Dagur - 18.09.1999, Síða 5

Dagur - 18.09.1999, Síða 5
X^MT- LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 - S FRÉTTIR L. Stofnun stjóm- málaflokks flýtt Hraða á stofnim Sam- fylMngar sem form- legs stjómmálaflokks eins og frekast er kostur. Undirbúnings- fundir haldnir um allt land næstu daga. Sighvatur Björgvinsson, formað- ur Alþýðuflokksins, er Iagður af stað í fundaferð hringinn í kring- um Iandið til að kynna alþýðu- flokksfólki drög að skipulagsmál- um Samfylkingarinnar sem nú liggja fyrir. Nú er ekki Iengur miðað við flokksstofnun næsta vor heldur eins fljótt og hægt er. Eins og skýrt var frá í Degi sl. fimmtudag er gert ráð fyrir að A- flokkarnir og Kvennalistinn gangi í heild sem sjálfstæðar ein- ingar inn í Samfylkinguna. „Flokksfélögin út um land eru að sjálfsögðu sjálfstæðar ein- ingar og enginn getur breytt þeirra tilveru nema þau sjálf. Þess vegna er gert ráð fyrir því að þau geti hvert fyrir sig gengið inn í Samfylk- inguna ef þau vilja gerast aðilar að flokknum. Eins og áður hefur komið fram er allt fjár- málauppgjör flokkanna eftir _________ og tekur langan tíma að ganga frá því. Við erum að leita leiða til að stofnun Sam- fylkingarinnar sem formlegs stjórnmálaflokks geti gengið sem Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokksins. hraðast fyrir sig. Þess vegna er þessi leið valin í stað þess að fara út í það að Ieggja hvert einasta fé- lag niður, sem hlýtur að taka langan tíma,“ segir Sighvatur Björgvinsson. Hraða á flokksstofnim Á landsfundi Al- þýðubandalags- ins í nóvember verða þessi mál að sjálfsögðu tekin fyrir og _________rædd. Alþýðu- flokkurinn held- ur flokksstjórnarfund 2. október nk. og þar verður málið á dag- skrá. Samt sem áður segir Sig- hvatur nauðsynlegt að halda fundi í flokksfélögunum og kynna skipulagsmálin. Kvenna- listinn verður líka með fund vegna þessa máls og er hann fyr- irhugaður um miðjan nóvember. „Eftir þessi fundahöld flokk- anna verður tekin afstaða til þessara skipulagshugmynda og þegar hún liggur fyrir hefst und- irbúningur að flokksstofnun. Og menn miða ekkert endilega á næsta vor heldur að því að stofn- un flokksins geti gengið eins hratt fyrir sig og mögulegt er,“ segir Sighvatur. Hann hefur þegar haldið fundi í Reykjavík og Hafnarfirði. Nú um helginá verða haldnir fundir á Akureyri, Húsavík, Siglufirði og Sauðárkróki. Síðan verður haldið áfram næstu daga og fundir haldnir um allt land. Alþýðubandalagið mun ætla að fara eins að og halda fundi í sínum flokksfélögum um allt land. — S.DÓR Hagnaðist sjalfur á kvótasölu Magnús Reynir Guðmundsson á Isafirði, sem í vikunni vakti máls á óréttlæti þess að tvær fjölskyldur skiptu með sér eins milljarðs kvótagróða, hefur sjálfur hagnast á sölu á sjávarútvegsfyrirtækis. Hann mun hafa hagnast verulega á því að selja hlut í útgerðarfyrirtæk- inu Togaraútgerð ísafjarðar, eða um á bilinu 30 til 40 milljónir króna samkvæmt heimildum blaðsins. Magnús var fram- kvæmdastjóri Togaraútgerðar- innar um tíma, en hagnaðist hann á sölunni? „Það er rétt, en varla í þessu mæli. Ég fór í bankann og sló lán til þess að geta keypt hlutabréf fyrir nokkra upphæð. Síðan þegar félagið var sameinað Básafelli seldi ég þau og ég hagnaðist dálítið á því. Það var eins og góður happ- drættisvinningur." - Var þetta tugmilljóna króna hagnaður? „Það liggur fyrir að ég keypti mér fbúð í Reykjavík." — GG Vélaskemman hlífði bæniun Aurskriður valda skemmdiun á vegum og öðrum manuvirkj- um og vélaskemma hlífði íbúðarhúsinu á Tóarstöðum við aur- flóði. Mikið vatnsveður geisaði á Aust- fjörðum í fyrrinótt og gærmorg- un. Nokkrar aurskriður féllu og ollu skemmdum á vegum og mannvirkjum. Skriða féll á vélar- skemmu fyrir ofan bæinn Tóar- staði í Breiðdal. Hörður Gilsberg býr þar ásamt Stefaníu Hávarðs- dóttur, eiginkonu sinni. Hann sagði að erfitt væri að gera sér grein fyrir skemmdum því allt væri á kafi í leir og drullu. „Véla- skemman stóð upp af bænum og hlífði honum við flóðinu. Hún klauf flóðið, stærsti hlutinn af því fór framhjá bænum en hluti af því lenti á fjósinu, og skemmdist það talsvert. Ymsar vélar og tæki skemmdust í flóð- inu og heyvagn sem þarna var,“ segir Hörður. Hann sagðist ekki gera sér neina grein fyrir því hvað flóðið væri mikið en það gæti verið að um 1000 rúmmetr- ar af efni hafi farið af stað úr fjallinu fyrir ofan bæinn. Flóðið hafi farið yfir ansi fallega lægð og þar hafi verið fé daginn áður en það féll, en hann vissi ekki hvort það hafi lent í flóðinu. Vegurinn milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar Iokaðist af völdum skriðufalla. Á hann féllu einar sex aurskriður f gærmorgun. Var sú stærsta þeirra um 400 metra breið. Vegagerðarmenn segja að það taki nokkra daga að gera við veginn, en treysta sér ekki til þess að meta skemmdirnar. Á all- löngum kafla vantar um 1/3 af vegbreiddinni og malbikið er illa sprungið. Færa þurfti leik KVA og FH í 1. deild karla í knattspyrnu sem fara átti fram á Eskifjarðarvelli í gærkvöld vegna þess að völlurinn þar var algjör „soppa“, eins og framkvæmdastjóri KVA orðaði það. Var leikurinn leikinn á knattspyrnuvellinum á Egils- stöðum í staðinn. Reglur Knatt- spyrnusambandsins heimiluðu ekki frestun á leiknum, því allir leikir í síðustu umferðinni eiga að fara fram samtímis. Það kom jafnvel til tals að flytja leikinn til Akureyrar. Urkoman frá miðvikudegi til föstudags var um 200 millimetr- ar. Rigningar sem þessar munu ekki vera óalgengar, hins vegar er jörðin ekki tilbúin til að taka við öllu þessu vatni eftir þurrt aust- firskt sumar. Austfirðingar líktu rigningunum helst við syndaflóð. Veðurstofan býst við austlægum áttum áfram, þannig að enn gæti rignt fyrir austan. - pjesta Skoða samkeppnisstöðu Sjávarútvegsráðherra, Árni M. Mathiesen, sagði á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva, að landvinnsla hefði á síðasta ári aukist meira en sjóvinnsla í fyrsta skipti frá því að sjófrysting hófst. Landfiy'star botnfiskafurðir jukust í magni um 9%, saltaðar am 2% en sjófrystar afurðir aðeins um brot úr prósenti. Sjávarútvegsráðherra skýrði frá því að skipa eigi nefnd undir for- sæti Einars Guðfinnssonar, al- þingismanns og formanns sjávar- útvegsnefndar Alþingis, til að skoða samkeppnisstöðu fisk-^. Árni M. Mathiesen. 60,1?. '.nrr^cj t1' T6-1'-' ;i,i)6;t0ilku.u.3'ié vinnslunnar, hverra kosta hún á völ og hvert hún stefnir. Einnig hvernig megi ná meiri virðisauka úr vinnslunni og skoða hvernig forræði mála skiptist á milli ríkis- valds, samtaka í sjávarútvegi og fyrirtækjanna sjálfra. Einnig verð- ur skipuð nefnd undir forsæti Brynjólfs Sandholts, fyrrverandi yfirdýralæknis, til að kanna með- ferð sjávarafla og ef þurfa þykir og koma með tillögur til úrbóta. Nefndin á jafnframt að skoða hvemig tryggja megi góða meðferð hráefnis þegar eftirspum er meiri en ficamboð, eins og nú. er, ,t-.gg UtanríMsráðherrar funda Halldór Ásgríms- son utanríkisráð- herra og Igor Ivanov, utanríkis- ráðherra Rúss- lands, skrifuðu í gær undir viljayfir- Iýsingu um sam- starf ríkjanna á ýmsum sviðum, einkum í sjávarút- vegi. Halldór sagði Halldór Ásgrímsson og Igor Ivanov. í gær að hann von- -------------------------- aðist eftir að sjávar- útvegssamningur þjóðanna yrði undirritaður í haust. Síininn GSM bilaði Truflanir urðu á GSM-kerfi Landssímans eftir hádegi í gær. Vandræð- in byrjuðu á höfuðborgarsvæðinu en færðust á fleiri landsvæði. Svo slæmt var ástandið á tímabili að nær útilokað var að ná sambandi. Viðskiptavinir Landssímans voru beðnir að halda símhringingum í lágmarki á meðan viðgerð stóð yfir. Ekki urðu truflanir á GSM-kerfi Tals. Rændu Strax Þrír menn rændu matvöruverslun Strax í Kópavoginum upp úr kl. 15:00 í gærdag. Peningum var stolið og var einn viðskiptavinur versl- unarinnar, eldri maður, laminn svo illa að flytja þurfti hann á slysa- deild. Ræningjarnir ruddust inn í búðina og hentu starfsfólkinu í gólfið á meðan þeir tóku peningana úr tveimur sjóðvélum. Þeir komust einnig í pfeningaskáp sem var í bakherbergi. Talið er að þjófarnir hafi haft um 100 þúsund krónur upp úr krafsinu. Strax- verslunin var opnuð í Kópavogi fyrir um mánuði síðan en búðin er á vegum KEA. Verkalýðsfélögiii imdirhúa kröfugerð Formannaráðstefna Verkamannasambands Islands fór fram í Kiwan- ishúsinu við Engjateig í Reykjavík á fimmtudag. Þar var farið yfir stöðuna en í næsta mánuði eru verkalýðsfélögin komin inn í viðræðu- áætlun \ið atvinnurekendur. Samkvæmt nýrri vinnulöggjöf þarf að leggja fram kröfugerðir um miðjan nóvembermánuð, og var for- mannafundurinn m.a. nýttur til þess að samræma að einhverju marki kröfugerðir einstaka verkalýðsfélaga. Formenn félaganna munu hitt- ast aftur í byrjun októbermánaðar, og er búist við að það verði meiri \innufundur en fundurinn á fimmtudag. Verkalýðsfélagið Eining-Iðja í Eyjafirði hefur verið að undirbúa komandi kjarasamninga síðan í febrúarmánuði á sl. vetri, og þannig , mun.vera um fleiri verkalýðsfélög. lyjni.íA.bni .n.-.i'n- 't>GG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.