Dagur - 18.09.1999, Side 7

Dagur - 18.09.1999, Side 7
Krafan um að íslenska ríkiö ætti meirihluta í nýrri stóriðju var hávær á vinstri kanti stjórnmálanna hér áður fyrr, en náði ekki fram í Straumsvík þar sem álverið er aifarið í eigu erlends fyrirtækis. Annað er uppi á teningnum í viðræðunum við Norsk Hydro. - mynd: gva Yffrráð og áhætta ELIAS SNÆLAND JÓNSSON SKRIFAR Engan þarf að undra þótt skiptar skoðanir séu um fyrirhugað álver í Reyðarfirði og virkjanir þeim tengdar. Ný stóriðjuver hafa alltaf verið pólitískt hitamál á Is- landi. Aherslurnar í þeirri um- ræðu hafa hins vegar breyst nokkuð frá því tekist var á um byggingu álvers í Straumsvík á miðjum sjötta áratugnum. Sum þau stjórnmálaöfl sem lögðust ákveðið gegn þeim framkvæmd- um á sínum tíma eru nú ákaft fylgjandi stóriðju. Efnahagslegt og pólitískt umhverfi hefur breyst verulega og haft áhrif á af- stöðu stjórnmálamanna. Nú, þegar harkalega er tekist á um fyrirhugaðar stórfram- kvæmdir fyrir austan, er forvitni- Iegt að líta aðeins til baka og átta sig á því um hvað átökin hafa einkum snúist. Ruksemdir á móti Þeir sem settu sig mest á móti samningunum um álverið í Straumsvík á sfnum tíma, en það voru einkum Framsóknarflokk- urinn og Alþýðubandalagið, ótt- uðust áhrif erlendra auðhringa í íslensku atvinnuh'fi. Þeir settu ýmislegt fyrir sig. I fyrsta lagi að álverið væri alfarið í eigu og und- ir stjórn útlendinga sem gætu hagað rekstrinum að eigin vild. í öðru lagi deildu þeir hart á orku- verðið til álversins, en mörgúm þótti það alltof lágt (þetta var áður en stjórnmálamenn settu lög á Alþingi um að þjóðin mætti alls ekki fá að vita á hvað hún selur stóriðjufyrirtækjum orkuna sína). I þriðja Iagi var deilt um áhrif álverksmiðjunnar á um- hverfið - það er um mengunina. Sumar þessara röksemda hafa gengið aftur í umræðum um þau stóriðjuáform sem upp hafa komið síðustu áratugina, svo sem járnblendið í Hvalfirði, harmkvælasöguna miklu um fyr- irhugaða málmblendiverksmiðju á Reyðarfirði og svo stórbrotnar fyrirætlanir Atlantsálshópsins sem allar runnu út í sandinn. Telja má víst að nú verði enn á ný deilt um orkuverðið þótt það sé leyndarmál - enda liggur íyrir að forsenda þess að Norsk Hydro komi yfirleitt hingað til lands er afar Iágt orkuverð. Fyrir því höf- um við orð Norðmannanna sjálfra. Flestum ber saman um að mun betur hafi tekist að hemja mengun frá álverinu í Straumsvík en útlit var fyrir í upphafi. Þar hafa ekki orðið þau miklu umhverfisspjöll sem sumir óttuðust fyrirfram, en hræðsla við slíkt setti einnig mikinn svip á umræður um hugsanlegt álver við Eyjafjörð og á Keilisnesi fyrir nolduum árum. Enda er áber- andi að þessi þáttur - mengunin frá sjálfu álverinu - er tiltölulega lítið inni í umræðunni um álver á Austurlandi, nema almennt séð í tengslum við deilur um svo- nefnda Kyoto-bókun. Flestir virðast gera ráð fyrir að sú tækni sem fyrir hendi er dugi til að halda mengun nokkurn veginn í skeQum. Þess í stað hafa áhyggj- ur umhverfisverndarsinna, sem kunnugt er, beinst að áhrifum nýrra stórvirkjana á landið norð- an Vatnajökuls. íslenskt fjármagn? Sú krafa að íslenska ríkið ætti meirihluta í nýrri stóðiðju var hávær á vinstri kanti stjórnmál- anna hér áður fyrr, en náði ekki fram í Straumsvík. Það fyrir- komulag varð hins vegar ofaná þegar gengið var til samninga um Járnblendiverksmiðuna í Hvalfirði. Sá rekstur var hins vegar óhagkvæmur um langt ára- bil. Þá þurfti ríkið að leggja fram verulega fjármuni tif að halda verksmiðjunni gangandi. Þótt síðar hafi birt til í þeim efnum, má fullyrða að þessi reynsla hafi sannfært marga um að það væri alltof áhættusamt fyrir Islend- inga að eiga sjálfir hlut í stóriðju- fyrirtækjum sem hingað kæmu. Best væri að erlendu fyrirtækin ættu sjálf og rækju slíkar verk- smiðjur. í þeim viðræðum sem staðið hafa yfir við Norsk Hydro í tvö ár eða svo, er hins vegar gert ráð fyrir að víkja aftur frá Straums- víkurstefnunni. Að vísu ætlar rík- ið ekki að koma inn í álverið á Austurlandi sem hluthafi, heldur eiga það að vera svokallaðir fjár- festar. Þótt ekki sé enn ljóst ná- kvæmlega við hverja er átt, þá koma lífeyrissjóðir