Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 6

Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 6
VI-LAVGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 MINNINGARGREINAR Friöfiniiur S. Ámason J^HT Friðfinnur S. Árnason fæddist áAkureyri 5. september 1915. Hann lést að heimili sínu þann 30. ágúst sl. Foreldrar hans voru Jónína Gunnhildur Frið- finnsdóttir húsfreyja f. 08.09. 1885 d. 28.12. 1969 og Árni Stefánsson trésmíðameistari f. 08.06. 1874 d. 16.06. 1946. Þau eignuðust fjórtán börn og komust ellefu til fullorðinsára. Friðfinnur var fimmti í systk- inaröðinni. Friðfinnur kvænt- ist árið 1940 Sigríði Kristínu Elíasdóttur frá Reykjavík f.13.10. 1926 d. 26.09. 1981. Börn þeirra eru: 1) Jónína Gunnhildur f. 08.12. 1940, maki Hallgrímur Þorsteinsson og eiga þau þrjú börn, 2) son- ur óskírður, 3) Sigríður Dröfn f. 21.03. 1946, maki Guð- mundur Óskar Guðmundsson. Þau eiga þrjár dætur. 4) Jó- hanna Kristjana f. 03.09. 1947 og á hún tvo syni. Bama- hamabörnin eru átta. Seinni kona Friðfinns var María Magnúsdóttir f. 08.10.1917. Utför Friðfinns var gerð frá Akureyrarkirkju þann 6. sept- ember sl. Þegar vinir eru kvaddir sækja á hugann minningar liðinna ára. Þannig fór mér þegar ég heyrði lát félaga míns Friðfinns Árna- sonar. Eg var svo heppinn að kynnast þessum glæsilega manni í veiðiferð fyrir tæpum 30 árum. Það fann ég fljótt að þar var á ferð mikið náttúrubarn sem unni veiðimennsku og kyrrð fjallanna - alvörugefinn veiðifélagi þó stutt væri í grínið og barnið sem er í okkur öllum. Eftir það fórum við margar veiðiferðir saman bæði á sjó og landi og hef ég löngu sannreynt hvað góðan og traustan vin ég átti í Finna. Hann var mikið náttúrubarn, slyngur veiðimaður bæði í ám og sjó og átti hann lengst af lítinn bát sem hann notaði til þess að komast út á Eyjafjörðinn sem hann unni. Friðfínnur fór ungur til náms og lærði vélvirkjun í Reykjavík. Hann vann við fag sitt um tfma en fór síðan í vélstjóranám. Að því Ioknu fór hann til sjós og var bæði á togurum og minni físki- skipum, einnig var hann vélstjóri á norskum flutningaskipum á stríðsárunum. Seinni hluta starfsævinnar vann Friðfínnur í landi við fag sitt í vélsmiðjunni Odda, kjötiðnaðarstöð Kea, hjá Rarik og Hitaveitu Akureyrar. Þá kenndi hann lengi við Vélskólann á Akureyri. Friðfínnur var hógvær maður og bar ekki tilfinningar sínar á torg. Hann hafði ákveðnar skoð- anir á hlutunum en var sanngjarn og virti viðhorf annarra. Hann var heiðarlegur og trúr bæði vin- um sfnum og vinnu. Friðfinnur var fróður maður og hafði mikinn áhuga á að fylgjast vel með öllum nýjungum. Hann var minnugur með afbrigðum og gaman var að heyra hann segja sögur úr eigin reynslusjóði en þá var ekkert dregið undan. Oft var sögusviðið siglingar í niðamyrkri úti á regin- hafí - á stríðsárunum þegar sigla varð án ljósa eða þegar vél bilaði í brjáluðu veðri. Þá dugðu engin vettlingatök en mikilvægt að hafa ákveðnar skoðanir og vera fljótur að taka ákvarðanir. Friðfinnur hafði gaman af ferðalögum og má ég fullyrða að hann hafí verið einn sá fyrsti hér á landi sem innréttaði sinn eigin húsbíl en það var í byrjun sjö- unda áratugarins. Þann 11. janú- ar 1987 stofnuðu nokkrir félagar húsbílafélag og var Friðfinnur einn af stofnendum þess. Hann átti hugmyndina að nafninu Flakkarar sem félagið okkar fékk og hefur heitið síðan. Með Flökkurum ferðaðist hann bæði innanlands og utan ásamt Maríu sinni, sem var dygg- ur förunautur hans um 15 ára skeið, og í mörg ár voru þau með í öllum skipulögðum ferðum sem Flakkarar fóru. Þau nutu þess- ara ferða og ekki síður við, ferða- félagar þeirra, sem nutum félags- skapar þeirra, gleði og gestrisni. Þau voru hrókar alls fagnaðar, enda minningarnar ljúfar. Við Flakkarar kveðjum aldinn höfðingja og vin sem alltaf var ungur í hugsun. Hann hefur nú einn Iagt upp í Iangferðina mildu en minningar um ógleymanlegar samverustundir í faðmi íslenskrar náttúru lifa í hugum okkar. Elsku Maja, félagi