Dagur - 05.11.1999, Side 8
24 - FÖSTUDAGUR 5 . NÓVEMBER 1999
Trio Parlando
Trio Parlando heldur tónleika í
Tíbrá röð 2 í Salnum í Kópavogi
á þriðjudagskvöldið kl. 20.30.
Tríóið var stofnað fyrir tæpum
tveimur árum af Rúnari Óskars-
syni klarinettuleikara, Hélene
Navasse flautuleikara og
Sandra de Bruin píanóleikara
sem kynntust við tónlistarhá-
skóla í Amsterdam. Á efnis-
skránni eru m.a. Ringing the
Changes eftir Andrew Ford,
frumflutningur á Bergmál eftir
Oliver Kentish, Rún eftir Elínu
Gunnlaugsdóttur og Sporð-
drekadans eftir Kjartan Ólafs-
son.
Hádegistónleikar á ný
Laugardaginn 6. nóvember held-
ur Björn Steinar Sólbergsson,
organisti, hádegistónleika í Akur-
eyrarkirkju kl. 12.00. Hádegis-
tónleikar hafa legið niðri um
skeið vegna leyfis Björns Stein-
ars. Meiningin með hádegistón-
leikum er að auka þátt orgelsins í
helgihaldi kirkjunnar. Á efnisskrá
tónleikanna verða verk eftir Max
Reger og Pál ísólfsson. Lesari á
tónleikunum er sr. Jóna Usa Por-
steinsdóttir.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis. Eftir tónleikana verður
boðið upp á léttan hádegisverð í
Safnaðarheimilinu.
Millistríðsáramúsík
Kvartettinn Út í vorið og Signý Sæmundsdóttir óperusöngkona halda
tónleika í Vinaminni á Akranesi í kvöld kl. 21:00 og ÍHveragerðiskirkju
á morgun kl. 17:00. Á efnisskránni ervinsæl millistríðsáramúsík, m.a.
frá þýska sönghópnum „Comedian Harmonists" sem og klassisk ís-
lensk kvartettlög, verk eftir Schubert og Donizetti. Söngkvartettinn er
skipaður Ásgeiri
Böðvarssyni, Einari
Clausen, Halldóri
Torfasyni og Por-
valdi Friðrikssyni.
Bjarni Þór Jón-
atansson leikur
undir á píanó.
—
■ HVAD ER Á SEYÐI?
íslensk sagnfræði
við árþúsundamót
Dagana 6. og 7. nóvember verður
haldin í Reykholti í Borgarfirði ráð-
stefnan „Islensk sagnfræði við árþús-
undamót“. Sýn sagnfræðinga á Is-
landssöguna. Ráðstefnan gefur
mönnum einstakt tækifæri til að fá
yfirsýn yfir og ræða um þróun sagn-
fræðinnar hér á landi, hvernig hún
hefur verið stunduð, hvaða viðhorf og
aðferðir hafa verið uppi á hverjum
tíma. Ráðstefnan er öllum opin og
eru áhugamenn um íslenska sagn-
fræði hvattir til að mæta. Þátttöku
skal tilkynna hjá Sögufélagi milli kl.
15 og 17 í síma 551-4620.
OG SVO HITT...
I Ijósaskiptunum
- þjóðsögur og sagnir fyrr og nó
Norræna bókasafnavikan er nú hald-
in þriðja árið í röð 8. til 14. nóvem-
ber. Vikan er samstarfsverkefni PR
hóps norrænna bókasafna og Nor-
rænu félaganna. Verkefnið hefur ver-
ið styrkt af norrænu ráðherranefnd-
inni og bókavarðafélögum Norður-
landanna. Að sögn Norrænu félag-
anna er Norræna bókasafnavikan
stærsti norræni menningarviðburður
sem nokkurntíma hefur verið hald-
inn. Einnig hefur hún fleiri þátttak-
endur og gesti en áður hafa sést. Þeg-
ar allt kemur til alls er þetta stórkost-
legur viðburður og er endurtekinn ár
eftir ár!
Tilgangurinn með bókasafnavikunni
er að vekja athygli á sameiginlegum
menningararfi okkar á Norðurlönd-
um. Þetta árið er vakin athygli á sam-
eiginlegri sagnaarfleifð okkar og því
var valið þemað Þjóðsögur og sagnir
- fyrr og nú. Hugmyndin er að Ijúka
öldinni með því að vísa til frásagnar-
listarinnar, listarinnar að segja sögu,
svo sem við þekkjum hana bæði úr
hetjukvæðum, þjóðsögum, ævintýr-
um, goðsögnum og nútíma flökkusög-
um sem byggja á dulúð og hjátrú og
þörf nútímamannsins fyrir slíkar
sagnir.
