Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 8

Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 8
VHI -LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 11)99 Kirkjustarf Sunnudagur 19. september AKUREYRARKIRKJA Lesmessa kl. 11:00. Altarisganga. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir messar. GLERÁRKIRKJA Ath. messa verður í Lögmannshlíðarkirkju kl. 14:00. HJÁLPRÆÐISHERINN, HVANNAVÖLLUM 10, AKUREYRI Bæn kl. 16:30. Almenn samkoma kl. 17:00. Unglingasamkoma kl. 20:00. Heimilasamband kl. 15:00 mánudag 20. sept. ÞINGEYJARPRÓFASTSDÆMI Þriðjudaginn 14. september mun biskup ís- lands, herra Karl Sigurbjörnsson, setja sr. Pétur Þórarinsson, sóknarprest í Laufási, inn í starf prófasts í Þingeyjarprófastsdæmi. Kór Svalbarðs- og Laufáskirkju syngur und- ir stjórn organistans Hjartar Steinbergsson- ar. Áthöfnin verður í Laufáskirkju og hefst ki. 21 og eru allir velkomnir. Héraðsnefnd Þingeyjarprófastsdæmis. ÓLAFSFJARÐARKIRKJA 16. sunnudagur e. trinitatis, 19. september. Kvöldmessa í Ólafsfjarðarkirkju kl. 20:30. GAULVERJABÆJARKIRKJA Messa kl. 14:00. Sóknarpresfur. SELFOSSKIRKJA Messa kl. 11:00. Morgunbænir kl. 10:00 þriðjudag til föstudags. Septembertónleikar þiðjudaginn 21. sept. Sóknarprestur. ÞORLÁKSKIRKJA Sunnudagur 19. september. Þorlákskirkja. Upphaf vetrarstarfs. Fjölskyldumessa þ.e. sunnudagaskóli og messa kl.11:00. Bald- ur Kristjánsson. ÁRBÆJARKIRKJA Almenn guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Kirkjukór Árbæjarkirkju syngur. Organleikari Pavel Smid. Barnaguðsþjónusta kl. 13. Upphaf sunnudagaskólastarfsins. Foreldar - afar - ömmur eru boðin velkomin með börnunum. Prestarnir. Væntanleg fermingarbörn í Árbæjarpresta- kalli árið 2000 eru beðin að koma til skrán- ingar og viðtals í Árbæjarkirkju, mánudag- inn 20. september milli kl. 13.30 og 16.00. „Kirkjuprakkarar" 7-9 ára kl. 16-17 á mánu- dögum. T.T.T. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17-18 á mánu- dögum. Eldri deild Æskulýðsfélagsins kl. 20-22. BREIÐHOLTSKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á sama tíma. Þátttöku fermingarbarna og for- eldra þeirra er vænst. Fundur með foreldr- um fermingarbarna verður að lokinni guðs- þjónustu. Organisti Daníel Jónasson. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA Messa kl. 11. Prestur Dr. Sigurjón Árni Eyj- ólfsson. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjón sr. Gunnars Sigurjónssonar og Þórunnar Arn- ardóttur. Léttur málsverður eftir messu. FELLA- OG HÓLAKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Guðmund- ur Karl Ágústsson. Organisti Lenka Mátéová. Barnaguðsþjónusta á sama tíma. Umsjón Margrét Ólöf Magnúsdóttir. Prest- arnir. Starf fyrir 9-10 ára drengi á mánudögum ki. 17-18. Æskulýðsstarf fyrir 9.-10. bekk á mánudög- um kl. 20-22. Bænastund og fyrirbænir mánudaga kl. 18. Tekið á móti bænaefnum I kirkjunni. GRAFARVOGSKIRKJA Sunnudagaskóli I Grafarvogskirkju kl. 11. Prestur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Um- sjón: Hjörtur og Rúna. Organisti Hörður Bragason. Sunnudagaskóli í Engjaskóla kl. 11. Umsjón: Signý og Guðrún. Organisti Guðlaugur Viktorsson. Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 14. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organísti Hörður Bragason. Prestarnir. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefn- um í kirkjunni alla virka daga frá kl. 9-17 í síma 567-9070. HJALLAKIRKJA Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barn borið til skírnar. Sr. íris Kristjánsdóttir þjónar. Fé- lagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safn- aðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prestarnir. Prédikunarklúbbur presta í Reykjavíkurpró- fastsdæmi eystra er á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Umsjón Dr. Sigurjón Árni Eyj- ólfsson. KÓPAVOGSKIRKJA Barnastarf kl. 11 í safnaðarheimilinu Borg- um. Guðsþjónusta kl. 14. SELJAKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11. Nýtt og líflegt fræðsluefni. Mikill söngur. