Dagur - 04.11.1999, Side 2
2 - FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999
SUÐURLAND
Útvarp
Suðurlands
Fimmtudagurinn 4. nóvember
07:00-09:00 Góöan dag Suöurland. Sigurgeir H.
09:00-12:00 Allt Önnur Ella Soffía M. Gústafsd.
12:00-13:00 Meö matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guömunds
17:00-18:25 Á ferö og flugi. Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suöurlands. Guörún H.
19:00-22:00 Sportröndin. Fanney og Svanur
22:00-01:00 Kvöldsigling / Þóröur Ó. og Kjartan B.
Föstudagurinn 5. nóvember
07:00-09:00 Góöan dag Suðurland. Sigurgeir H.
08:20-09:00 Svæöisútvarp Suðurlands. Soffía S.
09:00-12:00 Allt Önnur Ella. Soffía M. Gústafs.
12:00-13:00 Meö matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guömunds
17:00-18:25 Á ferö og flugi. Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæöisútvarp SuÖurlands. Guörún
19:00-20:00 íslenskir tónar. Jóhann Birgir
20:00-22:00 Dýsel. Unnar Steinn
22:00-01:00 Lífiö er Ijúft. Valdimar Bragason
Laugardagurinn 6. nóvember
09:00-12:00 Morgunvaktin. Valdimar Bragason
12:00-13:00 íslenskt tónlistarhádegi. Jóhann
13:00-16:00 Vanadísin. Svanur Gísli
16:00-19:00 Tipp topp. Gulli Guömunds
19:00-22:00 Draugagangur. Kiddi Bjarna
22:00-01:00 Bráöavaktin. Eyvi og Anton
Sunnudagurinn 7.nóvember
09:00-10:00 Heyannir. Soffía Sigurðardóttir
11:00-13:00 Kvöldsigling (e). ÞórÖur og Kjartan
13:00-15:00 Tóneyraö. Skarphéöinn
15:00-17:00 Árvakan. Soffía M. Gústavsdóttir
17:00-19:00 Davíðssálmar. Davíö Kristjánsson
19:00-20:00 íslenskir tónar. Jóhann Birgir
20:00-21:00 Elvis frá A-Ö. Jói og Halli
21:00-22:00 Spurningakeppni HSK. Valdimar
22:00-24:00 Sögur og klassík fyrir svefnin. Soffía
Mánudagurinn 8. nóvember
07:00-09:00 Góöan dag Suöurland. Sigurgeir H.
09:00-12:00 Allt Önnur Ella. Soffía M. Gústafs.
12:00-13:00 Meö matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guömunds
17:00-19:00 Á ferö og flugi. Valdimar Bragason
19:00-20:00 Meö matnum. Tölvukallinn
20:00-21:00 Spurningakeppni HSK (e). Valdimar
21:00-22:00 Heyannir (e). Soffía Siguröardóttir
22:00-24:00 Dag skal aö kveldi lofa. Sigurgeir H.
Þriöjudagurinn 9. nóvember
07:00-09:00 Góöan dag Suöurland. Sigurgeir
09:00-12:00 Allt Önnur Ella. Soffía M. Gústafs.
12:00-13:00 Meö matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-19:00 Á ferö og flugi. Valdimar Bragason
19:00-22:00 Skeggjaöa beljan. Vignir Egill
22:00-24:00 í minningu meistarana. Jón Hnefill
Miövikudagurinn lO.nóvember
07:00-09:00 Góöan dag Suöurland. Sigurgeir H.
09:00-12:00 Allt Önnur Ella. Soffía M. Gústafs.
12:00-13:00 Meö matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guömunds
17:00-18:25 Á ferö og flugi Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suöurlands. Guörún
19:00-20:00 Meö matnum. Tölvukallinn
20:00-22:00 Árvakan (e). Soffía M. Gústafsdóttir
22:00-24:00 Meira en orö. Sigurbjörg Grétarsd.
Fimmtudagurinn11 .nóvember
07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir H.
09:00-12:00 Alit Önnur Ella. Softía M. Gústafs.
12:00-13:00 Með matnum. TölvuKallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-18:25 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands. Guðrún
19:00-22:00 Spodröndin. Fanney og Svanur
22:00-01:00 Kvöldsigling. Kjadan Björnsson
VTESTMANNAEYJAR
Menntanetið til Eyja
Ríkið hefur nú ákveðið að selja nlut sinn í Islenska menntanetinu og
í framhaldi af auglýsingu hefur bæjarráð Vestmannaeyja samþykkt að
leita, á grundvelli tillögu frá bæjarfulltrúum minnihlutans, allra leiða
með hagsmunaaðilum að fá Islenska menntanetið til Vestmannaeyja
og skapa þannig aukin störf í Vestmannaeyjum. Málið þarf að vinn-
ast hratt, en tilboð í fyrirtækið verða opnuð þann 1 1. nóvember. Mál
þetta var til umfjöllunar á bæjarráðsfundi nýlega.
