Dagur - 22.10.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 22.10.1999, Blaðsíða 2
18-FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 D^ht 9 í LANDJNU ■ ÞAB ER KOMIN HELGI Hvað ætlarþúað gera? „Á laugardaginn setj- um við upp Las I/eg- as-veisiu í Egilsbúð t Neskaupstað, “ segir Jón Björn Hákonarson. í Las Vegas veislu „Eg ætla að vera í Egilsbúð á föstudagskvöldið, þar verður generalprufa hjá blúsldúbbnum út af Las Vegas veislu á föstudagskvöldið. A laug- ardagskvöldið ætlum við svo að frumsýna. Það kallar á gleði frameftir nóttu. Þetta er heilmikil veisla, það taka um þrjátíu manns þátt í henni bæði söngvarar og hljóðfæraleikarar. Þetta er í 10. skiptið sem við gerum þetta,“ segir Jón Bjöm Hákonarsson, gjaldkeri Blús-rokk og jass- klúbbsins á Nesi í Neskaupstað. „Á sunnudaginn tekur maður því svo bara ró- lega og reynir jafnvel að njóta einhverjar útivist- ar. Þá fer ég kannski á hestbak, síðan tekur maður valið kvikmyndakvöld." „Starf framkvæmda- stjóra sinfóníunnar fel- ur í sér mörg störf, þannig að þetta verður mikil vinnuheigi, “ segir Sigurbjörg í. Kristínar- dóttir. Stússast í kringum hljóðfæraleikara „Ég ætla að vinna um helgina. Sinfóníuhljóm- sveitin verður með tónleika í Glerárkirkju á sunnudaginn og það verður í mörg horn að líta,“ segir Sigurbjörg I. Kristínardóttir, IVam- kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norður- lands. „I gærkvöldi var smíðaður pallur undir hljóm- sveitina svo heíjast æfingar í kvöld og ég verð í því að snúast í kringum hljóðfæraleikarana. Það má segja að ég verði til taks ef eitthvað vantar og eitthvað kemur uppá. Svo sé ég um kaffi fyrir hljóðfæraleikarana svo að þeir fái ein- hveija næringu. Starf íramkvæmdastjóra sin- fóníunar felur í sig mörg störf, þannig verður þetta mikil vinnuhelgi. Eftir tónleikana þarf að taka saman eftir þá, því við verðum að skila kirkjunni í því ástandi sem við tökum við henni.“ „Við hjónin verðum að gera eitthvað skemmtilegt með stráknum okkar, “ segir Andri Snær Magnason. Heimilsleg fjölskyldu- stemmning „Eg er ckkcrt búinn að ákveða hvað ég ætla að gera um helgina. Eg fer út að borða með vinum mínum þremur en það er ekki ákveðið hvert við förum. Ætli það verði ekki í heimilislegri Ijöl- skyldustemmningu. Við hjónin verðum að gera eitthvað skemmtilegt með stráknum okkar,“ segir Andri Snær Magnason, rithöfundur. Hann segist vera að stfga upp úr vinnutörn og því hafi hann ekki mátt vera að því að skipu- leggja helgarnar. Andri lauk nýlega við tvær bækur, barnabók og bók um verk Isaks Harðar- sonar. Auk þcss sem hann er að vinna að marg- miðlunardiski fyrir Hafrannsóknastofnunina. Ungur vakti Ástþór Magnússon athygii - ekki fyrir hárvöxtinn eða köflótta jakk- ann - heldur fyrir störf sín sem ijósmyndari á Vísi. Og síðarsetti hann á fót framköllunarþjónustu, sem reyndar gekk upp og ofan. Þegar Ástþór hætti í myndasmíðinni kaus hann að helga sig baráttunni fyrir friði í heiminum og hefur ekki legið á liði sínu, meira að segja svo hraustiega að stundum hefur þótt tiiefni tii að ætia hið gagnstæða. ■ LÍF OG LIST Stór stafli á náttborðinu „Ég er að klára að þýða bók þessa dagana, Djöflana eftir Dostojevskí. Þá má maður ekkert vera að því að lesa neitt annað," segir Ingibjörg Haraldsdóttir, rithöfundur. „Það er dálítið stór stafli af bókum á náttborðinu hjá mér. Eg hef verið að glugga í skáldaævisögu Guðbergs, ég er enn- þá með fyrsta bindið, Faðir, móðir og dulmagn bernskunnar. Ég Ies í henni svona sfðustu fimm eða tíu mínúturnar áður en ég sofna.