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeír Ástráðsson prédikar. Org- anisti er Gróa Hreinsdóttir. Sóknarprestur. ÁSPRESTAKALL Áskirkja. Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Hrafnista. Guðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir messar. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA Barnamessa kl. 11:00. Léttir söngvar, bibl- íusögur, bænir, umræður og leikir við hæfi barnanna. Guðsþjónusta kl. 14:00. Org- anisti Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthíasson. Æskulýðsfélagið fyrir unglinga í 8. bekk mánudagskvöld kl. 19:30 I félagsmiðstöð- inni Bústöðum. DÓMKIRKJAN Fjölskyldumessa kl. 11:00 í Frikirkjunni í Reykjavík. Prestar sr. Jakob Á. Hjálmarsson og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir. Dómkórinn leiðir söng. Organleikari Marteinn H. Frið- riksson. Mikil gleði, tónlist og fræðsla. Æðruleysismessa kl. 21:00 í Fríkirkjunni í Reykjavík. Sr. Anna S. Pálsdóttir prédikar. Anna Sigríður Helgadóttir syngur. ELLIHEIMILIÐ GRUND Messa kl. 14:00. Prestur sr. Tómas Guð- mundsson. Organisti Kjartan Ólafsson. Fé- lag fyrrverandi sóknarpresta. GRENSÁSKIRKJA Barnastarfið hefst í dag kl. 11:00. Messa kl. 11:00. Altarisganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Ólafur Jóhannsson. HALLGRÍMSKIRKJA Messa og barnastarf kl. 11:00. Orgelmessa í tilefni af Norrænu þingi organista. Org- anisti Hörður Áskelsson. Sr. Jón D. Hró- bjartsson. LANDSPÍTALINN Messa kl. 10:00. Sr. Ingileif Malmberg. HÁTEIGSKIRKJA Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Organisti Bjarni Þór Jónatansson. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Messa kl. 14:00. Org- anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson. LANGHOLTSKIRKJA Kirkja Guðbrands biskups. Hátíðarmessa kl. 11:00 á kirkjudegi Langholtssafnaðar. Biskup íslands helgar nýtt orgel og kór- glugga. Kórar kirkjunnar syngja. Organisti Jón Stefánsson. Prestur sr. Jón Helgi Þór- arinsson. Kvenfélag Langholtssóknar býður kirkjugestum að þiggja veitingar í safnaðar- heimili eftir messu. Vígslutónleikar orgels kl. 16:30. Peter Sykes frá Bandaríkunum leik- ur. Opið hús - hádegistónleikar mánudag kl. 12-12:30. Vietoria Wagner organleikari frá Bandaríkjunum. LAUGARNESKIRKJA Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Kór Laugarneskirkju syngur, organisti Ástríður Haraldsdóttir. Hrund Þórarinsdóttir stýrir sunnudagaskólanum með sínu fólki. Prest- ur sr. Bjarni Karlsson. Messukaffi og djús fyrir börnin á eftir. Messa kl. 13:00 í dag- vistarsalnum Hátúni 12. Kór Laugarnes- kirkju syngur, Ástríður Haraldsdóttir leikur og sr. Bjarni Karlsson þjónar. Morgunbænir mánudag kl. 6:45 Kynningarkvöld hjá 12 sporahópnum mánudag kl. 20:00. Fólk hvatt til að mæta og fræðast um það hvernig unnið er með skaddaðar tilfinningar eftir 12 spora kerfinu. Margrét Scheving leiðbeinir og stjórnar samverunni. NESKIRKJA Sunnudagaskólinn kl. 11:00. Upphaf barna- starfsins. Hátíðarmessa ki. 14:00. Biskup íslands hr. Karl Sigurbjörnsson helgar nýtt orgel kirkjunnar og prédikar. Altarisþjónustu og ritnignarlestra annast sr. Frank M. Hall- dórsson, sóknarprestur, sr. Örn Bárður Jónsson, sr. Halldór Reynisson, Reynir Jón- asson, organisti, Heimir Fjeldsted, formaður kirkjukórs Neskirkju, Guðfinna Inga Guð- mundsdóttir og Kristín Bögeskov, djákni. Kór kirkjunnar syngur ásamt Ingu Bachman, einsöngvara. Organistar Reynir Jónasson og Peter Sykes. Formaður sókn- arnefndar Guðmundur Magnússon flytur ávarp. Veitingar I safnaðarheimilinu að messu lokinni. Hátíðartónleikar kl. 20:30. Sænski organistinn Anders Bondeman leik- ur. Síðdegistónleikar mánudag kl. 18:00. Árni Arinbjarnarson organisti Grensáskirkju. Mömmumorgnar alla miðvikudaga kl. 10-12. SELTJARNARNESKIRKJA Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Nemend- ur úr Tónlistarskóla Seltjarnarness spila. Sunnudagaskólinn hefur göngu sína og eru foreldrar og börn hvött til að mæta til guðs- þjónustu. