Dagur - 05.11.1999, Síða 2
18-FÖSTVDAGUR S. NÓVEMBER 1999
rD^tr
LÍFIÐ í LANDINU
i.
ÞAD ER KOMIN HELGI
Hvað
ætlarþúað
gera?
„Matarboð, “ segir
Jóna Hilmarsdóttir.
Kræklinga- oghvítvliissósa
„Sonur minn, tengdadóttir og sex mánaða
barnabarn, Helena, verða hjá mér um helgina,“
segir Jóna Hilmardóttir, starfsmaður hjá auglýs-
ingadeild Ingvars Helgasynar hf. „Mestur tími
minn um helgina fer í að sinna þessum góðu
gestum, sem koma norðan frá Akureyri. A laug-
ardagskvöldið verð ég svo með fínt matarboð
(yrir góða vini mína, þar sem ég æta að bjóða
uppá lax með kræklinga- og hvítvfnssósu og f
aðalrétt verða líklega svínalundir. Á sunnudeg-
inum ætla ég að mestu leyti að taka tilveruna í
rólegum takti, en skreppa þó í keilu með Arna
Þór, yngri syni mínum, sem er tólf ára. Það er
ekki ósjaldan sem við mæðgin bregðum okkur
saman í sund og keilu um helgar, enda er þetta
ágæt dægradvöl og holl eftir því.“
S veitarstj órinn til Akureyrar
„Eg þarf að fara til Akureyrar," segir Magnús
Már Þorvaldsson, sveitarstjóri á Þórhöfn. „Verð
að vinna fyrir veitingahúsið Greifann, en nú
stendur til að fara í endurbætur á húsnæði
staðarins og ætla ég að aðstoða strákana í því
verkefni. Það verður ágætt að koma í bæinn að-
eins, fjölskyldan er enn á Akureyi þó ég sé kom-
inn til starfa fyrir austan nú nýlega, en bráðlega
sameinumst við öll í nýjum heimkynnum á
„Hitti fjölskylduna, “ Pórshöfn. Þetta er staður sem virkar vel á mig
segir Magnús Már. við fyrstu kynni; hér er hressilegt og dugmikið
fólk, sem gaman er að deila geði við. Hér er
fagurt mannlíf."
,,/H á tónleika, “ segir
Svanfríður.
Til Grímseyjar
laugardaginn ætla ég að reyna að komast út
til Grímseyjar," segir Svanfríður Jónasdóttir,
þingmaður Samfylkingar. „Þar er verið að vígja
nýja flugstöð og verður uppá það haldið með
veglegum hætti. Og fari ég þangað út reikna ég
með að nánast allur Iaugardagurinn fari í þessa
Grímseyjarferð. Þegar ég kem aftur hingað suð-
ur þarf ég eitthvað að sinna vinnu minni og síð-
an Iangar mig að komast á einhverja tónleika.
Nei, ég hef enn ekki ákveðið hvaða tónleikar
það yrðu, ég sé það í helgarblöðunum hvað er í
boði. Ennþá hef ég ekki komist í Salinn í Kópa-
vogi og þykir það miður, en þar hafa margir
áhugaverðir tónleikar verið haldnir og bygging
tónleikahússins er gott framtak. Síðan er það
alltaf fastur liður í minni fjölskyldu að við hitt-
umst saman yfír kvöldverði á sunnudeginum.
Við gerum alltaf talsvert úr þessari stund okkar,
en mér f’innst gaman að matbúa, enda þó það
taki stundum dijúgan tíma.“
„Þeir eru ekki einu sinni líkir, “ sagði konan, sem skoðaði þessar myndir afÁrna
Tryggvasyni sem eru hér á siðunni. Gamla myndin er tekin endur fyrir löngu, en
sú litla nú í sumar leið. í áratugi hefur Árni verið einn ástsælasti leikari þjóðar-
innar og heiltyfir má segja að hann sé i hugum þjóðarinnar hin eina og sanna
Lilli klifurmús.
liftl
LIF OG LIST
Þrjárbækur
á náttborðinu
„Eg er alæta á bækur og er
núna með þrjár á náttborð-
inu. Undanfarið hef ég eytt
mestum tíma í að lesa The
General’s Daughter eftir Nel-
son DeMille. Þetta er amerísk
spennusaga, þar sem morð,
spilling og samskipti kynj-
anna í ameríska hernum eru í
forgrunni," segir Edda Rós Karls-
dóttir, hagfræðingur ASÍ. „Eg er líka að lesa
The Return of Depression Economics eftir
Poul Krugman. Þetta er mjög áhugaverð bók
og neyðir hagfræðinginn í mér til að hugsa
marga hluti upp á nýtt. Þá les ég dálítið á
hverju kvöldi í Fyrsta orðabókin mín, sem er
uppáhalds bók sonar míns. Af þeim bókum
sem ég er að lesa er ég þó minnst hrifin af
þessari. Eg hef ákveðna fordóma gagnvart bók-
um um dýr, sem eru í fötum og skóm, keyra
bíla, sippa og raka sig. Skrítnust finnst mér
myndin af feita svínapabba, sem situr við mat-
arborðið og borðar nautasteik með hníf og
gafli.“
Dóttirin vill
Róbertbangsa
„Síðast þegar ég hlustaði á „fullorðins" tónlist
heima hjá mér voru það geisladiskar með
Georg Michel og Lois Armstrong. Annars
stjórnar dóttir mín geislaspilaranum á mínu
heimili og hún spilar oftast Olgu Guðrúnu,
Ávaxtakörfuna og Róbert bangsa.“
Persónumar
trúverðugar
„Síðasta myndin sem við leigðum var danska
dogmamyndin Festen. Mér’ fannst það vera
frábær mynd og hún hafði mikil áhrif á mig.
