Dagur - 18.09.1999, Síða 11

Dagur - 18.09.1999, Síða 11
1 ERLENDAR FRÉTTIR ! 1 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBKR 1 9 99 - 11 j Taílenskir hermenn búa sig undir friðargæslustarf á Austur-Tímor þar sem þeir verða ásamt a.m.k. 7000 öðrum hermönnum frá fjölmörgum löndum. Friður í nánd á Austur Tímor? Indónesíuher heitir fullri samvinnii við friðargæslusveitimar og að hafa sig á hrott frá Austur-Tímor á innan við viku. Óneitanlega voru það tímamót þegar Indónesíuher hóf í gær brottflutning sinn frá Austur- Tímor, þar sem hann hefur ráðið ríkjum í aldarfjórðung og ekki alltaf verið vandur að meðulum þann tíma. Alls verða um 9.000 hermenn fluttir á brott, en á eyj- arhelmingnum verða þó áfram um 11.000 lögreglumenn frá Indónesíu. Kiki Syahnakri, yfirmaður indó- nesíska herliðsins á Austur- Tímor, sagði að herinn yrði flutt- ur burt í áföngum og yrði þeim flutningum Iokið á viku. Yfírmenn hersins hafa einnig heitið því að sýna alþjóðlegu friðargæslusveit- unum fulla samvinnu. Ef það stenst má búast við að koma alþjóðlegu friðargæslusveit- anna til Austur-Tímor gangi átakalitið fyrir sig, en fyrstu sveit- irnar koma væntanlega á sunnu- dag eða mánudag. Alls verða sendir um 7000 hermenn hið minnsta til Austur-Tímor, og verða sveitirnar undir forystu ástralska hersins. Fáum kæmi þó á óvart þótt hópar innan indónesíuhers, sem ekki láta að stjóm og em andvígir því að Austur-Tímor segi skilið við Indónesíu, flæki málin nokkuð með því að grípa til ofbeldis í beinu framhaldi af ódæðisverk- unum undanfarið. Veruleg hætta er á því að til átaka komi af ein- hverju tagi, þrátt fyrir Ioforð um annað. I gær komu fyrstu flugvélarnar með matvæli og lyf til Austur- Tímor, en margir þeirra sem flúið hafa heimili sín undan ofbeldis- hópunum hafa verið allt að tvær vikur án matvæla. Hrísgrjónum og teppum var varpað úr flugvél- um yfir Ermera, sunnan höfuð- borgarinnar Dili, þar sem um 20.000 manns hafast við og er talin veruleg hætta á að hung- ursneyð brjótist út meðal þeirra. Sérstaklega em böm og gamal- menni talin í hættu eftir að hafa verið lengi matarlaus. Talið er að allt að 190.000 manns hafi flúið í óbyggðir á Austur-Tímor eftir að vígasveitir, sem andvígar eru sjálfstæði eyjar- helmingsins, hófu ofbeldisher- ferð sfna á hendur almenningi strax eftir kosningarnar í lok síð- asta mánaðar. Enn eru fáeinir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna eftir í Dili, en bækistöðvum Sameinuðu þjóðanna þar var lokað nú í vik- unni. Þeir segja tvo þriðju hluta borgarinnar vera rústir einar, en vígasveitirnar hafa lagt eld að húsum og beint eða óbeint notið til þess stuðnings indónesískra hermanna. KLA afhendlr vopnin Á simnudagiim reimur út frestur sem Frelsis- her Kosovo hefur til að skila iim vopnum sín- um. Frelsisher Kosovo (KLA) hafði í gær skilað inn meira en 10.000 vopnum, en herinn verður að vera búinn að skila inn öllum vopnum sfnum á morgun, sunnudag, sam- kvæmt samningnum sem gerður var við stjórnvöld í Júgóslavíu í júní síðastliðnum. Liðsmenn KLA hafa afhent vopn sín í sérstakar vopnageymsl- ur, en fram á sunnudag mega þeir bera takmarkað magn af vopnum og klæðast herbúningum á af- mörkuðum svæðum, þar sem vopnin eru geymd. Að þeim fresti Breskur hermaður skoðar vopna- búr Frelsishers Kosovo. Ioknum eiga friðargæslusveitir Nató að taka við stjórn á þessum svæðum og þar með hafa fengið öll yfirráð yfír vopnageymslunum. Stór hluti vopnanna, sem Frels- isher Kosovo hefur notað, kemur úr vopnabúri albanska hersins, en hundruð þúsunda vopna var stolið þaðan árið 1997 þegar nán- ast algjört stjómleysi ríkti í Alban- íu. Á sunnudaginn er meiningin að Frelsisher Kosovo verði formlega lagður niður sem herlið, en þó er gert ráð fyrir að hluti hermanna úr Frelsisher Kosovo verði uppi- staðan í nýjum borgaralegum sveitum, sem nefnast eiga Kosovosveitirnar. Gert er ráð fyrir að þetta verði um 5.000 manna lið sem á að sjá um neyðaraðstoð og mannúðarverk í Kosovo, en muni klæðast herbúningum. Bæði Serbar og Rússar hafa lát- ið í Ijós miklar efasemdir um þessar fyrirhuguðu Kosovosveitir, og