Dagur - 18.09.1999, Page 4

Dagur - 18.09.1999, Page 4
4-LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 ro^ftr Frummat á raflínu Hafin er frumathugun Skipulagsstofnunar ríkisins á umhverfisáhrif- um lagningar 132 kV háspennulínu frá Eyvindará á Héraði til Eski- fjarðar. Lengd línunnar verður 29 kílómetrar. RARIK framkvæmir verkið sem á að hefjast í febrúar á næsta ári og ljúka í september árið 2001. Samkvæmt frummatsskýrslu um umhverfisáhrif eru jákvæð áhrif framkvæmdarinnar þau að rekstraröryggi og styrkur raforku- kerfisins á sunnanverðum Austfjörðum eykst með línunni í stað 40 ára gamallar 33 kV raflínu. Við framkvæmdir og staðsetningu raflín- unnar og staurastæða verður tekið fullt tillit til fornminja sem eru töluverðar á og í nánd við línustæðið, samkvæmt skýrslu minjavarð- ar Austurlands. Niðurstaða frummatsins er að fyrirhuguð raflína hafi ekki teljandi áhrif á fuglalíf eða dýralíf á svæðinu. Almenningi gefast fimm vikur til að kynna sér frummatsskýrslu, sem liggja mun frammi hjá sveitarfélögum á Austljörðum, Skipulags- stofnun og í Þjóðarbókhlöðu, og athugasemdir þurfa að berast stofn- uninni eigi síðar en 22. október nk. Vesturbæjarskóli einsetiim Með formlegri at- höfn var viðbygg- ing Vesturbæjar- skóla við Sólvalla- götu í Reykjavík tekin í notkun í gær. Þar með er skólinn orðinn einsetinn, einn fjögurra grunn- skóla í borginni í haust. I viðbygg- ingunni, sem er um 900 fermetrar að flatarmáli, eru 8 almennar kennslustofur, að- staða fyrir nýbúadeild og heilsugæslu skólans. Einnig hefur verið unnið að endurbyggingu í eldra skólahúsinu, einkum í stjórnunar- álmu. Viðbyggingin var teiknuð á teiknistofu Ingimundar Sveinssonar, sem einnig teikr.aði eldra húsið. Forsjá hf. hannaði burðarþol og lagnir, Thomas Kaaber hannaði raflagnir og lóðin var hönnuð af Ragnhildi Skarphéðinsdóttur landslagsarkitekt og Magnúsi Tómassyni myndlistarmanni. Byggingardeild borgarverkfræðings annaðist stjórn verkefnisins og aðalverktakar voru Ármannsfell hf. í Vesturbæjarskóla eru nú 300 nemendur í 1. til 7. bekk og skipt- ast þeir í 15 bekkjardeildir. Þar starfa 25 kennarar og um 20 aðrir starfsmenn Frá athöfninni í Vesturbæjarskóia í gær. mynd: e.ól Milljón í Listasafnið Á bæjarráðsfundi á Akureyri í vikunni voru lagðir fram minnispunkt- ar frá sviðssjóra félagssviðs, menningarfulltrúa og forstöðumanns Listasafnsins, en þessir menn fóru í lok síðasta mánaðar yfir fjár- hagsstöðu safnsins. Bæjarráð samþykkti { kjölfarið að safninu yrði veitt viðbótarfján'eiting upp á 1 milljón króna til þess að fjármagna starfsemi á þessu ári. Vímuvamamka á Nesinu Sérstök vímuvarnarvika verður á Seltjarnarnesi næstu vikuna, eða til 25. september. Ymis félagasamtök og stofnanir á Nesinu standa fyr- ir átakinu. Ástæðan er sú að frá árinu 1996 hefur verið starfandi samráðshópur um vímuvarnir og í samvinnu við ýmsa aðila hrundið af stað vímuvarnaráætlun til fjögurra ára eða fram til ársins 2002, en markmiðið með þessari áætlun er að fá bæjarbúa til að stilla sig sam- an