Dagur - 21.09.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 21.09.1999, Blaðsíða 4
20- ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMRER 1999 LÍFIÐ í LANDINU Ég ætla að verða fyrsta fil- ipp-eyska konan sem lýkur háskólanámi á íslandi, sagði Maida Tangolamos á fundi hjá félaginu Fjöl- breytni auðgar á dögun- um. Maida er 16 ára og á leið í framhaldsskóla. Hún hefur búið á íslandi í þrjú ár en íslenska er þriðja málið hennar. Maida horfir björtum augum til framtíð- arinnar en í erindi hennar kom fram að fyrstu árin á íslandi hefðu verið mjög erfið fyrir unga stúlku frá Asíu. Hún er ekki ein um þá lífsreynslu í hópi nýbúa. Á íslandi hefur til skamms tíma búið einsleitur hópur fólks með sterka menningarhefð og ríka arfleifð í íslenskri tungu og bókmenntum. En ís- lendingar eru að breytast. Þeir tala íleiri tungumál og eiga sér ólíkari rætur en áður. í fjölbreytileika þeirra felst auður sem ekki má fara forgörðum. UMBÚÐA- LAUST „Okkur ber að gefa öllum sem hér vilja búa sömu tækifæri til mennta og þroska - og þá skiptir engu hvort viðkomandi er fæddur í Kópa- vogi eða Kuala Lumpur, “ segir Þórunn Svein- bjarnardóttir. Heimatílbúinn undirmálshópm'? 90% brottfall úr framhaldsskólum Nemendum sem tala annað móðurmál en íslensku Ijölgar ört í grunnskólum lands- ins. Að sögn Ingibjargar Hafstað, kennslu- ráðgjafa í nýbúafræðslu, tala grunnskóla- nemendur á íslandi a.m.k. 80 tungumál. Brottfall tvítyngdra nýbúa úr framhalds- skólanámi er gífurlegt hér á landi, eða um 90% þeirra sem skráðir hafa verið hjá ný- búafræðslunni. Þetta er ógnvænlegt hlut- fall og ljóst að grípa verður strax í taumana til þess að veita nýbúum sömu tækifæri til náms og öðrum íslenskum ungmennum. Á fundi félagsins Fjölbreytni auðgar kom ítrekað fram að meiri sveigjanleika þarf í framhaldsskólanámi nýbúa en ann- arra. í Iðnskólanum í Reykjavík geta ný- búar fengið sérkennslu í íslensku sem margir hafa nýtt sér. Fjölnir Ásbjörnsson, sérkennari við Iðnskólann, kynnti hug- myndir að tveggja ára námi fyrir nýbúa á framhaldsskólastigi, sem myndað gæti grunn að frekara námi við íslenska fram- haldsskóla. Einn meginþáttanna í athygl- isverðum hugmyndum Fjölnis er að veita kennslu í móðurmálum nemendanna. Aó eiga ekki móðurmál í nýrri aðalnámskrá grunnskóla er lögð áhersla á gildi móðurmálsins og jafnvel kveðið svo fast að orði að stefna skuli að virku tvítyngi þeirra sem alast upp við að læra tvö tungumál. Veruleikinn sem blasir við í grunnskólum landsins er allt annar en ráða má af aðalnámskrá. Nýbúabörn eiga rétt á tveimur aukatímum í íslensku í viku hverri. Þeim er hins vegar ekki tryggð kennsla í móðurmálinu sínu. Það þýðir að hætt er við því að börnin týni nið- ur móðurmálinu, grundvelli allrar hugs- unar og lærdóms síðar meir, svo að ekki sé minnst á þann menningarheim sem hver tunga felur í sér. Svo virðist sem útlendingar nýfluttir til íslands séu ekki hvattir til þess að tala móðurmálið sitt heima. Það er mjög mið- ur, en ef til vill skiljanlegt í ljósi þess að öll áhersla er lögð á að læra íslenskuna fljótt og vel. Reynslan sýnir hins vegar að með því að hafa fullkomið vald á móður- máli sínu gengur nýbúabörnum betur en ella að ná tökum á íslenskunni. í Kópavogi eða Kuala Lumpur í upplýsingasamfélaginu er staðgóð menntun, lífsleikni og færni í þekkingar öflun undirstaða farsældar í lífi og starfi. Með því að veita nýbúabörnum ekki þá aðstoð sem þeim ber við að læra íslensku og viðhalda móðurmáli sínu rænum við þau möguleikum til þroska og menntunar. Ef okkur er alvara í því að allir þegnar samfélagsins eigi að hafa jöfn tækifæri til þroska og athafna, þá látum við það ekki um okkur fréttast að í samfélagi sem stærir sig af háu menntunarstigi og miklu ríkidæmi sé óðum að skapast illa mennt- aður undirmálshópur sem dæmdur er til verri kjara en við, sem erum svo heppin að vera fædd á íslandi, mundum nokkurn tíma sætta okkur við. Höfum hugfast að fjölbreytni samfélagsins auðgar það og bætir. Okkur ber að gefa öllum sem hér vilja búa sömu tækifæri