Dagur - 18.09.1999, Qupperneq 5
X^MT-
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 - S
FRÉTTIR
L.
Stofnun stjóm-
málaflokks flýtt
Hraða á stofnim Sam-
fylMngar sem form-
legs stjómmálaflokks
eins og frekast er
kostur. Undirbúnings-
fundir haldnir um
allt land næstu daga.
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, er Iagður af
stað í fundaferð hringinn í kring-
um Iandið til að kynna alþýðu-
flokksfólki drög að skipulagsmál-
um Samfylkingarinnar sem nú
liggja fyrir. Nú er ekki Iengur
miðað við flokksstofnun næsta
vor heldur eins fljótt og hægt er.
Eins og skýrt var frá í Degi sl.
fimmtudag er gert ráð fyrir að A-
flokkarnir og Kvennalistinn
gangi í heild sem sjálfstæðar ein-
ingar inn í Samfylkinguna.
„Flokksfélögin
út um land eru
að sjálfsögðu
sjálfstæðar ein-
ingar og enginn
getur breytt
þeirra tilveru
nema þau sjálf.
Þess vegna er
gert ráð fyrir því
að þau geti hvert
fyrir sig gengið
inn í Samfylk-
inguna ef þau
vilja gerast aðilar
að flokknum.
Eins og áður
hefur komið
fram er allt fjár-
málauppgjör
flokkanna eftir _________
og tekur langan
tíma að ganga frá því. Við erum
að leita leiða til að stofnun Sam-
fylkingarinnar sem formlegs
stjórnmálaflokks geti gengið sem
Sighvatur Björgvinsson, formaður
Alþýðuflokksins.
hraðast fyrir sig.
Þess vegna er
þessi leið valin í
stað þess að fara
út í það að Ieggja
hvert einasta fé-
lag niður, sem
hlýtur að taka
langan tíma,“
segir Sighvatur
Björgvinsson.
Hraða á
flokksstofnim
Á landsfundi Al-
þýðubandalags-
ins í nóvember
verða þessi mál
að sjálfsögðu
tekin fyrir og
_________rædd. Alþýðu-
flokkurinn held-
ur flokksstjórnarfund 2. október
nk. og þar verður málið á dag-
skrá. Samt sem áður segir Sig-
hvatur nauðsynlegt að halda
fundi í flokksfélögunum og
kynna skipulagsmálin. Kvenna-
listinn verður líka með fund
vegna þessa máls og er hann fyr-
irhugaður um miðjan nóvember.
„Eftir þessi fundahöld flokk-
anna verður tekin afstaða til
þessara skipulagshugmynda og
þegar hún liggur fyrir hefst und-
irbúningur að flokksstofnun. Og
menn miða ekkert endilega á
næsta vor heldur að því að stofn-
un flokksins geti gengið eins
hratt fyrir sig og mögulegt er,“
segir Sighvatur.
Hann hefur þegar haldið fundi
í Reykjavík og Hafnarfirði. Nú
um helginá verða haldnir fundir
á Akureyri, Húsavík, Siglufirði
og Sauðárkróki. Síðan verður
haldið áfram næstu daga og
fundir haldnir um allt land.
Alþýðubandalagið mun ætla
að fara eins að og halda fundi í
sínum flokksfélögum um allt
land. — S.DÓR
Hagnaðist
sjalfur á
kvótasölu
Magnús Reynir
Guðmundsson
á Isafirði, sem í
vikunni vakti
máls á óréttlæti
þess að tvær
fjölskyldur
skiptu með sér
eins milljarðs
kvótagróða,
hefur sjálfur
hagnast á sölu á
sjávarútvegsfyrirtækis. Hann
mun hafa hagnast verulega á því
að selja hlut í útgerðarfyrirtæk-
inu Togaraútgerð ísafjarðar, eða
um á bilinu 30 til 40 milljónir
króna samkvæmt heimildum
blaðsins. Magnús var fram-
kvæmdastjóri Togaraútgerðar-
innar um tíma, en hagnaðist
hann á sölunni? „Það er rétt, en
varla í þessu mæli. Ég fór í
bankann og sló lán til þess að
geta keypt hlutabréf fyrir nokkra
upphæð. Síðan þegar félagið var
sameinað Básafelli seldi ég þau
og ég hagnaðist dálítið á því.
