Dagur - 05.11.1999, Page 7
FÖSTUDAGUR S . NÓVEMBER 19 99 - 23
_____________________________11 íTí
mm
rj Or'
Bílar og list
Á Vegamótastíg 4 í Reykjavík er sýningarsalur fyrir bíla og
listaverk og á morgun verður opnuð þar sýning á verkum eftir
myndlistarkonuna Sigurrósu Stefánsdóttur og ber hún þá við-
eigandi yfirskrift: „Á ferð". Þemað mun vera frjáls leikur með
línur og form, einnig bregður fyrir vegum, ám og vötnum en
manneskjan er þó miðpunktur myndverkanna enda mun hún
þrátt fyrir allt
vera mið-
punktur til-
verunnar.
Sýningin
stendur til
25. nóvem-
ber.
Dunganon í Listasafninu
Sautján valin verk
eftir Karl Einarsson
Dunganon, hertoga
af Sankti Kildu,
verða til sýnis í kaffi-
stofu Listasafns ís-
lands nú í nóvember
og desember.
Dunganon ánafnaði
íslenska ríkinu öllu
safni sínu, alls um
250 myndum. Dunganon varð goðsögn í lifanda lífi og upp-
spretta fyrir aðra listamenn, t.d. skrifaði Laxness um hann
tvær smásögur, Þráinn Bertelsson gerði myndina Paradísar-
víti og Björn Th. Björnsson skrifaði leikrit, sem sýnt var í
Borgárleikhúsinu fyrir nokkrum árum.
Hverfingar
Hverfingar heitir sýning fjögurra lista-
manna sem opnuð verður í Gerðarsafni
á morgun. Sýning þeirra Guðrúnar Krist-
jánsdóttur, Bjarna Sigurbjörnssonar,
Helgu Egilsdóttur og Guðjóns Bjarnason-
ar er hingað komin frá Kaupmannahöfn,
þar sem hún var sett upp á kirkjulofti
Trínitatiskirkjunnar við Sivalaturninn. Öll
sýna þau afstraktverk en Guðjón sýnir
jafnframt höggmyndir, stálstykki sem
hann hefur sprengt með dínamíti. Sýning-
in er opin frá 12-18 alla daga nema
mánudaga. Hún stendur til og með 21.
nóvember.
■ HVAD ER Á SEYBI?
dag.
Með þessum myndum sem Snorri
sýnir á Mokka er hann líka að gefa
myndlistarmönnum tækifæri á því að
gera gagn með því að minna fólk á
það að bursta tennurnar vel og vand-
lega og bæta þar með tannhirðu al-
mennings.
Lífríki lands og sjávar
og Fleiri þankastrik
I Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, standa nú yfir
sýningar á myndverkum Jóns Baldurs
Hlíðberg og málverkasýning Sigurðar
Magnússonar. Á sýningu Jóns eru
myndir af fuglum, fiskum, hryggleys-
ingjum og blómum og þar eru kynnt
mismunandi vinnubrögð á bak við
myndirnar með skissum og öðrum
vinnugögnum. Á sýningu Magnúsar
eru olíumálverk, sem öll eru máluð á
sl. tveimur árum, sýninguna kallar
Magnús „Fleiri þankastrik''. Myndirn-
ar eru fígúratívar og frásagnalegar og
vísa allar til mannsins og stöðu hans í
umbreytingum samtímans.
Hverfingar
Laugardaginn 6. nóvember verður
opnuð í Gerðarsafni sýning sem hlot-
ið hefur yfirskriftina Hverfingar. Þar
eru á ferðinni fjórir listamenn, þau
Guðrún Kristjánsdóttir, Bjarni Sigur-
björnsson, Helga Egilsdóttir og Guð-
jón Bjarnason.
Sýningin er hingað komin frá Kaup-
mannahöfn þar sem hún var sett upp á
kirkjulofti Trínitatiskirkjunnar við Sí-
valaturninn. I Danmörku hlaut sýning-
in mikla athygli og voru viðbrögð góð.
Meðal annars sagði gagnrýnandi Berl-
inske tidende að hér væri á ferðinni
afar vönduð sýning, kröftug og ljóðræn
í senn, sem enginn listunnandi ætti að
Iáta fram hjá sér fara.
Listamennirnir fjórir eiga allir að
baki margar sýningar og hafa öll
einnig sýnt erlendis áður. Guðrún
stundaði framhaldsnám í Frakklandi
og sýndi nýlega í New York, Guðjón
stundaði hins vegar nám í New York
og hefur sýnt þar, í Noregi, á Spáni
og víðar. Bjarni og Helga stunduðu
bæði framhaldsnám í San Francisco.
