Dagur - 05.11.1999, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR S. NÓVEMBER 1999 - 19
LÍFIÐ í LANDINU
Agtnn, vandamál
veraldarsögunnar
Agi og agavandamál
eru alltaftil umræðu,
ekki síst í sambandi
við skólastaif. Sæ-
mundur Rögnvalds-
son kennari hefurvelt
fyrirséraga og refs-
ingum í bókmenntum
og hér tengir hann
efnið við nútímann og
samfélagið. Vandinn
erekki nýrafnál-
inni...
„Fyrsta agabrotið var framið í
aldingarðinum forðum þegar
Adam og Eva brutu boð Guðs,
átu af skilningstrénu og hlutu
refsingu fyrir. Þar var líka
fyrsta dæmið um brottrekstur
og þeirri refsingu beita kennar-
ar enn þann dag í dag.“
- Telurðu brottrekstur sígilda
aðferð eða tírelta?
„Brottrekstur er sígild aðferð
fyrir kennara til þess að losna
við þann sem brýtur af sér.
Hins vegar ber að nota hann
sparlega og þannig að öllum sé
ljóst að þetta er grafalvarlegt
mál. Brottreksturinn einn og
sér hefur ekkert að segja nema
honum sé fylgt eftir til enda.
Mér hefur reynst hann fyrst og
fremst tæki til að ræða við
nemandann í einrúmi eða með
skólastjórnanda til að ná fram
breytingu á hegðun."
„Ef við þjálfum rtemendur i að nota getu sína til fulls aukum við metnað þeirra og sjálfsvirðingu, “ segir Sæmundur
Rögnvaldsson, kennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Egil Skalla erfitt tilfelli
- Eitthvað var nú af agavanda-
málum í íslendingasögunum.
Hefurðu velt þeim fyrir þér?
„Jú, Grettir
Asmundarson
er eitt dæmið
og ekki gekk
föður hans vel
að tukta hann
þótt hann væri
bæði stjórnsam-
ur og ákveðinn.
Egill Skall-
grímsson var
líka sérstaklega
erfitt tilfelli og
við getum rétt
ímyndað okkur
skýrslurnar sem
væru til um
hann í skólakerfinu í dag. Hall-
gerður Iangbrók var svo svaka-
leg að faðir hennar þorði ekki
annað en að spyrja hana hvort
hún vildi þennan eða hinn,
sem var fullkomlega út í hött
miðað við normin í þá daga.
Svona mætti halda áfram að
telja."
- En liefðu Egla og Gretlla
verið skrifaðar ef söguhetjurnar
hefðu verið Ijúf eins og lömh.
Dýrkum við ekki visst agaleysi?
„Jú, ein af þverstæðunum
menntirnar. Til dæmis eru ungl-
ingabókmenntir allra tíma full-
ar af hetjum, sem sífellt eru að
brjóta alls konar reglur til þess
að vinna einhverjar hetjudáðir.
Frásagnir af agabrotum eru
oft grínaktugar
og þeir sem
reyna að halda
Unglingabókmenntir uppi aga gerðir
hlægilegir og
allra tíma eruJullaraf þröngsýnir.
Birting aga-
hetjum, sem sífellt eru
bók-
að brjóta alls konar
reglur til þess að vinna
einhverjar hetjudáðir.
sambandi við„ (aganp(. p(ru( þól^- ^ _ htfj'ði ,»ert áður.‘
brota í
menntum og
kvikmyndum og
dýrkun á þeim
sem brjótast
undan aga er
risavaxið mál.“
- Er einhver
sérstök persóna
úr bókmenntum
eða kvikmyndum sem þú telur
að hafi haft slæm dhrif?
„Ekki beinlínis, en umhverfi
og aðstæður hafa auðvitað mik-
ið að segja. A síðustu árum
hafa birst ótal kvikmyndir sem
hafa snúist um ofbeldi og þessa
birtingu hafa ungmenni tekið
inn án þess að greina ástæð-
urnar. Þeir sem eru að alast
upp núna eru afkomendur
þeirra sem á árunum 1960-80
upplifðu meiri upphafningu á
ofbeldi en nokkur kynslóð
Samskiptin síbreytileg og
spennandi
- Áttu einhver rdð við agaleysi f
skólum?
„Þetta er flókið mál en ég hef
dálæti á hugmyndum róm-
versks uppeldisfræðings sem
hét Quintilianus og var uppi á
1. öld. Hann hélt því fram að
fyrstu áhrif skóla og náms vör-
uðu að eilífu. Námið átti að
vera nemendum til ánægju og
taka mið af því að nemendum
gengur misjafnlega að taka við
þekkingu. Hann var mjög mikið
á móti Iíkamlegum refsingum
til að halda uppi
aga og taldi að
pískurinn væri
notaður vegna
vanhæfni kenn-
arans. Markmið
kennarans ætti
að vera að
ávinna sér virð-
ingu nemandans
og þá myndi
hann leggja sig
fram.
