Dagur - 18.09.1999, Qupperneq 6
6 - LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Simar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Netfang auglýsingadeildar:
Símar auglýsingadeildar:
Simbréf auglýsingadeildar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
4G0 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.900 KR. A MÁNUÐI
1S0 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
greta@dagur.is - gunnarg@dagur.is
(REYKJAV[K)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 Gunnar Gunnarsson
460-6192 Gréta Björnsdóttir
460 6161
460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Höfuðborg?
í fyrsta lagi
Samþykkt borgarstjómar Reykjavíkur um að hefja undirbún-
ing að atkvæðagreiðslu meðal borgarbúa um hvort færa eigi
Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýrinni vekur eðlilega mikla at-
hygli á landsbyggðinni. Menn spyrja hvort ReykjavíkurflugvöII-
ur sé sérmál borgarbúa? Hvers vegna kemur málið meira við
Rreiðhyltingi eða Gafarvogsbúa en Akureyringi? Sannleikur-
inn er sá að trúlega varðar staðsetning flugvallarins lands-
byggðarbúa miklu meiru og með beinni hætti en allan megin
þorra borgarbúa.
í öðru lagi
Það er rétt og satt hjá borgarstjóra að það er ástæða til að leita
eftir skoðun fólks í mikilvægum og flóknum málum ekki síður
en í einföldum málum og smáum. Það hins vegar, kemur
þessu máli ekki við. Það sem skiptir máli eru þau skilaboð,
sem yfirvöld í höfuðborg landsins eru að senda landsbyggðar-
fólki í máli, sem vitað er að hefur mikla þýðingu fyrir það. Þau
skilaboð eru skýr: höfuðborgin er eingöngu fyrir þá sem þar
búa. Sérkennileg höfuðborg það! Enda segir það kannski
meira en annað um hve langt er gegnið, þegar borgaryfirvöld
hafa í einum vetfangi gert hinn mjög svo umdeilda formann
samgöngunefndar, Arna Johnsen, að óumdeildri hetju vítt og
breitt um landið.
t þriðja lagi
Það liggur fyrir að næstu 16 árin verður þessi flugvöllur í
Reykjavík og hann mun eflaust verða áfram þrætuepli meðal
borgarbúa líkt og hann hefur alla tíð verið. Það er engin
ástæða til að gera lítið úr þeim vandamálum og göllum sem
fylgja flugvelli í hjarta borgainnar sem þar að auki stendur á
eftirsóknarverðu landi. Það er hins vegar sameiginlegt úr-
lausnarefni landsmanna allra að finna lausn á því máli, en
ekki eitthvert pólitískt einleiksatriði hjá borgarstjórn Reykja-
víkur. Birgir Guötnundsson.
Meiðyrði til styrktar
bágstöddum
Garri er mikill stuðningsmað-
ur bágstaddra eins og flestir
fslendingar. Hann hefur því í
gegnum tíðina styrkt þá sem
eiga um sárt að binda ellegar
eru í nokkrum vanda af ýms-
um ástæðum, með því að
kaupa merki, kort og happ-
drættismiða. Garri hefur Iíka
greitt styrktarlínur af
margvíslegum toga,
borgað gíróseðla,
tekið þátt í lands-
söfnunum útvarps-
og sjónvarpsstöðv-
anna og sitt hvað
fleira. Þær eru sem
sé margar stuðnings-
leiðirnar sem þeir af-
lögufæru geta valið
til að styðja við bakið
á bágstöddum og
þurfandi og er vel.
Kjartan Gunnarsson.
Meiðyrðaleiðin
Og nú er nýbúið að finna upp
enn eina aðferð til styrktar
bágstöddum, sem sé meið-
yrðaleiðina. Þetta hófst með
því að mannvinurinn Sigurður
G. Guðjónsson skrifaði mik-
inn langhund í Dag þar sem
hann sproksetti málsmetandi
menn á borð við Björn
menntamálaráðherra og Kjart-
an Gunnarsson og Iíkaði báð-
um stórilla. Björn fékk útrás
fyrir ólund sína á sinni róm-
uðu heimasíðu þar sem hann
lætur gjarnan gleðigamminn
geysa af dæmafárri hnyttni,
húmor og stílsnilld. Kjartan
aftur á móti, sem ekki er eins
vel heimasíðuvæddur og
Bjöm, ákvað snimmendis að
kæra Sigurð G. fyrir meiðyrði,
krafðist bóta að upphæð 600
þúsund krónur og lét þess
jafnframt getið að tilvonandi
sektarfé myndi renna til
V____________
fíkniefnavarna.
