Dagur - 14.10.1999, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 74. október1999
Hugað að samein-
ingu heilsugæslu
„Ég tel að ávinningur af sameiningu heilsugæslustofnana geti verið bæði
fagiegur og eins tryggt íbúum aukið öryggi í læknisþjónustu, “ segir Þórir
Haraldsson, aðstoðarmaður heiibrigðisráðherra.
Hugmyndir um að
sameina heilsugæslu-
stofnanir í Ámessýslu
í eina stofnun. Ýmsir
ávinningar segja
stjómvöld og sveitar-
stjómir nokkuð já-
kvæðar.
Heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt-
ið er þessa dagana að kynna hug-
myndir um sameiningu heilsu-
gæslustöðva í Amessýslu og hefur
sent bréf um þetta efni til allra
sveitarstjórna í sýslunni. Búist er
við því að sameiningin geti jafnvel
gengið í gegn fyrir áramót. Ráðu-
neytinu eru þessa dagana að ber-
ast svör frá sveitarfélögum í sýsl-
unni við þessum hugmyndum sín-
um og eru undirtektir yfirleitt
nokkuð jákvæðar, þó að í vissum
tilvikum sé óskað eftir nánari út-
skýringum á einstaka atriðum, að
sögn Þóris Haraldssonar, aðstoð-
armanns heilbrigðisráðherra.
Hagræðing og auMð öryggi
„Eg tel að ávinningurinn af sam-
einingu heilsugæslustofnana geti
verið bæði faglegur og eins tryggt
íbúum aukið öryggi í læknisþjón-
ustu,“ segir Þórir Haraldsson.
Hann segir að með sameiningu af
þessum toga megi hagræða meðal
annars í yfírstjóm og starfsmanna-
haldi heilsugæslustöðvanna og
tryggja samfellu í mikilvægri ör-
yggisþjónustu þeirra. Bendir Þórir
á að nú sé afleysingaþörf heil-
brigðisstarfsfólks orðin miklu
meiri, meðal annars vegna vinnu-
tímatilskipunar ESB. En með
sameiningu eigi starfsfólk að geta
gengið meira hvort í annars stað,
vinnandi hjá sömu stofnun. „Við
sjáum líka íyrir okkur að úr verði
ein öflug stofnun, bæði rekstrar-
og bókhaldslega." Heilsugæslu-
stofiianir í Ámessýslu eru Ijórar, í
Hveragerði, Þorlákshöfn, á Sel-
fossi og í Laugarási í Biskupstung-
um, en þar er sinnt heilbrigðis-
þjónustu fyrir íbúa í uppsveitum
Arnessýslu. Stöðin frá Selfossi
sinnir þjónustu við íbúa í Arborg
og í lágsveitum sýslunnar.
Um þessar mundir vinnur heil-
brigðisráðuneytið að sameiningu
heilsugæslustofnana víða um
Iandið. Þegar hafa stofnanir á
Austurlandi verið sameinaðar og
nú eru hugmyndir í þessa vem
uppi á Norðurlandi vestra og er
talað um að heilsugæslan á
Hólmavík verði einnig með í
dæminu. Aðspurður um hversvega
menn héldu sig við Árnessýslu
eina í hugmyndum um samein-
ingu heilsugæslustofnana á Suð-
urlandi, sagði Þórir Haraldsson að
á síðasta ári hefðu heilsugæslu-
stöðvamar á Hellu og Hvolsvelli
verið sameinaðar í eina stofhun og
því þætti mönnum sem nóg væri
sameinað þar í bili og að rétt væri
að Rangæingar fengju möguleika
nú til að spila úr þeim möguleik-
um sem sameiningin þá gaf þeim.
Og hvað varðar sameiningarmál í
Vestur-Skaftafellsýslu sagði Þórir
að málin þar hefðu verið skoðuð
en ekki hefði þótt tilefni til að-
gerða, enda hefði stöðugleiki verið
í læknamálum þar síðustu árin.
Enda til að efla og styrkja
Erindi frá Heilbrigðisráðuneyti
um sameiningarmálin var tekið
fyrir á síðasta fundi bæjarráðs Ár-
borgar og þar tók bæjarráð undir
þær, enda verði þær „til þess að
styrkja og efla þjónustu við íbúa
landshlutans.“ - Þá hefur um mál
þetta verið fjallað í bæjarstjóm
Hveragerðis og þar leggjast menn
ekki gegn hugmyndunum sem
slíkum verði þær ekki til þess að
draga úr læknisþjónustu við bæj-
arbúa, að sögn Hálfdáns Krist-
jánssonar bæjarstjóra.
