Dagur - 05.11.1999, Qupperneq 9

Dagur - 05.11.1999, Qupperneq 9
LÍFIÐ í LANDINU Hún hefurstundað hall- ettfráflmm ára aldri. í dag erhún meðal fremstu nútímaballett- dansara Noregs. Dans- að um Evrópu, alltfrá Ósló til Rómar. Draum- urinn aðkomameð dansflokkinn tilís- lands. Halldís Ólafs- dóttirheitirhún og er hálfuríslendingur. Hún á norska móður, Kirsten Aarstadfrá Hallingdal. FaðirhennarerAkureyr- ingurinn ÓlafurHall- grímsson, lækniríNor- egi,þarsem Halldís er fædd. „Ég er fædd í Drammen og þar bjó fjölskyldan þar til ég var eins og hálfs árs gömul. Þá fluttum við til Bærum, þar sem ég er alin upp. Móðir mín er norsk og við töluðum saman á norsku á heim- ilinu. Þess vegna tala ég ekki ís- lensku. Maður hugsaði ekkert út í svoleiðis þegar maður var krakki en í dag fyndist mér dýrmætt að geta talað íslenskuna. Eg skil hana ágætlega en því miður á ég erfitt með að tjá mig á íslensku.“ - Þó Halldís tali ekki íslensku er það annað mál sem hún tjáir sig á hetur en jlestir aðrír. Það er dans- inn. Ballettinn hefur átt hug hennar allan frá unga aldri. Hvemig stóð á því að þú fórst í ballett. Nú er það ekki eimnitt það seni böm velja sér sem ævislarf? „Fyrsti skólinn sem ég sótti var Impro Ballettskole. Mamma hvatti okkur systurnar til að byrja í ballett. Þangað fór ég fimm ára gömul. Arið var 1972. Ég kom síðan íyrst fram á sýningu í Sand- vika, sem er bær steinsnar frá heimili mínu. Eg varð strax hug- fangin af ballettinum og þar með má segja að framtíðarstefna mín hafi verið mörkuð. Frá Impro Ballettskole lá leiðin í Den Norske Operas Ballett- skole, þar sem ég lærði sígildan hallett á árunum 1978-1984. Ég var tvö af þessum árum samtímis á dansbrautinni í Fagerborg menntaskólanum, sem býður upp á listgreinar í námskrá sinni. Með þessari mcnntun fékk ég mjög góðan grunn undir starf mitt í dag. Ég hef aldrei séð eftir að hafa valið þessa listgrein sem mitt ævi- starf. Það er mikilvægt fyrir mig að geta tjáð mig í dansinum og gcta lifað af listinni.-1 Róm, Paiís, London og Ncw York - Enginn verður óharinn biskup. Það á ekki stður við um þá sem leggja báUétiihn fyrír sig.'Fölk í Halldís hefur oft dansað á Eurovisjón-tón/eikum norska sjónvarpsins. Hér dansar hún í verki eftir Sölve Edwardsen. listageimnum fullnægir ekki metnaði sínum nemu með menntun og þrotlausum æf- ingum. Hvaða leið fara norsk ungmenni til að koma sér úfram í danslistinni? „Það er alveg rétt hjá þér. Það er nú svo með dansinn, eins og aðrar listgreinar að maður nær engum árangri nema vera stöðugt á tánum. Maður verður stanslaust að sækja þjálfun og símenntun, hvar sem hana er að finna. Ég hef lagt áherslu á þetta. I dansi verður maður aldrei út- lærður. Ég hef reynt að vera dugleg að sækja námskeið til ýmissa staða í heiminum til að fylgjast sem best með því sem er að gerast á hveijum tíma.“ Meðal þessara „ýmsu staða" sem Halldís nefhir eru há- borgir heimsmenningarinnar, Róm, París, London og New York, auk t.d. Cannes og Stokkhólms. - Eru góðir ballettskólar í Noregi? „Það held ég að ég geti al- veg sagt. Norski ríkisballettskól- inn er góður skóli. Það er gaman að segja frá því að það voru tvær íslenskar stelpur við nám þar en eru nú útskrifaðar. Onnur þeirra hefur fengið vinnu hér í Noregi. Ég held að þessi skóli geti verið góður kostur fyrir Islendinga sem hyggja á nám í ballettdansi." Aívinmulaiisari 1 sautján ár - Þú ert búin að vera æði lengi í dansinum þó þú sért ekki gömul? „Það er rétt. Ég hef dansað í sautján ár. Ég byrjaði sem at- vinnudansari sextán ára gömul. A þessum sautján árum hef ég verið í föstu starfi í þrjú ár. Það var hjá atvinnudansflokki sem heitir Nye Cártc Blánclié' ög Vár dárisfiökúf á vegum ríkisins á sama hátt og Operubalettinn, sem nú heitir reyndar Þjóðarballettinn. Sá ball- ett starfaði lengst af í Ósló en síð- ast í Bergen á árunum 1989- 1992. Það eru aðeins þessi tvö balletthús sem eru starfandi á vegum ríkisins og því eru atvinnu- möguleikamir ekld mjög miklir iyrir þá sem útskrifast út úr þeim mörgu skólum í Noregi sem kenna Iistdans. Arið 1987 var ég valin til að dansa fyrir Noreg í Evrópukeppni ungra dansara, sem fram fór í Þýskalandi. Ég dansaöi nútíma- dans sem var óvenjulegt á þcim tíma. Þrátt fyrir að um keppni hafi verið að ræða var keppend- unr