Dagur - 22.10.1999, Síða 5

Dagur - 22.10.1999, Síða 5
Tfc^ur FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 - 21 LEIKHÚS KVIKMYNDIR TÓNLIST SKEMMTANIR Hér eru margir snillingar Fimm starfsmenn Ráð- húss Reykjavíkur opna listsýningu á morgun í Tjamarsalnum. „Kveikjan að þessari sýningu er sú að ég hef tvisvar á undan- förnum tveimur árum sett upp sýningar í matsal Ráðhússins á eigin teikningum og vatnslita- myndurn," segir Friðrik Bridde bílstjóri, aðal hvatamaður að sýningunni. „Þetta hafa verið grínmyndir af sjálfum mér á vinnustaðnum og samstarfsfólk- inu og þær voru bara fyrir okkur sjálf. En í framhaldinu kom í ljós að það er fjöldi fólks að vinna hér í húsinu sem fæst við eitt og annað listrænt í frístund- um og lumar á ýmsu í handrað- anum. Við hefðum þess vegna getað verið fleiri að sýna hér núna en sumir voru ekki tilbúnir og aðrir höfðu farið á mis við til- kynninguna sem send var út þannig að á næstu sýningu verð- um við fleiri. Hér eru svo margir snillingar. Við erum fimm sem stöndum að sýningunni núna. Sjálfur ætla ég að sleppa teikningum og vatnslitum og sýna bara olíu- myndir í mörgum stærðum. Svo er Sigríður Kærnested símavörð- ur með olíu- og vatnslitamyndir, „Við höfum öll auga fyrir formum og línum. Við sjáum svo mikið afandlitum íþessu húsi alþýðunnar að við festumst í þessu. hún er búin að vera á ýmsum námskeiðum og ná góðu valdi á listinni. Erla Magnúsdóttir, full- trúi í upplýsingaþjónustu, verð- ur með sýningu á andlitsgrímum sem hún skreytir með ýmsu móti. Hún hefur tekið þátt í fleiri samsýningum og er vön. Svo er leirkerasmiðurinn okkar hún Þuríður Bergmann ræsti- tæknir sem verður með skálar og ýmsar fígúrur úr leir. Og Elín Þórðardóttir fulltrúi í borgar- endurskoðun er flinkur ljós- myndari og sýnir litaðar myndir sem hún hefur tekið, meðal annars hér í nágrenni við húsið. Við höfum öll auga fyrir form- um og Iínum. Við sjáum svo mikið af andlitum í þessu húsi alþýðunnar að við festumst í þessu. Höfum verið að bauka við þessa tómstundaiðju hvert í sínu horni og þetta bauk er að verða að þó nokkuð skemmtilegri sýningu. Þó verða þetta aldrei annað en stikkprufur því það besta geymum við heima! Sýning- in er aðallega hugsuð til að peppa upp fleiri starfsmenn og draga þá út úr skápunum! Forráðamenn hússins eru spenntir fyrir því að endurtaka þetta ef vel tekst til og virkja fólkið meira á listasviðinu. Aðalatriðið er auðvitað að hafa gaman af þessu. GUN. Gjalir andans um helgina Snemma á þessu ári fór af stað samkeppni um útilistaverk á Ak- ureyri, í tengslum við að 1000 ár eru frá kristnitöku á Islandi og landafundum Norður-Ameríku. Verkið skildi taka mið af upphafi nýrrar aldar og nýs árþúsunds og með hugsanlegri skírskotun til sögu eða sérkenna héraðsins. Samkeppnin var tvískipt. Fyrri hlutinn var almenn hugmynda- samkeppni, var þátttaka mjög góð og bárust alls 62 tillögur. Dómnefnd, skipuð fulltrúum frá Akureyrarbæ og Sambandi ís- lenskra myndlistarmanna, valdi úr hugmyndunum 5 verk. Höf- undar þeirra verka tóku síðan þátt í lokaðri samkeppni um það hvaða verk yrði fyrir valinu sem nýtt útilistaverk á Akureyri. Laugardaginn 23. október verður opnuð sýning í Deigl- unni, Listagili á Akureyri á þeim 5 verkum sem valin voru í lok- uðu samkeppnina. Við opnun sýningarinnar kl. 15.00 verður tilkynnt um hvaða verki dóm- nefndin mælir með til frekari út- færslu og framkvæmda. Sýning- in stendur til 31. október. Útgáfutónleikar Björn Steinar Sólbergsson, org- anisti og Margrét Bóasdóttir, sópransöngkona, efna til út- gáfutónleika í tilefni af nýút- »1*^1 £ Björn Steinar Sólbergsson. kominni geislaplötu sinni „Gjafir andans“ í Langholts- kirkju