Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 11
1
ERLENDAR FRÉTTIR
!
1
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBKR 1 9 99 - 11 j
Taílenskir hermenn búa sig undir friðargæslustarf á Austur-Tímor þar sem þeir verða ásamt a.m.k. 7000 öðrum
hermönnum frá fjölmörgum löndum.
Friður í nánd á
Austur Tímor?
Indónesíuher heitir
fullri samvinnii við
friðargæslusveitimar
og að hafa sig á hrott
frá Austur-Tímor á
innan við viku.
Óneitanlega voru það tímamót
þegar Indónesíuher hóf í gær
brottflutning sinn frá Austur-
Tímor, þar sem hann hefur ráðið
ríkjum í aldarfjórðung og ekki
alltaf verið vandur að meðulum
þann tíma. Alls verða um 9.000
hermenn fluttir á brott, en á eyj-
arhelmingnum verða þó áfram
um 11.000 lögreglumenn frá
Indónesíu.
Kiki Syahnakri, yfirmaður indó-
nesíska herliðsins á Austur-
Tímor, sagði að herinn yrði flutt-
ur burt í áföngum og yrði þeim
flutningum Iokið á viku. Yfírmenn
hersins hafa einnig heitið því að
sýna alþjóðlegu friðargæslusveit-
unum fulla samvinnu.
Ef það stenst má búast við að
koma alþjóðlegu friðargæslusveit-
anna til Austur-Tímor gangi
átakalitið fyrir sig, en fyrstu sveit-
irnar koma væntanlega á sunnu-
dag eða mánudag. Alls verða
sendir um 7000 hermenn hið
minnsta til Austur-Tímor, og
verða sveitirnar undir forystu
ástralska hersins.
Fáum kæmi þó á óvart þótt
hópar innan indónesíuhers, sem
ekki láta að stjóm og em andvígir
því að Austur-Tímor segi skilið við
Indónesíu, flæki málin nokkuð
með því að grípa til ofbeldis í
beinu framhaldi af ódæðisverk-
unum undanfarið. Veruleg hætta
er á því að til átaka komi af ein-
hverju tagi, þrátt fyrir Ioforð um
annað.
I gær komu fyrstu flugvélarnar
með matvæli og lyf til Austur-
Tímor, en margir þeirra sem flúið
hafa heimili sín undan ofbeldis-
hópunum hafa verið allt að tvær
vikur án matvæla. Hrísgrjónum
og teppum var varpað úr flugvél-
um yfir Ermera, sunnan höfuð-
borgarinnar Dili, þar sem um
20.000 manns hafast við og er
talin veruleg hætta á að hung-
ursneyð brjótist út meðal þeirra.
Sérstaklega em böm og gamal-
menni talin í hættu eftir að hafa
verið lengi matarlaus.
Talið er að allt að 190.000
manns hafi flúið í óbyggðir á
Austur-Tímor eftir að vígasveitir,
sem andvígar eru sjálfstæði eyjar-
helmingsins, hófu ofbeldisher-
ferð sfna á hendur almenningi
strax eftir kosningarnar í lok síð-
asta mánaðar.
Enn eru fáeinir starfsmenn
Sameinuðu þjóðanna eftir í Dili,
en bækistöðvum Sameinuðu
þjóðanna þar var lokað nú í vik-
unni. Þeir segja tvo þriðju hluta
borgarinnar vera rústir einar, en
vígasveitirnar hafa lagt eld að
húsum og beint eða óbeint notið
til þess stuðnings indónesískra
hermanna.
KLA afhendlr vopnin
Á simnudagiim reimur
út frestur sem Frelsis-
her Kosovo hefur til að
skila iim vopnum sín-
um.
Frelsisher Kosovo (KLA) hafði í
gær skilað inn meira en 10.000
vopnum, en herinn verður að vera
búinn að skila inn öllum vopnum
sfnum á morgun, sunnudag, sam-
kvæmt samningnum sem gerður
var við stjórnvöld í Júgóslavíu í
júní síðastliðnum.
Liðsmenn KLA hafa afhent
vopn sín í sérstakar vopnageymsl-
ur, en fram á sunnudag mega þeir
bera takmarkað magn af vopnum
og klæðast herbúningum á af-
mörkuðum svæðum, þar sem
vopnin eru geymd. Að þeim fresti
Breskur hermaður skoðar vopna-
búr Frelsishers Kosovo.
Ioknum eiga friðargæslusveitir
Nató að taka við stjórn á þessum
svæðum og þar með hafa fengið
öll yfirráð yfír vopnageymslunum.
Stór hluti vopnanna, sem Frels-
isher Kosovo hefur notað, kemur
úr vopnabúri albanska hersins, en
hundruð þúsunda vopna var
stolið þaðan árið 1997 þegar nán-
ast algjört stjómleysi ríkti í Alban-
íu.
Á sunnudaginn er meiningin að
Frelsisher Kosovo verði formlega
lagður niður sem herlið, en þó er
gert ráð fyrir að hluti hermanna
úr Frelsisher Kosovo verði uppi-
staðan í nýjum borgaralegum
sveitum, sem nefnast eiga
Kosovosveitirnar. Gert er ráð fyrir
að þetta verði um 5.000 manna
lið sem á að sjá um neyðaraðstoð
og mannúðarverk í Kosovo, en
muni klæðast herbúningum.