Mér fannst persónurnar mjög trúverðugar og
þar stóð mamma aðalpersónunar upp úr. Ann-
ars horfi ég oftast á amerískar myndir og það
sem er vinsælast hverju sinni. Eg er ekkert
sérstaklega kresin."
FRÁ DEGI TIL DAGS
Hver einasta manneskja er ábyrgur þátt-
takandi í sköpun heimsins.
Páll Skúlason
Þau fæddust 5. nóvember
• 1822 fæddist Jón Þorláksson rektor.
• 1913 fæddist breska leikkonan Vivien
Leigh.
• 1921 fæddist Hlynur Sigtryggsson veð-
urfræðingur.
• 1941 fæddist bandaríski söngvarinn
Art Garfunkel.
• 1943 fæddist bandaríska leikskáldið og
leikarinn Sam Shepard.
• 1959 fæddist kanadíski rokksöngvarinn
Bryan Adams.
• 1963 fæddist bandaríska leikkonan
Tatum O’Neal.
Þetta gerðist 5. nóvember
• 1605 reyndi maður að nafni Guy
Fawkes að sprengja upp enska þingið,
en ráðabruggið mistókst og Fawkes var
síðar hengdur.
• 1848 hófst útgáfa Þjóðólfs í Reykjavík,
en hann er talinn vera fyrsta íslenska
fréttablaðið.
• 1917 tók rússneska rétttrúnaðarkirkjan
að nýju upp embætti patríarka, sem
Pétur mikli hafði lagt niður árið 1700.
• 1925 leysti Mússólini upp ítalska sósí-
alistaflokka.
• 1956 sendu Frakkar og Bretar herlið til
Egyptalands, þar sem Israelsmenn og
Egyptar voru að berjast um Súe/skurð-
inn. Tveimur dögum síðar var lýst yfir
vopnahléi.
• 1965 sendi hljómsveitin Who frá sér
plötu með laginu My Generation.
• 1992 felldi Alþingi tillögu um þjóðarat-
kvæðagreiðslu um aðild Islands að Evr-
ópska efnahagssvæðinu.
• 1996 gekkst Boris Jeltsín, forseti Rúss-
lands, undir hjartaaðgerð.
Vísa dagsins
Undir toppi gylltum grær
gljúr og snoppufríður,
viljaloppinn, værukær,
valtur sjoppulýður.
Jón Rafnsson
Afmælisbam dagsins
Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri,
fæddist í Reykjavík þann 5. nóvember
árið 1943. Hún tók stúdentspróf frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1963, þá fór hún f guðffæðinám í
Háskóla Islands, samhliða því sem
hón tók söngkennarapróf og tón-
menntakennarapróf frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík og nam kór-
stjóm og tónvísindi við háskólann í
Illinois. Hún stofnaði kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð. Auk starfa við
tónlistarkennslu hefur Þorgerður
komið að félagsmálum.
„Viltu veðja?“
Þrír byggingarverkamenn, Gfsli, Eiríkur og
Helgi, voru að störfum hátt uppi á vinnu-
palli þegar Gísli hrasar og hrapar til jarðar
og er steindauður. Eiríkur og Helgi sitja
sem lamaðir, en þar kemur að þeim finnst
rétt að annar hvor þeirra fari og færi eigin-
konu Gísla hin sorglegu tíðindi. Eiríkur
býðst til að fara: „Eg er dálítið góður í
svona viðkvæmum málum," segir hann.
Þremur tímum síðar kemur hann aftur,
með vodkaflösku í hendinni, og sagðist
hafa fengið hana hjá ekkjunni hans Gísla.
„Hvernig í ósköpunum fórstu nú að því?“
spurði Helgi. „Jú, sjáðu til,“ svarar Eiríkur,
„þegar hún kom til dyra sagði ég: Þú hlýt-
ur að vera ekkjan hans Gísla. Hún sagði:
Nei, ég er alls ekki nein ekkja. Og þá sagði
ég: Viltu veðja einni vodkaflösku?”
Veffang dagsins
Áhugamenn um klassfska tónlist gætu gert
margt vitlausara en að kíkja á
ivunv. c lassicalmusic .co.uk