Dagur - 18.09.1999, Síða 6

Dagur - 18.09.1999, Síða 6
6 - LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 ÞJÓÐMÁL Utgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjóri: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Simar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjald m. vsk.: Lausasöluverð: Grænt númer: Netfang auglýsingadeildar: Símar auglýsingadeildar: Simbréf auglýsingadeildar: Símbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 4G0 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.900 KR. A MÁNUÐI 1S0 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 greta@dagur.is - gunnarg@dagur.is (REYKJAV[K)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRI)460-6191 Gunnar Gunnarsson 460-6192 Gréta Björnsdóttir 460 6161 460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Höfuðborg? í fyrsta lagi Samþykkt borgarstjómar Reykjavíkur um að hefja undirbún- ing að atkvæðagreiðslu meðal borgarbúa um hvort færa eigi Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýrinni vekur eðlilega mikla at- hygli á landsbyggðinni. Menn spyrja hvort ReykjavíkurflugvöII- ur sé sérmál borgarbúa? Hvers vegna kemur málið meira við Rreiðhyltingi eða Gafarvogsbúa en Akureyringi? Sannleikur- inn er sá að trúlega varðar staðsetning flugvallarins lands- byggðarbúa miklu meiru og með beinni hætti en allan megin þorra borgarbúa. í öðru lagi Það er rétt og satt hjá borgarstjóra að það er ástæða til að leita eftir skoðun fólks í mikilvægum og flóknum málum ekki síður en í einföldum málum og smáum. Það hins vegar, kemur þessu máli ekki við. Það sem skiptir máli eru þau skilaboð, sem yfirvöld í höfuðborg landsins eru að senda landsbyggðar- fólki í máli, sem vitað er að hefur mikla þýðingu fyrir það. Þau skilaboð eru skýr: höfuðborgin er eingöngu fyrir þá sem þar búa. Sérkennileg höfuðborg það! Enda segir það kannski meira en annað um hve langt er gegnið, þegar borgaryfirvöld hafa í einum vetfangi gert hinn mjög svo umdeilda formann samgöngunefndar, Arna Johnsen, að óumdeildri hetju vítt og breitt um landið. t þriðja lagi Það liggur fyrir að næstu 16 árin verður þessi flugvöllur í Reykjavík og hann mun eflaust verða áfram þrætuepli meðal borgarbúa líkt og hann hefur alla tíð verið. Það er engin ástæða til að gera lítið úr þeim vandamálum og göllum sem fylgja flugvelli í hjarta borgainnar sem þar að auki stendur á eftirsóknarverðu landi. Það er hins vegar sameiginlegt úr- lausnarefni landsmanna allra að finna lausn á því máli, en ekki eitthvert pólitískt einleiksatriði hjá borgarstjórn Reykja- víkur. Birgir Guötnundsson. Meiðyrði til styrktar bágstöddum Garri er mikill stuðningsmað- ur bágstaddra eins og flestir fslendingar. Hann hefur því í gegnum tíðina styrkt þá sem eiga um sárt að binda ellegar eru í nokkrum vanda af ýms- um ástæðum, með því að kaupa merki, kort og happ- drættismiða. Garri hefur Iíka greitt styrktarlínur af margvíslegum toga, borgað gíróseðla, tekið þátt í lands- söfnunum útvarps- og sjónvarpsstöðv- anna og sitt hvað fleira. Þær eru sem sé margar stuðnings- leiðirnar sem þeir af- lögufæru geta valið til að styðja við bakið á bágstöddum og þurfandi og er vel. Kjartan Gunnarsson. Meiðyrðaleiðin Og nú er nýbúið að finna upp enn eina aðferð til styrktar bágstöddum, sem sé meið- yrðaleiðina. Þetta hófst með því að mannvinurinn Sigurður G. Guðjónsson skrifaði mik- inn langhund í Dag þar sem hann sproksetti málsmetandi menn á borð við Björn