Eg myndi vilja
gera þessi nærri
2000 ára við-
horf að mínum.
Ef við hlúum að upphafi náms
og þjálfum nemendur í að nota
getu sfna til fulls aukum við
metnaö þeirra og sjálfsvirð-
ingu. Þá losnum við við ástand
sem mjögivfða cr að finna
skólum nútímans þar sem sí-
fellt er verið að krefjast ein-
hvers af nemendum sem þeir
ráða ekki við. Þeim finnst þeir
órétti beittir og óánægjan og
vanmátturinn brýst út í ólátum
og ofbeldi."
- Áttu við að kennslan sé «
meiri villigötum en fyrir 2000
árum?
„Allt snýst þetta um sam-
skipti fólks. Þegar við lendum í
vandræðum er það oftast vegna
þess að viðbrögð í þessum sam-
skiptum eru röng, klaufaleg
eða ósanngjörn. Þau eru auð-
vitað mótuð af
ótal þáttum,
svo sem upp-
eldi, tíma,
aldri, reynslu
og fyrri sam-
skiptum aðila,
beinum eða
óbeinum. Það
sem á við suma
á ekki við aðra.
Þess vegna
verða reglur
skólans og
samskipti nem-
enda og kenn-
ara síbreytileg
og spennandi. Það er eitt af því
sem gefur kennarastarfinu gildi
og gerir skólaárin Ifklega ein-
hvern eftirminnilegasta tímann
f lífi fólks."
Losnum við ástand
sem mjög víða erað
finna í skólum nútím-
ans, þarsem sífellt er
verið að krefjast ein-
hvers afnemendum
sem þeirráða ekki við.
Ljóðaúrval
eftir Elías Mar
Mál og menning hefur gefið
út ljóðasafnið Mararbárur
eftir Elías Mar. Þessi bók
geymir úrval ljóða frá árun-
um 1946-1998.
Þekktastur er Elías Mar af
skáldsögum sínum, Vöggu-
vísu og Sóleyjarsögu, en alla
tíð héfur hann iðkað ljóða-
gerð og í Mararbárum er að
finna mörg af ágætustu ljóð-
um skáldsins. Þá eru í bók-
inni nokkur þýdd Ijóð.
Verðið er 2980 krónur.
Minningar skipherra
Sviftingar á sjávarslóð er
heiti minningabókar eftir
Höskuld Skarphéðinsson,
fyrrum skipherra.
Hann hóf störf hjá Land-
helgisgæslunni sem stýri-
maður 1958 og var varla
kominn um borð í Maríu Júl-
íu þegar til átaka kom við
Breta og Þjóðverja vegna út-
færslu landhelginnar í 12
mílur. 1 nærfellt fjóra áratugi
starfaði Höskuldur hjá gæsl-
unni. Hann hóf störf á
smæstu skipum henanr en
endaði feril sinn sem sldp-
herra á flaggskipinu Tý.
Sem geta má nærri hefur
Höskuldur skipherra frá
mörgu að segja og talar
tæpitungulaust um menn og
atburði.
Bókin kostar 4280 krónur.
Heiftrækni
Mál og menn-
ing hefur gef-
ið út skáldsög-
una Hlað-
hamrar eftir
Björn Th.
Björnsson.
Þjóðsagan
segir frá
Arna á Hlað- Björn Th.
hamri, stór- Björnsson.
Iyndum og
heiftræknum
bónda, sem myrðir tengdason
sinn með grimmilegum hætti,
átján stungur £ kviðinn. Guð-
rúnu dóttur hans þótti dauða-
dómurinn of linur og krafðist
þess að faðir sinn yrði tekinn
af lífi með sama hætti og
hann myrti mann hennar.
Dómurinn varð að ósk henn-
ar.
Um þessa heift og fjöl-
skyldumál skrifar Björn eigin
útgáfu af atburðum og lýsir
fólki og harðneskjulegu eðli
og jafnfram brjóstgóðu fólki.
Bókin kostar 3980 krónur.
Fíkuarliugtakið gagnrýnt
Sæunn Kjartansdóttir skrif-
aði bókina Hvað gengur fólki
til? sem nú er komin út hjá
Máli og menningu. I bókinni
fjallar höfundur á aðgengi-
legan hátt um ýmis konar af-
brigðilega hegðun fólks og
bregður á hana Ijósi sálgrein-
ingar. Fram til þessa hefur
umfjöllun um sálgreiningu
hér á landi verið lítil og ein-
skorðast við kenningar Sig-
mundar Freuds, en Sæunn
kynnir kenningar ýmissa
annarra sálgreina, og gagn-
rýnir viðteknar skoðanir.
Þá gagnrýnir hún fíknar-
hugtakið og þær hugmyndir
sem liggja að baki hefðbund-
inni áfengismeðferð hér á
landi.
Bókarverð: 3480.
L...........................)