til mennta og þroska - og þá skiptir engu hvort viðkom- andi er fæddur í Kópavogi eða Kuala Lumpur. r MENNINGAR LÍFIÐ Stafræn kvikmyndagerd Málþing um margmiðlun- artækni í kvikmyndum hefst í dag í tengslum við Norrænu stutt- og heimildamyndahátíðina og stendur þingið fram á íostu- dag. Á námsstefnunni halda erlendir sérfræðingar fyrir- lestra um stalræna fram- leiðslu, dreifingu og sýningu á myndum. Opnun náms- stefnunnar verður í dag kl.18.30 í Háskólabíói og verður þar m.a. sýnd myndin Haustlauf (3 mín.) sem fram- leidd var á staírænu nám- skeiði í Danmörku. Skráningargjald er 5000 kr. Póstkort og stórsöngvaxar Það er í nógu að snúast fyrir Menningar- borgahá- tíðahöldin í borginni á næsta ári. Búið er að prenta sérstök menn- ingarborgarpóstkort, sex að tölu, og eru þau prýdd ljós- myndum eftir Rafn Hafnfjörð. Þá hefur einnig frést að á há- tíðartónleikum Listahátíðar þann 8. júm á næsta ári, sem eru í samvinnu við menning- arborgina, verða allar helstu klassísku söngstjörnur vorar: þau Diddú, Rannveig Fríða Bragadóttir, Kristján Jó- hannsson og Kristinn Sig- mundsson. Halníirskar stúlkur í helgarblaði Dags birtist mynd á bls. 33 og sagði í ^ myndatexta að þar sætu 5 reykvísk- ar stúlkur. Sonur einnar stúlkuimar kom á ritstjórn í gær og upplýsti að stúlkurnar fimm hefðu verið dætur Augusts Flygenring og Þór- unnar Stefánsdóttur, þær Anna, Unnur, Sigríður, Hall- dóra og Elísabet. Þess má geta að myndin var tekin í byrjun þriðja áratugarins og stúlkurnar voru hreint ekki reykvískar, eins og hcimild blaðsins sagði, holdur hafn- íirskar. Hið MLkomna réttardrama Sennilega er það einhver tegund af hrifnæmi sem gerir það að verkum að ég hef unun af réttar- drömmn. Það færist sælusvipur yfir andlit mitt þegar manneskja í bíómynd eða sjónvarpsþætti sver við helga bók í réttarsal að segja sannieikann og ekkert nema sannleikann - og byrjar svo að ljúga. Það kemur síðan í hlut snjalls lögmanns að afhjúpa lyg- ina, og í vel heppiiaðri mynd gerir hann það á lokamínútumnn með því að egna lygarann svo að hann fær bræðikast eða taugaáfall og talar af sér. í þessum myndum er verj- andinn ætíð í hiutverki þess sem hefur réttlætið sín megin (sem mér finnst rétt kratísk hugmyndafræði) en á sækjandan- um sést að hann tók lagapróf með glans en hefur engan áhuga á framgangi rétt- lætisins. Hann vill bara vixma. Nú er I uppsiglingu dómsmál sem virðist hafa alla burði til að geta verið með hressilegri réttardröm- um, ef rétt er á spilum haldið, og þar á ég við málsókn Kjartans Gunnarssonar á hendur Sigurði G. Guðjónssyni. Ég hef hins vegar vissar áhyggjm- af því að stefnda standi alltof mikið á sama um það hvort hann verði sýknaður eða fundinn sekur. Ég efast ekki mn að Sigurður hafi djúpstæðari þekkingu á íslensku lagakerfi en ég, en ég hef sennilega horft á fleiri bíómyndir og hef því líklega öllu dramatískari væntingar til þessa máls en hann. Samkvæmt hinni klassísku formúlu, sem hlýtur að heilla fleiri en mig, ber verjanda í þessu máli að kalla til vitnis alla þá sem nefndir hafa verið til sögu: forsætisráðherra, mennta- málaráðherra, Kolkrabbann allan, bankaráð, bankastjóra og starfsmenn Landsbankans, og Jón Ólafsson. Þá verða MENNINGAR VAKTIN „Ég efast ekki um að Sig- urður hafi djúpstæðari þekkingu á íslensku laga- kerfi en ég, en ég hef sennilega horft á fíeiri bíó- myndir og hefþví líklega öllu dramatískari vænting- ar til þessa máls en hann.“ margir áminntir um sannsögli en ein- hverjir hljóta að ljúga og einhverjir verða aíhjúpaðir með tilheyrandi tilfinninga- uþpnámi. Hverjir það verða veit ég ekki, maður veit svoleiðis aldrei fyrr en á æsandi lokamínútunum. Ég man þó að verjandinn Perry Mason tapaði oinu máli á áratuga ferli sínum í sjónvarpi. Ég þyk- ist því vita hvoru megin réttlætið sé í þessu máli. En um leið er þess að geta að vinir mínir eru sífellt að benda mér á að í lífinu gildi önnur lögmál en í bíómynd og því séu þeir réttlátu ekki alltaf sýknaðir. - „Því miður“, svara ég.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.