Blindrabókasafn Islands hefur gefið
út hljóðbók í tilefni Norrænu bóka-
safnavikunnar með upplestri á göml-
um og nýjum sögnum undir heitinu:
I ljósaskiptunum - þjóðsögur og
sagnir. Lesarar eru valinkunnir lista-
menn, þau Hjaiti Rögnvaldsson, Sif
Ragnhildardóttir, Jón E. Júlíusson og
Sigrún Sól Ólafsdóttir. Á þessari
hljóðbók má finna bæði brot úr
Kalevala og Rottupítsuna auk fjölda
annarra sagna.
Bókasöfn á öllum Norðurlöndum
taka þátt í upphafshátíð vikunnar
sem felst í því að: Mánudaginn 8.
nóvember - kl. 18.00 eru rafljósin
slökkt, kveikt er á kerti í bókasafninu
og lesinn sameiginlegur texti. I ár eru
það 1. hluti „Kalevala“ og flökkusag-
an „Rottupítsan“ eftir Bengt af Klint-
berg. Báðir textarnir eru á vefsíðu
vikunnar: http://www.nordisk-
biblioteksvecka.org.
Bókasöfn bjóða auk þessarar upp-
hafshátíðar upp á ýmsar dagskrár og
uppákomur alla vikuna og eru allir
velkomnir!
Félag eldri borgara
Asgarði, Glæsibæ
Kaffistofa opin alla virka daga frá ld.
10:00-13:00. Matur í hádeginu.
Sunnudagur, félagsvist kl. 13.30.
Dansleikur kl. 20.00 sunnudags-
kvöld, Caprí-tríó leikur fyrir dansi.
Mánudag brids kl. 13.00. Dans-
kennsla Sigvalda fellur niður næstu
vikur, byrjar aftur 6. desember.
Söngvaka mánudagskvöld kl. 20.30,
undirleik annast Sigurbjörg Hólm-
grímsdóttir, stjórnandi Eiríkur Sigfús-
son.
Þriðjudagur Skák kl. 13.00.
Upplýsingar á skrifstofu félagsins í
síma 588-2111 milli kl. 9:00 til 17:00
alla virka daga.
Jólabasar í Dagdvöl
Hinn árlegi haust- og jólabasar verð-
ur haldinn í Dagdvöl Sunnuhlíðar,
Kópavogsbraut 1, laugardaginn 6.
nóvember kl. 14.00. Seldir verða
handunnir munir, margt fallegt til
jólagjafa, einnig heimabakaðar kökur
og lukkupakkar. Kaffisala verður í
matsal þjónustukjarna og heimabak-
að meðlæti á boðstólum. Allur ágóði
rennur til starfsemi Dagdvalar, þar
sem aldraðir Kópavogsbúar dvelja
daglangt og njóta ýmissar þjónustu'
og félagsskapar.
Opið hús á Dalbraut
Þann 6. nóvember eru liðin 20 ár frá
því að Þjónustuíbúðir aldraðra að
Dalbraut 21-27 voru formlega teknar
í notkun. Voru þetta fyrstu íbúðir
sinnar tegundar á íslandi. Reykjavík-
urborg á og rekur þessar íbúðir. Oldr-
unarþjónustudeild Félagsþjónustunn-
ar í Reykjavík fer með rekstur húss-
ins. Sérstakur forstöðumaður veitir
rekstri forstöðu. Uthlutun íbúða er í
höndum sérstakrar úthlutunarnefnd-
ar. Umsóknum er skilað á Oldrunar-
þjónustudeild Síðumúla 39. Hér er
um að ræða 46 einstaklingsíbuðir og
18 hjónaíbúðir. Dagdeild fyrir aldr-
aðra er starfrækt í tengslum við íbúð-
irnar. Þjónustuíbúðir aldraðra að
Dalbraut 21-27 eru Iiðir í þeirri við-
leitni Reykjavíkurborgar að gera
öldruðum kleift að búa sem lengst
sem sjálfstæðir og sjálfráða einstak-
lingar. Þetta form gengur næst hinu
áður þekkta vistheimilaformi hvað
varðar alla þjónustu við íbúa. Enda
hefur komið í ljós að þjónustan eykst
í samræmi við þarfir íbúanna. íbúð-
irnar eru ekki reknar á daggjaldakerfi
heldur greiða íbúar húsaleigu, þjón-
ustugjald og fæði. Þetta rekstrarform
felur í sér fullkomnustu heimilisþjón-
ustu sem völ er á.
I tilefni af þessum tímamótum verður
„opið hús“ á Dalbrautinni laugardag-
inn 6. nóv. kl. 14-16 þar sem fólki
gefst kostur á að skoða húsið og
kynna sér það starf sem fer fram.
Jafnframt verður glæsileg sýning á
handavinnu íbúa og dagdeildargesta
opin á sama tíma. Þar er unnt að
gera góð kaup á fallegum handunn-
um munum.
Bazar Húsmæðrafélags
Reykjavíkur
Hinn árlegi bazar Húsmæðrafélags
Reykjavíkur verður haldinn sunnu-
daginn 7. nóvember að Hallveigar-
stöðum við Túngötu og hefst hann kl.