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Hugleiðingu flytur sr. Sigurður Grétar Helgason. Verið öll hjartanlega velkomin. Prestarnir. FRIÐRIKSKAPELLA Kyrrðarstund í hádegi mánudag. Léttur málsverður í gamla félagsheimilinu að stundinni lokinni. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK Guðsþjónusta kl. 14:00. Börn borin til skírnar. Organisti Kári Þormar. Allir hjartan- lega velkomnir. Sr. Hjörtur Magni Jóhanns- son. MINNINGARGREINAR Sigurður Gunnarsson Sigurður Gunnarsson, Þing- vallastræti 26, Akureyri Iést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri 22. ágúst s.l. Hann var fæddur á Hafralæk í Aðaldal 27. júlí 1934 og var því nýorð- inn 65 ára. Hann var næst yngstur í átta barna hópi þeirra Sigurbjargar Sigurjónsdóttur og Gunnars Sigurjónssonar en þau eru í aldursröð Helga, Þóra, Líney, Herdís, Birna, Ari, Sigurður og Theódór. Herdís lést á síðasta ári. Eftirlifandi systkyni eru búsett á Akureyri, nema Líney sem býr á Húsavík. Sigurbjörg og Gunnar bjuggu síðar á Grenjaðarstað í Aðaldal en fluttu þaðan til Illugastaða í Fnjóskadal 1949, þar bjó fjöl- skyldan til ársins 1961 þegar Gunnar lést. Sigurður flutti þá til Akur- eyrar og bjó alltaf síðan hjá Helgu systur sinni. Sigurður var um tíma á sjó en vann Iengst af verkamannavinnu var mikið á vélum og tækjum. Lengi vann hann hjá Norður- verki, einnig hjá Möl og sandi en síðustu árin starfaði hann hjá Hitaveitu Akureyrar. Hann Siggi frændi giftist ekki og átti ekki afkomendur, en hann var einstaklega barngóður og skemmtilegur við krakka. Þess nutu börnin okkar sem um lengri og skemmri tíma dvöldu hjá ömmu Helgu og Sigga frænda, og svo síðar börnin þeirra. Siggi var einstaklega ljúfur maður glettinn og gamansamur. Hann var líka sérlega skapgóður. Það fór ekki mikið fyrir honum og hann var ekki fyrir að trana sér fram, en þeir sem þekktu Sigga vissu að þar fór góður maður, greindur og réttsýnn. Með þessum fátæklegu orðum viljum við þakka Sigga samfylgd- ina, einnig alla hans góðvild og hlýju við börnin okkar og barna- börn. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir **** Það var stór barnahópur sem var að alast upp á „Stöðunum“, bæjunum í kringum Grenjaðar- stað, á árunum um og eftir 1940. Vorið 1941 fluttu hjónin Sigur- björg Sigurjónsdóttir og Gunnar Sigurjónsson í Gamlabæinn á Grenjaðarstað. Þau áttu 8 börn og yngri börnin fjögur bættust í hóp leikfélaga frá Staðarhóli, Hvoli, Aðalbóli og Grenjaðar- stað. Hann Siggi var næstyngstur systkina sinna og sá fyrsti þeirra til að kveðja. Hugur minn reikar til baka. Snemma voru öllum börnunum fengin skyldustörf á hendur, það var svo sjálfsagt og verkefnin næg. En nægar tómstundir gáfust þó til leikja og engin vand- ræði að finna upp á þeim. Salta- brauðsleikur, slagbolti, ræningja- leikur, að rekja pílu, svo eitthvað sé nefnt. Pílan oftast nær teikn- uð upp á hlaðinu við Gamlabæ- inn, þar voru endalausir felu- staðir inni og úti. Við skriðum inn í öll þau skúmaskot sem fyr- irfundust í bænum, jafnvel milli þilja. A veturna þegar snjór var nægur var farið á skíði í hólnum á Staðarhóli, stundum búnar til hengjur og iðkað skíðastökk. Enginn heimsmeistara leikvang- ur það, en nægði börnum til skemmtunar. Stundum var heyjasleðinn hans Hannesar fenginn að láni, kjálkarnir lagðir upp á hann og svo raðaði allur hópurinnn sér á sleðann. Ef gott var færi brunaði sleðinn alla leið niður á Aðalbólstún, yfir lækinn, veginn og girðinguna sem allt var á kafi í ís og snjó. Enginn taldi eftir sér að basla með sleðann til baka upp á hólinn og svo var tek- in önnur buna. Stundum