okkar var lán- samur að geta verið með þér til hinstu stundar - við vitum að missir þinn er mikill. Við send- um þér, dætrum Friðfínns og fjölskyldum þeirra-okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Flakkara, Bragi Steinsson Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, FRIÐFINNS S. ÁRNASONAR, Aðalstræti 13, Akureyri. María Magnúsdóttir, Jónína Friðfinnsdóttir, Hallgrímur Þorsteinsson, S. Dröfn Friðfinnsdóttir, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Jóhanna Friðfinnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Markmið Útfararstofu íslands er að veita trausta og persónulega þjónustu. Aðstandendur geta leitað útfararstjóra hvenær sólarhrings sem er. Útfararstofa íslands er aðstandendum innan handar um alla þá þætti er hafa ber i huga er dauðsfall ber að. Útfararstjórar Útfararstofu íslands búa yfir mikilli reynslu og hafa starfað við útfararþjónustu um árabil. Útfararstofa íslands sér um: Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar í samráði við prest og aðstandendur. - Flytja hinn látna af dánarstað í líkhús. - Aðstoða við val á kistu og likklæðum. - Undirbúa lík hins látna f kistu og snyrta ef með þarf. Útfararstofa íslands útvegar: - Prest. - Dánarvottorð. - Stað og stund fyrir kistulagningu og útför. - Legstað í kirkjugarði. - Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara og/eða annað listafólk. - Kistuskreytingu og fána. - Blóm og kransa. - Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum. - Líkbrennsluheimild. - Duftker ef líkbrennsla á sér stað. - Sal fyrir erfidrykkju. - Kross og skilti á leiði. - Legstein. - Flutning kistu út á land eða utan af landi. - Flutning kistu til landsins eða frá landinu. Útfararstofa íslands - Suðurhlíð 35-105 Reykjavík. Sími 581 3300 - allann sólarhringinn. .. . . fiiij i Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Olsen, útfaraistjóri Eðvarð Sigurgeirsson Eðvarð Sigurgeirsson, ljós- myndari, fæddur 22. október 1907, dáinn 12. ágúst 1999. Útför Eðvarðs fór fram frá Ak- ureyrarkirkju 24. ágúst sl. Ég horfí upp til himins. Niður úr skýjunum brjótast sólargeisl- arnir, skýin sjálf svo litfögur, stórfengleg og bregða upp list- rænum myndum. Þvílíkt meist- araverk. Þú ert kominn til himinsins heim, elsku afi minn. Eins og hindin sem þráir vatns lindir, þráir sál mín þig, ó GuÖ. Sál mína þyrstir eftir Guði, hinum lifandi Guði. (úr sálmi 42). Minningarnar um þig, afi, eru svo margar, dýrmætar og mér hjartfólgnar frá því ég er lítið barn, unglingur og nú fullorðin kona. Afi minn, þessi ljúfí maður miðlaði svo ríkulega af kærleika, nærgætni, jákvæðri hugsun og innri friði. Ekkert verður samt og áður. I huga mínum nú, ríkir söknuður, þakklæti til þín, afí, og djúp virðing en um leið sú gleði yfir að þú skulir vera kominn til himinsins heim, þar sem ljós friðarins fylgir þér á æðri stigu. Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta, ég er svo nærri að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, sál mín lyftist upp í mót til Ijóss- ins: Verið glöð og þakklát fyrir allt, sem lífið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt t gleði ykkar í lífinu. (óþekktur höfundur). Að vera nú síðustu árin þín afi, áhorfandi að, hversu fallega og vel hún amma hlúði að þér af svo mikilli natni og hlýju, elsku og ósérhlífni og hversu samband ykkar, allt til þinnar hinstu stundar var sterkt og heilagt, var mér mikill lærdómur og sannur. ... andar sem unnast fá aldreigi eiltfð aðskilið. Guð vaki yfir þér elsku amma mín. Þakka þér alla elsku þína og kærleika, afí minn. Friður Guðs blessi þig. Unnur Huld. Islendingam:ttir íslendingaþættir birtast í Degi alla laugardaga. Skilafrestur vegna minningagreina er til þriðjudagskvölds. Reynt er að birta allar greinar eins fljótt sem verða má, en ákveðnum birtingardögum er ekki lofað. Æskilegt er að minningargreinum sé skilað á tölvutæku formi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.