Fallið frá forkaupsrétti
Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja þann 11. október lá fyrir bréf frá
skipasölunni Álasundi, fyrir hönd Ufsabergs hf., ásamt kaupsamn-
ingi á ms. Gullfaxa VE 192, þar sem óskað er eftir að hæjarráð falli
frá forkaupsrétti á bátnum. Bæjarráð samþykkti erindið lyrir sitt
leyti.
Minnt á hlutverk flugvallar
Málefni Reykjavíkurflugvallar bar á góma á fundi bæjarráðs Vest-
mannaeyja á dögunum. I bókun sem samþykkt var á fundinum segir
að bæjarráð minni „...á þá ábyrgð og skyldur sem Reykjavíkurborg
hefur gagnvart Iandsbyggðinni en í höfuðborginni er miðja stjórn-
sýslu ásamt því að þar er að finna höfuðstöðvar mennta-, menning-
ar- og viðskiptalífs landsins. Bæjarráð skorar á borgarstjórn að hafa
þetta í huga þegar fjallað er um framtíðarstaðsetningu innanlands-
flugvallarins en flugvöllurinn er þungamiðja í samgöngum allrar
þjóðarinnar."
Óhreyttur Herjólfur
Fjallað var um málefni Flerjólfs á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja á
dögunum en þar var tekin til umfjöllunar fundargerð frá aðalfundi
l lerjólfs hf., sem haldinn var 25. september síðastliðinn. Bæjarráð
tekur undir tillögu Georgs Þórs Kristjánssonar, sem samþykkt var
samhljóða á fundinum um áskorun á þingmenn Suðurlands að þeir
beiti sér fyrir óbreyttu fyrirkomulagi í rekstri Herjólfs.
Frá Eyjum.
Fyrirlestrar í
Húsinu
Byggð og ineiiiii ng er
yfirskrift fjögurra fyr-
irlestra í Húsinu á
Eyrarbakka. Bóka-
nieiiiiing gamla
bæudasamfélagsms
fyrsta umfjöHuuar-
efnið.
Fjórir dagar í nóvembermánuði
verða helgaðir fyrirlestraröð und-
ir yfirskriftinni Byggð og menn-
ing, á vegum Byggðasafns Árnes-
inga, Sjóminjasafnsins á Eyrar-
bakka, Sögufélags Árnesinga og
Rannsóknarstofnunar um
byggðamenningu, það er Reykja-
víkur-Akademíunni. Fyrirlestr-
arnir verða allir fluttir í Byggða-
safni Árnesinga, Húsinu, Eyrar-
bakka og hefjast stundvíslega kl.
20.30. Hér er um að ræða íjög-
ur ný og spennandi erindi hjá
fyrirlesurum sem standa framar-
Iega hver á sínu sviði. Markmið-
ið með fyrirlestraröðinni er að
færa fræðin og umræðuna um
þau inn á breiðari og opnari vett-
vang. Skráning er þegar hafin og
áhugasamir eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband í síma
861-8678, eða skrifa á netfangið
sjominjasafnið@arborg.is eða
husid@south.is
Bókamennmg
gamla bændasamfélagsins
Fyrsti fýrirlesturinn verður í kvöld
fimmtudaginn 4. nóvember kl.
20:30 í baðstofu Hússins á Eyrar-
bakka. Þar mun Viðar Hreinsson
Viðar Hreinsson. Hann gerir bóka-
menningu gamla íslenska bænda-
samfélagsins að umfjöllunarefni í
sínum fyrirlestri.
bókmcnntafræðingur Ijalla um
bókmenningu gamla bændasam-
félagsins „...þá fysn til fróðleiks og
skrifta sem lifði með sjálfmennt-
uðum almúgamönnum öldum
saman á Islandi. Þekkingarþorsti
þeirra og tjáningarþörf hafa skilið
eftir sig ókjör af lítt rannsökuðum
heimildum í þúsundum handrita.
Rakin verða nokkur heillandi
dæmi um merka höfunda af því
tagi, til dæmis Jón lærða, Guð-
mund Bergþórsson, Brynjúlf á
Minna-Núpi og Stephan G.
Stephansson," segir í tilkynningu.
Holdleg og andleg miðstöð
Annar íyrirlesturinn verður 11.
nóvember og þar mun Árni Daní-
el Júlíusson sagnfræðingur flytja
fyrirlesturinn Holdleg og andleg
miðstöð - Eyrarbakki og Skálholt
á I 8. og 19. öld. „Á 18. öld var
Eyrarbakki helsta höfn Suður-
Árni Daníel Júlíusson. Fjallar um
holdlega og andlega miðstöð, Eyr-
arbakki og Skálholt og um Eyrar-
bakka fyrir 200 árum.
lands eins og lengi hafði verið. Á
Eyrarbakka var m.a. höfn Skál-
holtsstóls, einnar valdamestu
stofnunar landsins. Um 1800
fluttist miðstöð kirkjulegrar og
veraldlegrar stjórnar til Reykja-
víkur. Eyrarbakki missti þá alla
möguleika á að verða aðalhöfn
eða miðstöð landsins, enda virð-
ist bænum ekki hafa verið ætlað
það hlutverk af landsfeðrum sem
ákváðu staðsetningu nýrrar mið-
stöðvar. Hvernig var umhorfs á
Eyrarbakka fyrir 1800? Breyttist
hlutverk og ímynd staðarins eftir
það?“ segir í tilkynningu um fyr-
irlestur þennan.