gerði Iíka gott svell á Staðarhólstún- inu. Þá voru skautarnir teknir fram. Að sumum af þeim útbún- aði væri víst brosað í dag. En því varð að tjalda sem til var og ekk- ert um það fengist. Eitt sinn var það þegar smalað- ur var „Dalurinn“, líklega til rún- ings, að við Siggi vorum send suður Gljúfur og fram að „mæði- veikigirðingu“ að smala því fé sem þar væri. Það gekk greiðlega þar til Siggi gerði stóra uppgötv- un. Hann fann helli í hrauninu utan við girðinguna. Þetta fyrir- bæri þurfti hann auðvitað að rannsaka vel og fór í það drjúgur tími, svo það þurfti hraða fætur til að safna saman þeim kindum sem við höfðum fundið og koma þeim vestur af. Trúlega höfum við fengið einhverjar skammir fyrir drollið. Síðasta veturinn okkar í barna- skóla vorum við Siggi á tímabili samferða á hestum í skólann. Þá var nú stundum sprett úr spori og reynt með hestunum og metist á um hvor væri betri gæð- ingur, Jörp pabba eða Jarpur Gunnars. Engin niðurstaða mun hafa fengist í því máli. Eg hef oft hugsað um það að hvergi safnaðist þessi hópur saman inni í bæ, eins oft og í pínulitla eldhúsinu í Gamlabæn- um. Sjö til tíu órabelgir sátu þar þétt á eldhúsbekknum, mjóa bekknum við vegginn og jafnvel á gólfinu. Ekki ósjaldan laumaðist Siggi í tóbaksdósirnar og tók nokkur korn í nefið, til þess að láta okkur hlæja að því þegar hann færi að hnerra sem hann gerði ósvikið. Það var vandlega talið saman og mikið hlegið. Stundum kom Gunnar bóndi í gættina með gamanyrði á vör, en Sigurbjörg komst varla fyrir í eld- húsinu sínu. Aldrei man ég til þess að stuggað væri við okkur, eða við værum látin finna að við værum til óþæginda. Þessar bernskuminningar og miklu fleiri hafa verið mér svo ríkar í huga síðan ég frétti látið hans Sigga, jafnaldra míns og fermingarbróður, hugurinn dval- ið við þessa veröld sem var - horfinn heim. Litla eldhúsið hennar Sigurbjargar, þar sem við söfnuðumst saman svo oft, er horfið. Þar er nú fallega hlaðinn bæjarveggur og burnirótin blómgast þar hvert ár. Fyrir mér er þessi sérstaki veggur Gamla- bæjarins eins og minnisvarði um liðna daga. Vorið 1949 urðu þáttaskil. Fjölskyldan í Gamlabænum flutti búferlum að Illugastöðum í Fnjóskadal. Og brátt hófst lífs- baráttan fyrir okkur öllum, í ýms- um myndum. Arin hafa liðið, fundir okkar Sigga og systkina hans hafa verið strjálir, en aldrei hefur gróið yfir gömul spor þó gatan væri fáfarin. Hann Siggi var gleðimaður, þó alvara leyndist undir. Glaðvær í vinahópi, kannski svolítið stríð- inn á stundum og hafði næmt auga og eyra fyrir því sem skop- legt var. Duglegur og trúr verk- maður og vinsæll af vinnufélög- um og yfirmönnum sínum, það er mér kunnugt um. Enda skipti hann ekki oft um vinnustaði á ævinni. Hann unni svo fagurri sönglist, það veitti honum ótæpt yndi og hann var tryggur vinur vina sinna. Hann Siggi var góður drengur, góður maður. I gömlu kvæði er þetta erindi: I daga og nætur skiftist skákborð eitt, af skapanornum er þar manntofl þreytt. Þærfæra oss til ogfella oss, gera oss niát, unsfrú og kóngi er loks í stokkinn þeytt. Þetta erindi hefur oft komið mér f hug í mínu flókna tafli við lífið og tilveruna. Og mér kemur það í hug nú. Lífið tekur okkur öll margvíslegum glímutökum og veltur á ýmsu um tap og vinning. Við getum spurt, leitt hugann að hvað myndi talið til vinnings þeg- ar komið er yfir landamærin, þar sem áreiðanlega ráða önnur gildi en í þeirri efnishyggjuveröld sem við lifum í hérna megin tjaldsins. Skyldu ekki hógværð og góð- mennska vega þar þungt á skál- um. Siggi minn - ég þakka allar stundir á vegferðinni og bið þér friðar og blessunar á nýjum leið- um. Systkinunum „frá Gamla- bænum,“ sendi ég innilegar sam- úðar og vinarkveðjur. Brynliildur L. Bjarnadóttir. -----------------------. ORÐ DAGSINS 462 1840 K______________________r

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.