Sigurður brást við þessu út-
spili af enn meiri höfðings-
skap. Kvaðst myndu, ef dómur
félli honum í óhag, vera tilbú-
inn til að reiða fram milljón,
umrædd 600 þúsund til fíkni-
efnavarna og að auki 400 þús-
und til Barnaspítala Hringsins
eða einhverrar ámóta
Iíknarstofnunar.
Meiðyrðamolar
Þarna er að sjálf-
sögðu vegurinn varð-
aður fyrir það sem
koma skal í fjárfram-
lögum til bágstaddra.
Nú er hægt að leggja
niður hið hvimleiða
símabetl og merkja-
sölu og taka upp
miklu skemmtilegri
aðferð við að safna fé handa
þurfandi. Nú geta þeir sem
eru aflögufærir, ekki síst mold-
ríkir mannvinir á borð við Sig-
urð G. og Kjartan G., sem \ilja
styðja bágstadda, farið að
skrifa ógurlegar skammar-
greinar í blöðin um nafntog-
aða einstaklinga sem einnig
eru aflögufærir. Mannvinirnir
sem verða fyrir þessum árás-
um geta svo kært vegna meið-
yrða og milljónirnar sem þann-
ig verða til fyrir dómstólunum
renna svo beina leið til líknar-
mála.
Og allir munu una glaðir við
sitt. Mannvinirnir báðum
megin meiðyrðaborðsins, sem
ýmist fá útrás fyrir illar artir
eða endurheimta mannaorð
sitt og ekki síður bágstaddir
smælingjar sem innan tíðar
munu vaða í meiðyrðamolum
sem hrjóta af borðum argra
auðmanna. — GARRI
ODDUR
ÓLAFSSON
skrifar
Þingmadur sýnir klæmar
Þirigmenn dreifbýlisins Iíta á það
sem sitt höfuðhlutverk að efla
byggð í sínu kjördæmi. Þeir bítast
um framlögin og troða skóinn hver
af öðrum eftir bestu getu. En þeim
er sameiginlegt að hafa megnustu
andúð á höfuðborginni og Reyk-
víkingum, að minnsta kosti telja
þeir slíka framkomu vænlega til
kjörfylgis í héraði. Arangur þeirra
er sá, að sífellt hallast á hin fá-
mennari kjördæmi og kjósendur
þeirra renna eina slóð í þéttbýlið
fyrir sunnan.
Ami Johnsen þingmaður Vest-
mannaeyja og einn helsti skemmti-
kraftur landsins, sem leikur á gítar
með frægri amarkló og trallar lysti-
lega undir, sýnir nú höfuðborginni
sínar eigin klær og hefur uppi heit-
ingar og hótanir í garð R-Iistans og
Reykvíkinga, sem vilja hafa ofurlít-
inn ákvörðunarrétt um skipulag
síns nánasta umhverfis.
I stuttu máli hótar sá klóhvassi
að leggja höfuðborgina niður og
flytja hana austur fyrir fjall ef
hróflað verður við Miðbæjarflug-
vellinum. Fúkyrði þingmannsins
eru ekki eftir hafandi af orðvörum
pistilhöfundi.
Slátrarar
Þingmaðurinn segir það siátrun á
innanlandsflugi og
Iandsbyggðinni yfir-
Ieitt ef Reykjavíkur-
flugvöllur verður
Iagður niður. En
slátrarar landsbyggð-
arinnar em ekki alltaf
rökvísir enda eru þeir
öðrum duglegri að
smala íbúa þessa
lands til Innnesja
með ótrúlega billeg-
um málflutningi.
Ibúum Vestmannaeyja fækkar
jafnt og þétt, eins og öðrum lands-
byggðarmönnum. Samt hafa þeir
greiðari aðgang að Miðbæ Reykja-
víkur en allir aðrir íbúar Suður-
Iandskjördæmis. Fjölgun í kjör-
dæmi Ama er í Hveragerði, á Sel-
Með allar klær úti.
fossi og Hvolsvelli. Enginn þessara
staða hefur flugsamgöngur við
Miðbæinn. íbúar Vestur-Skafta-
fellssýslu þurfa að aka ldukku-
stundum saman til að komast í
Kringluna og Bónusbúðir. Fjöldi
íbúa Árborgar og Hveragerðis ekur
daglega til vinnu á
Innnesjum. Flestir
mun Iengri og tor-
sóttari leið en milli
Reykjavíkur og Kefla-
víkur.
