Dagur - 05.11.1999, Page 6

Dagur - 05.11.1999, Page 6
22 - FÖSTUDAGUR S. NÓVEMBER 1999 ro^u- UtCL •i^Oí' Djassskotin íslensk dægurlög Samkór Svarfdæla heldur söngskemmtun í Laugaborg, Eyja- fjarðarsveit í kvöld kl. 21.00. Kórinn, undir stjórn Rósu Kristínar Baldursdóttur hefur á ferli sínum farið nokkuð óhefðbundnar leiðir í lagavali og flutningi. Á efnisskránni að þessu sinni verður einungis norræn tónlist, þjóðlög og vísur í nýstárlegum kórútsetningum, djassskotin ís- lensk dægurlög eftir Sigfús, Jón Múla o.fl. og íslensk og skandinav- ísk sjómannalög. Einsöngvarar eru Guðrún Lárusdóttir, Svana Halldórs- dóttir, Jóhann Daníelsson, Rósa Kristín Baldursdóttir og Hjörieifur Hjartarson auk Þórarins Hjartarson- ar, trúbadors. Gestir njóta þess að sitja til borðs við kertaljós og kaffiveitingar ó með- an á tónleikunum stendur. Sjón er sögu r:kari Iðnaðarsafnið á Akureyri hef- ur bætt við sýningargripi sína góðu yfirliti af fjölbreyttum prentgripum frá liðinni tíð. Ekki þótti það nægja að segja sögu iðnaðarins ein- ungis með vélum og fólkinu sem við framleiðsluna vann, heldur þurftu að koma til leiks þeir sem tóku við fullunnum vörum til kynningar með sérhæfðum umbúðum, auglýsingum og öðru því sem til þarf við markaðssetningu. Á laugardaginn verður kynning á þessum munum i Iðnaðar- safninu á Akureyri og hefst hún kl. 16.00. Af þessu tilefni verður safnið opið daglega til 15. nóvember frá kl. 16.00 til 18.00, en þá verður safninu lokað að Dalsbraut 1 á meðan leitað er að stærra húsnæði, því safninu hefur aldeilis vaxið fiskur um hrygg á síðustu tveimur árum. Frá Stones til Kaldalóns Hljómsveitin Hundur í óskilum kíkir í heimsókn til Reykjavíkur og heldur tónleika með útúrdúrum í Listaklúbbi Þjóðleikhús- kjallarans á mánudags- kvöldið kl. 20.30. Hljóm- sveitin er skipuð þeim Ei- ríki Stephensen og Hjör- leifi Hjartarsyni og ætla þeir að bjóða upp á blandað þjóðlegt efni, allt frá Bach til Bubba, Stones til Kaldalóns. Einnig verða ýmis áhættuatriði en húsið verðuropnað kl. 19.30 ■ NVAO ER Á SEYfll? HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ TÓNLIST Trio Parlando í Tíbrá Þriðjudagskvöldið 9. nóvember 1999 heldur Trio Parlando tónleika í TI- BRÁ RÖÐ 2 í SALNUM í Kópavogi og hefjast þeir kl. 20:30. VISA styrkir RÖÐ 2. Trio Parlando var stofnað af þremur ungum áhugasömum tónlistarmönn- um, sem kynntust við nám í Sweel- inck tónlistarháskólann í Amsterdam fyrir tæpum tveimur árum. Tríóið skipa þau Rúnar Óskarsson klar- inettuleikari, Héléne Navasse flautuleikari og Sandra de Bruin pí- anóleikari. Þau hafa hlotið alþjóðlega Höfum flutt hjólbaröaverkstæöi okkar í austurenda Hekluhúss viö Dalsbraut. Nú er gott aö koma inn íhlýjuna meöan stjanaö er viö bílinn. Öll bestu merkin í hjólböröum á hagstæöu veröi Felgur - nýjar og notaöar. Opiö í hádeginu -Góöir greiösluskilmálar Raögreiöslur - Léttgreiöslur Veriö velkomin Möldur ehf. . m m uuuuuw laugardagaio-16 Símar461 5100-461 3000 • Fax 461 5104 sunnudaga eftir aðstæðum E I s t a hjólbarbaverkstœöib á Akureyr i viðurkenningu vegna óvenjulegs sam- spils flautu, bassklarinettu og píanós og er mikið fagnaðarefni að þau sjá sér nú fært að leika í SALNUM. Á efnisskránni eru verkin Ringing the Changes eftir Andrew Ford, frum- flutningur á verkinu Bergmál eftir Oliver Kentish, Rún eftir Elínu Gunnlaugsdóttur, La Muerte del Angel eftir Astor PiazzoIIa, Sporð- drekadans eftir Kjartan Ólafsson, Sónata fyrir flautu og píanó op 14 eftir Robert Muczynski og II volto della notte eftir Paolo Perezzani. Miðaverð á tónleikana er kr. 1.500. Miðapantanir og sala í anddyri SAL- ARINS alla virka daga frá kl. 9:00 - 16:00 og frá kl 19:00 - 20:30 tón- leikadaga. SÝNINGAR Pre Kalevala I anddyri Norræna hússins hefur ver- ið opnuð sýningin PRE