Dagur - 18.09.1999, Side 4
4-LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999
ro^ftr
Frummat á raflínu
Hafin er frumathugun Skipulagsstofnunar ríkisins á umhverfisáhrif-
um lagningar 132 kV háspennulínu frá Eyvindará á Héraði til Eski-
fjarðar. Lengd línunnar verður 29 kílómetrar. RARIK framkvæmir
verkið sem á að hefjast í febrúar á næsta ári og ljúka í september árið
2001. Samkvæmt frummatsskýrslu um umhverfisáhrif eru jákvæð
áhrif framkvæmdarinnar þau að rekstraröryggi og styrkur raforku-
kerfisins á sunnanverðum Austfjörðum eykst með línunni í stað 40
ára gamallar 33 kV raflínu. Við framkvæmdir og staðsetningu raflín-
unnar og staurastæða verður tekið fullt tillit til fornminja sem eru
töluverðar á og í nánd við línustæðið, samkvæmt skýrslu minjavarð-
ar Austurlands. Niðurstaða frummatsins er að fyrirhuguð raflína hafi
ekki teljandi áhrif á fuglalíf eða dýralíf á svæðinu.
Almenningi gefast fimm vikur til að kynna sér frummatsskýrslu,
sem liggja mun frammi hjá sveitarfélögum á Austljörðum, Skipulags-
stofnun og í Þjóðarbókhlöðu, og athugasemdir þurfa að berast stofn-
uninni eigi síðar en 22. október nk.
Vesturbæjarskóli einsetiim
Með formlegri at-
höfn var viðbygg-
ing Vesturbæjar-
skóla við Sólvalla-
götu í Reykjavík
tekin í notkun í
gær. Þar með er
skólinn orðinn
einsetinn, einn
fjögurra grunn-
skóla í borginni í
haust. I viðbygg-
ingunni, sem er
um 900 fermetrar
að flatarmáli, eru
8 almennar
kennslustofur, að-
staða fyrir nýbúadeild og heilsugæslu skólans. Einnig hefur verið
unnið að endurbyggingu í eldra skólahúsinu, einkum í stjórnunar-
álmu.
Viðbyggingin var teiknuð á teiknistofu Ingimundar Sveinssonar,
sem einnig teikr.aði eldra húsið. Forsjá hf. hannaði burðarþol og
lagnir, Thomas Kaaber hannaði raflagnir og lóðin var hönnuð af
Ragnhildi Skarphéðinsdóttur landslagsarkitekt og Magnúsi
Tómassyni myndlistarmanni. Byggingardeild borgarverkfræðings
annaðist stjórn verkefnisins og aðalverktakar voru Ármannsfell hf.
í Vesturbæjarskóla eru nú 300 nemendur í 1. til 7. bekk og skipt-
ast þeir í 15 bekkjardeildir. Þar starfa 25 kennarar og um 20 aðrir
starfsmenn
Frá athöfninni í Vesturbæjarskóia í gær. mynd: e.ól
Milljón í Listasafnið
Á bæjarráðsfundi á Akureyri í vikunni voru lagðir fram minnispunkt-
ar frá sviðssjóra félagssviðs, menningarfulltrúa og forstöðumanns
Listasafnsins, en þessir menn fóru í lok síðasta mánaðar yfir fjár-
hagsstöðu safnsins. Bæjarráð samþykkti { kjölfarið að safninu yrði
veitt viðbótarfján'eiting upp á 1 milljón króna til þess að fjármagna
starfsemi á þessu ári.
Vímuvamamka á Nesinu
Sérstök vímuvarnarvika verður á Seltjarnarnesi næstu vikuna, eða til
25. september. Ymis félagasamtök og stofnanir á Nesinu standa fyr-
ir átakinu. Ástæðan er sú að frá árinu 1996 hefur verið starfandi
samráðshópur um vímuvarnir og í samvinnu við ýmsa aðila hrundið
af stað vímuvarnaráætlun til fjögurra ára eða fram til ársins 2002, en
markmiðið með þessari áætlun er að fá bæjarbúa til að stilla sig sam-
an í átaki gegn vímuefnaneyslu unglinga. Ymislegt verður gert til
skemmtunar og fræðslu þessa viku. I dag verður t.d. boðið upp á fjöl-
skyldutrimm frá sundlauginni kl. 11 og á morgun fer fram fjöl-
skylduguðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju á sama tíma.
