Dagur - 21.09.1999, Qupperneq 2

Dagur - 21.09.1999, Qupperneq 2
18 - l'RIDJUDAGU R 21. SEPTEMBER 19 9 9 LÍFIÐ í LANDINU L SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDÓR SIGURDÓRSSON „Ég finn að hér í ráðuneytinu er gott fólk, sem skilar sínum störf- um vel af hendi. Mér finnst vinnu- andinn góður og mikill hugur í fólki að standa við bakið á ráðherr- anum, sem lét stór orð falla ein- hverntíma í hita leiksins." Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra í viðtali við Dag, aðspurður um ummæli hans um hraða snigilsins í landbúnaðarráðu - neytinu. EkkL réttar niðurstöður Einu sinni þegar Egill Jónsson, alþingis maður og bóndi á Seljavöllum, átti sæti í fjárlaganefnd, sem þá hét raunar íjárveit- inganefnd, var Sigurður Þórðarson ríkisend- urskoðandi kallaður á fund nefndarinnar til að reikna út einhveijar tölur varðandi sauð- kindina, að beiðni Egils. Þegar Sigurður hafði reiknað dæmið kom í ljós að útkoman var bændum óhagstæð. Þetta líkaði Agli illa og sagði: „Þetta eru ekki niðurstöðurnar sem ég bað um.“ Eiturbyrlarinn úr Valhöll Jón Guðmundsson, oft kendur við Brúsa- staði í Þingvallasveit, var veitingamaður í Valhöll á ÞingvöIIum forðum tíð. Eitt sinn kom Stefán Jóhann Stefánsson krataforingi, sem þá var formaður Norræna félagsins, til Jóns og pantaði kvöldverð og gistingu fyrir fimm starfsbræður frá Norðurlöndunum. Hann tók það skýrt fram við Jón að þeir yrðu að fá góðan mat. Nú var úr vöndu að ráða fyrir Jón því ekkert kjöt var til í Valhöll nema af sjálfdauðri belju frá Símoni í Vatnskoti. Sýnishorn af kjötinu hafði verið sett í rann- sókn en niðurstaða ekki komin. Þrátt fyrir það ákvað Jón að láta elda kjötið af beljunni. Morguninn eftir kom skeyti frá rannsóknar- stofunni þar sem sagði að kjötið væri óhæft til manneldis. Jón rétt náði að stinga skeyt- inu í vasann áður en Stefán Jóhann birtist æfur af reiði og spurði hvaða eitur Jón hefði eldað ofan í þá í gærkveldi. Menn hefðu staðið í biðröð við salernið í alla nótt. Jón krumpaði skeytið fast saman í vasanum og sagði: „Stefán minn, menn verða að kunna sér hóf þótt maturinn sé góður.“ Skömmu síðar hitti Símon í Vatnskoti Jón og hafði þá frétt af matareitruninni. Hann sagði við Jón að hann hefði aldrei ætlast il að hann eldaði kjötið ofan í fólk. Hann hefði ætlast til að Jón gæfi refunum þetta: „Ertu vitlaus Sím- on,“ sagði Jón, „þeir hefðu getað drepist." Þessi saga er úr bókinni Herra forseti. Ljóttr eru Eyjabakkar Sennilega skýrir þessi vísa sig alveg sjálf en hana orti kunnur hagyrðingur eftir Eyja- bakkaför ákveðins ráðherra: Fegurð mína þjóðin þakkar, þrýstir mér tfremstu röð. En - Ijótir eru Eyjabakkar ekki fór ég þaðan glöð. Samökin UNIFEM leggja mikla áherslu á að fræða konur í þriðja heiminum um rétt sinn og mennta þær, því það er fjár- sjóður sem aldrei verður frá þeim teldnn. Markmiðið er alltaf að hjálpa konum til sjálfshjálpar. UNIFEM á íslandi styrkir til dæmis konur á Indlandi sem þegar eru með grunnmenntun til þess að afla sér menntunar á æðri stigum þannig að þær komist til áhrifa. Einnig fá konur í löndum þar sem styij- aldir geysa, æfingu og stuðning til að taka þátt í friðarumræð- um. Þetta er meðal annars gert með því að þjálfa þær í ræðu- mennsku og kynna þeim fé- lagslegan rétt sinn. Stuðningur við fátækar kon- ur í Andesíjöllum er gott dæmi um verkefni sem við höfum Iagt í. Þar var konum kennd uppbygging lítilla fyrirtækja, t.d. bókhald og markaðssetn- ing. Konurnar unnu við rækt- un koms. Þær fengu myllu og bökumaofn og tókst með ódýr- um en smekklegum umbúðum að gera vöruna sína eftirsótta og ódýrari á markaðinum en hjá samkeppnisaðilanum. Þetta verkefni skilaði sérlega góðum árangri og vann til verðlauna. I Mexíkó styrkjum við nú konur sem eru að setja á stofn fyrirtæki í kringum býflugnarækt auk þess látum við fé af hendi rakna í alþjóðlegan sjóð sem berst móti ofbeldi gegn konum í hvaða mynd sem það birtist. Hvemig aflið þiðfjárl „Ríkisstjómir margra landa Ieggja samtökunum lið vegna þess hversu markvisst þau vinna. Við, í íslensku deildinni, byijuðum á að safna félög- um sem greiddu