Því má skjóta inn
að Iíklega má telja þá
í þúsundum, sem
daglega aka milli
heimilis og vinnu-
staðar á Utnesjum og
Innnesjum og telja
ekki eftir sér. Allt Vesturlandið er
án flugsamgangna og sýnist það
ekki há byggð þar sérstaldega.
Smiilun
Formaður samgöngunefndar og
fyrsti þingmaður Vestmannaeyja
ætti að íhuga hvað veldur fólks-
fækkun í heimabyggð hans (eða
býr hann kannski í Breiðholtinu?)
áður en hann fer að styrkja byggð-
ina með illa grunduðum orða-
flaumi, sem hann heldur að eigi
hljómgrunn meðal þeirra kjósenda
sem enn tolla í nábýli við Keikó
hinn japanska.
Vissulega má deila um staðsetn-
ingu Miðhæjarflugvallarins og um
hlutverk Reykjavíkur sem höfuð-
borgar. En að dreifbýlisþingmenn
og steypustövðarstjórar einir eigi
að hafa skoðun á því máli er frá-
leitt. En sameinaðar eyðsluklær
kjördæmapotara og verktaka eru
öflugri en svo, að borgarbúar kom-
ist upp með moðreyk, þegar
ímyndaðar þarfir hinna dreifðu
byggða eru húfi.
Þau rök eru talin gild að flug-
völlurinn styrki Reykjavík og veiti
mikla atvinnu. En borgin er alltof
öflug og þarf síst af öllu á meiri að-
flutningi fólks að halda. En smala-
mennskan suður heldur áfram.
svaraö
Erþað sýndarmetmska
aðundirbúa atkvæða-
greiðslu um Reykjavík-
urflugvöll núna, líkt og
borgarstjóm ákvað sL
fimmtudag?
Valgerður Sverrisdóttir
þ itigmaáurNotúurlands eystra.
„Eg tel þetta ekki
spurningu um
hvað Reykvíking-
um finnst um
málið. Mér
finnst skipta
meira máli hvaða
skoðun þeir hafa sem nota flug-
völlinn mest og það eru fyrst og
fremst landsbyggðarmenn. Því
geri ég ekki mikið með þessa
samþykkt borgarstjórnar. Ef at-
kvæðagreiðsla ætti að fara fram
þá ætti hún að ná til þeirra sem
nota völlinn. Þetta væri eins og
að láta eingöngu Austfirðinga
ákvarða um virkjanamál í Fljóts-
dal.“
Helgi Hjorvar
forseti borgarstjómar.
„Ótti sjálfstæðis-
manna við lýð-
ræði og andstaða
við að almanna-
viljinn ráði af-
hjúpar einu
sýndarmennsk-
una í þessu máli. Liggi vilji Reyk-
víkinga til staðsetningar flugvall-
arins fyrir á næsta ári hafa yfir-
völd alla möguleika á að fara að
þeim vilja. Það er löngu tíma-
bært að fólk fái í ríkara mæli að
úrskurða um mikilvæg mál, án
forsjár stjórnvalda."
Kristján Pálsson
þingmaðurReyknesinga.
lf/ „Ég lít svo á að
innanlandsflug
eigi heima á
Keflavíkurflug-
velli. Það færi
best á því að við
rekum allt flug
frá einni miðstöð í okkar litla
landi. Mér finnst þvi mjög rök-
rétt að alvöru umræða komist af
stað um að leggja niður Reykja-
víkurflugvöll. Suðurnesjamenn
geta fyllilega sinnt því verkefni
að taka á móti innanlandsflug-
• U
mu.
Ámi Johnsen
formaðursamgöngunefndarAlþingis.
„Tillagan er van-
hugsuð, bæði
með tilliti til
þess að búið er
að ákveða að
byggja völlinn
upp og eins að
skipuleggja hann til 16 ára. Með
þessu er R-listinn að setja málið
í upplausn og tefja allar eðlilegar
ákvarðanir sem menn hafa lengi
beðið eftir og Ioksins sé komin
niðurstaða í. Þar íyrir utan er
þetta hjákátlegt í ljósi þess að
Reykjavíkurborg er nýbúin að
samþykkja uppbygginguna en
hleypir þessu svo í uppnám þeg-
ar þrennar kosningar eru
framundan til þess tíma þegar
skipulagið gildir. Auðvitað er
þetta sýndarmennska. Meira en
það, þetta er pólitískur aulaskap-
'ÍH b|
i ginj
i' i J
tJ'j