menntamálaráðherra og Kjart- an Gunnarsson og Iíkaði báð- um stórilla. Björn fékk útrás fyrir ólund sína á sinni róm- uðu heimasíðu þar sem hann lætur gjarnan gleðigamminn geysa af dæmafárri hnyttni, húmor og stílsnilld. Kjartan aftur á móti, sem ekki er eins vel heimasíðuvæddur og Bjöm, ákvað snimmendis að kæra Sigurð G. fyrir meiðyrði, krafðist bóta að upphæð 600 þúsund krónur og lét þess jafnframt getið að tilvonandi sektarfé myndi renna til V____________ fíkniefnavarna. Sigurður brást við þessu út- spili af enn meiri höfðings- skap. Kvaðst myndu, ef dómur félli honum í óhag, vera tilbú- inn til að reiða fram milljón, umrædd 600 þúsund til fíkni- efnavarna og að auki 400 þús- und til Barnaspítala Hringsins eða einhverrar ámóta Iíknarstofnunar. Meiðyrðamolar Þarna er að sjálf- sögðu vegurinn varð- aður fyrir það sem koma skal í fjárfram- lögum til bágstaddra. Nú er hægt að leggja niður hið hvimleiða símabetl og merkja- sölu og taka upp miklu skemmtilegri aðferð við að safna fé handa þurfandi. Nú geta þeir sem eru aflögufærir, ekki síst mold- ríkir mannvinir á borð við Sig- urð G. og Kjartan G., sem \ilja styðja bágstadda, farið að skrifa ógurlegar skammar- greinar í blöðin um nafntog- aða einstaklinga sem einnig eru aflögufærir. Mannvinirnir sem verða fyrir þessum árás- um geta svo kært vegna meið- yrða og milljónirnar sem þann- ig verða til fyrir dómstólunum renna svo beina leið til líknar- mála. Og allir munu una glaðir við sitt. Mannvinirnir báðum megin meiðyrðaborðsins, sem ýmist fá útrás fyrir illar artir eða endurheimta mannaorð sitt og ekki síður bágstaddir smælingjar sem innan tíðar munu vaða í meiðyrðamolum sem hrjóta af borðum argra auðmanna. — GARRI ODDUR ÓLAFSSON skrifar Þingmadur sýnir klæmar Þirigmenn dreifbýlisins Iíta á það sem sitt höfuðhlutverk að efla byggð í sínu kjördæmi. Þeir bítast um framlögin og troða skóinn hver af öðrum eftir bestu getu. En þeim er sameiginlegt að hafa megnustu andúð á höfuðborginni og Reyk- víkingum, að minnsta kosti telja þeir slíka framkomu vænlega til kjörfylgis í héraði. Arangur þeirra er sá, að sífellt hallast á hin fá- mennari kjördæmi og kjósendur þeirra renna eina slóð í þéttbýlið fyrir sunnan. Ami Johnsen þingmaður Vest- mannaeyja og einn helsti skemmti- kraftur landsins, sem leikur á gítar með frægri amarkló og trallar lysti- lega undir, sýnir nú höfuðborginni sínar eigin klær og hefur uppi heit- ingar og hótanir í garð R-Iistans og Reykvíkinga, sem vilja hafa ofurlít- inn ákvörðunarrétt um skipulag síns nánasta umhverfis. I stuttu máli hótar sá klóhvassi að leggja höfuðborgina niður og flytja hana austur fyrir fjall ef hróflað verður við Miðbæjarflug- vellinum. Fúkyrði þingmannsins eru ekki eftir hafandi af orðvörum pistilhöfundi. Slátrarar Þingmaðurinn segir það siátrun á innanlandsflugi og Iandsbyggðinni yfir- Ieitt ef Reykjavíkur- flugvöllur verður Iagður niður. En slátrarar landsbyggð- arinnar em ekki alltaf rökvísir enda eru þeir öðrum duglegri að smala íbúa þessa lands til Innnesja með ótrúlega billeg- um málflutningi. Ibúum Vestmannaeyja fækkar jafnt og þétt, eins og öðrum lands- byggðarmönnum. Samt hafa þeir greiðari aðgang að Miðbæ Reykja- víkur en allir aðrir íbúar Suður- Iandskjördæmis. Fjölgun í kjör- dæmi Ama er í Hveragerði, á Sel- Með allar klær úti. fossi og Hvolsvelli. Enginn þessara staða hefur flugsamgöngur við Miðbæinn. íbúar Vestur-Skafta- fellssýslu þurfa að aka ldukku- stundum saman til að komast