14.00. Mikið úrval af fallegri og
vandaðri handavinnu, lukkupakkar og
ýmislegt smálegt sem kemur á óvart.
Kirkju- og kaffisöludagur
Húnvetningafélagið í Reykjavík verð-
ur með sinn árlega kirkju- og kaffi-
söludag á sunnudaginn. Kl. 14.00
verður messa í Kópavogskirkju og
taka leikmenn þátt í athöfninni. Kl.
14.30-16.00 verður kaffisala í Húna-
búð, Skeifunni 1 1.
LANDIÐ
TÓNLIST
Land og Synir á tónleikaferð
Hljómsveitin Land og Synir leikur á
Hótel Mælifelli á Sauðárkróki föstu-
dagskvöldið 5. nóv. og í Sjallanum,
Akureyri laugardagskvöldið 6. nóv.
Utgáfutónleikar Lands og Sona verða
í Bíóborginni fimmtudaginn 11. nóv.
þar sem væntanleg breiðskífa, Her-
bergi 313 verður opinberlega kynnt,
miðar fást í Samtónlist í Kringlunni,
miðaverð aðeins 1000 kr.
Óbyggðirnar kalla
KK og Magnús Eiríksson halda tón-
leika á Café Menningu á Dalvík í
kvöld. Strax eftir tónleikana taka svo
Maggi Olafs og Sævar Sverris við.
OG SVO HITT...
Hagyrðingakvöld á Dalvík
Laugardagskvöldið 6. nóvember kl.
21.00 verður Hagyrðingakvöld á Café
Menningu á Dalvík. Fram koma:
Björn Ingólfsson Grenivík, Pétur Pét-
ursson læknir Akureyri, Stefán Vil-
hjálmsson Akureyri, Ósk Þorkelsdótt-
ir Húsavík og Ólina Arnkelsdóttir.
Stjórnandi er Birgir Sveinbjörnsson.
Hvað er á seyði?
Tónleikar, sýningar,
fyrirlestrar o.s.frv...
Sendu okkur upplýsingar á
netfangi, í símbrófi eöa hringdu.
ritstjori@dagur.is
fax 460 6171
sími 460 6100
Útvörður upplýsinga
, um allt land.
Áakriftarsiminn ar 800-7080
Það besta á
skjánum
Jim Morrison
Kvikmyndin The Doors er frá árinu 1991 og fjallar um banda-
ríska rokksöngvarann Jim Morrison og hljómsveit hans, Doors.
Jim Morrison sem fæddur var á Flórída árið 1943, nam kvik-
myndagerð í Los Angeles en sneri sér að tónlistinni þegar
hljómsveitin Doors var stofnuð 1966. Hljómsveitin vakti strax
gífurlega athygli og þá sérstaklega fyrir kraftmikla sviðsfram-
komu. Morrison átti við erfiðleika að etja í einkah'finu og varð
háður eiturlysíjum sem drógu hann til dauða í París 1971, að-
eins 27 ára að aldri.
Aðalhlutverk: Val Kilmer, Frank Whaley, Kevin Dillon, Meg
Ryan, Kyle Maclachlan og Billy Idol. Leikstjóri: Oliver Stone.
Sýnd á Stöð 2 í kvöld kl. 22.35.
Brotin ör
Broken Arrow - Brotin ör er há-
spennumynd frá árinu 1996 og
segir frá flugmönnum í leynilegri
sendiför með kjarnaodda þegar
flugvéhnni er rænt.
Aðalhlutverk: Christian Slater,
John Travolta, Samantha Mathis,
Delroy Lindo og Bob Gunton.
Leikstjóri: John Woo. Sýnd á Sýn
á laugardagskvöldið kl. 21.00.
ffið ljúfa líf
Kvikmyndin The Sweet Hereafter - Hið ljúfa líf er frá árinu
1997 og lýsir á áhrifaríkan hátt hvernig lítið samfélag verður
fyrir þungu áfalli þegar meirihluti barnanna í bænum deyr í
hræðUegu rútuslysi. Lögræðingur nokkur reynir að fá bæjarbúa
til að lögsækja þá aðila sem eru hugsanlega ábyrgir fyrir slys-
inu.
Aðalhlutverk: Ian Ilolm, Maury Chaykin og Peter Donaldson.
Sýnd á Stöð 2 á laugardagskvöldið kl. 21.00.
Sjálfvirkiim
í sunnudagsleikhúsinu í
Ríkissjónvarpinu á
sunnudagskvöld kl.
19.45 verður
sýnd sjónvarpsmyndin
Sjálfvirkinn sem er
byggð á handriti Barkar
Gunnarssonar um
mann sem fær ekki flú-
ið kúgun sína.
Aðalhlutverk: Laddi,
Lilja Þórisdóttir, Pálína
Jónsdóttir, Þorvarður
Helgason, Bergur Þór
Ingólfsson, Árni Pétur
Guðjónsson og Bjarni-
Þór Þórhallsson.
Leikstjóri: Júlíus
Kemp.