Helga er búsett í Kaupmannahöfn en
hin þrjú búa og starfa hér á landi.
Af verkum þeirra fjögurra má glöggt
sjá að möguleikar afstraktlistarinnar
eru langt frá því að vera tæmdir, enda
er framsetning þeirra í senn frískleg
og íhuguð. Sýning er opin frá 12 - 18
alla daga nema mánudaga. Hún
stendur til og með 21. nóvember.
Amerísk gæðadekk
fyrir jeppa og fólksbifreiðar
sóln/ng
Kópavogur • Selfoss • Njarðvík
Sýningu lýkur
Sýningu Erlings Jóns Valgarðssonar í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg lýkur á
sunnudag. Sýningin nefnist „Helgur
staður“ og er í baksal gallerísins.
FUNDIR OG MANNFAGNAÐIR
Ljóð Milos Lukas
Esperantistafélagið heldur fund kl.
20.30 í kvöld. Fjallað verður um Ijóð
Milos Lukas, talað um lýðræðislega
uppbyggingu Alþjóðlega esperantosam-
bandsins og rifjuð upp íslensk menn-
ingardagskrá, sem dreift var á hljóð-
böndum víða um heim á sjötta ára-
tugnum.
Málþing um þroskahefta for-
eldra og börn þeirra
Málþing um þroskahefta foreldra og
böm þeirra verður haldið á Hótel sögu
miðvikudaginn 10. nóvember 1999, kl.
9- 17.
Aðalfyrirlesarar eru Dr. Tim Booth pró-
fessor við háskólann í Sheffield og
Wendy Booth fræðimaður við sama
skóla. Þau hafa undanfarin ár unnið að
rannsóknum um þroskahefta foreldra og
böm þeirra og hafa nýlega gefið út tvær
bækur um þetta efni auk Qölda greina.
Þau hjónin njóta alþjóðlegrar virðingar
vegna þessara rannsókna og em meðal
\irtustu fræðimanna á þessu rannsókna-
sviði. Auk þeirra mun Rannveig Trausta-
dóttir, dósent við Félagsvísindadeild HI
kynna niðurstöður íslenskrar rannsókn-
ar um þroskahefta foreldra og börn
þeirra, sem hún hefur unnið ásamt
Hönnu Björg Siguijónsdóttur.
Málþingið er ætlað öllum sem vilja öðl-
ast þekkingu á aðstæðum þroskaheftra
foreldra og barna þeirra. Áhersla verður
á hagnýtar upplýsingar og fræðslu sem
nýtast mun þeim sem starfa með þess-
um Ijölskyldum svo sem félagsráðgjöf-
um, þroskaþjálfum, leikskólakennumm,
aðilum frá ungbamaeftirliti og fleimm.
Málþingið er öllum opið meðan húsrúm
leyfir. Aðgangur er ókeypis. Frekari upp-
lýsingar veitir Rannveig Traustadóttir
(rann\,t@hi.is) dósent við
Félagsvísindadeild HÍ sími 525-4523 (v)
555-2274 (h).
Ráðstefna á vegum
læknadeildar H.I.
I tilefni af starfslokum prófessoranna
Margrétar Guðnadóttur og Þorkels
Jóhannessonar, efnir læknadeild
Háskóla íslands til ráðstefnu í dag 5.
nóvember 1999, kl. 14:15 í sal 3 í Há-
skólabíói. Deildarforseti læknadeildar,
prófessor Jóhann Ágúst Sigurðsson,
setur ráðstefnuna. Boðið hefur verið til
landsins tveimur þekktum, breskum
fræðimönnum sem munu halda erindi:
Robin A. Weiss, PhD, FRS, prófessor í
veirufræði krabbameina, við University
College London flytur erindið: Xen-
otransplantation and infection og Ian
E. Hughes, BSc, PhD, prófessor í
lyfjafræði við Háskólann í Leeds flytur
erindið: Horses for courses - is
innovative teaching a winner for you?
Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku.
Allir eru velkomnir.
Subaru Legacy 2.0 4x4
Isuzu Trooper
Subaru Impresa 2.0 GL
Bifreiðaverkstæði \Æ£
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 461 2960 - Akureyri
Nissan Terrano
Það væri gott að vera á íjórhjóladrifnum bíl
Greiðslukjör við allra hæfi
Mikið úrval af nýlegum 4x4 bílum