Dagur - 02.11.1999, Side 4
4 - ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999
, AKUREYRI NORÐURLAND
boltaleíkjiiin.
Stjörnuhrap varð í KA-heimilinu
sl. föstudag hjá KA í 1. deildinni er
liðið mætti Stjörnunni. Flestir
reiknuðu með tiltölulega auðveld-
um sigri KA eftir gott gengi í síð-
ustu leikjum og stórum sigrum
gegn Fram og IBV, en því fór
fjarri. Nokkrir áhangendur
Stjömunnar komu með Iiðinu og
létu vel í sér heyra þrátt fyrir of-
urefli hvatningarhrópa og trumbu-
sláttar heimamanna. Það var þó
algjörlega taktlaust af Garðbæing-
unum að reyna að trufla kynning-
ar á leikmönnum.
Fyrsta markið kom ekki fyrr en á
6. mín. er Lars Walther skoraði
fyrir KA en Stjarnan komst í eins
marks forystu á 9. mín., 4-3, og
sleppti henni ekki eftir það. KA-
liðið var að spila illa, ótímabær
skot frá Lars og Bo Stage sem
vömin tók eða Birkir Guðmunds-
son varði auðveldlega, en hann
varði 16 skot í Ieiknum. I hálfleik
var staðan 13-10 fyrir Stjömuna
eftir að Stjaman komst í 13-8.
í sfðari hálfleik tókst KA að
jafna 19-19 á 17. mfn. en þá kom
þáttur Konráðs Olavssonar sem
setti hvert markið af fætur öðru
Lars Walther skoraði fyrsta markið í leik KA gegn Stjörnunni.
með því að koma út úr horninu og
stökkva upp fyrir framan hripleka
vöm KA og skora, en mörkin hans
urðu alls 8. Þá skömmu áður hafði
Jónatan Magnússon, sem hafði átt
ágætan leik, farið af leikvelli
meiddur eftir fólskulegt brot Am-
ars Péturssonar á honum, en Arn-
ar komst upp með það nánast all-
an leikinn af arfaslökum dómur-
um leiksins, þeim Bjarna Viggós-
syni og Valgeiri Omarssyni, að fara
sífellt í andstæðinginn í stað bolt-
ans án þess svo mikið sem að fá
tiltal. Handbolti er harður leikur,
en eins og Arnar og félagar í
Stjömunni léku vörnina veldur því
aðeins að áhorfendum fækkar. Út-
affekstur er það eina sem svona
„hetjur" skilja og það þurfa dómar-
arnir að skilja einnig.
Jóhann G. Jóhannsson minnk-
aði muninn í 25-26 þegar rúm
mínúta var til leiksloka og kveikti
smá vornarneista, en hann slokkn-
aði þegar Moskalenko skoraði 27.
mark Stjörnunnar og innsiglaði
sanngjarnan sigur þeirra. Bo Stage
var markahæstur KA-manna með
7 mörk, Lars Walther gerði 5,
Guðjón Valur Sigurðsson 4,
Magnús Agnar Magnússon 4 og
eitt mark gerðu Halldór Sigfússon
(úr víti), Þorvaldur Þorvaldsson,
Jóhann G. Jóhannsson, Heimir
Arnason og Jónatan Magnússon.
Beynir Þór Reynisson varði 16
skot, þar af tvö víti. Næsti leikur
KA er gegn IR næsta föstudag í
Breiðholtinu.
GG
Dalvfldngar
stóðu 1
Selfyssingum
Lið Dalvík-
inga í
körfuknatt-
leik, sem
leikur í 2.
deildinni,
stóð í liði
Selfyssinga
er liðin
léku í 32
liða úrslit-
um í körf-
unni á Dalvík sl. Iaugardag.
Selfyssingar, sem leika í 1.
deild, unnu leikinn 80-74. Lið
Smára í Varmahlíð tapaði fyrir
GG í Grindavík 63-58, en lið
Tindastóls vann lið Ar-
manns/Þróttar sannfærandi
115-69. Þórsarar tóku á móti
Isfirðingum og voru slegnir út í
leik sem var í járnum megnið
af leiktímanum. Urslit urðu
91-82, ísfirðingum í vil.
Bandaríkjamaðurinn Myers lék
ekki með Þór vegna meiðsla.
Tindastóll vann Isafjörð á
föstudagskvöldið 73-58 og
vann þar með þriðja leikinn í
röð gegn Isfirðingum en þeir
unnu báða leikina í Eggjabik-
arnum gegn þeim. Kristinn
Friðriksson var bestur Stól-
anna, skoraði 15 stig en Lárus
Pálsson 16 stig en aðrir leik-
menn færri enda stigaskor lágt.
Næsti leikur Dalvíkinga er
gegn Skotfélagi Akureyrar á
Dalvík næsta laugardag og í
sömu deild leika þann dag
Smári gegn íþróttafélagi
Laugaskóla í Reykjadal, og fer
sá leikur fram í Varmahlíð. I
úrvalsdeildinni leikur Tinda-
stóll gegn Skallagrími í Borgar-
nesi næsta fimmtudag og Þór
leikur gegn KR næsta föstudag
í Iþróttahöllinni á Akureyri.
GG
KA brotlenti gegn
Stjömunni
Grófux, jafnvel rudda
legur vamarleikur eins
og sást í KA-heimilinu
á föstudaginn, veldur
eingöngnþví ad áhorf-
endiiin fækkar á liand-
KA tapaði
fyrirlS
KA vann tvær hrin-
ur í leiknum á laug-
ardag og jafnaði
leikinn, en tapaði
oddahrinunni.