Einmg-Iðja fylgist með réttarstöðu
Forsvarsmenn verkalýðsfélagsins Ein-
ingar-Iðju í Eyjafirði hafa fundað með
félagsmönnum í Hrísey í kjölfar ákvörð-
unar Snæfells um að flytja pökkunar-
verksmiðju félagsins frá Hrísey til Dal-
víkurbyggðar.
Björn Snæbjörnsson, formaður Ein-
ingar-Iðju, segir að aðkoma félagsins að
málinu sé aðallega fólgin í því að halda
fólkinu vel upplýstu um þeirra réttar-
stöðu. Björn hefur sagt sig úr atvinnu-
málanefnd Akureyrarbæjar en hann seg-
ir það ekki vegna þess að hann sé ósátt-
ur við störf nefndarinnar eða að hann sé
aðhætta afskiptum af stjórnmálum,
heldur sé það afleiðing þess að bæði
Sigfríður Þorsteinsdóttir og Elsa Frið-
finnsdóttir í Framsóknarflokki séu flutt-
ar suður og hættar afskiptum, a.m.k.
tímabundið, af bæjarmálum á Akureyri
og setu í bæjarstjórn Akureyrar. Matthildur Sigurjónsdóttir, varafor-
maður verkalýðsfélagsins, hefur einnig setið í atvinnumálanefnd og
telur Björn það eðlilegt að annað þeirra færði sig. Björn tekur nú sæti
{.umhverfisnefnd Akureyrarbæjar í StölÞSigfríáaiV nrafl mti mjvjueu !
FormaÖur Einingar-lðju ekki
hættur afskiptum afstjórnmál-
um. Tekur sæti í umhverfis-
nefnd í staö atvinnumálanefnd-
ar Akureyrarbæjar.
FRÉTTIR
.
■
Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur segir Björn Bjarnason hafa setið aðgeröalausan í málefnum Listaháskólans
og ekkert hafi gerst frá því Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar Gestsson keytu hús fyrir skólann í Laugarnesinu.
Gagnrýiiir ráðherra
fynr aðgerðarleysi
Helgi Hjörvar segir
meimtamálaráðherra
Sj áKstæðisflokksms
ekkert hafa gert í hús-
næðismálum Listahá-
skólans árum saman.
Snemma árs 1991 keyptu þáver-
andi fjármálaráðherra og
menntamálaráðherra, Ólafur
Ragnar Grímsson og Svavar
Gestsson, glæsilega húseign í
Laugarnesinu í Reykjavík er hýsa
átti Listaháskóla Islands og í
samráði og samvinnu við þá
skóla sem mynda áttu Listahá-
skóla Islands. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur farið með ráðuneyti
menntamála í hartnær áratug án
þess að hafast nokkuð frekar að í
húsnæðismálum Listaháskóla ís-
lands. Þetta fullyrti Helgi Hjörv-
ar, forseti borgarstjórnar Reykja-
víkur, í umræðum um húsnæðis-
mál skólans í borgarstjórn.
Helgi sagði það vera fullgild
rök fyrir því að láta SS-húsið í
Laugarnesi undir aðra starfsemi
„ef við gætum fengið jafn blóm-
lega stofnun og listaháskóla
hingað í miðborg höfuðborgar-
innar og þar fengi að þrífast
blómlegt listalíf, bæði skólanum
og miðborginni til gagns.“
Ráðherra taki á sig rögg
Hann gagnrýndi hins vegar
vangaveltur um að færa skólann
úr borginni: „Ég fæ ekki séð að
það geti verið kostnaðarminna að
umbreyta einu frystihúsi suður í
Hafnarfirði í þokkalega aðstöðu
fyrir listaháskóla heldur en verið
hefði að standsetja SS-húsið í
Laugarnesi af þeim myndarskap
sem menntamálaráðherra Sjálf-
stæðisflokksins hefur skort í
hartnær tíu ár.