ekki raðað upp eftir frammi- stöðu nema í þrjú fyrstu sæt- in. Mér fannst þetta ganga mjög vel þó ég væri ekki fuíl- komlega ánægð með kóreógrafíuna. Ég veit því enn ekki í hvaða sæti ég lenti þarna. Það er alltaf spennandi andrúmsloft í kringum svona uppákomur. En mér finnst ekki eðlilegt að stilla listgrein- um upp eins og einhveijum keppnisíþróttum." - Nútímaballett er mun fyr- irferðameiri en hefðbundinn ballett d verkefnaskrá þinni. Hvers vegna er það? „Já þetta er rétt. Ég nýt þess að horfa á klassískan ballett fyrir þá fegurð og teknisku ná- kvæmni sem hann krefst. Ég dansaði um tíma klassískan ballett í Þjóðarballettinum. Þar dansaði ég í verki sem heitir Fjórar Skapgerðir eftir George Balanchine. Ég held að fólkinu þar hafi þótt ég of há, þar sem ég er 177 cm á hæð. Á þeim tímum voru allar ballettstúlkur á bilinu frá 150- 160 sentimetrar á hæð. Ég var því höfðinu hærri en þær. I dag er þetta orðið öðruvísi og margir klassískir ballettdansarara eru hávaxnir. En ég valdi snemma að tjá mig í nútíma ballett. Þannig l’æ ég rými og möguleika á að leita að nýjum leiðum til að spegla samtíðina." Langar að sýna á íslandi - Þegar maður skoðar ferílskrátta þína sér maður að þú hefur víða farið og dansað fyrir mun fleiri þjóðir en Norðmenn. „Þessu starfi fylgja mikil ferða- lög. Frá 1994 hef ég unnið í dansflokki sem heitir „lngun Björnsgaard Prosjekt'*. Ingun er eitt stærsta nafnið í norskum nú- tímaballett og flokkurinn okkar er atvinnudansflokkur sem fær m.a. laun frá ríkinu vegna árangurs sfns. Dansflokkurinn okkar tók þátt í hundrað ára afmælissýn- ingu Þjóðleikhússins í haust. Þar unnu bæði leikarar og ballett- dansarar saman við að skapa nýtt verk sem heitir „stor stue for ingenting.no". Okkur hcfur verið boðið að setja upp sýningar víða um Evr- ópu. Við höfum komið fram í Róm, Hamborg, Brussel, Ant- verpen og London svo einhverjar borgir séu nefndar. Síðan höfum við sýii. í öllum höfuðborgum Norðurlandanna nema í Reykja- vík. I síðasta verki okkar, „Plí a Plí“, er dans og leiklist (orðalaus) samofin samtímis sem verkiö rýmir bæði kímni og alvöru. Það er draumur minn að koma til Is- lands með þetta verk.“ Égerllstdansari - Þú hefur gert töluvert að því að semja dansa. „Já, já. En ég er samt fyrst og fremst dansari. Ég lít ekki á mig sem koreograf hcldur sem Iist- dansara. Ég samdi ballett fyrir sýningu í fyrra sem hét Wis- selvverkingAékselvirkning í sam- vinnu við hollensku myndlista- konuna, Inge van der Drift. Það var spennandi að tengja þessar tvær Iistgreinar saman. Verkinu var mjög vel tekið. Mér finnst mjög áhugavert að starfa með danshöfundinum Ing- unni Björnsgaard. Ég aðstoðaði hana, sem danshöfundur, fyrir sýningu í Óperunni f Stokldiólmi í fyrra. Hún nær svo vel að tvinna saman leiklist og dans.“ - Nú er lífið ekki bara ballett- dans á rósum. Það er líha leikur. Hvað gerir þú þegar þiír ert ekki að æfa og sýna. Hefurðu einhver sérstök áhugamál? „Mín áhugamál tengjast öll ljöl- skyldu minni og vinum. Ég reyni að nota sem mest af frítíma mín- um með kærastanum mínum og syni. Kærastinn, Frode Larsen, er líka listamaður. Hann er fiöluleik- ari. Sonur minn er sjö ára og heitir Baldur". Li.stin ekki lrenist í forgangsröðinni - Halldís er aldeilis eklti atvinnu- laus listakona. En hvernig gengur atvinnu ballettdansara að lifa af listinni í Noregi? „Ég er svo heppinn að mér hef- ur alltaf gengið vel í listinni og því farin að fá listamannalaun frá norksa ríkinu, tæplega 1400 þús- undir ísl. króna á ári. Eftir að mér hlotnaðist þessi heiður er starfs- öryggi mitt auðvitað allt annað. Þau bætast við þau laun sem ég hef hjá dansflokknum. Nú þarf ég ekki að hafa áhyggjur af lífsbar- áttunni til viðbótar álaginu sem fylgir starfinu. En áður en ég fékk þessi viðbótarlaun var ekkert auð- velt að láta enda ná saman. I Norcgi, eins og víða annarsstaðar, er listin aftarlega hjá stjórnvöld- um þegar kemur að því að deila út peningum úr sameiginlegum sjóðum. Samt hafa afskipti ríkis- valdsins breyst til batnaðar und- anlárin ár að því leyti að nú er þcim peningum, sem varið er til lista, ekki dreift jafn mildð í alls- konar smástvrki og áður var. Þeir sem skara fram úr fá nú meira en áður.“ - GÞÖ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.