sunnudaginn 24. októ- ber kl. 20.00. Á tónleikunum flytja Björn og Margrét íslenska kirkjutón- list, forna og nýja, en það er viðfangsefni geislaplötunnar. Efnisskráin spannar allt frá Lilju Eysteins Ásgrímssonar, munks, til nýrra verka m.a. eft- ir Atla Heimi Steinsson, Hjálmar H. Ragnarsson og Jónas Tómasson. Einnig leikur Björn íslensk orgelverk, en sér- stakan sess skipa verk Tóns «vTu ><( lií-vii go iiti ibi Margrét Bóasdóttir. Leifs og ber þar hæst „Faðir vor“, en þessi stórbrotna tón- smíð heyrist sjaldan. Josef Ognibene, hornleikari, leikur einnig með Margréti og Birni á þessum tónleikum. Þess ber að geta, að þetta verða fyrstu einsöngstónleik- arnir sem hljóma með nýja org- elinu í Langholtskirkju. Sjöunda starfsárið Sinfóníuhljómsveit Norður- lands heldur fyrstu tónleika vetrarins sunnudagin 24. októ- ber í Glerárkirkju á Akureyri kl. njifaQiurnin-intHtn jjo ant. i .<i. Guðmundur Úli Gunnarsson. 16.00. Einsöngvari er Signý Sæmundsdóttir, sópran, stjórn- andi er Guðmundur Óli Gunn- arsson. Hljómsveitin hefur haldið fimm stóra tónleika á hverjum vetri síðan hún tók til starfa fyrir sex árum. Á efnisskránni fyrir hlé eru verk eftir: J. Strauss, Fanz Lehár, R. Stolz, E. Waldteufel, E. Kálmán og J. Strauss, yngri, en eftir hlé verða fluttir sex kaflar úr Divertissement eftir Jaeques Ibert. — W im PillUíJuqqoi<> <«> iii v< nntifj óa im fritniv óiV UM HELGINA Dagskrá um Giinter Grass Starfsemi Lista- klúbbs Leikhús- kjallarans í vetur hefst mánudags- kvöldið 25. októ- ber með dagskrá um rithöfundinn Gúnter Grass sem fyrir GunterGrass. skemmstu hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels. Rithöfundar og fræðimenn Ijalla um höfundinn og verk hans, m.a. Bjarni Jónsson, þýðandi „Blikktrommunnar“, sem Vaka-Helgafell gefur út. Aðrir eru: Ami Bergmann, Einar Már Guðmundsson, Jór- unn Sigurðardóttir, Peter Weiss, lektor við Háskóla Is- lands, Hjálmar Sveinsson og Jón Proppé, sem beinir sjón- um að myndlistarmanninum Gúnther Grass. Einnig kemur fram tónlistarfólkið Margrét Bóasdóttir og Pétur Jónasson. Dagskráin hefst kl. 20.30 en húsið verður opnað kl. 19.30. Jass og blús með Aiidreu Andrea Gylfadóttir mun ásamt okkar betri gítarleikurum, Eð- varði Lárussyni og Guðmundi Péturssyni, halda tónleika í Kaffileikhúsinu föstudaginn 22. október. Tónleikamir verða blanda af jass, blús og íslenskum dægur- lögum úr öllum áttum. Einnig megum við búast við að tríóið taki nokkur lög af Blúsmanna- diskinum sem kom út um síð- ustu jól. Þeir Eðvarð og Guð- mundur munu spila fýrri part tónleikanna á klassíska gítara en seinni hlutinn verður flutt- ur á rafmagnsgítara. Kvöldverður verður borinn fram ld. 21 en tónleikarnir heljast kl. 23. Hægt er að panta miða allan sólarhringinn í sfma 551 9055. Skyggnusýnmg Nan Goldin Skyggnusýning með um 800 myndum eftir listaljósmyndar- ann Nan Goldin verður í Há- skólabíói í kvöld og á morgun. Myndirnar renna saman í eitt, mynda eins konar sjálfsævisögulega dag- bók um líf listakonunnar meðal eiturlyfjaneytenda, kynskiptinga, ldæðskiptinga og eyðnisjúklinga. Myndir Nan Goldin hafa farið sigur- för um heiminn á undanföm- um árum. Þær lýsa viðfangs- efninu oft af miskunnarlausu raunsæi, en jafnframt af djúpri samkennd og innlifun sem er um leið hlaðin erótík. Eftir sýningamar kemur Nan Goldin sjálf fram og ræðir við áhorfendúr. Sýningin í kvöld hefst kl. 21.15 og á morgun kl. 15.00. Ljósmyndasýningu Nan Goldin í Listasafni Islands lýkur nú á sunnudag, 24.10. og er því hver að verða síðast- ur að sjá hana. Nan Goldin •ul8* Hl jjðti iilifci im á«* Autj nnþpth/I Hig-jtJ mtufiiotl ii uqqiU 6u iit Au

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.