í Kringluna og Bónusbúðir. Fjöldi íbúa Árborgar og Hveragerðis ekur daglega til vinnu á Innnesjum. Flestir mun Iengri og tor- sóttari leið en milli Reykjavíkur og Kefla- víkur. Því má skjóta inn að Iíklega má telja þá í þúsundum, sem daglega aka milli heimilis og vinnu- staðar á Utnesjum og Innnesjum og telja ekki eftir sér. Allt Vesturlandið er án flugsamgangna og sýnist það ekki há byggð þar sérstaldega. Smiilun Formaður samgöngunefndar og fyrsti þingmaður Vestmannaeyja ætti að íhuga hvað veldur fólks- fækkun í heimabyggð hans (eða býr hann kannski í Breiðholtinu?) áður en hann fer að styrkja byggð- ina með illa grunduðum orða- flaumi, sem hann heldur að eigi hljómgrunn meðal þeirra kjósenda sem enn tolla í nábýli við Keikó hinn japanska. Vissulega má deila um staðsetn- ingu Miðhæjarflugvallarins og um hlutverk Reykjavíkur sem höfuð- borgar. En að dreifbýlisþingmenn og steypustövðarstjórar einir eigi að hafa skoðun á því máli er frá- leitt. En sameinaðar eyðsluklær kjördæmapotara og verktaka eru öflugri en svo, að borgarbúar kom- ist upp með moðreyk, þegar ímyndaðar þarfir hinna dreifðu byggða eru húfi. Þau rök eru talin gild að flug- völlurinn styrki Reykjavík og veiti mikla atvinnu. En borgin er alltof öflug og þarf síst af öllu á meiri að- flutningi fólks að halda. En smala- mennskan suður heldur áfram. svaraö Erþað sýndarmetmska aðundirbúa atkvæða- greiðslu um Reykjavík- urflugvöll núna, líkt og borgarstjóm ákvað sL fimmtudag? Valgerður Sverrisdóttir þ itigmaáurNotúurlands eystra. „Eg tel þetta ekki spurningu um hvað Reykvíking- um finnst um málið. Mér finnst skipta meira máli hvaða skoðun þeir hafa sem nota flug- völlinn mest og það eru fyrst og fremst landsbyggðarmenn. Því geri ég ekki mikið með þessa samþykkt borgarstjórnar. Ef at- kvæðagreiðsla ætti að fara fram þá ætti hún að ná til þeirra sem nota völlinn. Þetta væri eins og að láta eingöngu Austfirðinga ákvarða um virkjanamál í Fljóts- dal.“ Helgi Hjorvar forseti borgarstjómar. „Ótti sjálfstæðis- manna við lýð- ræði og andstaða við að almanna- viljinn ráði af- hjúpar einu sýndarmennsk- una í þessu máli. Liggi vilji Reyk- víkinga til staðsetningar flugvall- arins fyrir á næsta ári hafa yfir- völd alla möguleika á að fara að þeim vilja. Það er löngu tíma- bært að fólk fái í ríkara mæli að úrskurða um mikilvæg mál, án forsjár stjórnvalda." Kristján Pálsson þingmaðurReyknesinga. lf/ „Ég lít svo á að innanlandsflug eigi heima á Keflavíkurflug- velli. Það færi best á því að við rekum allt flug frá einni miðstöð í okkar litla landi. Mér finnst þvi mjög rök- rétt að alvöru umræða komist af stað um að leggja niður Reykja- víkurflugvöll. Suðurnesjamenn geta fyllilega sinnt því verkefni að taka á móti innanlandsflug- • U mu. Ámi Johnsen formaðursamgöngunefndarAlþingis. „Tillagan er van- hugsuð, bæði með tilliti til þess að búið er að ákveða að byggja völlinn upp og eins að skipuleggja hann til 16 ára. Með þessu er R-listinn að setja málið í upplausn og tefja allar eðlilegar ákvarðanir sem menn hafa lengi beðið eftir og Ioksins sé komin niðurstaða í. Þar íyrir utan er þetta hjákátlegt í ljósi þess að Reykjavíkurborg er nýbúin að samþykkja uppbygginguna en hleypir þessu svo í uppnám þeg- ar þrennar kosningar eru framundan til þess tíma þegar skipulagið gildir. Auðvitað er þetta sýndarmennska. Meira en það, þetta er pólitískur aulaskap- 'ÍH b| i ginj i' i J tJ'j

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.