Ef ríkið hefur ekki áhuga á því
að breyta einhverju af húseign-
um sínum í miðborginni, svo
sem eins og húsakynnum Lands-
símans, Tollstöðvarinnar eða
annarra þeirra húseigna sem rík-
ið á þar, þá liggi beint við að
menntamálaráðherra Sjálfstæð-
isflokksins reyni nú einu sinni að
taka á sig rögg og ljúka einu hús-
næðismáli sem snýst um annað
en menningarhús á landsbyggð-
inni og standsetji hús SS í Laug-
arnesi af myndarskap fyrir Lista-
háskóla íslands - jafnvel þó að
það hafi verið Svavar Gestsson
og Ólafur Ragnar Grímsson sem
keyptu það,“ sagði Helgi.
Fransknr riddarakross
Albert Kemp, skipa-
eftirHtsmaður og fyrr-
um oddviti á Fá-
skrúðsflrði, fékk á
dögimiun afhentan
riddarakross franska
lýðveldisins.
Krossinn er veittur af frönsku
ríkisstjórninni, fyrir framlag sitt
til aukinna samskipta Islands og
Frakklands. Það var franski
sendiherrann á Islandi, Robert
Cantoni, sem veitti Alberti viður-
kenninguna í hófi sem haldið var
honum til heiðurs á Hótel Bjargi
á Fáskrúðsfirði, að viðstöddum
núverandi og fyrrverandi hrepps-
nefndarmönnum Búðahrepps.
Gott vinabæjarsamband
Fáskrúðsfirðingar hafa verið í
vinabæjarsamþandrj /viðiniGra-J
velines, sem er sjávarbær á vest-
urströnd Frakklands, í 10 ár og
hófust þau samskipti í oddvitatíð
Alberts. Að hans sögn var það
einkum fyrir hvatningu Elínar
Pálmadóttur, blaðamanns, sem
þessi samskjpti voru tekin upp,
en hún hafði komist á snoðir um
að Frakkar hefðu áhuga á slíkum
samskiptum. Albert sagði enn-
fremur að þó svo að hann hefði
verið tilnefndur til þess að taka á
móti viðurkenningu frönsku rík-
isstjórnarinnar, þá væri í raun
verið að heiðra alla þá Fáskrúðs-
firðinga sem fyrr og sfðar hafa
eflt kynni landanna tveggja.
Skiptu á ullarvöru og áfengi
Ástæðan fyrir því að Frakkar
sýndu Fáskrúðsfirði sérstakan
áhuga var, að á meðan franskir
sjómenn sóttu stíft á hin feng-
sælu þorskmið við Island, frá því
snemma á nítjándu öld og fram
að heimstyrjþlidýyriR»\var Fá-
skrúðsfjörðtrr-eirm af þcim stöð-
um sem þeir héldu mikið til á.
Frönsku duggurnar lágu þar
gjarnan í vari og Fransmennirnir,
eins og þeir voru kallaðir, komu í
land til þess að halda kaþólskar
stórhátfðir og sækja sér vatn og
aðrar nauðsynjar. Töluverð vöru-
skipti áttu sér stað þar sem ís-
lendingar lögðu til sokkaplögg,
vettlinga og fleira, en Frakkarnir
rauðvín, kex og annað sjaldséð
góðgæti. Einnig keyptu íslend-
ingar veiðarfæri af Frökkunum.
Á Fáskrúðsfirði er að finna
kirkjugarð þar sem franskir sjó-
menn eru grafnir og árið 1904
létu Frakkar byggja þar spítala til
þess að þjóna sjómönnum sín-
um.
I dag eru vinabæjarsamskipti
Fáskrúðsfirðinga og íbúa Gra-
velines talsverð. T.d. fara ung-
lingahópar frá Fáskrúðsfirði
reglulega til Frakklands og
franskir jafnaldrar þeirra koma
að sama skapi til FáskrúðsQarð-
uoölzainqqay/neií