Dagur - 04.11.1999, Blaðsíða 3

Dagur - 04.11.1999, Blaðsíða 3
 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999 - 3 SUDURLAND yfirbragð LeíkiLr að vonimt, er fyrsta sólóplata Labba í Mánum, sem kemur út nú í vikunni. „Hef góða tilfinningn fyrir þessari plötn,“ segir Labbi, sem æfir fim- leika í Reykjavík tvisvar í viku. „I rauninni hef ég verið að stefna að því síðustu tuttugu og fimm árin eða svo að gefa út sólóplötu sem þessa,“ segir Olafur Þórar- insson tónlistarmaður, títt- nefndur Labbi í Glóru, sem sendir frá sér sína fyrstu sóló- plötu nú í vikunni. „Að vísu hafa hugmyndir mínar um hvernig platan ætti að vera breyst talsvert á þessum tíma, en þó ekki í neinum grundvall- aratriðum. Ef til vill er platan þó nokkuð ljúfari og með fág- aðra yfirbragði en þegar ég var að leggja fyrstu drög að útgáfu hennar. Þarna eru til dæmis nokkur lög sem ég hef alltaf ætlað mér að hafa á plötunni, einsog til dæmis lagið Leikfang- ið, sem ég syng ásamt Kristjönu Ólafsdóttir - og svo lögin Þú átt þér ósk og Betlarinn, sem Andrea Gylfadóttir syngur, en hún er gestasöngkona á plötunni." Góð tilfinning Leikur að vonum heitir hljóm- platan, sem gefin er út af Tóna- flóði. Labba þekkja flestir unn- endur dægurlagatónlistar alveg frá þeim tíma er hann fór fyrir félögun sínum í hljómsveitinni Mánum á árum 1965 til 1975. Nú í seinni tíð hefur Labbi haldið úti eigin hljómsveit, Karma, og hefur sú sveit notið mikillar hylli á dansleikjum undanfarin ár, ekki síst á Suð- urlandi. A Leik að vonum er að finna þrettán Iög, gömul sem ný, 1 1 lög eftir listamanninn sjálfan en auk þeirra er að finna Iagið Kvöldsiglingu eftir Gísla Helgason við texta Jóns Sig- urðssonar og Hverfula ást, sem er af erlendum uppruna - en þessi lög söng Labbi inn á plöt- ur fyrir nokkrum árum og hafa lögin notið vinsælda í áranna rás. Labbi hefur gert nokkra text- anna á plötunni, en aðrir texa- hiifundar eru þeir Jón Sigurðs- son bankamaður, Jónas Friðrik, Ómar Halldórsson, Ingibjörg Björnsdóttir og Sigurður Jó- hannesso'n, sem samdi textann við hið tregafulla lag A kránni, sem Labbi söng svo eftirminni- Iega með Mánum fyrir röskum aldarfjórðungi. Labbi spilar sjálfur alla gítara á plötunni en þess utan hefur hann með sér hóp valinkunnra hljóðfæraleik- ara. „Ég hef góða tilfinningu fyrir þessari plötu,“ segir Labbi. )} Tvær plötur í viöbót „Við höfum á dansleikjum mcð Karma nú að undanförnu verið að leika þessi lög sem þar eru og þau hafa fallið dansleikjagest- um vel í geð. Enda spanna Iög þessi vítt svið og eru þegar heilt er yfir litið um margt ólík bæði í takt og tón. En þegar ég hlusta á plötuna núna þá er ég í raun feginn að ekki hafi fyrr orðið af útgáfunni. Yfirbragðið er að mörgu leyti orðið þróaðra en ég hafði hugsað mér í fyrstu og platan er mun betur tæknilega unnin en hefði orðið hefði hún komið út fyrir ekki svo mörgum árum,“ segir Labbi. Hann kveðst nú vera með hugmyndir um útgáfu á tveimur plötum til viðbótar á næstu árum, gangi útgáfa Leiks að vonum vel og að hún fái góðar undirtektir. Annarsvegar hafi hann hug á plötu með rokklög- um en hina með lögum með klassísku ívafi. Lögin séu til staðar og drög að útsetningum að þeim og lítið mál sé að fara í upptökur, ef mál þróist svo. Heljar- og hnakkastökk En listamaðurinn í Glóru býr yfir undarlegu tvíeðli. Hann lætur sér tónlistina eina ekki duga, því hann hefur síðustu vetur stundað af miklu kappi æfingar í fimleikum. Tvisvar í viku fer hann til Beykjavíkur og æfir þar með körlum á sínum aldri og þaðan af eldri ýmsar æfingar í rólum, á dýnu, á jafn- vægisslá og öðrum þeim áhöld- um sem þurfa þykir, til þess að Tvisvar í viku fer Labbi til Reykjavíkur, þar sem hann æfir fimleika ásamt fleiri herramönnum í fimleikadeild Ármanns. „Alveg ótrúlegt hvað þrek mitt allt og úthald hefur aukist til muna siðan ég byrjaði að æfa reglulega fyrir um þremur árum. mynd: teitur „Platan er mun betur tæknilega unnin en hefði oröið hefði hún komið út fyrir ekki svo mörgum árum, “ segir Labbi meðal annars hér í viðtalinu um plötuna góðu, Leik að vonum, sem kemur út í dag. fara „...flikk flakk heljarstökk, hliðarstökk, hnakkastökk og svo labha á höndunum tveim,“ segir Labbi og vísar þar til textans góða, sem Laddi söng fyrir margt löngu. „Ég var lengi bú- inn að leita að einhverjum hér fyrir austan sem væri tilbúinn til þess að hefja með mér svona æfingar, en það hlógu alltaf all- ir að mér. Því fannst mér ég hafa himin höndum tekið þegar ég sá þessar leikfimiæfingar karlanna í Armanni - og fékk strax inni hjá þeim þegar ég setti mig í samband við þá.“ Þetta eru ekki einu Iíkamsæf- ingarnar sem Labbi stundar. Fyrir utan að hlaupa vítt og breitt um lágsveitir Flóans fer hann vikulega ásamt nokkrum félög- um sínum í göngur upp á Ing- ólfsfjall; fara þeir upp hjá Laugabökkum í Ölfusi, þar sem hvað brattast er upp á tjallið, en þegar sprett er úr spori eru þeir félagar þó ekki nema um 25 mínútur upp á brún. Geri aðrir betur. „Ég er alveg ákveðinn í því að leggja íþróttirnar fyrir mig í ríkari mæli í framtíðinni og hef í huga að fara á einhvers- konar þjálfaranámskeið nú þeg- ar ég er búinn að koma þessari plötu frá. Enginn er of seinn til þess að fara út í íþróttaæfingar og sjálfum finnst mér það alveg ótrúlegt hvað þrek mitt allt og úthald hefur aukist til muna síðan ég byrjaði að æfa reglu- lega fyrir um þremur árum. Það eitt er mér hvatning til þess að fá aðra til hefja æfingar þessar - sem bæði bæta, hressa og kæta.“ -SBS. og fágað

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.