í átaki gegn vímuefnaneyslu unglinga. Ymislegt verður gert til skemmtunar og fræðslu þessa viku. I dag verður t.d. boðið upp á fjöl- skyldutrimm frá sundlauginni kl. 11 og á morgun fer fram fjöl- skylduguðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju á sama tíma. Einmg-Iðja fylgist með réttarstöðu Forsvarsmenn verkalýðsfélagsins Ein- ingar-Iðju í Eyjafirði hafa fundað með félagsmönnum í Hrísey í kjölfar ákvörð- unar Snæfells um að flytja pökkunar- verksmiðju félagsins frá Hrísey til Dal- víkurbyggðar. Björn Snæbjörnsson, formaður Ein- ingar-Iðju, segir að aðkoma félagsins að málinu sé aðallega fólgin í því að halda fólkinu vel upplýstu um þeirra réttar- stöðu. Björn hefur sagt sig úr atvinnu- málanefnd Akureyrarbæjar en hann seg- ir það ekki vegna þess að hann sé ósátt- ur við störf nefndarinnar eða að hann sé aðhætta afskiptum af stjórnmálum, heldur sé það afleiðing þess að bæði Sigfríður Þorsteinsdóttir og Elsa Frið- finnsdóttir í Framsóknarflokki séu flutt- ar suður og hættar afskiptum, a.m.k. tímabundið, af bæjarmálum á Akureyri og setu í bæjarstjórn Akureyrar. Matthildur Sigurjónsdóttir, varafor- maður verkalýðsfélagsins, hefur einnig setið í atvinnumálanefnd og telur Björn það eðlilegt að annað þeirra færði sig. Björn tekur nú sæti {.umhverfisnefnd Akureyrarbæjar í StölÞSigfríáaiV nrafl mti mjvjueu ! FormaÖur Einingar-lðju ekki hættur afskiptum afstjórnmál- um. Tekur sæti í umhverfis- nefnd í staö atvinnumálanefnd- ar Akureyrarbæjar. FRÉTTIR . ■ Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur segir Björn Bjarnason hafa setið aðgeröalausan í málefnum Listaháskólans og ekkert hafi gerst frá því Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar Gestsson keytu hús fyrir skólann í Laugarnesinu. Gagnrýiiir ráðherra fynr aðgerðarleysi Helgi Hjörvar segir meimtamálaráðherra Sj áKstæðisflokksms ekkert hafa gert í hús- næðismálum Listahá- skólans árum saman. Snemma árs 1991 keyptu þáver- andi fjármálaráðherra og menntamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar Gestsson, glæsilega húseign í Laugarnesinu í Reykjavík er hýsa átti Listaháskóla Islands og í samráði og samvinnu við þá skóla sem mynda áttu Listahá- skóla Islands. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur farið með ráðuneyti menntamála í hartnær áratug án þess að hafast nokkuð frekar að í húsnæðismálum Listaháskóla ís- lands. Þetta fullyrti Helgi Hjörv- ar, forseti borgarstjórnar Reykja- víkur, í umræðum um húsnæðis- mál skólans í borgarstjórn. Helgi sagði það vera fullgild rök fyrir því að láta SS-húsið í Laugarnesi undir aðra starfsemi „ef við gætum fengið jafn blóm- lega stofnun og listaháskóla hingað í miðborg höfuðborgar- innar og þar fengi að þrífast blómlegt listalíf, bæði skólanum og miðborginni til gagns.