
Landssínums í Laugardal sé lokið?
„Formlega hefur því ekki verið lokað
vegna þess að það er í kynningu. Strax og
henni lýkur verður málið tekið formlega fyr-
ir og athugasemdir sem fram koma skoðað-
ar með venjulegum hætti. En miðað við þær
yfirlýsingar sem nú liggja fyrir af hálfu borg-
aryfirvalda, tel ég alveg augljóst að Lands-
síminn muni ekki byggja í Laugardalnum."
- S.DÓR