Dagur - 02.11.1999, Qupperneq 3
Ðxgur
ÞRIÐJVDAGU R 2. NÓVEMBER 1999 - 3
Starfsmenn ískrafts á Akureyri, þeir Gunnar Austfjörð, Ólafur Jensson og Þröstur Vatnsdal, i vistlegum húsakynn-
um fyrirtækisins við Hjalteyrargötu. mynd: gg
Akureyri, Reykja-
vík - sama verð
Rafiðnaðarverslunin Iskraft í
Kópavogi hefur opnað útibú að
Hjalteyrargötu 4 á Akureyri, scm
þjóna mun svæðinu frá Blöndu-
ósi austur á Vopnafjörð. Fram-
kvæmdastjóri á Akureyri verður
Olafur Jensson en sölufulltrúar
Gunnar Austfjörð og Þröstur
Vatnsdal.
lskraft er alhliða heildverslun
með rafbúnað svo sent raflagna-
efni, rafstrengi, lýsingarbúnað,
rafveituefni og annað sem að raf-
lögnum snýr. Sama verð er boðið
í Reykjavík og á Akureyri. Olafur
Jensson segir að með tilkomu
útibúsins á Akureyri sé hug-
myndin að bæta verulega þjón-
ustuna við viðskiptavinina á
Norðurlandi og auka einnig
markaðshlutdeildina. Með rúm-
góðu húsnæði sé mögulegt að
hafa stóran og góðan vörulager
sem sé mikilvægt fyrir rafverk-
taka og byggingaraðila. - GG
Áætlanir Eiríks Bj. Björgvinssonar íþrótta- og tómstundafulltrúa um kostnað við að gera Akureyrarvöll landsmóts-
hæfan eru ekki byggðar á útreikningum verkfræðilegra rannsókna á vellinum, heldur samanburði á sambæri-
legum framkvæmdum í öðrum sveitarfélögum og ber því að taka með fyrirvara.
120 milljómr til
aö laga voilinn?
Eiríkur Bj. Björgvinsson, íþrótta-
og tómstundafulltrúi Akureyrar-
bæjar, hefur skilað til bæjarráðs
viðbótarupplýsingum sem ráðið
óskaði eftir varðandi kostnað
samfara því að endurbæta frjálsí-
þróttaaðstöðu í hænum þannig
að hægt verði að halda hér lands-
mót U.M.F.Í. Eiríkur vann fyrr á
árinu skýrslu um uppbyggingu og
endurnýjun íþróttavalla á Akur-
eyri þar sem fram koma upplýs-
ingar um hugsanlegan kostnað
við að breyta Akureyrarvelli en
þar kcmur fram að umræddur
kostnaður gæti verið um 120
milljónir króna. Eiríkur tekur þó
fram í svari sínu til bæjarráðs að
hafa beri í huga að tölurnar séu
ekki byggðar á útreikningum
verkfræðilegra rannsókna á vell-
inum sjálfum, heldur saman-
hurði á sambærilegum fram-
kvæmdum í öðrum sveitarfélög-
um. Hann telur rétt að fram-
kvæmdanefnd bæjarins óski eftir
nákvæmari útreikningum frá
byggingadeild eða hlutlausri
verkfræðistofu.
Bæjarráð óskaði ennfremur
eftir upplýsingum um framlag
ríkisins til breytinga á íþróttaað-
stöðu í öðrum bæjarfélögum
vegna landsmótshalds. Ríkið
lagöi 100 milljónir í endurbætur
á Laugarvatni en þess ber að
gæta að íþróttamannvirki þar eru
í eigu ríkisins. Ríkið lagði fram
15 milljónir vegna landsmóts i
Borgarbyggð, 10 milljónir fara til
endurbóta á Tálknafirði og í
Vesturbyggð vegna unglinga-
landsmóts á næsta ári og rciknað
er með 35 milljóna króna fram-
lagi ríkisins vegna landsmóts á
Egilsstöðum árið 2001. - HI
Ekki ljóst um eldsupptök
Ekki er enn ljóst hver voru eldsupptök þegar íbúðarhús á Grenivík
brann á laugardagskvöld. I lúsið er forskalað timburhús og er talið
gjörónýtt. Eldurinn kom upp í kjallara og breiddist mjög hratt út.
Málið er í rannsókn og hefur Iögreglan ákveðnar grunsemdir en vildi
þó ekki gefa neitt upp um þær í gær eftir að lögreglumenn úr rann-
sóknardeild Lögreglunnar á Akureyri höfðu rannsakað verksum-
merki. - m
MAinaraþonlestur
Maraþonlestur á sívaxandi vinsældum að fagna og nú um helgina
settust nemendur á þriðja ári í MA niöur og lásu í sólarhring. Ekki
skal Ijölyrt um hollustu slíks lestrar en tilgangur nemendanna var að
safna peningum í ferðasjóð vegna útskriftarferðar næsta haust.
Gengið var í fyrirtæki í bænum og áheitum safnað. Við höfum að vísu
ekki nákvæmar fréttir af því hve Iangt nemendurnir komast fyrir féð
sem safnaðist um helgina en hitt vitum við að maraþonhugleiðingar
menntskælinga eru ekki alveg horfnar eftir bóklesturinn því eftir ára-
mót er stefnt að maraþonruslatínslu. Verður forvitnilegt að sjá hvern-
ig bærinn lítur út eftir þá uppákomu menntskælinganna.
Þroskahjálp með starfsmann
Þroskahjálp á Norðurlandi eystra hefur ráðið Lilju Ragnarsdóttur
starfsmann á skrifstofu sína í Kaupangi við Mýrai-veg.
Starfsmaður er stuðningsaðili foreldra fatlaðra barna og annarra
aðstandenda þeirra og veitir þeim ráðgjöf. Þjónusta hans stendur öll-
um foreldrum fatlaðra til boða. Ef þess er óskað getur hann bent
ungum foreldrum á foreldra, sem hafa reynslu af umönnun fatlaðs
barns og sett þá í samband við félagið. Hann sér um að hafa til taks
upplýsingar um réttindi og þá þjónustu sem stendur til boða, útveg-
ar lög og reglugerðir, fræðsluefni er varðar málefnið og upplýsingar
um fundi og svo framvegis.
Starfsmaður setur sig í samband við alla þá aðila sent þjóna fötluð-
um og leggur sitt af mörkunt til þess að kerfið vinni sem best með
foreldrum og veiti þeim sem besta þjónustu.
Skrifstofan verður opin frá 14:00 -17:00 mánudaga og þriðjudaga
og frá kl 10:00 - 13:00 miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga, frá
og með dcginum í gær.
Hlutavelta til styrktar Rauða
krossinum
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu í Hrísalundi á Akureyri i október og
söfnuðu 3.002 krónur til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita [f.v]
Ester Vilhelmsdóttir, Jónína Björg Helgadóttir, Helga Þóra Helgadóttir og
íris Hrönn Hreinsdóttir.