-SBS.
Víðast
fjölgar
Ibúum Árborgar fjölgaði um
120 á fyrstu mánuðum ársins,
en byggðir í Árnessýslu eru ein-
ar af þeim fáu á landsbyggðinni
þar sem íbum fjölgaði á fyrstu
mánuðum þessa ár. I Hveragerði
fjölgaði íbúum um 40, Fljótshlíð
um 20, Hrunamannahreppi um
15 og í Þykkvabæ um 10. Alls
fluttu 60 fleiri til Suðurlands en
brott úr landshlutanum og er
eina landsbyggðarkjördæmið
sem ekki tapaði fólki. Vest-
mannaeyingum fækkaði um 60.
Almennt talað þá hafa álíka
margir flutt af landsbyggðinni
síðustu þrjá mánuði eins og á
fyrri helmingi ársins, þannig að
fólksflóttinn suður hefur hlut-
fallslega tvöfaldast í 2 fjölskyld-
ur á dag á tímabilinu júlí til
september. Fyrstu níu mánuði
ársins hafa næstum öll sveitar-
félög landsbyggðarinnar séð á
eftir fleiri af íbúum sínum brott
en flutt hafa þangað í staðinn.
-SBS.
Góð mæting hefur verið á mömmumorgna, sem eru á miðvikudögum í Þorlákskirkju í Þorlákshöfn. Þetta eru
notalegustu stundir, þar sem mæður ungra barna hittast og spjalla og stundum er fenginn einhver til að miðla
fróðleik um ýmislegt er viðkemur umönnun og uppeldi barnanna. Blaðamaður leit við í kirkjunni einn morguninn
og smellti mynd afprestinum, sr. Baldri Kristjánssyni, í hópi mæðra og barna. -hs.
2. árgangur - 33. Tóiubiað
Frá Eyrarbakka.
Lokun úti-
bús frestað
Landsbanki Islands hefur
ákveðið að fresta lokun útibús
síns á Eyrarbakka um óákveðinn
tíma, en hún hafði verið ráðgerð
þann 25. október. Þetta varð
niðurstaðan eftir fund sem full-
trúar bankans áttu með Eyr-
bekkingum á þriðjudaginn. Að
sögn Friðgeirs M. Baldurssonar,
svæðisstjóra Landsbankans á
Suðurlandi, verða næstu mán-
uðir notaðir til þess að finna við-
unandi lausn á málinu, en
heimamenn á Eyrarbakka voru
afar ósáttir með þessar fyrirætl-
anir bankans.
„Ég held að á þessum fundi
sem við áttum með Eyrbekking-
um hafi komið fram gagnkvæm-
ur skilningur á sjónarmiðum
beggja aðila. Við höfum því nú
ákveðið að fresta lokun útibús-
ins þar til viðunandi lausn á
þessu máli hefur verið fundin,
án þess heldur að ég vilji og geti
sagt til um í hverju hún sé fólg-
in,“ segir Friðgeir.
Haukur Jónsson íbúi á Eyrar-
bakka sagðist í samtali við blað-
ið vera afar ánægður með þessa
ákvörðun Landsbankans. „Ég
hygg að það hafi verið alveg ein-
róma hér á Bakkanum að fólk
var óhresst með þetta. Banki er
sú þjónusta sem þarf að vera á
hverjum stað.“ -SBS.
Kvenlæknir
1 Þorlákshöfn
Sú nýbreytni hefur verið tekin
hér upp að framvegis verður
kvensjúkdómalæknir starfandi
við Heilsugæslustöð Þorláks-
hafnar. Mun læknirinn, Jón B.
Stefánsson, verða hér á stöð-
inni á sex vikna fresti og hefst
viðvera hans í nóvember.
I samtali við heilsuga“slu
Iækni kom fram, að þetta er til
mikils hagræðis fý'rir þær kon-
ur sem þurfa á þessari þjón-
ustu að halda, því þar til nú
hafa konur þurft að sækja lang-
an veg til kvensjúkdómalæknis.
Jón B. Stefánsson er starfandi
við Sjúkrahús Suðurlands á
Selfossi og verður hann hér
eins og áður segir á sex vikna
fresti. Tímapantanir og upplýs-
ingar er hægt að fá á Heilsu-
gæslunni í síma 483 - 3838.
-HS.