KA lék sína fyrstu leiki í
kvennaflokki í blaki um helg-
ina, og var leikið gegn liði
Stúdína, sem hampaði Is-
landsmeistaratitlinum síðasta
vor. ÍS vann KA 3-0 á föstu-
dag og síðan 3-2 á laugardag.
Nokkra Ieikmenn vantaði í
bæði liðin m.a. vegna veik-
inda og Mike þjálfari KA seg-
ir að KA hafi misst af^óðum
möguleika á að Ieggja IS Iiðið
að velli. I lið KA vantaði m.a.
lykilleikmenn eins og Karenu
Gunnarsdóttur, Hildigunni
Magnúsdóttur og Ashley
Todd. Ungir leikmenn léku
því með KA-Iiðinu vegna
þessara forfalla, m.a. María
Indriðadóttir, sem sýndi að
þar fer mikill framtíðarleik-
maður í kvennablakinu. Fjór-
ir leikmenn skoruðu meira en
10 punkta, þær Birna Bald-
ursdóttir með 18 punkta,
Jóna Harpa Viggósdóttir 16
punkta, Ágústa Tryggvadóttir
12 punkta og Eygló Arnars-
dóttir 10 punkta. Jóhanna
Hreinsdóttir lék leikina veik,
og sýndi þar mikinn karakter
og fórn fyrir liðsheildina.
Seinni leikurinn var sýnu
betri hjá KA og sáralítið vant-
aði upp á að vinna hann.
Leikurinn á föstudag fór þannig
að IS vann fyrstu hrinuna 28-
26, aðra hrinuna 25-22 og þá
þriðju 25-23 svo aldrei var
munurinn afgerandi. Á Iaug-
ardag vann IS fyrstu hrinuna
25-20, aðra hrinuna 25-22 en
þá tók KA-liðið við sér og
vann tvær næstu hrinur 29-
27 og 25-13, og leikurinn í
járnum. Síðustu hrinuna
vann ÍS 16-14. Þrátt fyrir
tapið er ljóst að KA-stúlkurn-
ar munu bíta frá sér í vetur og
full ástæða til þess að hvetja
fólk til að mæta á heimaleiki
liðsins. Næstu leikir eru gegn
Þrótti Reykjavík 19. og 20.
nóvember í KA-heimilinu.
GG
Markvörður Vfldngs
„sökkti“ KA/Þór
KA/Þórs stúlkur skor-
uðu aðeins 5 mörk í
íyrri hálfleik gegn Vík-
ingi er liðin mættust í 1.
deild kvenna um helg-
ina. KA-Þórs stúlkur
reyndu hvað þær gátu
en þröskuldurinn sem
þær komust ekki yfir var
Helga Torfadóttir,
markvörður Víkings,
sem Iokaði markinu
Iengst af og varði alls 19
skot í leiknum. Það var
stærri biti en svo að
hægt væri að kyngja auk
þess sem vörnin hjá
Víkingsstúlkum var
mjög ákveðin og gaf
engan grið. I hálfleik
var staðan 10-5 fyrir
Víking.
Heldur lagaðist leikur
KA-Þórs í síðari hálf-
leik, en síðari hálfeikur
endaði með jafntefli, 8-
8, leikurinn því 18-13 fyrir Vfk-
ing. Örvhenta skyttan Ásdís Sig-
urðardóttir var Iang markahæst
KA-Þórs stúlkna með 7 mörk og
ljóst að dvöl hennar í biðröð fyr-
ir framan nýja BT-verslun á Ak-
ureyri nóttina áður til þess að ná
í ódýran GSM-síma hafði ekki
slæm áhrif á getu hennar, nema
síður væri. „Gamla brýnið“ Þór-
unn Sigurðardóttir gerði 3 mörk,
stúdentsefnið Heiða Valgeirs-
dóttir 2 mörk og Inga Huld Páls-
dóttir 1 mark. Hjá Víkingsstúlk-
um var Heiðrún Guðmundsdótt-
ir markahæst með 6 mörk. Næsti
leikur KA/Þórs er gegn IR í Aust-
urbergi næsta laugardag, 6. nóv-
ember.
Sömu lið léku einnig í 2.
flokki kvenna á sunnudag-
inn, en þá vann KA/Þór
stórsigur á Víldngi, 27-14.
Þar var Ásdís Sigurðar-
dóttir einnig atkvæðamest
og skoraði alls 10 mörk og
því alls 17 möyk f tveimur
leikjum um helgina. Inga
Dís Sigurðardóttir skoraði
6 mörk, en þar er á ferð-
inni mikið efni, en hún er
aðeins 16 ára gömul. Og
sjaldan fellur eplið langt
frá eiltinni, því hún er
dóttir Þórunnar Sigurðar-
dóttur, leikmanns meist-
araflokks KA/Þórs og Sig-
urðar Pálssonar, sem Iék á
árum áður með Þórsurum
við góðan orðstí. Hulda Sif
Ásmundsdóttir gerði 3
mörk , Eyrún Gígja Kára-
dóttir og Arna Pálsdóttir 2,
en eitt mark gerðu Þór-
hildur Björnsdóttir, Marta Her-
mannsdóttir, Heiða Valgeirsdótt-
ir og Þóra Atladóttir. Það þarf
sannarlega ekki að kvíða framtíð-
inni í handknattleik kvenna á Ak-
ureyri með þennan efnivið ef
„stóru" liðin í Reykjavík ná ekki
að skera stóra bita úr þeirri góðu
köku. GG