KALEVALA og stendur hún yfir til 17. nóvember. Hér er um að ræða ljósmyndir eftir finnska ljósmyndarann Vertti Terásvuori, búningahönnuðinn Niinu Pasanen og stein- og silfursmiðurinn Eero Taskinen. Fjölbreytt dagskrá sem tengist sagnabálkinum KALEVALA verður í Norræna hús- inu í nóvember og desember og verða dagskránni gerð skil síðar. Listamenriirnir vilja lýsa hvernig ver- öldin var fyrir daga Kalevala. Þau hafa sökkt sér niður í járn- og stein- öldina með sýningu sinni sem goðsagnir Kalevala eru kveikjan að. Sýningin skapar mynd af tímum fyrir Kalevala, en um þá er ekki annað til frásagnar en fáskrúðugar fornleifar. Vertti Terásvuori ljósmyndari hlaut Foto Finlandia verðlaunin 1991. Hann gerði myndröðina Pre Kalevala 1997 og við vinnslu mynda sinna blandar hann saman málverki og Ijós- mynd. Niina Pasanen, lauk námi sem fatahönnuður frá Taik listaskólanum í Helsinki. Hún hefur aðallega unnið sem búningahönnuður í kvikmyndum og í leikhúsi. Eero Taskinen Iauk námi sem stein- og silfursmiður frá Listaskólanum í Lahti. Hann var bú- settur á Papúa Nýju Gíneu og bjó þá meðal frumbyggja. Hann rekur nú vel Iátið hönnunarsetur, Union Design, og leggur áherslu á skartgripasmíð. Pétur Örn sýnir meira í GUK Exhibition place - Garður Udhus Kúche, er sýningarstaður fyrir mynd- list sem var opnaður í maí á þessu ári. Þessi sýningarstaður er í þrem löndum; í húsgarði á Selfossi, í garð- húsi f Lejre í Danmörku og í eldhúsi í Hannover í Þýskalandi. Þrír íslenskir myndlistarmenn reka staðinn í og við heimili sín og sunnudaginn 26. sept- ember sl. opnaði listamaðurinn Pétur Örn Friðriksson sýningu þar á nýjum verkum. Pétur Örn er að gera þrjú verk á þessari sýningu, eitt fyrir hvern stað, og þau skiptast í meginatriðum í þrjá hluta; vél, fána og skuggamyndir. Pétur hefur haldið áfram að bæta við verkin frá því sýningin var opnuð og nú á sunnudaginn þegar sýningin er formlega opin í þriðja sinn verður Pétur í garðinum á Selfossi að vinna og til viðtals fyrir áhugasama listunn- endur. Hægt er að fylgjast með sýningum í GUK á netinu og er vefslóðin þangað http://www.simnet.is/guk og einnig er hægt að fylgjast með dagbók lista- mannsins um sýninguna á http://www.mmedia.is/~show/it/pet- ur/guk Sýningin verður opin sunnudaginn 7. nóvember milli klukkan 4 og 6 að staðartíma í hverju landi og einnig sunnudagana 5. desember og 19. desember. Sýningin er auk þess opin hvenær sem er eftir samkomulagi. Sýning Péturs mun standa til sunnu- dagsinsl9. desember. Þetta geta allir gert „Oft heyrist almenningur segja um myndlist: „Þetta er ekki list, þetta geta allir gert.“ Þeir sömu átta sig ekki á uppátækinu og hvert það Ieið- ir. Auðvitað er myndlist misgóð, eins og tennur, tannkrem og tannlæknar. Allir þekkja nauðsyn þess að bursta í sér tennurnar og að fara til tann- læknis, en færri þekkja þá staðreynd að myndlist er jafn nauðsynleg fyrir lífið og tilveruna. Að segjast vera myndlistarmaður getur þýtt and- stöðu, bæði vegna þess að þeir eru sagðir baggi á þjóðfélaginu og að eng- inn skilji þessa heimskulegu myndlist þeirra. En þá er að vísu ekki verið að tala um sætu málverkin sem prýða suma veggina. Allflestir fara til tann- læknis og bursta í sér tennurnar, því enginn vill missa tennurnar, og eru myndlistarmenn þar ekki undanskild- ir. Það sem ég er kannski að fara með þessari hugmynd minni, er að minna fólk á það að bursta í sér tennurnar og minna á tilverurétt þeirra sem hafa valið sér hið fórnfúsa starf að vera myndlistarmenn. Einnig að myndlistarmenn og tannlæknar geta unnið saman ef því er að skipta,“ seg- ir Snorri Ásmundsson um sýningu sína á Mokka sem verður opnuð í Kryddlegið kálfafile Griil kjúklingar 1.493,- kr. kg. 599,- - fyrir þig!

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.