landsmanna fyrst í hugann - einfaldlega vegna þess að þeir eiga mikla peninga og þurfa að ávaxta þá með öruggum og arðbærum hætti. Lífeyrissjóðirnir eru í eigu nú- verandi og væntanlegra lífeyris- þega, ekki þeirra sem sitja í stjórnum sjóðanna. Ef þessu fé er ráðstafað í rekstur sem mis- tekst þá er afkoma einstakling- anna í húfi. Fjárfesting sjóðanna verður því að vera í senn örugg og arðbær. Stjórnendur lífeyris- sjóða hafa einfaldlega ekkert leyfi til að nota þá peninga launafólks, sem þeim er falið að ávaxta, til að kaupa hlutabréf í fyrirtækjum sem ekki eru örugg- lega ábatasöm fyrir hluthafana. Hér skal ekki dæmt um hvort ný álbræðsla á Islandi verði ör- ugg og/eða arðbær fjárfesting. En í því sambandi er óneitanlega forvitnilegt að velta fyrir sér breyttri afstöðu Norsk Hydro til eignar í nýja fyrirtækinu. Miiina og iniiina Það vekur nefnilega sérstaka at- hygli að fyrirhugaður eignarhlut- ur Norsk Hydro í ráðgerðum framkvæmdum á Austurlandi er sífellt að verða minni og minni. Lítum aðeins til baka. Þegar viðræður fóru fyrst í gang fyrir alvöru við samninga- menn norska fyrirtækisins - fyrir rúmum tveimur árum - voru uppi áætlanir um stórfellda þátt- töku Norsk Hydro, ekki aðeins í álverinu heldur einnig í virkjun- um norðan Vatnajökuls. Þessi „viðskiptahugmynd" eins og hún var kölluð gerði ráð fyrir að stofnuð yrðu tvö fyrirtæki - annað um álverið og hitt um orkuverið - og að Norsk Hydro ætti verulegan hluta í báðum þessum fyrirtækjum. Landsvirkj- un fór í könnunarviðræður við Norðmennina á þessum nótum og urðu um það snarpar pólitísk- ar deilur hér á landi sumarið 1997, eins og þeir muna sem hafa skammtímaminnið í lagi. Ari síðar, sumarið 1998, var hins vegar komið í ljós að Norsk Hydro ætlaði sér einungis að eiga minnihluta í álverinu. I júní það ár efndu stjórnvöld til kynn- ingarfundar með fulltrúum líf- eyrissjóða, verðbréfafyrirtækja, skiptafélaga og tryggingarfélaga og kynntu þar stöðu viðræðn- anna við Norsk Hydro. Dagur skýrði frá þessum niðurstöðum í forsíðufrétt fyrir nær fimmtán mánuðum. Þar kom fram að Norsk Hydro ætlaði aðeins að leggja fram 40% af eigin fé nýja fyrirtækisins ef farið yrði í 118 þúsund tonna verksmiðju, en 35% ef álverið yrði stærra. Gert var ráð fyrir að „íslenskir Ijárfest- ar“ legðu fram mest af því sem á vantaði. Þá var enn reiknað með því að stofnað yrði nýtt orkufyrir- tæki til að virkja fyrir austan. í þeim áætlunum sem nú hafa verið kynntar er hlutur Norsk Hydro orðinn enn minni. Þeir ætla einungis að eiga um fjórð- ung í nýja álverinu fyrir austan. Þar til viðbótar kemur fram í yf- irlýsingu sem undirrituð var af fulltrúum íslenskra stjórnvalda og Norsk Hydro að norska fyrir- tækið ætlar ekki einu sinni að leggja allan þennan minnihluta fram í peningum - heldur verður um að ræða framlag „í öðru formi en beinum greiðslum." Jafnframt var skýrt tekið fram opinberlega að hugmyndir um að Norsk Hydro ætti hlut í virkj- unum væru ekki lengur á borð- inu, heldur myndi Landsvirkjun ein sjá um þá hlið málsins. Þetta er vissulega athyglisverð þróun. Ekki fer á milli mála að Norsk Hydro er með þessu að draga verulega úr eigin áhættu við þessa miklu fjárfestingu. Hvers vegna? Undir stjóm Norsk Hydro Alþjóðleg stórfyrirtæki reyna að sjálfsögðu að ná hámarks árangri með lágmarks fjármögnun. Þetta á líka við um Norsk Hydro. Frá þeirra sjónarmiði er auðvitað ekkert eðlilegra en að reyna að ná sem mestum ítökum með sem minnstum tilkostnaði. Fyrrnefnd yfirlýsing frá því í sumar bendir rejmdar eindregið til að Norsk Hydro hafi enga þörf á að eiga meirihluta i verksmiðj- unni til þess að hafa öll ráð hennar í hendi sér. Þannig mun fyrirtækið sjá um stjórn álvers- ins, selja því hráefni og tækni- þekkingu og annast markaðsmál hins nýja fyrirtækis, þar á meðal sölu afurðanna. Þetta verður allt í reynd á þeirra hendi. Þegar svona er í pottinn búið þá er vel skiljanlegt að Norsk Hydro vilji setja sem minnst af eigin peningum í nýja álverið. Enda þykir stórlöxum í alþjóð- legum viðskiptum gjarnan best að hætta peningum annarra, sé þess nokkur kostur.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.