árgjald en síðustu þijú ár hafa stjómvöld veitt tveimur og hálfri milljón árlega til okkar verk- efna. Það hefur alveg gersamlega breytt stöðunni." Eru samtökin UNIFEM starfandi víða um heim? „Þau eru starfandi í 17 löndum en verkefnin sem í gangi em skipta hundruðum og ná til 70 landa. Við veljum okkur verkefni af listum sem við fáum frá skrifstofum samtakanna erlendis og getum fylgst með hvernig þeim vegnar sem þiggja okkar aðstoð. Auk þess sem UNIFEM styður kon- ur til menntunnar, hjálpar félagið þar sem fátæktin er sámst, t.d. við að leggja vatnsleiðslur í þorp og grafa brunna. Það er mikilvægt vegna þess að það getur tekið konur hálfan dag- inn að ná í vatn og þá er ekki mikill tími til að afia sér þekkingar. Þó stuðningur UNIFEM beinist aðallega að konum skal hafá í huga að flestar eiga þessar konur feður, bræður, eig- inmenn og syni sem njóta góðs af. Það er almennt viðurkennt að hjálp til kvenna hefur mikil margföldunaráhrif sem skilar sér inn í þjóðfélagið. Með þM að kenna stúlku að lesa hef- urðu kennt heilli Qölskyldu að lesa. GUN. Friðarumræðurog stjómunarstörf, bý- flugmræktog bók- hald ermeðal þess sem konur íþróumr- löndunumfá þjálf- uníjyrir atbeina samtakanna UNI- FEM. SigríðurMar- grét Guðmundsdótt- irerfonnaðurís- lensku deildarinnar semerlOáraum þessarmundir. SPJALL FRÁ DEGI TIL DAGS Auðvitað hefði það ekki kostað mig tú- skilding að fúllyrða, að ég væri jafn- kunnugur í Himnaríki og í Hafnarfirði. Sigurður Nordal Þau fæddust 21. september • 1842 fæddist Abdúlhamid II., sem var soldán Ottómanveldisins frá 1876 til 1909. • 1915 fæddist séra Emil Björnsson, sem lengi var fréttastjóri sjónvarpsins. • 1931 fæddist bandaríski leikarinn Larry (joðerr) Hagman. • 1934 fæddist kanadíski sönglarinn Leonard Gohen. • 1938 fæddist Atli Heimir Sveinsson tónskáld. • 1945 fæddist Bjarni Tryggvason geim- fari. • 1947 fæddist bandaríski hrollvekju- höfundurinn Stephen King. Þetta gerðist 21. september • 1522 gaf Martin Luther út fyrstu þýðingu sína á Nýja testamentinu á þýsku. • 1776 braust út eldur í New York, og brunnu þar til grunna nærri 300 hús, sem þá var um það bil fjórðungur allra húsa í borginni. • 1915 keypti Englendingur að nafni C.H.E. Chubb á uppboði steinana frægu í Stonehenge á Englandi, og greiddi 6.600 pund fyrir. • 1919 skemmdist Reykjanesviti mikið í jarðskjálfta. • 1949 lýstu kommúnistar í Kína yfir stofnun Kínverska alþýðulýðveldisins. • 1963 sæmdu Bretar Eirík Kristófers- son skipherra orðu, m.a. fyrir björgun breskra sjómanna. • 1964 hlaut eyjan Malta í Miðjarðar- hafinu sjálfstæði undan Bretum. Vísa dagsins Bráðum kveð égfólk ogfrón ogfer í mtna kistu - rétt að segja samaflón sem ég var ifyrstu. Matthías Jochumsson Afmælisbam dagsins Bókmenntafræðingurinn Helga Kress fæddist í Reykjavík þann 21. septem- ber árið 1939. Hún tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1959 og Cand. mag. próf í íslenskum fræðum frá Háskóla Islands. Hún hef- ur kennt við Háskóla íslands frá árinu 1980 og hjá henni hefur margur bók- menntafræðineminn fengið eld- skímina. Helga hefur verið mikilvirk á sviði kvennafræða og hefur skrifað bækur og ritgerðir um þau firæði. Hún hefur haldið lyrirlestra um fræði sín við háskóla um víða veröld. „Ekki starta neinu, góði!“ Maður nokkur kemtir inn á skemmtistað og ætlar heldur betur að skemmta sér, en er stöðvaður í dyrunum af dyraverði einum miklum, sem segir: „Þú ert ekki með bindi, góði. Farðu og náðu í bindi.“ Maðurinn fer út í bíl, sest í sætið og hugsar sitt ráð. Hann þykist muna að hann eigi ekkert bindi heima, nema óhreint eða ónýtt. Þá fær hann hugmynd. Hann tekur annan startkapalinn, bregður honum um hálsinn og tekst einhvern veginn að vefja honum upp í snyrtilegan hnút í hálsinn, en lætur endana dingla lausa. Dyravörðurinn horfir á hann stundarkorn, en segir síðan: ,/Etli ég leyfi þér ekki að fara inn svona, í þetta sinn. En farðu bara ekki að starta neinum ólátum, góði.“ Veffang dagsins Islenskur vefur um börn og barnaupp- eldi er á www.isholf.is/amdisk/up'peldi.htni

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.