telja að þær verði eingöngu lið- ur í því að veikja stöðu og völd Serba í héraðinu. Sveitirnar verði áfram sveitir aðskilnaðarsinna, þótt í nýjum búningi verði. Téténía sett í „sóttkví66 RUSSLAND - Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, sagði í gær eftir að hafa flutt ræðu á fundi sambandsráðsins, efri deildar rússneska þingsins, að Téténía verði sett í „sóttkví" vegna sprengju- tilræðanna í fjölbýlishúsum í Rússlandi á síðustu vikum. Pútín vildi þó ekki útskýra nánar hvað hann meinti með þessu orðalagi. Hins vegar sagði hann ekki standa til að rússneski herinn verði sendur inn í Téténíu, en herinn galt verulegt afhroð í stríði sínu við uppreisnar- menn þar fyrir þremur árum. Tveir menn fórust og þrfr slösuðust þegar sprengja sprakk í stigagangi fjölbýlishúss í Pétursborg í gær- morgun, en það var fimmta sprengjutilræðið á tveimur vikum. Lög- reglan í Moskvu hefur handtekið fjölmarga Téténa vegna málsins. Mesti vinduriim farinn úr Floyd BANDARÍKIN - Mesti vindurinn var farinn úr fellibylnum Floyd í gær, þótt enn blási hann af nokkrum krafti um skeið. Hann tók í gær stefnuna norður til Kanada og síðan á haf út. Hann skildi eftir sig verulega eyðileggingu og mikið vatnsflóð víða á austurströnd Banda- ríkjanna. Barak og Arafat hittust á laun ÍSRAEL - Ehud Barak, forsætis- ráðherra Israels, og Jasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, hittust á laun á heimili Baraks á fimmtu- dagskvöld, að ósk Baraks. Að sögn fjölmiðla í Israel var fundur- inn „afar árangursríkur“, en aðal umræðuefni þeirra voru deilur þeirra um Jerúsalem. Arafat hef- ur krafist þess að austurhluti Jer- úsalemborgar verði höfuðborg Palestínu, en ísraelsmenn vilja ekki fallast á það. A fundinum ít- rekuðu bæði Barak og Arafat þann ásetning sinn að endanlegu samkomulagi um framtíðarfyrirkomulag Palestínu, þar á meðal hver höfuðborg hins nýja ríkis verður, verði náð innan árs. Framkvæmdastjóm ESB sór eið EVRÓPUSAMBANDIÐ - H in nýja framkvæmdastjóm Evrópusam- bandsins undir forystu Romanos Prodis sór í gær embættiseið fyrir Evrópudómstólnum í Luxemborg. Evrópuþingið staðfesti í vikunni skipan framkvæmdastjórnar Prodis, sem mun starfa út kjörtímabil fráfarandi framkvæmdastjórnar og næsta fimm ára kjörtímabil að auki. Fyrri framkvæmdastjórnin var látin víkja vegna ásakana um fjármálamisferli, en kjörtímabil hennar rennur út í janúar næstkom- andi. Stirðnar enn milli Chile og Spánar Samskipti stjórnvalda á Spáni og f Chile versna enn vegna deilna þeirra um framsalskröfu á hend- ur Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile. Sendi- herra Chile á Spáni var í gær kallaður heim frá Madrid til skrafs og ráðagerða og var sú ráð- stöfun túlkuð sem mótmæli Chilestjórnar gegn því að Spán- verjar hafa ekki fallist á að gert verði út um málið utan dómstóla. Augusto Pinochet. Stjórnvöld í Chile höfðu reynt að semja við stjórnvöld á Spáni um fella niður framsalskröfuna gegn þvf að önnur lausn verði fundin. í gær kom til átaka milli lögreglu og stuðningsmanna Pinochets utan \áð sendiráð Spánar í Chile. Pin- ochet, sem orðinn er 82 ára, bíður þess enn í stofufangelsi í London að breskir dómstólar skeri úr um hvort rétt sé að framselja hann til Spánar. Sáttastefna forsetans samþykkt ALSÍR - Kjósendur í Alsír greiddu langflestir atkvæði með sátta- stefnu Bouteflikas forseta, þar sem gert er ráð fyrir að skæruliðar sem stundað hafa hryðjuverk í Alsír á undanförnum árum fái minni refsingu ef þeir gefa sig fram. Herskáir bókstafstrúarmenn, sem ekki hafa tekið þátt í fjöldamorðunum, geta fengið sakaruppgjöf. Að sögn fjölmiðla í Alsír greiddu meira en 98% kjósenda atkvæði með þessum friðartillögum, en kosningaþátttakan mun hafa verið um 85%. Dýrafóðux gert upptækt FRAKKLAND - Meira en 1000 tonn af dýrafóðri frá Þýskalandi hafa verið gerð upptæk í Frakklandi vegna gruns um díoxínsmitun. Frönsk stjórnvöld fengu ábendingu frá framkvæmdastjórn Evrópusambands- ins þar sem varað var við að hugsanlega væri díoxín í dýrafóðrinu. • ‘IH’J -Si.aní- ■.■•••'-. ' • - .....

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.