Það var eins og góður happ-
drættisvinningur."
- Var þetta tugmilljóna króna
hagnaður?
„Það liggur fyrir að ég keypti
mér fbúð í Reykjavík." — GG
Vélaskemman
hlífði bæniun
Aurskriður valda
skemmdiun á vegum
og öðrum manuvirkj-
um og vélaskemma
hlífði íbúðarhúsinu á
Tóarstöðum við aur-
flóði.
Mikið vatnsveður geisaði á Aust-
fjörðum í fyrrinótt og gærmorg-
un. Nokkrar aurskriður féllu og
ollu skemmdum á vegum og
mannvirkjum. Skriða féll á vélar-
skemmu fyrir ofan bæinn Tóar-
staði í Breiðdal. Hörður Gilsberg
býr þar ásamt Stefaníu Hávarðs-
dóttur, eiginkonu sinni. Hann
sagði að erfitt væri að gera sér
grein fyrir skemmdum því allt
væri á kafi í leir og drullu. „Véla-
skemman stóð upp af bænum og
hlífði honum við flóðinu. Hún
klauf flóðið, stærsti hlutinn af
því fór framhjá bænum en hluti
af því lenti á fjósinu, og
skemmdist það talsvert. Ymsar
vélar og tæki skemmdust í flóð-
inu og heyvagn sem þarna var,“
segir Hörður. Hann sagðist ekki
gera sér neina grein fyrir því
hvað flóðið væri mikið en það
gæti verið að um 1000 rúmmetr-
ar af efni hafi farið af stað úr
fjallinu fyrir ofan bæinn. Flóðið
hafi farið yfir ansi fallega lægð
og þar hafi verið fé daginn áður
en það féll, en hann vissi ekki
hvort það hafi lent í flóðinu.
Vegurinn milli Eskifjarðar og
Reyðarfjarðar Iokaðist af völdum
skriðufalla. Á hann féllu einar
sex aurskriður f gærmorgun. Var
sú stærsta þeirra um 400 metra
breið. Vegagerðarmenn segja að
það taki nokkra daga að gera við
veginn, en treysta sér ekki til
þess að meta skemmdirnar. Á all-
löngum kafla vantar um 1/3 af
vegbreiddinni og malbikið er illa
sprungið.
Færa þurfti leik KVA og FH í
1. deild karla í knattspyrnu sem
fara átti fram á Eskifjarðarvelli í
gærkvöld vegna þess að völlurinn
þar var algjör „soppa“, eins og
framkvæmdastjóri KVA orðaði
það. Var leikurinn leikinn á
knattspyrnuvellinum á Egils-
stöðum í staðinn. Reglur Knatt-
spyrnusambandsins heimiluðu
ekki frestun á leiknum, því allir
leikir í síðustu umferðinni eiga
að fara fram samtímis. Það kom
jafnvel til tals að flytja leikinn til
Akureyrar.
Urkoman frá miðvikudegi til
föstudags var um 200 millimetr-
ar. Rigningar sem þessar munu
ekki vera óalgengar, hins vegar er
jörðin ekki tilbúin til að taka við
öllu þessu vatni eftir þurrt aust-
firskt sumar. Austfirðingar líktu
rigningunum helst við syndaflóð.
Veðurstofan býst við austlægum
áttum áfram, þannig að enn gæti
rignt fyrir austan. - pjesta
Skoða samkeppnisstöðu
Sjávarútvegsráðherra, Árni M.
Mathiesen, sagði á aðalfundi
Samtaka fiskvinnslustöðva, að
landvinnsla hefði á síðasta ári
aukist meira en sjóvinnsla í fyrsta
skipti frá því að sjófrysting hófst.
Landfiy'star botnfiskafurðir jukust
í magni um 9%, saltaðar am 2%
en sjófrystar afurðir aðeins um
brot úr prósenti.
