Dagur - 05.11.1999, Page 1

Dagur - 05.11.1999, Page 1
ífyrsta skipti síðan Hrafninn flaug ætlar Edda Björgvins að takastá við alvarlegt tragískthlutverk og ekkert smáhlutverk það: hún verðurein á sviðinu í tvo tíma, leik- ur 19 konurog karla, unga oggamla... Einleikurinn „Leitin að vísbend- ingu um vitsmunalíf t alheimin- um“ eftir Jane Wagner verður frumsýndur í kvöld í Borgarleik- húsinu en Jane þessi er m.a. fjór- faldur Emmy-verðlaunahafi og hefur hlotið IJölda verðlauna fyrir téðan einleik. Edda Björgvinsdótt- ir var í óða önn að æfa, taka á móti sjónvarpsvélum og öðru sem yfir leikara hellist rétt fyrir frumsýn- ingu þegar Dagur tældi hana í símann og fékk nánari útskýringar á hvaðan þetta leikrit kemur upp á svið Borgarleikhússins. í beinu sambandi við geimverur „Hann Arni Blandon, vinur minn, lét Gísla Rúnar fá þetta leikrit fyr- ir mörgum árum síðan og Gísli Rúnar otaði því að mér. Við Þór- hildur Þorleifsdóttir féllum báðar lyrir þessu og ætluðum að setja það upp í KafBleikhúsi á sínum tíma en þá vildi svo heppilega til fyrir alþjóð að Þórhildur var dreg- in hingað upp í Borgarleikhús," svaraði Edda, en síðan hefur leik- ritið legið ósnert þar til nú. Það var textinn sem heillaði svo þær stöll- ur, „hann er aldeilis ffábær. Heim- spekilegar vangaveltur um eðli mannsins, sorgir og gleði og hvers- dagsleg átök.“ Edda tekur fram að verkið sé ekki gamanleikur en tengiliður allra þeirra 19 persóna sem hún þarf að túlka er poka- kona að nafhi Þrúða, sem áður var virðuleg manneskja í samfélaginu en missti svo vitið og er gefið raf- Iost við þeim missi. I kjölfarið tel- ur hún sig vera hlaðna segulmögn- uðu rafkerfi sem setji hana í beint samband við mannkynið eins og það leggur sig. Þá setja vitsmuna- verur frá öðrum hnöttum sig einnig í samband við Þrúðu og saman reyna þau að leita að vits- munalífi á jörðu. „Þrúða byrjar upp frá þvf að fá glefsur úr lífi fólks, beinar útsendingar frá hin- um og þessum hvar sem hún er stödd. Við fáum að sjá allar þessar persónur á sviðinu sem hún upp- lifir í huganum. I engum búning- um og með engin gcrvi.“ - Þú hefur ekki viljaðfú að grípa í nærliggjandi hárkollur eða yfir- varaskegg til að aðstoða við að greina persónuniar í sundur? „Það er bara ekki hægt, sumar eru bara í tvær sekúndur. Fyrir utan að þetta er miklu meiri áskor- un.“ Opna hjarta sitt Um 18 ár eru síðan Edda lék al- vöru tragískt hlutverk en það var í kvikmynd Hrafns Gunnlaugsson- ar, Hrafninn flýgur. En hvernig gekk henni að svissa frá gaman- hlutverkunum sem hún er þaul- reynd í og yfir í þetta dramatíska hlutverk? „Ja, það er náttúrulega alkunna í öllum heiminum að ef fólk hefur gott vald á gamanleik þá hefur það betra vald en flestir aðr- ir á harmleik. Ef þú getur fengið fólk til að hlæja þá ertu kominn með tilfinningarnar í krumlurnar. Það eru kannski helst Islendingar sem eru ekki alveg með þetta á hreinu því þeir hafa tendensa til að setja fólk í skúffur. Grunnurinn í því að vera leikari og ná til fólks er í raun að opna hjarta sitt. Sum- ir kalla það að vera einlægur, aðrir að vera sannur en ég þoli ekki þau orð. Ef þú opnar hjarta þitt og hleypir fólki inn, á skítugum skóm eða hreinum skóm eða á sokka- leistunum - þá ertu að leggja sál þína á borðið. Það er grunnurinn í góðum leik hvort sem um er að ræða gamanleik eða dramatískan leik og ef fólk ekki gerir þetta þá er hæpið að það nái inn í hjörtu manna," segir Edda og verður heitt í hamsi. „En að standa ein á sviðinu í tvo tíma er það erfiðasta sem ég hef gert á ævinni, ég verð að játa það. Eg vona að ég sé enn einu sinni að opna hjarta mitt nógu mikið til að snerta áhorfend- ur og spennandi að gera öðruvísi en til að kitla hláturtaugar fólks.“ LÓA Þú hefur tíma til 10. nóvember til að ákveða þig FJÖLBREYTT ÚRVAL - STUTTUR AFGREtÐSLUTÍMI Úrval HTH-innréttinganna er mjög fjölbreytt, þar sem útfærslur geta verið margvíslegar. Afgreiðslutími á HTH-innréttingum er fjórar vikur, en getur farið í sex vikur ef um sérsmíði er að ræða. Ef þú ákveður þig fyrir 10. nóvember næstkomandi getur þú fengið innréttinguna fyrir jól. ÖLL TÆKI í ELDHÚSIÐ Auk eldhúsinnréttinga er boðið upp á öll tæki, sem þarf í nútímaeldhús, svo sem eldunartæki hvers konar, viftur, háfa, kæliskápa, frystiskápa, vaska, blöndunartæki, Ijós o.fl. Séu raftækin keypt með eldhúsinnréttingunni, bjóðast þau á heildsöluverði. HÖNNUN OG RÁÐGJÖF Við veitum fólki ráðgjöf og leggjum fram hugmyndir að því hvernig best er að haga innréttingunni þar sem þarfir fjölskyldunnar eru hafðar í fyrirrúmi. Líttu ínn í glæsilegan sýningarsal að Lágmúla 8, 3. hæð og kynntu þér málið. Opið laugardag frá 10 til 16 Nýtt eldhús fyrir jól

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.