Dagur - 15.10.1999, Side 7

Dagur - 15.10.1999, Side 7
FÖSTUDAGUR 1S. OKTÓBER 1999 - 7 Þorbjörn Stefánsson og Björg Anna Kristinsdóttir í versluninni NANOQ i góðum félagskap ísbjarnar, en heiti búðarinnar merkir ísbjörn á grænlensku. Það skiptirengu hvort á að halda íHerðu- breiðarlindir eða til Himalaya. Starfsfólk verslunarinna NANOQsérum að kotna þérá leiðarenda með alltsem þú þaift. 1 nýjum húsakynnuni kringlunn- ar er að finna stóra verslun þar sem kennir ýmissa grasa. Risa- vaxinn fsbjörn blasir við manni þegar inn er komið svo manni verður ekki um sel, þar sem bangsi breiðir út feigðarfaðminn og lætur skína í tennurnar. NANOQ heitir þessi stóra úti- lífsbúð, en orðið þýðir ísbjörn á grænlensku. Tákn verslunarinn- ar er einmitt þófafar ísbjarnar. Það er engin tilviljun því öll sú hugsun sem verslunin hvílir á miðast við einstæða eiginleika ísbjarnarins. Þörfina fyrir víð- áttu frelsi og ævintýri. „NANOQ er ævintýri úti- vistarfólks. Þetta er lífstílsversl- un sem býður heildarlausn fyrir þá sem hafa áhuga á útivist,“ segir Þorbjörn Stefánsson, fram- kvæmdastjóri verslunarinnar. Verslun fyrir útivistarfólk hvort heldur er í leik eða starfi. Flókin búð Við fáum okkur sæti í hjarta verslunarinnar ásamt Björgu Onnu Kristinsdóttur markaðs- stjóra. Við blasir .stærsti arinn landsins og maður hreiðrar um sig í Ieðursófanum og.hugsar til kyrrlátra kvölda við veiðilendur Afríku. „Hér er allt úrval Skátabúðar- innar og meira til,“ segir Þor- björn, „sem sagt allt sem þarf til útivistar. Þetta er mjög flókin búð í uppsetningu, en þetta hef- ur gengið ákaflega vel með hjálp góðra iðnaðarmariyna og frábærs starfsfólks." „Hér hefur allt lagst á eitt og þess vegna erum við komin svo langt með verkið sem raun ber vitni,“ bætir Björg við. Uppsetning búðarinnar gekk það vel að hægt var að halda móttöku fyrir gesti í verslunn- inni þremur dögum fyrir opnun. Móttakan var í tengslurn við Banff kvikmyndahátíðina sem er hátíð bestu útilífsmyndanna og verslunin gengst fyrir. „Þessi há- tíð er liðúr í því mikla fræðslu- og menningarstarfi sem verður haldið uppi í versluninni," segir Björg. - Er þetta þd einhvers konar útivistartníboð? „Eg myndi nú ekki taka svo- Ieiðis til orða,“ segir Björg og hlær, „en við leggjum mikla áherslu á , fræðsluþáttinn og þétta' er því forsmrltkurinn af því sem koma skal. Hér verður hægt að kaupa búnaðinn, prófa hann og svo rekum við einnig ferðaskrifstofu." Þekktngin mikilvæg JHér er Iíka þekkingin á öllu sem viðkemur útivist. Það má því segja að þetta sé menningar- setur útivistarmannsins," bætir Þorbjörn við. Hér verður arin- eldúr, bækur og tímarit, þar sem maður getur setið í rólegheitum; lesið, eða horft á myndbönd. Island getur verið varasamt þeim ferðalöngum sem ekki hafa þekkingu á^hættum þess. „Þetta er viðkvæmt land kröft- Þetta erlífstílsverslun, sem býðurheildar- lausnfyrirþá sem hafa áhuga á útivist. Hér verður arineldur, bæk- urog tímarit, þar sem maður getur setið í ró- legheitum; lesið, eða ugrar náttúru og þekkingin því mikilvæg," segir Björg. Þorbjörn bætir því við að þess vegna leggi þau mikið upp úr því að starfs- fólkið hafi milda þekkingu á úti- vist og þeim viðbúnaði sem þarf að hafa til að koma heill heim. Þekkingarinnar þarf ekki að leita langt þvf einn eiganda verslunarinnar er Hjálparsveit skáta í Reykjavík. - En hvemig Uður þeim þegar dregur að opnunardegi? „Þetta hefur verið mikil vinna og spenningurinn er mikill,“ segir Þorbjörn. „Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð og mjög sérstök verslun og á sér enga hliðstæðu hér á landi og þó víðar væri leitað. Þetta hefur verið alveg frábært og hópurinn geysilega samhentur og skemmtilegur.“ „Við lögðum mikla áherslu á að starfsfólkið væri með frá upp- hafi og þessi vinna hefur skapað frábæran starfsanda sem á eftir að skila sér í starfi verslunarinn- ar,“ segir Björg. Þau verða að viðurkenna að öll sú vinna sem nú er að baki hafi komið niður á ferðalögum og útivist þeirra sjálfra. „En við njótum þess á næsta ári,“ bæta þau við að lokum. hoift ámyndbönd. erum-ákáFleea stoltv pvf þetta er

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.