Sjávarútvegsráðherra skýrði frá
því að skipa eigi nefnd undir for-
sæti Einars Guðfinnssonar, al-
þingismanns og formanns sjávar-
útvegsnefndar Alþingis, til að
skoða samkeppnisstöðu fisk-^.
Árni M. Mathiesen.
60,1?. '.nrr^cj t1' T6-1'-' ;i,i)6;t0ilku.u.3'ié
vinnslunnar, hverra kosta hún á
völ og hvert hún stefnir. Einnig
hvernig megi ná meiri virðisauka
úr vinnslunni og skoða hvernig
forræði mála skiptist á milli ríkis-
valds, samtaka í sjávarútvegi og
fyrirtækjanna sjálfra. Einnig verð-
ur skipuð nefnd undir forsæti
Brynjólfs Sandholts, fyrrverandi
yfirdýralæknis, til að kanna með-
ferð sjávarafla og ef þurfa þykir og
koma með tillögur til úrbóta.
Nefndin á jafnframt að skoða
hvemig tryggja megi góða meðferð
hráefnis þegar eftirspum er meiri
en ficamboð, eins og nú. er, ,t-.gg
UtanríMsráðherrar funda
Halldór Ásgríms-
son utanríkisráð-
herra og Igor
Ivanov, utanríkis-
ráðherra Rúss-
lands, skrifuðu í
gær undir viljayfir-
Iýsingu um sam-
starf ríkjanna á
ýmsum sviðum,
einkum í sjávarút-
vegi. Halldór sagði Halldór Ásgrímsson og Igor Ivanov.
í gær að hann von- --------------------------
aðist eftir að sjávar-
útvegssamningur þjóðanna yrði undirritaður í haust.
Síininn GSM bilaði
Truflanir urðu á GSM-kerfi Landssímans eftir hádegi í gær. Vandræð-
in byrjuðu á höfuðborgarsvæðinu en færðust á fleiri landsvæði. Svo
slæmt var ástandið á tímabili að nær útilokað var að ná sambandi.
Viðskiptavinir Landssímans voru beðnir að halda símhringingum í
lágmarki á meðan viðgerð stóð yfir. Ekki urðu truflanir á GSM-kerfi
Tals.
Rændu Strax
Þrír menn rændu matvöruverslun Strax í Kópavoginum upp úr kl.
15:00 í gærdag. Peningum var stolið og var einn viðskiptavinur versl-
unarinnar, eldri maður, laminn svo illa að flytja þurfti hann á slysa-
deild. Ræningjarnir ruddust inn í búðina og hentu starfsfólkinu í
gólfið á meðan þeir tóku peningana úr tveimur sjóðvélum. Þeir
komust einnig í pfeningaskáp sem var í bakherbergi. Talið er að
þjófarnir hafi haft um 100 þúsund krónur upp úr krafsinu. Strax-
verslunin var opnuð í Kópavogi fyrir um mánuði síðan en búðin er á
vegum KEA.
Verkalýðsfélögiii imdirhúa kröfugerð
Formannaráðstefna Verkamannasambands Islands fór fram í Kiwan-
ishúsinu við Engjateig í Reykjavík á fimmtudag. Þar var farið yfir
stöðuna en í næsta mánuði eru verkalýðsfélögin komin inn í viðræðu-
áætlun \ið atvinnurekendur. Samkvæmt nýrri vinnulöggjöf þarf að
leggja fram kröfugerðir um miðjan nóvembermánuð, og var for-
mannafundurinn m.a. nýttur til þess að samræma að einhverju marki
kröfugerðir einstaka verkalýðsfélaga. Formenn félaganna munu hitt-
ast aftur í byrjun októbermánaðar, og er búist við að það verði meiri
\innufundur en fundurinn á fimmtudag.
Verkalýðsfélagið Eining-Iðja í Eyjafirði hefur verið að undirbúa
komandi kjarasamninga síðan í febrúarmánuði á sl. vetri, og þannig
, mun.vera um fleiri verkalýðsfélög. lyjni.íA.bni .n.-.i'n- 't>GG