Dagur - 15.10.1999, Qupperneq 2

Dagur - 15.10.1999, Qupperneq 2
2-FÖSTUDAGUR ÍS. OKTÓBER 1999 rOagþr KRINGLAN Líst vel á nýju Kríngluna Við spurðum nokkm vegfarendur sem áttu leið um nýju Kringlum daginnfyrir opnun hvemig þeim litistá og hvort þeir teldu að ofmikið hefði verið byggt af verslunarhúsnæði. Ásta Sigurjónsdóttir: Mér líst Ijómandi vel á þetta og finnst þetta afskap- lega notalegt og skemmtilegt. Þetta vex og vex og verslununum fjölgar svo það hlýtur eitthvad að hrynja. Verslununum fjölgar meir en það fæðist af fólki svo það hlýtur eitthvað að láta undan. Benedikt Þór Bárðarson: Mér líst bara nokkuð vel á þetta. Þetta er svo nýtt að maður ratar ekkert um. Ég held að eftirspurnin sé al- veg næg til að mæta auknu framboði verslana. Ann- ars er ég að leita að einhverju að borða, en flestir staðirnir eru horfnir. Þeir verða víst opnaðir á morgun. Elísabet Hallgrímsdóttir: Mér líst alveg Ijómandi vel á þennann nýja hluta Kringlunnar, en ég held að það sé ofvöxtur I byggingu verslunarhúsnæðis í Reykjavík. Ég er utan aflandi þannig að ég kem ekki oft hingað og þá helst ef veðrið er leiðinlegt. Sandra Ingvaldsdóttir: Mér líst bara vel á það sem ég hef séð. Ég sá teikn- ingar afþessari byggingu áður en byrjað var að byggja og mér leist vel á þær. Ég held að það sé alls ekki orðið ofmikið af verslunarhúsnæði hérna. Sefanía Sigfúsdóttir: Mér líst bara ágætlega á þetta, en það er greinilega ýmislegt eftir. Ég held að það sé búið að byggja of mikið afverslunarhúsnæði, en þetta er góð viðbót hér í Kringlunni, eykur fjölbreytnina og samkeppnina. Baldur Sæmundsson: Mér líst nokkuð vel á það sem ég hefséð. Það á hins vegar eftir að koma I Ijós hvort ofmikið hefur verið byggt. Ég kem ekki hingað oftar en ég þarf. Má segja að það sé bara i neyðartilvikum. Anna Ingvadóttir: Mér líst bara ágætlega á það sem ég er búin að sjá. Ég hefenga skoðun á því hvort komið er nóg af verslunarhúsnæði, en ég kem ekki hingað oftar en ég þarf. Jónas Albertsson: Ég kem nú ekki oft hingað; er bara að kíkja á bygg- inguna. Mér líst vel á það sem ég hef séð. Þetta er fínt, en ég held að þetta verði ekki tilbúið á morgun. Alveg örugglega ekki. Erla Sigurðardóttir: Mér líst bara vel á þetta. Ég kem hingað oft þegar ég er ekki í skólanum. Um helgar og svoleiðis. Ég held að það sé ekki komið of mikið af verslunum, ekki fyrir mig allavega. Mér finnst gaman að fara I búðir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.