“ Ráðherra taki á sig rögg Hann gagnrýndi hins vegar vangaveltur um að færa skólann úr borginni: „Ég fæ ekki séð að það geti verið kostnaðarminna að umbreyta einu frystihúsi suður í Hafnarfirði í þokkalega aðstöðu fyrir listaháskóla heldur en verið hefði að standsetja SS-húsið í Laugarnesi af þeim myndarskap sem menntamálaráðherra Sjálf- stæðisflokksins hefur skort í hartnær tíu ár. Ef ríkið hefur ekki áhuga á því að breyta einhverju af húseign- um sínum í miðborginni, svo sem eins og húsakynnum Lands- símans, Tollstöðvarinnar eða annarra þeirra húseigna sem rík- ið á þar, þá liggi beint við að menntamálaráðherra Sjálfstæð- isflokksins reyni nú einu sinni að taka á sig rögg og ljúka einu hús- næðismáli sem snýst um annað en menningarhús á landsbyggð- inni og standsetji hús SS í Laug- arnesi af myndarskap fyrir Lista- háskóla íslands - jafnvel þó að það hafi verið Svavar Gestsson og Ólafur Ragnar Grímsson sem keyptu það,“ sagði Helgi. Fransknr riddarakross Albert Kemp, skipa- eftirHtsmaður og fyrr- um oddviti á Fá- skrúðsflrði, fékk á dögimiun afhentan riddarakross franska lýðveldisins. Krossinn er veittur af frönsku ríkisstjórninni, fyrir framlag sitt til aukinna samskipta Islands og Frakklands. Það var franski sendiherrann á Islandi, Robert Cantoni, sem veitti Alberti viður- kenninguna í hófi sem haldið var honum til heiðurs á Hótel Bjargi á Fáskrúðsfirði, að viðstöddum núverandi og fyrrverandi hrepps- nefndarmönnum Búðahrepps. Gott vinabæjarsamband Fáskrúðsfirðingar hafa verið í vinabæjarsamþandrj /viðiniGra-J velines, sem er sjávarbær á vest- urströnd Frakklands, í 10 ár og hófust þau samskipti í oddvitatíð Alberts. Að hans sögn var það einkum fyrir hvatningu Elínar Pálmadóttur, blaðamanns, sem þessi samskjpti voru tekin upp, en hún hafði komist á snoðir um að Frakkar hefðu áhuga á slíkum samskiptum. Albert sagði enn- fremur að þó svo að hann hefði verið tilnefndur til þess að taka á móti viðurkenningu frönsku rík- isstjórnarinnar, þá væri í raun verið að heiðra alla þá Fáskrúðs- firðinga sem fyrr og sfðar hafa eflt kynni landanna tveggja. Skiptu á ullarvöru og áfengi Ástæðan fyrir því að Frakkar sýndu Fáskrúðsfirði sérstakan áhuga var, að á meðan franskir sjómenn sóttu stíft á hin feng- sælu þorskmið við Island, frá því snemma á nítjándu öld og fram að heimstyrjþlidýyriR»\var Fá- skrúðsfjörðtrr-eirm af þcim stöð- um sem þeir héldu mikið til á. Frönsku duggurnar lágu þar gjarnan í vari og Fransmennirnir, eins og þeir voru kallaðir, komu í land til þess að halda kaþólskar stórhátfðir og sækja sér vatn og aðrar nauðsynjar. Töluverð vöru- skipti áttu sér stað þar sem ís- lendingar lögðu til sokkaplögg, vettlinga og fleira, en Frakkarnir rauðvín, kex og annað sjaldséð góðgæti. Einnig keyptu íslend- ingar veiðarfæri af Frökkunum. Á Fáskrúðsfirði er að finna kirkjugarð þar sem franskir sjó- menn eru grafnir og árið 1904 létu Frakkar byggja þar spítala til þess að þjóna sjómönnum sín- um. I dag eru vinabæjarsamskipti Fáskrúðsfirðinga og íbúa Gra- velines talsverð. T.d. fara ung- lingahópar frá Fáskrúðsfirði reglulega til Frakklands og franskir jafnaldrar þeirra koma að sama skapi til FáskrúðsQarð- uoölzainqqay/neií

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.