Bæði Serbar og Rússar hafa lát-
ið í Ijós miklar efasemdir um
þessar fyrirhuguðu Kosovosveitir,
og telja að þær verði eingöngu lið-
ur í því að veikja stöðu og völd
Serba í héraðinu. Sveitirnar verði
áfram sveitir aðskilnaðarsinna,
þótt í nýjum búningi verði.
Téténía sett í „sóttkví66
RUSSLAND - Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, sagði í
gær eftir að hafa flutt ræðu á fundi sambandsráðsins, efri deildar
rússneska þingsins, að Téténía verði sett í „sóttkví" vegna sprengju-
tilræðanna í fjölbýlishúsum í Rússlandi á síðustu vikum. Pútín vildi
þó ekki útskýra nánar hvað hann meinti með þessu orðalagi. Hins
vegar sagði hann ekki standa til að rússneski herinn verði sendur inn
í Téténíu, en herinn galt verulegt afhroð í stríði sínu við uppreisnar-
menn þar fyrir þremur árum. Tveir menn fórust og þrfr slösuðust
þegar sprengja sprakk í stigagangi fjölbýlishúss í Pétursborg í gær-
morgun, en það var fimmta sprengjutilræðið á tveimur vikum. Lög-
reglan í Moskvu hefur handtekið fjölmarga Téténa vegna málsins.
Mesti vinduriim farinn úr Floyd
BANDARÍKIN - Mesti vindurinn var farinn úr fellibylnum Floyd í
gær, þótt enn blási hann af nokkrum krafti um skeið. Hann tók í gær
stefnuna norður til Kanada og síðan á haf út. Hann skildi eftir sig
verulega eyðileggingu og mikið vatnsflóð víða á austurströnd Banda-
ríkjanna.
Barak og Arafat
hittust á laun
ÍSRAEL - Ehud Barak, forsætis-
ráðherra Israels, og Jasser Arafat,
leiðtogi Palestínumanna, hittust
á laun á heimili Baraks á fimmtu-
dagskvöld, að ósk Baraks. Að
sögn fjölmiðla í Israel var fundur-
inn „afar árangursríkur“, en aðal
umræðuefni þeirra voru deilur
þeirra um Jerúsalem. Arafat hef-
ur krafist þess að austurhluti Jer-
úsalemborgar verði höfuðborg
Palestínu, en ísraelsmenn vilja
ekki fallast á það. A fundinum ít-
rekuðu bæði Barak og Arafat
þann ásetning sinn að endanlegu
samkomulagi um framtíðarfyrirkomulag Palestínu, þar á meðal hver
höfuðborg hins nýja ríkis verður, verði náð innan árs.
Framkvæmdastjóm ESB sór eið
EVRÓPUSAMBANDIÐ - H in nýja framkvæmdastjóm Evrópusam-
bandsins undir forystu Romanos Prodis sór í gær embættiseið fyrir
Evrópudómstólnum í Luxemborg. Evrópuþingið staðfesti í vikunni
skipan framkvæmdastjórnar Prodis, sem mun starfa út kjörtímabil
fráfarandi framkvæmdastjórnar og næsta fimm ára kjörtímabil að
auki. Fyrri framkvæmdastjórnin var látin víkja vegna ásakana um
fjármálamisferli, en kjörtímabil hennar rennur út í janúar næstkom-
andi.
Stirðnar enn milli
Chile og Spánar
Samskipti stjórnvalda á Spáni og
f Chile versna enn vegna deilna
þeirra um framsalskröfu á hend-
ur Augusto Pinochet, fyrrverandi
einræðisherra í Chile. Sendi-
herra Chile á Spáni var í gær
kallaður heim frá Madrid til
skrafs og ráðagerða og var sú ráð-
stöfun túlkuð sem mótmæli
Chilestjórnar gegn því að Spán-
verjar hafa ekki fallist á að gert
verði út um málið utan dómstóla.
Augusto Pinochet. Stjórnvöld í Chile höfðu reynt að
semja við stjórnvöld á Spáni um
fella niður framsalskröfuna gegn
þvf að önnur lausn verði fundin. í gær kom til átaka milli lögreglu og
stuðningsmanna Pinochets utan \áð sendiráð Spánar í Chile. Pin-
ochet, sem orðinn er 82 ára, bíður þess enn í stofufangelsi í London
að breskir dómstólar skeri úr um hvort rétt sé að framselja hann til
Spánar.
Sáttastefna forsetans samþykkt
ALSÍR - Kjósendur í Alsír greiddu langflestir atkvæði með sátta-
stefnu Bouteflikas forseta, þar sem gert er ráð fyrir að skæruliðar
sem stundað hafa hryðjuverk í Alsír á undanförnum árum fái minni
refsingu ef þeir gefa sig fram. Herskáir bókstafstrúarmenn, sem ekki
hafa tekið þátt í fjöldamorðunum, geta fengið sakaruppgjöf. Að sögn
fjölmiðla í Alsír greiddu meira en 98% kjósenda atkvæði með þessum
friðartillögum, en kosningaþátttakan mun hafa verið um 85%.
Dýrafóðux gert upptækt
FRAKKLAND - Meira en 1000 tonn af dýrafóðri frá Þýskalandi hafa
verið gerð upptæk í Frakklandi vegna gruns um díoxínsmitun. Frönsk
stjórnvöld fengu ábendingu frá framkvæmdastjórn Evrópusambands-
ins þar sem varað var við að hugsanlega væri díoxín í dýrafóðrinu.
• ‘IH’J -Si.aní- ■.■•••'-. ' • - .....