Fleiri fyrirlestrar verða svo
fluttir síðar í nómvember og
verður um þá fjallað í Suður-
landsblaði Dags þegar nær dreg-
ur.
-SBS.
Kirkjuhátíð á Kotströnd
Um aðra helgi verður
haldið uppá 90 ára af-
mæli Kotstrandar-
kirkju í Ölfusi. Kirkj-
una þekkja margir,
euda er húu fagurt
guðshús í alfaraleið.
Á sunnudag um aðra helgi, 14.
nóvember næstkomandi, verður
þess minnst að liðin eru 90 ár frá
vígslu Kotstrandarkirkju í Olfusi.
Guðsþjónusta verður í kirkjunni
kl. 14 þann dag, en þar prédikar
biskup Islands, herra Karl Sigur-
björnsson. Á eftir verður boðið
upp á kirkjukaffi á veitingastaðn-
um Básnuni í Ölfusi, að því er
segir í frétt frá sóknarnefnd Kot-
strandarsóknar.
Sameínaður kirkjustaður
Kotstrandarkirkja var byggð eftir
að sameinaðar höfðu vcrið
•
Reykja- og Arnarbælissóknir en
sóknarkirkjur voru áður þar.
Arnarbæliskirkja var orðin hrör-
leg, svo vart svaraði kostnaði úr
að bæta og Reykjakirkja skekkt-
ist illa á grunninum í óveðri
haustið 1908. Varð því að ráði
að sameina sóknirnar og byggja
nýja kirkju á Kotströnd, sem var
í miðri sveit og í alfaraleið - fjöl-
farinn áninga- og samkomu-
staður, segir í frétt sóknar-
nefndar, og þar segir enn frem-
ur:
„Rögnvaldur Ólafsson, húsa-
meistari, gerði uppdrátt kirkj-
unnar og ber hún mörg höfund-
areinkenni hans, sem sjá má á
fleiri guðshúsum, sem hann
teiknaði á fyrsta áratug aldar-
innar. Kirkjusmíðina annaðist
Samúel Jónsson frá Hunku-
hökkum á Síðu, faðir Guðjóns,
siðar húsameistara ríkisins.
Komið hefur í ljós, þegar unnið
hefur verið að viðhaldi kirkj-
unnar á undanförnum árum, að
hún er vandað hús að efni og
allri gerð, og er að töluverðu
leyti byggð af nýtilegum viðum
gömlu kirknanna á Reykjum og
í Arnarbæli. Heita má að allt
ytra byrði kirkjunnar hafi verið
endurnýjað og bættir viðir, þar
sem þurfti. Búnaður og gripir
kirkjunnar eru einnig margir úr
gömlu kirkjunum og jafnvel
nokkuð af innréttingum."
Fagurt guðshús
í öUum hlutföHum
Kotstrandarkirkja er fagurt
guðshús í öllum hlutföllum sem
Ijá henni, ytra sem innra, sér-
stæðan þokka og hógværa helgi-
tign. Kirkjustæðið er áberandi
vel valið. Kirkjugarðurinn vel
hirtur og fallega hlaðinn hraun-
grýtisveggur hans er til frekari
prýði. Kotstrandarkirkja á ýmsa
velunnara, sem hafa styrkt hana
á margan hátt í áranna rás og
látið hana njóta höfðingsskapar.
Þrjár sækja imi dýralækni
Þrjár konur sækja um embætti
héraðsdýralæknis í Suðurlands-
umdæmi, sem nýlega var auglýst
Iaust til umsóknar, en sem kunn-
ugt er var lögum um héraðsdýra-
lækna nýlega breytt og þá jafn-
framt skipan embætta þeirra.
Þær konur sem sækja um emb-
ætti þetta eru Bergþóra Þorkels-
dóttir á Selfossi, Katrín H. Andr-
ésdóttir í Reykjahlíð á Skeiðum
og Sigurborg Daðadóttir í Hafn-
arfirði. Um embætti héraðsdýra-
læknis í Vestur-Skaftafellsum-
dæmi er aðeins einn umsækj-
andi, Gunnar Þorkelsson, dýra-
Iæknir á Kirkjubæjarklaustri. -
Það er Guðni Ágússson landbún-
aðarráðherra sem skipar í stöð-
una, frá og með 1. desember
næstkomandi. -SBS.