“ þá er maður ekki að hlusta eftir textunum. Þetta er svona tónlist við vinnuna." Hvorki farið né leigt spólu „Ég hef hvorki fari í bíó né leikhús í marga mánuði og þaðan af síður leigt mér mynd- bandsspólu. Ég hef einstaka sinnum kveikt á sjónvarpinu ef það hefur verið eitthvað þar sem mig hefur Iangað til þess að sjá. Ég var síðast að horfa á sænska þætti sem hétu Skerjagarðslæknirinn. Annars fer ég að skila bókinni af mér og þá fer ég að lifa eðlilegu lífi.“ Píanókonsertar „Þegar maður er að vinna svona vinnu má maður ekki vera að því að hlusta á mik- ið af tónlist. Það eru tveir diskar sem ég hlusta á til skiptis. Það er rússneskur pfanóleikari sem spiiar píanókonsert eftir Rachmaninov, sem ég held mikið uppá. Hinn diskurinn er með mjög góðum kúbönskum píanóleikara sem heitir Frank Fernandes. Hann spilar þar píanóverk eftir kúbönsk tónskáld. Þau eru flest eftir Ernesto Lecuona, sem var mjög frægur fyrir allöngu. Svona verk hljóma best þear að maður er að vinna. Þau trufla minnst, ■ fra degi Imyndið ykkur skaparann sem lélegan grínista, og samstundis verður heimur- inn skiljanlegur. H. L. Menckcn Þau fæddust 22. október • 1769 fæddist Jón Espólín sýslumaður. • 1811 fæddist ungverski pfanósnilling- urinn og tónskáldið Franz Liszt. • 1844 fæddist franska leikkonan Sarah Bernhardt. • 1919 fæddist breska skáldkonan Dor- is Lessing. • 1920 fæddist bandanski sálfræðingur- inn, rithöfundurinn og dópistinn Timothy Leary. • 1925 fæddist bandaríski Iistmálarinn Robert Rauschenberg. Þetta gerðist 22. október • 4004 fyrir Krist átti Guð að hafa skapað heiminn samkvæmt útreikn- ingum írska biskupsins James Ussher, sem UBBhOT öld. Nánar TIL DAGS tiltekið átti sköpunin að hafa átt sér stað klukkan átta að morgni. • 1253 brenndu Sturlungar bæinn að Flugumýri í Skagafirði og fórust þar 25 manns. • 1844 biðu sjöunda dags aðventistar árangurslaust eftir endurkomu Jesú Krists. • 1859 lýsti Spánn yfir stríði á hendur Marokkó. • 1875 tók Jóhann Karl við konung- dæmi á Spáni eftir að Francisco Franco hershöfðingi lést. • 1954 gengu Þjóðverjar í Atlantshafs- bandalagið. • 1978 tók Jóhann Páll II. við páfa- dómi. Vísa dagsins Það er súrt að sofnafrá söngum minna fljóða, enga mjúka arma fá eða vtnið góða. Þorstcinn Erlingsson i incjq3>Iaiu.b h^uihójcjlb i Hucj uucj óifilcr Afmælisbam dagsins Bergþór Pálsson, óperusöngvari, fæddist 22. október árið 1957. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um við Sund árið 1978 og fór þá í söngnám til Bandaríkanna og tók meistarapróf í tónlist fra Indíanahá- skóla í Bloomington árið 1987 og tíu árum seinna fékk hann diplómu í Ieiklist firá Roy Samuelsson Drama Studio í London. Hann hefur tekið þátt í ótal óperuuppfærslum og hald- ið fjölda einsöngstónleika hér heima og erlendis. tz rrrrr mrTEsnnb rrn? nrcj gu nuuu r Flóttinn úr fangelsinu Nokkrir fangar höfðu gert tilraun til að flýja úr fangelsinu, !;en voru gripnir á hlaupum rétt fyrir utan fangelsislóðina. Fangelsisstjórinn kallaði þá á sinn fund og vildi fá að vita tvennt: Hvers vegna þeir hefðu reynt að flýja og hvernig þeim hefði tekist að komast út. „Þessu er einfalt að svara,“ sagði einn fanganna. „Það er ekki nema ein ástæða fyrir því að við reyndum að flýja, og það er maturinn. Hann er svo hræðilegur að það er engin leið að Iifa við það.“ Og hin spurningin, sagði fangelsis- stjórinn: „Hvernig tókst ykkur eigínlega að höggva rimlana í sundur? Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að vita það, því þeir eru sérstaklega styrktir með splunkunýrri aðferð.“ Og þar áttu fangarnir líka einfalt svar: „Við notuðum bara ristabrauðið sem við fengum í morgunmat!-“ Veffang dagsins Grænar umhverfisfréttir vikulega frá Dan-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.